Dagblaðið - 10.11.1975, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 10.11.1975, Blaðsíða 7
Pagblaðið. Mánudagur 10. nóvember 1975. Erlendar fréttir Konuraðtaka við stjórninni Fyrstu byggðakosn- ingarnar, sem fara fram i Laos undir kommúniskri stjórn, hafa gjörbreytt valda- hlutfallinu milli karla og kvenna i landinu. Sextán manns, sem fram til þessa hafa verið óþekktir byltingarmenn i her Pathet Lao, voru kjörnir til byltingar- nefndar alþýðu Vientiane, svo dæmi séu nefnd. Úr þeim hópi voru siðan kjörnar þrjár konur og tveir karlar til að sitja i framkvæmdanefndinni. Spónif vill láta SÞ taka við stjórn Vestur-Sahara Rikisstjórn Spánar virðist vera þess albúin að afsala sér völdum i hendur Sameinuðu þjóðanna á meðan samninga- viðræður við stjórnir Marokkó, Alsir og Máritaniu um framtið Vestur-Sahara fara fram. Heimildir innan spænsku stjórnarinnar herma, að stjórnin i Madrid sé þess reiðu- búin að láta yfirstjórn hersveita sinna i Sahara i hendur SÞ og að samtökin stjórnuðu landinu i sex mánuði. Talið er að Hassan konungur Marokkó sé nú reiðubúinn að hefja alvarlegar samningavið- ræður um ágreiningsatriðin. Þegar konungur skipaði þegnum sinum að snúa við og hætta við gönguna, þar sem hún hefði náð tilgangi sinum, kvaðst hann vera stoltur af göngu- mönnum, sem hefðu skrifað blað i sögu marokkönsku þjóðarinnar. „Sú saga verður lesin af komandi kynslóðum,” sagði konungur, ,,á sama hátt og við höfum lesið um göngur Xenophons og vinar okkar Maós.” Sagt er að Spánverjar hafi gert Hassan konungi tvo kosti, annaðhvort að skotið yrði á göngumenn héldu þeir áfram eða að Sameinuðu þjóðunum yrði fengin stjórn landsins i hendur þegar i stað. A hvorn veginn sem væri hefði konungur átt yfir höfði sér að blóð færi að streyma — i bar- dögum annaðhvort við her- sveitir Sjiánar eða Alsirs, sem lýst hafði þvi yfir, að barizt yrði til að koma i veg fyrir töku Marokkó á Vestur-Sahara. Göngumenn lögðu þegar af stað aftur til Marokkó og er hljóðið i þeim sagt mun daufara en við upphaf ferðarinnar. Þessir spænsku hermenn i Sahara voru reiðubúnir til að skjóta á gönguniennina frá Marokkó. Dæmi um veðurfar á þessu svæði er að byrgja þarf byssuhlaupin með segli, svo þau fyllist ekki af sandryki. URSKURÐUR I MAU KARiNAR ANNl QUINIAN KIMUR í DAG Robert Muir, dómari i Morristown i New Jersey i Bandarikjunum, mun i dag kveða upp úrskurð um hvort Karen Anne Quinlan, sem verið hefur i dái i sex mánuði, fær að deyja. Dómarinn mun skýra máls- aðilum frá ákvörðun sinni kl. 16.30 i dag að islenzkum tima og verður úrskurður hans gerður opinber 45 minútum siðar. Réttarhöldin i máli þessu eiga sér enga hliðstæðu i bandariskri réttarfarssögu. Stóðu þau i fimm daga. Þar lýstu sjö læknar þvi yfir, að Karen ætti sér ekki bjargar von, enda hefur hún orðið fyrir miklum heilaskemmdum. Nokkrir læknanna lýstu henni sem „mannlegu grænmeti”. Hver sem úrskurður dómarans verður, þá verður honum áfrýjað til æðri dómstóla. Mál þetta hefur vakið heimsathygli og miklar heim, bæði meðal leikra og umræður og deilur um allan lærðra. tM assijuiírmiu i y £ O' -Cj! r7^' C' j r Að sögn er Karen Anne Quinian engu lik orðin, þar sem hún liggur í hnipri i sjúkrarúmi á St. Clair sjúkahúsinu I Morristown. Hún er nú að- eins 31 kg að þyngd. Gervinýra heldur Franco lifandi Francisco Franco berst enn við dauðann þremur dögum eftir að mikil skurðaðgerð var gerð á honum, þar sem rúmlega tveir þriðju hlutar magans — með blæðandi sárum — voru f jarlægðir. Tuttugu og fimm læknar eru nú stöðugt yfir hershöfðingjanum. I tilkynningu, sem gefin var út í morgun, sagði að liðan Francos væri hin sama, uppskurðurinn hefði tekizt mjög vel, en hershöfðinginn ætti enn við að stríða blóðtappa og æðabólgur í vinstra læri. Þá munu nýrun vera orðin óstarfhæf og er nú notað gervinýra til að halda gamla manninum lifandi. 1 Fljúgandi diskur lagði skógarhöggs- mann að velli Sex skógarhöggsmenn í Heber í Arizona í Banda- ríkjunum verða látnir gangast undir lygamælis- próf til að kanna sann- leiksgildi sögu þeirra um að sjöundi maðurinn úr þeirra hópi hafi horfið eftir að hafa orðið fyrir bláum geisla úr fljúgandi diski. Mennirnir, sem vinna í Apache-þjóðgarðinum í nágrenni Heber, sögðust hafa verið á heimleið um sólarlag á miðvikudag- inn, þegar þeir sáu hlut — líkan fljúgandi diski — svífa yfir veginum fyrir framan þá. Einn þeirra, Travis Walton, 22 ára, stökk út úr bílnum til að kanna málið nánar. Að sögn lögreglustjór- ans á staðnum, Marvins Gi I lespíes, seg j a mennirnir að Walton haf i orðið fyrir bláum Ijós- geisla frá furðuhlutnum og að hann hafi fallið til jarðar. Sexmenningarnir voru skelf ingu lostnir og óku á brott án þess að taka Walton með sér. Þegar þeir snéru aftur f immtán mínútum síðarsástekkert til Waltons eða fljúgandi disksins. Lögreglan hefur leitað dyrum og dyngjum að Walton en án árangurs. Merki um bruna á vegin- um hafa heldur engin f undizt. Gillespie lögreglustjóri sagði fréttamönnum í morgun, að hann væri ekki ,,fullkomlega van- trúaður" á sögu mann- anna. 500 ára nýlendustríði Portúgala í Afríku lýkur í Angola í kvöld — þrjár frelsisfylkingar fýsa yfir sjálfstœði landsins Hvað gerist eftir að portúgalski fáninn hefur verið dreginn niður i Luanda, höfuð- borg Angola, i siðasta skipti i kvöld, virðist enginn vita. Portúgalski landsstjórinn i Luanda mun i dag halda blaða- mannafund, þar sem hann mun útskýra hvernig — og hvort — portúgölsk yfirvöld hyggjast af- sala sér völdum i hendur sex milljón ibúum landsins. Angola fær sjálfstæði á mið- nætti i nótt og lýkur þar með fimm hundruð ára nýlenduveldi Portúgala i Afriku. Stjórnin i Lissabon hefur lýst þeirri afstöðu sinni, að ekki komi til mála að afhenda völdin i hendur einni þriggja frelsis- hreyfinga, sem nú berjast inn- byrðis eftir 13 ára strið gegn yfirráðum Portúgala. Einingarsamtök Afriku hafa skorað á fylkingarnar þrjár, MPLA, FNLA og UNITA, að mynda samsteypustjórn. Ölik- legt er talið aö það takist i dag. MPLA, sem stjórnar höfuðborg- inni Luanda, hefur ekki verið boðið að vera við athöfnina, er portúgalski fáninn verður dreg- inn niður. Er það gert til að sýna ekki fram á stuðning við eina frelsisfylkinguna fremur en aðra. Höfuðstöðvar FNLA og UNITA eru inni i miðju landi. Yfirstjórn MPLA i landinu hefur lýst þvi yfir, að á miðnætti muni fáni veröa dreginn að húni i höfuðborginni og fylkingin muni taka við völdum i landinu sem hinn eini löglegi aðili til að stjórna þvi. Búizt er við, að bæði FNLA og UNITA muni halda svipaðar at- hafnir i höfuðborgum yfirráða- svæða sinna. Að minnsta kosti fjórar þjóðir hafa sent fulltrúa sina til að vera viðstadda hátiðahöldin i Luanda. Hafa þær þjóðir ákveð- ið að viðurkenna rikisstjórn MPLA. Er þar um að ræða fyrr- um nýlendur Portúgala i Afriku: Gineu Bissau, Cape Verde og Timor auk Nigeriu. Búizt er við fulltrúum frá fleiri þjóðum, þ.á m. einhverj- um fulltrúa frá Skandinaviu. Einu Afrikurikin, sem ekki fengu boðskort frá yfirstjórn MPLA, voru Suður-Afrika, Ródesia og Zaire, sem styður FNLA.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.