Dagblaðið - 10.11.1975, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 10.11.1975, Blaðsíða 19
Oagblaðift. Mánudagur 10. nóvember 1975. 19 „Komið þið nú, blaðlýs, grasmaökar og öll þessi ógeð.” Apótek___ Kvöld-, nætur- og helgidaga- varzla apótekanna vikuna 7.—13. nóvember er i Laugarnesapóteki og Ingólfs Apóteki. Það apótek, sem fyrr er nefnt, annast eitt vörzluna á sunnudög- um, helgidögum og almennum fridögum. Einnig næturvörzlu frá kl. 22 að kvöldi til 9 að morgni virka daga en kl. 10 á sunnudög- um, helgidögum og almennum fridögum. Kópavogs Apóteker opið öll kvöld til kl. 19, nema laugardaga er opið kl. 9—12 og sunnudaga er lokað. Apótek Hafnarfjarðar er opið virka daga frá kl. 9-18.30, laugar- daga kl. 9-12.30 og sunnudaga og aðra helgidaga frá kl. 11-12 f.h. Árbæjarapótek er opið alla laug- ardaga frá kl. 9-12. Sjókrabifreiö: Reykjavík og Kðpavogur simi 11100, Hafnar- fjörður simi 51100. Tannlæknavakt er í Heilsu-j verndarstöðinni ýið Barónsstig alla laugardaga og sunnudaga kl. 17—18. Simi 22411. Reykjavik — Kdpavogur Dagvakt:K1.8—17 mánud.—föstud., ef ekki næst i heimilislækni, simi 11510 Kvöld- og næturvakt: Kl. 17—08 mánud,—fimmtud., simi 21230. Hafnarfjörður — Garðahreppur Nætur- og helgidagavarzla, upp- lýsingar i lögregluvarðstofunni, simi 51166. A laugardögum og helgidögum eru læknastofur lokaðar, en lækn- ir er til viðtals á göngudeild Landspitalans, simi 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfja- búðaþjðnustu eru gefnar i sim- svara 18888. Keykjavik: Lögreglan simi 11166, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100 Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan simi 51166, slökkvilið og sjtikrabifreið . simi 51100. Rafmagn: 1 Reykjavik og Kópa- vogi simi 18230. 1 Hafnarfirði i sima 51336. Hitaveitubilanir: Simi 25524. Vatnsveitubilanir: Sími 85477. Simabilanir: Sími 05. Bilanavakt borgarstofnana Sími 27311 Svarar alla virka daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólar- hringinn. Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og i öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnanna. Sjúkrahús Borgarspitalinn: Mánud.—föstud. kl. 18.30—19.30. La u g a r d . — s u n n u d . kl. 13.30—14.30 og 18.30—19. fö Bridge & Á olympiumótinu 1960 kom eftirfarandi spil fyrir i leik Bretlands og Italiu — en Bret- land sigraði i leiknum með litlum mun, 65-58. A báðum borðum varð lokasögnin fjórir spaðar i austur- eftir að norður hafði sagt frá hjarta sinu — og suöur doblaði lokasögnina. Báðir á hættu. A enginn V AK763 ♦ 9843 * K1054 A G32 a ÁD9754 V D4 Z G85 ♦ KDG62 ^ Á105 + Á62 4 7 A K1086 V 1092 ♦ 7 * DG983 Þegar Avarelli og Belladonna voru i vörninni gegn Rose og Gardener spilaði suður — Avarelli — út tigulsjöi. Rose tók slaginn heima og spilaði litlum spaða á spil blinds. En Avarelli hikaði ekki — stakk strax upp spaðakóngnum. Spilaði Belladonna svo tvivegis inn á efstu hjörtun — fékk tigul til baka. Austur fékk þvi átta slagi — 500 til ítallu. Á hinu borðinu spilaði Schapiro ut hjartatiu og eftir það gat vörnin ekki fengið nema tvo slagi á hjarta og tvo á spaða — trompið. Italia vann þvi 300 á spilinu. A sovézka meistaramótinu 1960 kom þessi staða upp i skák Schamkowitz, sem hafði hvitt og átti leik, og Kortsnoj 21.Dc3 — Rxd3 22.Bxe7 — B x g 2 + ! 23. K x g 2 — Rf4+ 24.Hxf4 — Hxf4 25.Hdl — Dc6+ 26.Kg3 —Da4! 27.C6+ — bxc6 28.Dxg7 - Hf3+! ! og svartur vann. Heilsuverndarstöðin: kl. 15—16 og kl. 18.30—19.30. Fæðingardeild: Kl. 15-16 og 19.30- 20. Fæöingarheimili Revkjavikur: Alla daga kl. 15.30-16.30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl. 15- 16 og 18.30-19.30. Flókadeild: Alla daga kl. 15.30-17. Landsfkot: Mánud.-laugard. kl. 18.30-19.30. Bunnud. kl. 15-16. Barnadeild alla daga kl. 15-16. Grensásdeild: kl. 18.30—19.30alla daga og kl. 13—17 á laugard. og sunnud. Hvitabandið: Mánud,—föstud. kl. 19—19.30, laugard. og sunnud. á sama tima og kl. 15—16. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15—17 á helgum dögum. Sólvangur Hafnarfirði: Mánu- dag — laugard. kl. 15 — 16 og kl'. 19.30—20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15—16.30. I.andspitalinn: Alla daga kl. 15—16 og 19—19.30. Fæðingar- deild: ki 15—16 og 19.30—20. Barnaspitali Hringsins: kl. 15—16 alla daga. DAGBLAÐIÐ er smáauglýsingablaðið Hvað segja stjörnurnar? Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 11. nóvember. Vatnsberinn (21. jan. — 19. feb): Ariðandi er að börn verði varin smáslysum, er hent gætu heima fyrir i dag. Leggðu þig allan fram við að fylgja fólki, þó þér finnist það nokkuð krefjandi, þvi þú kemst að raun um að ekki er allt sem sýnist. Fiskarnir (20. feb. — 20. marz): I dag fylgir heill nýjum áætlunum og nýjum störfum. Hvers konar vinna við, eða rann- sóknir tengdar visindum eru undir heilla- stjörnum. Einnig eru stjörnurnar hag- stæðar ástalifinu og ætti kvöldið að verða ánægjulegt. Hrúturinn (21. marz — 20. april): Hvað varðar ástalifið er dagur þessi mikil- vægur og þú kannt að þurfa aö taka ein- hverjar ákvarðanir. Hafðu samt stjórn á skapi þinu þvi stjörnustaðan er ekki allt of hagstæð. Nautið (21. aprif — 21. mai): Það gæti komið svolitill afturkippur I vináttusam- band. Þú skalt skilja þær skyldur til hlft- ar, er þú tekur á þig, annars gæti farið svo aö þú verðir farinn að gera mun meira en þér ber. Tviburarnir (22. mai — 21. júnD.Farsæld fylgir öllum áætlunum sem þú og einhver nákominn þér brugga saman. Hafðu sam- band við gamlan vin þinn og þú kannt aö fá fréttir sem valda þér furðu. Þú losnar við ákveðin áhyggjuefni. Krabbinn (22. júní — 23. júli) :Notaöu þér hvert tækifæri, sem þér býöst i sambandi við viðskipti þin i dag. Gefðu þér svolitinn tima til að lagfæra útlitið, þú kannt að fara út i kvöld og hittir þá manneskju sem verður þér mikils verð. Ljónið (24. júli — 23. ágúst): Þú skalt orða varlega ailt sem þú skrifar i dag, einkum ef þú skrifar vegna viðskipta. Félagslif þitt verður fjörugt og andlega uppörvandi i kvöld. Meyjan (24. ágúst — 23. sept.): Þú skalt draga úr vinnuhraða þinum i dag, þvi liklegt er að á þig bætist aukastörf siðdegis. Hvers konar tómstundaiðkanir tengdar tónlist eða leiklist eru undir heillastjörnu i kvöld. Vogin (24. sept. — 23. okt): Vertu viss um aö ljúka alveg einu verkefni áður en þú byrjar á öðru siðdegis þvi annað gæti kostað rugling. Þú verður að draga úr eyðsluþinni, þvi annars kemur þig til með að vanta peninga fyrir nauðsynjum. Sporðdrekinn (24. okt. — 22. nóv.): Varastu að ræða viðkvæm mál við sam- starfsmenn þina. Nauðsynlegt er að þú athugir öll fjárútlát þin og farir yfir allar þær greiðslur er þú þarft að inna af hendi. Bogmaðurinn (23. nóv. — 20. des.): Hafi þig lengi langað til að kynnast ákveðinni manneskju þá virðist nú svo að ekki sé langt þar til þessi ósk þin rætist. Vertu raunsær i samskiptum þinum viö aðra og vænztu ekki of mikils. Steingeitin (21. des. — 20. jan.): Þú verð- ur eitthvað órólegur i dag og verið gæti að einhver ykkar séu að hugsa um að skipta um atvinnu. Leggðu niður fyrir þér hvað þú eiginlegaviltáður en þú tekur einhverj- ar lokaákvarðanir. Afmælisbarn dagsins: Heimilislifið ætti að vera einkar ánægjulegt á komandi ári. Ahyggjuefni einhvers nákomins munu minnka að mun, og hjá hinum giftu ætti skilningur milli hjóna að dýpka. „Þér verðið að trúa mér læknir, i eitt skipti fyrir öll, þvi að ég er ekki á mælendaskrá aftur.” Maður verður dálitið þröngsýnn i þessum svampstólum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.