Dagblaðið - 04.11.1975, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 04.11.1975, Blaðsíða 7
Magblaðið: Þriðjudagur 4. nóvember 1975. 7 Erlendar fréttir 1 REUTER I Franco lifír enn Liðan Francos hershöfð- ingja á Spáni er enn mjög al- varleg. I gærkvöldi gekk hann undir skurðaðgerð, sem ætlað var að stöðva magablæðing- arnar er hafa hrjáð hann að undanförnu, og sáu læknar hans ástæðu til að senda frá sér tilkynningu að henni lok- inni, þar sem sagði að ,,el Caudillo’’ hefði lifað aðgerð- ina af. Það var ekki fyrr en eftir langa og stranga fundi, að læknar tóku ákvörðun um að gera tilraun til að stöðva blæðingarnar. Meðan á að- gerðinni stóð fékk Franco hálfan áttunda litra af blóði. Hann var á skurðarborðinu i þrjá tima. Herœfingar undir- bónar í Portúgal — dulbúið valdarán, segja róttœkir hermenn Copcon, öryggislögregla portú- galska hersins, neitaði i morgun fréttum vinstrimanna, sem óttast valdarán hægrisinna, að fyrir dyrum stæðu þriggja daga heræf- ingar frá og með föstudegi. í yfirlýsingu frá Copcon sagði að hinar þrjár deildir hersins, landher, sjóher og flugher, undir- byggju æfingar til varnar land- inu, en áætlanir þar að lútandi væru á byrjunarstigi og i fyrsta lagi fullgerðar á laugardag. Fréttir um heræfingarnar bár- ust frá hópi róttækra vinstri her- manna, sem hafa helztu útvarps- stöðvar og dagblöð á valdi sinu. Sagði i fréttum hermannanna, að hersveitir hægrimanna hygðust taka Lissabon með valdi á meðan sveitir úr landher umkringdu borgina i „heræfingunum”. 1 yfirlýsingu' Copcon var látið að þvi liggja, að nefndar heræfingar færu ef til vill alls ekki fram að þessu sinni. Sögúsagnir um yfirvofandi byltingu i Portúgal hafa verið mjög áberandi i landinu og magn- ast heldur en hitt er nær dregur sjálfstæðisdegi Angola, sem verður á þriðjudaginn kemur. t skýrslum vinstrisinnanna sagði einnig, að heræfingarnar væru samfara hernaðaraðgerð- um gegn vinstrihreyfingu sjálf- stæðissinna i Angola, MPLA, sem berst þar um völdin við tvær aðrar sjálfstæðisfylkingar. ÍMPLA hefur höfuðborgina Luanda á valdi sinu, en hefur ný- lega misst tvær mikilvægar hafn- arborgir norðar i landinu i hendur andstæðinga sinna. Réttar- höldin yfír Fromme hefíast í dag Lynnette „Squeaky” Fromme, fyrsta konan sem ákærð er fyrir að haí'a reynt að myrða Bandarikjaforseta, kemur fyrir rétt i Sacramento i Kaliforniu i dag. Miklar varúðarráöstafanir hafa verið gerðar til að verrida lif hennar og limi. Hún á yfir höfði sér allt að lifstiðarfangelsi fyrir að hafa beint 45 kalibera skamm- byssu. hlaðinni, að forsetan- um i ekki nema 60 cm fjarlægð 5. september sl. Réttarhöldin yfir Fromme eru sérstæð á margan hátt. i fyrsta lagi gerist það nú i fyrsta skipti i sögu Bandarikj- anna, að forseti ber vitni með sjónvarpsupptöku. sem gerð hefur verið áður. Ford var yfirheyrður af John Virga. löglræðingi Frommes. i Hvita húsinu á laugardaginn. Er sú upptaka 19 minútna löng. Þetta er einnig i fyrsta skipti, sem réttað er á grund- velli laga um tilræði við for- setann, en þau voru sett 1967. Umsátrið í Monastervin „Frjáls undankoma eina krafan"hoitnL llolltMi/.kur sjónvarpsfréttamaður sagði i gær- # * kviildi. að luinu lielði lullkomnar upplýsingar um að I fC T T OíllO vUI mamiræningjarnirEddieGallagher og Marian Coyle væru rtMðuhúin að láta hoiienzka iðnrekandann l'iede Ilerrema lausan gegn frjálsri undankomu til llolla nds. I'réttamaðurinn kvaöst einnig hala öruggar upp- Ivsiugar um að ..ákveðið riki i Norður-Afriku” væri reiðuhúið að veita skæruliðunum tveimur hæli. Fréttamaðurinn er Wibo Van de Linde, sem starfar fyrir sjálf- stæöa sjónvarpsstöð i Haag. llann vildi ekki nafngreina heimildar- menn sina, þar sem „þeir verða - eöa vilja — að taka þátt i þessu máli", trskur verkalýðsforingi. sem hefur verið milligöngumaöur i mannránsmálinu, Philip Flynn, kom fram i sjónvarpsþætti de Lindes og svaraði spurningu um gang mála. ,.Eg er nokkuð viss um að krafan sé aðeins ein núna, og hún er frjáls undankoma Mari- ans og Eddies.” Flynn bætti þvi við, að i sinum augum væri sú krafa mjög ejnföld og auöleyst, en „greinilega er irska stjórnin á annarri skoðun. hún telur að hér sé um miklu meira mál að ræða og svo er nátt- úrlega ekkert mjög einfalt i þeirra augum.” Van de Linde sagði Flynn hafa sagt við sig: „Segðu Hollending- um, að ef þetta heldur svona áfram, þá verði komin jól áður en Herrema losnar.” í Monastervin, þar sem Herrema er i haldi, er allt við það sama, en greinilega eru ræningj- arnir orðnir dálitið spenntir, þvi i morgun báðu þeir um höfuð- verkjatöflur. Með ýmsum útbún- aöi getur lögreglan nú fylgzt með öllu, sem gerist á efri hæð húss- ins. þar sem Herrema er ásamt ræningjunum tveimur. Aljekín-skákmótið í Moskvu Spasskíj tapaði fyrír Celler í úrslitaskákinni Boris Spasskij, fyrrum heimsmeistari i skák, sýndi gamla snilli á fyrsta skák- mótinu, sem hann tekur þátt i siðan hann gekk i það heilaga i september. Á Aljekin-minning- armótinu. sem lauk i Moskvu i gærkvöldi, lenti Spasskij i öðru sæti. Sigurvegarinn kom mjög á óvart, en hann er enginn annar en sjálfur Efim Geller. Spasskij og Geller tefldu til úrslita og sigraði Geller. Allir sterkustu skákmenn Sovétrikjanna og viðar að tóku þátt i mótinu. Úrslit voru sem hér segir: vinn. 1. Efim Gller............10 1/2 2. Boris Spasskij........10 3.-5. Rafael Vaganyan, Viktor Kortsnoj, Ratmir Kfiolmov 9 1/2 6.-7. Vlastimil Hort (Tékkó) og Tigran Petrosjan .....9 8.-9. Alexander Belyavsky, Mikhail Tal.....'..... .'.8 1/2 10. Geza Forintos (Ungverjal.)........7 1 l.Robert Byrne (USA) ... 6 12.-13. Silvino Garcia (Kúba)og Levente Lengyel (Ungverja- land.) 5.1/2 14. Albin Planinc (Júgóslavia) ........5 15. Michael Stean (Bretl.)...4 16. Hans Boem 1 Holland ).. 3 Göngunni miklu frestað í bili Marokkó hefur frestað göngu 350 þúsund landsmanna á Vestur-Sahara, sem er undir stjórn Spánar, og jafnframt gefið i skyn að ákvörðun um dagsetningu velti nú á gangi viðræðna við spænsku stjórnina. Gangan átti að hefjast i dag og samkvæmt fréttum i Agadir i Marokkó biða nú þegar 350 þús- und manns eftir að Hassan konungur gefi grænt Ijós á ferðina. 1 Madrid átti forsætis- ráðherra Marokkó, Ahmed Osman, þriggja klukkustunda fund með Júan Carlosi prins. en ekkert hefur verið gefið upp um gang þeirra viðræðna. 1 E1 Aaiun, höfuðborg spænsku Sahara, halda spænsk hernaðaryfirvöld áfram að undirbúa sig fyrir striðsátök. ef af göngunni miklu verður. Þar eru 2000 Evrópumenn. sem fluttir verða á brott i dag og á morgun. Waldheim. framkvæmda- stjóri Sameinuöu þjóðanna, heldur áfram sáttatilraunum sinum skv. ósk. öryggisráðs SÞ. Rockefeller styður Ford — þótt hann vilji ekki vera varaforseti nœsta kjörtímabil Rockefeller, varafor- seti Bandarikjanna, hefur fullvissað Ford forseta um stuðn- ing sinn við útnefningu forsetaefnis Repúblik- anaflokksins á næsta ári, að þvi er Ford sagði i Washington i nótt. Ford er þannig talinn hafa bundið enda á skeggræður um að Rockefeller, sem ekki hyggst bjóða sig fram i embætti varaforseta ásamt Ford, hyggist bjóða sig fram i embætti forseta. Þegar forsetinn var spurður hvort hann hefði i hyggju að fá Ronald Reagan, fyrrum fylkis- stjóra i Kaliforniu, til að verða varaforsetaefni sitt, svaraði hann þvi til, að nægur timi væri til stefnu til að ihuga slikt. Forsetinn sagði Rockefeller hafa tekið þessa ákvörðun algjör- lega upp á eigin spýtur og hefði hann (Ford) sjálfur sizt átt þar hlut að máli.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.