Dagblaðið - 20.11.1975, Page 10

Dagblaðið - 20.11.1975, Page 10
10 Spurning dagsins Iiver er mesta vinaþjóð okkar um þessar mundir? Þórhallur Gunnarsson nemi: „Ég hef alltaf haldið þvi fram að Fær- eyingar væru beztu vinir okkar Islendinga.” Guðrún óskarsdóttir nemi: „Kin- verjar, — alveg tvimælalaust Kinverjar. Þeir heimsóttu okkur með fjöllistasýningu og það þykja mér vinahót.” Guðrún Pálsdóttir skrifstofu- stúlka: „Það hef ég ekki hug- mynd um, — alla vega eru Bretar ekki neinir vinir okkar i augna- blikinu.” lljörleifur Jónsson nemi: ,,Ég myndi telja Norðurlandaþjóðirn- ar til vina okkar og þá helzt Norð- menn.” Jóhann Kristinsson atvinnulaus: „Ég hef alls enga skoðun myndað mér á þvi máli.” Gissur Pctursson ncmi: „Hún er erfið þessi. Eigum við ekki að segja Bretar? Þeir vöktu okkur upp af vondum draumi um ástand fiskistofnanna hér við land, þó þeir verði að gjalda fyrir það.” Dagbiaðið. Fimmtudagur 20. nóvember 1975. Að voðo umferðar- strauminn í hóloftunum Friðrik Ásmundsson Brekkan skrifar: „í laugardagsblaði Dagblaðs- ins er grein eftir Sigurð Hreiðar Hreiðarsson og nefnir hann greinina „Að vaða umferðar- strauminn i klof”. Mikið hefur verið ritað um umferðarvandann en fáir komizt að kjarna málsins. Greinarhöfundur lýsir þvi hve erfitt það sé að komast yfir Hverfisgötuna við Frakkastig Þetta er vissulega rétt. Menn verða að stinga „nefjum” bif- reiða sinna fram fyrir kofa þann er stendur á horninu. Ef bifreið á miklum hraða þóknast að birtast i þann mund er við stingum „nefinu” fram — þá verðum við að vera tilbúin til afturhalds upp Frakkastiginn i bakkgir. Hvað er þá til úrbóta á þessu vandræðahorni. Það mætti setja upp umferðarspegil — sem sýnir umferðina niður Hverfisgötuna. Nú, svo mætti rifa kofann. Hvað snertir Hverfisgötuna, Laugaveginn og aðalgötur borgarinnar almennt, ætti einfaldlega að minnka hámarkshraðann niður i 30 km á klst. Mörg slys hafa orðið á Hverfisgötunni og oftast hefur of miklum hraða verið um að kenna. Strika ætti göturnar með gulum skástrikum á köflum og merkja með tölunni 30 með jöfnu millibili. Einnig ætti að auka radarmælingar. Sigurður segir að tillitsleysið sé bölvaldurinn i islenzkri umferð. Af hverju stafar þetta tillitsleysi? Siðastliðinn mánuð hef ég sérstaklega tekiö eftir hversu þumbaralega er ekið. Ástæðurnar tel ég allar vera af sama toga spunnar. Efnahags- mál og sifelldar hótanir yfir- valda um lögtök, ein<íaga, gjalddaga og málsóknir. Sérstaklega er þetta áberandi i þeim stutta frftima sem vinn- andi fólk hefur, þ.e. i hádegis- útvarpinu. Einnig á sólarleysið sinn þátt i þessu. Krakkarnirliggja heima, vælandi vegna vitaminskorts. Þeir sem „betur máttu sin” i vor og sumar og „höfðu efni á þvi” að bregða sér til sólarlanda með fjölskyldur sinar eru nú á taugum yfir þvi að geta ekki borgað ferðavixlana, sem þeir eru þegar búnir að framlengja einu sinni. Vandamálin hrúgast upp. Skammdegið er skollið á og menn aka um á háaloftum efna- hagsáhyggna. Menn hirða ei um jarðbundnar akbrautir en klóra sig i magasár sin á meðan beðið er eftir grænu ljósi.” Alþingi taki af skarið — og álykti að farið verði eftir tillögum nefndar um flugvélakaup Landhelgisgœzlunnar Korviða skrifar: „Ef til vill — segja sumir — er að bera i bakkafullan lækinn þegar flugvélakaup Landhelgis- gæzlunnar ber á góm. Þó get ég ekki stillt mig um að leggja nokkur orð i belg. Eins og alþjóð veit var á sin- um tima skipuð nefnd sérfræð- inga til að gera tillögúr um flug- vélakaup til handa Landhelgis- gæzlunni. Menn voru afskap- lega ánægðir með þetta framlag — töldu að komizt yrði að hag- kvæmri niðurstöðu. Nefndin á- lyktaði, að hagkvæmast mundi vera að kaupa Beechcraft-flug- vél. 1 þessari nefnd var Pétur Sigurðsson forstjóri Land- helgisgæzlunnar — og stóð hann meðal annarra að greinargerð nefndarinnar. Nú, en þessi maður lýsir þvi yfir skömmu áður en birtar voru niðurstöður nefndarinnar að það yrði ekki keypt nein Beechcraft — Fokker skyldi það vera. Jú, sko mennirnir hans verða að geta teygt úr sér. Almenningur varð afskaplega hissa. Hvernig gat maðurinn leyft sér þetta? spurði fólk. Jú, embættismannahrokinn leyndi sér ekki. Fylgdi nú i kjölfarið mikil gagnrýni. Hvers vegna að kaupa rándýra flugvél þegar hægt var að fá vél engu lakari en miklu ódýrari? Erum við ekki mitt i geysilegum efna- hagserfiðleikum? spurði fólk. Þó keyrði um þverbak þegar dómsmálaráðherra lýsti þvi yf- irað fyrr færi hann frá embætti en hætt væri við að kaupa Fokk- erinn. Þessir menn i nefndinni hefðu ekkert vit á þessu, væru bara kjánar! Hvilikur hroki! Eru engir menn á Alþingi sem finnst ekki rétt að málum stað- ið? Hvers vegna i ósköpunum er ekki borin fram tillaga um að þetta mál verði kannað ofan i kjölinn? Hvers vegna er ekki borin fram tillaga um-að þessi ákvörðun verði ógilt — og ódýr- ari vél keypt? Við hvað eru þessir menn hræddir? Er nema von að fólk væni stjórnmálamenn um slæ- lega frammistöðu? Enginn þingmaður virðist hafa bein i nefinu til að leið- rétta svona vitleysu. Það væri hægt að leggja þessar fimm til sexhundruð milljónir sem mun- ’ari sjúkrahúsin, skólana, sem þeir hafa barizt svo hart fyrir en ekki fengið fjárveitingar til. Þingmenn, hvar er ábyrgðar- tilfinning ykkar?” Of lítið greint frá sundmótum „Tritill” úr Ytri-Njarðvik skrifar: „Ég vil eindregið lýsa yfir ánægju minni með skrif önnu Friðriksdóttur. Henni fannst of litið greint frá sundmótum og það finnst mér lika. Svar Dagblaðsins var ekki alveg rétt. Ekki voru öll sund- mót afstaðin þegar Dagblaðið byrjaði að koma út — 2. nóvember var 30 ára afmælis- sundmót SH i Hafnarfirði. Ég hef ekkert heyrt eða séð um þetta sundmót i okkar annars ágætu fjölmiðlum.” Geta einnig borið móðurnafn Asta hringdi: „Þvi fer fjarrri að „kvenna- árinu” ljúki um áramótin. Þetta var aðeins byrjunin. Karlmennirnir skulu ekki halda að þeir séu „sloppnir” þótt árið liði. Mig langar til að færa i tal hvort konur og karlar megi ekki kenna sig við móður sina jafnt og föður. Það er ekkert jafnréttiað börn beri einungis „föðurnafn”. Þau ættu, eftir atvikum, einnig að geta borið móðurnafn.”

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.