Dagblaðið - 20.11.1975, Page 11

Dagblaðið - 20.11.1975, Page 11
Dagblaðið. Fimmtudagur 20. nóvember 1975. 11 RelLKj Notaóir bílarti! sölu Hornet 4 dyra '71 og '74 Hornet Hatsback '74 Wagoneer Custom sjálfskiptur '71 AAinica station '74 Willy's jeep V6 '66 Willy's station m. dísil- vél '58. Hunter de luxe station '73 Mazda 818 '74 Volkswagen 1300 '71 Volkswagen 1302 '71. Citroén Ami 8 '70 og '71. Opel Rekord station '68 Fiat 124 station '74 Fiat 125 '68 Moskvitch station '71 Renault 6TL '71. Allt á sama stað EGILL, VILHJALMSSOM HF Laugavegi 118-Simi 15700 r INGA > OG RAGNHEIÐUR Snyrtistofa ÁRMÚLA32 SÍMI LUGATO SILICONE-ÞÉTTIEFNI FYRIRLIGGJANDI CUDO-I IGLERHF.I lugato CHEMIE SKÚLAGÖTU 26 sími 26866 STIMPLAR STIMPLAVÖRUR MIKIÐ ÚRVAL FULLK0MNAST HÉR Á LANDI Stimplagerðin Hverfisgötu 50 Sími 10615 HALLUR HALLSSON1’’ LESENDUR! Ef ykkur liggur eitthvað á hjarta hafið þó samband við okkur sím- leiðis, eða bréflega. Síminn er 83322 á milli klukkan 13 og 14 og heimilisfangið er Síðumúli 12 — segsr Björn um gagnrýni 6 stjórnmálamenn Björu Jóhannesson skrifar: ,,Ekki alls fyrir löngu hafði Lúðvik Jósepsson — sá ágæti maður — orð á þvi að það væri bara tizkufyrirbrigði og áróður fjölmiðla að gagnrýna stjórn- málamenn fyrir slælega frammistöðu. Tja, verði honum að góðu — það er allt sem ég get sagt. Ég er nú 62 ára gamall og hlustaði alltaf á eldhúsumræður stjórn- málaflokkanna — eða þangað til mér fannst þetta orðinn hrein- asti skripaleikur. Hefði verið næg atvinna i gamla daga er ég nokkuð viss um að þessum mönnum hefði verið i snarhasti komið i vinnu — já, ég segi vinnu. Minn aldursflokkur hefur bara alltaf haldið kjafti. Við vorum svo þrúguð af atvinnu- leysi að við sögðum ekkert. 'Nú eru — guði sé lof — breyttir timar. Ungt fólk hefur tekið við. Ég tek undirmeð þvi og tel gagnrýni unga fólksins tvimælalaust réttmæta. Þetta er ekkert tizkufyrir- brigði — afskaplega kaldar og dapurlegar staðreyndir. Næst er að taka til bæna þrýstihópa þjóðfélagsins — embættismannakerfið. Já, mikið starf er framundan. Ég vona bara að unga fólkið láti ekki kúga sig heldur haldi áfram að byggja upp réttlátt samfélag.” ELZTUR Athugull hringdi: ,,Fyrir nokkru birtist mynd af afskaplega fallegri stúlku á for- siðu Dagblaðsins. Með mynd- inni var texti þar sem sagt var að myndin væri tekin i gamla kirkjugarðinum. Gamli kirkju- garðurinn var tekinn i notkun 1834 en mig langar til að benda á að til er eldri kirkjugarður, ein- mitt á horni Kirkjustrætis og Aðalstrætis. Sá kirkjugarður er hinn eini og sanni ,,gamli kirkjugarður” enda hefur hann verið til frá þvi fyrstu landnem- arnir fóru að týna tölunni. En hvað uin það, i daglegu tali er kirkjugarðurinn við Suðurgötu nefndur gamli kirkjugarðurinn og er ekki nemagott eitt um það að segja. Mig langaði aðeins til að benda á þetta.” Það er fallegt i gamla kirkju- garöinum er skuggana tekur að lengja og nýfallin mjöllin skart- ar sinu fegursta. SÁ GAMLI ER EKKI Ekkert tizkufyrirbrigði, Lúlli minn — aðeins blákaldar stað- reyndir, segir iesandi. Raddir lesenda ÞAÐ VERÐUR AÐ KENNA ÞEIM AÐ GEIFLA Á SALTINU Gunnar Gunnarsson skrifar: „Umræður um landbúnaðar- mál hafa verið heitar — nú sem fyrr. Þess vegna vildi ég rifja upp nokkra eldri þætti þeirra mála. Á siðari hluta ársins 1940 urðu miklar umræður um verðlag á kjöti sem meirihluti svokall- aðrar kjötverðlagsnefndar ákvað. En þegar deilan tók að harðna, birti meirihluti nefndarinnar yfirlýsingu þar sem sagði m.a.: „Engum óbrjáluðum manni þótti kjöt- verð i fyrra nógu hátt.” Með öðrum orðum: Ef einhver and- mælti fékk sá hinn sami það framan í sig að hann væri Klepptækur. Undir þessa vizku rituðu eftirtaldir nöfn sín: Páll Zóphaniasson, Helgi Bergs og Jón Árnason. Minnihluti nefndarinnar, Þorleifur Gunn- arsson og sr. Ingimar Jónsson, var þarna á öndverðum meiði og kváðu þeir öllum bezt að engri úlfúð yrði komið af stað. Þá mætti minna hér á að skömmu fyrir seinna striðið var nokkrum tugum hvala slátrað suður i Fossvogi og birtu sum blöðin leiðbeiningar um hvernig nýta skyldi hvalkjötið. Þá brást Timinn ókvæða við og taldi þær afleiðingar „herferðar gegn bændum”. Nefna mætti annað dæmi: Sigurjón heitinn á Ala- fossi sagði eitt sinn frá þvi i blaðaviðtali að hann hefði ekki bragðað kjöt i mörg ár en héldi þó heilsu og kröftum. Þá umhverfðist Timinn gjör- samlega og kvað bezt mundi vera fyrir þáverandi borgar- stjóra Reykjavikur, Jón Þor- láksson,'að fara út á Austurvöll og „bita gras”. Sem sagt, svona hefur þetta gengið i áratugi. „Taktik” svonefndra bændaleiðtoga hefur verið svipuð um langa hrið. Þeir sem gerzt hafa svo djarfir að andmæla hinni einu sönnu land- búnaðarpólitik hafa fengið yfir sig ómældan skamma- skammt. Hversu miklu af fúkyrðum ætli hafi verið ausið yfir þá Arna Jónsson frá Múla, Halldór Lax- ness, Gylfa Þ. Gislason, Björn Matthiasson og Jónas Kristj- ánsson? Allar orðræður þeirra um breytta og betri hætti i land- búnaðarmálum hafa verið stimplaðar sem fjandskapur við bændur og sveitafólk. Nú er kominn timi til þess að neyt- endur i landinu láti ekki bjóða sér hvað sem er i þessum efn- um. Ef þeim, sem vilja taka upp málefnalegar umræður um þessi mál verður einungis sagt að „bita gras á Austurvelli” kynni að verða að kenna hinum gömlu landbúnaðargoðum að „geifla á saltinu.” EKKERT TÍZKUFYRIRBRIGÐI - KALDAR STAÐREYNDIR V

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.