Dagblaðið - 20.11.1975, Page 12
12
Dagblaðiö. Fimmtudagur 20. nóvember 1975.
Dagblaðið. Fimmtudagur 20. nóvember 1975.
13
■
■
Létt hjó ÍR
- KR í basli
tft-ingar unnu stórsigur gegn ÍBK i 2. deild
i gærkvöldi. Lokatölur urðu 35-13 eftir aö.
staöan i hálfleik hafði verið 17-6.
Hins vegaráttu KR-ingar i mestu erfiðleik-
um með Fyiki og það var ekki fyrr en á loka-
miníitunum, sem þeir tryggðusér sigur 19-16.
Staðan i hálfieik var 10-10.
Staðan i 2. deild er nb:
ÍR 4 4 0 0 107-57 8
KA 5 4 0 1 108-91 8
KR 4 3 0 1 93-75 6
Leiknir 4 2 0 2 84-87 4
Þór 5 1 0 5 108-114 2
Fylkir 3 1 0 2 44-53 2
ÍBK 4 1 0 3 68-90 2
UBK 3 0 0 3 37-79 0
Jöfnuðu með
síðustu spyrnu
Tékkar og Austur-Þjóöverjar gerðu jafn-
tefli i forkeppni Olympfuleikanna i gær, 1-1 i
Brno i Tékkóslóvakiu. Tékkar jöfnuðu á siö-
ustu minútu leiksins.
Búlgaria tryggði sér rétt i úrslit Evrópu-
keppni landsiiða, leikmenn 23ja ára, i gær.
Sigraði þá Pólland 1-0 I Haskovo i Búlgariu.
Markið skoraði Yordanov á 89. minútu.
Spánn sigraöi Frakkland i úrslitum
Monaco-mótsins i gær 2-1 — keppni unglinga-
landsliöa — eftir framlengdan leik. Júgó-
slavia sigraði ttalu 3-2 I keppni um þriöja
sætið. Ymsar nýjungar i dómgæzlu voru
reyndar á mótinu og þóttu takast vel.
Johnstone til
Sheffield Utd.
— og Marsh fer ekki
til Anderlecht
Jimmy Johnstone, einn frægasti leikmaður
Skotlands — áöur Celtic — skrifaöi undir
samning viö Sheff. Utd. i gær. Byrjar strax
aö leika með liöínu, sem er i neðsta sæti i 1.
deild. Johnstone hefur leikið i Bandarikjun-
um siðustu mánuðina — cftir að hann hætti
hjá Celtie. Var I samningum viö Luton — en
samkomulag náöist ekki.
Rodney Marsh hjá Manch. City er hættur
viö aþ fara til Anderlccht i Belgiu. Samninga-
viöræöum I Brussel var hætt i gær — og
ástæöan sú, aö ciginkona Marsh vill ekki
setjast aö I Belgiu, að sögn lcikmannsins.
Hins vegar sögöu forráöamenn Anderlecht
aö hann heföi farið fram á of hátt kaup. Fé-
lögin höföu komizt aö samkomulagi meö
kaupverö — 65 þúsund sterlingspund.
Heimsmeistar-
ornir öruggir
V-Þjóöverjar tryggöu sér svo gott sem rétt
I 8 liöa úrslit Evrópukcppninnar i knatt-
spyrnu. Þeir sigruðu Búlgari örugglega 1-0
aö viðstöddum 75 þúsund áhorfendum á
Nekar leikvanginum i Stuttgart i gær.
V-Þjóöverjar — án Breitners og Netzers —
áttu mjög góöan leik og þung sókn þeirra
setti Búlgari I alls konar van'da. — En markiö
kom þó ekki fyrr en á 65. minútu. Schwarzen-
back átti þá góöa sendingu á Heynckes, sem
iék á tvo varnarmenn og skoraði örugglega
með þrumuskoti.
Ekki urðu mörkin fleiri þrátt fyrir þunga
sókn en Beckenbauer átti mjög góðan leik ag
voru áhorfendur ánægðir með v-þýzka liðiö —
nokkuö sem hefur ekki gerzt lengi.
Staöan i riölinum er nú:
Grikkland
V-Þýzkaland
Búígaría
Malta
6 2 3 1 12-9 7
5 2 3 0 6-4 7
5 12 2 10-7 4
‘4 1 0 3 2-10 2
!
p
Að visu eru Grikkirenn efstir — en Þjóð-
verjar eiga eftir aö leika við Möltu I
Þýzkalandi. Tæplega er spurt að lcikslokum
þá. Athyglisvcrt er aö Grikkir hafa tapað
aðeins einum leik — gegn, jú, litlu Möltu.
li.halls.
_
varð þó að sýna Larque rauða
spjaldið á 65. min., þegar
Frakkinn sló Dock i höfuðið.
Léku Frakkar tiu eftir það.
Belgar sóttu töluvert meira
eftir þetta atvik. og áttu á 70.
min. gott tækifæri, en Val Cool
brást bogalistin. Lið Belgiu var
vel skipulagt i þessum leik og
átti langa sendingu inn fyrir
vörn Frakka. Van Cool hafði
betur i kapphlaupinu við Tresor,
en lagði boltann fyrir sig með
hendinni og Mr. Davidson
dæmdi markið réttilega af.
Sóknarlotur Frakka voru afar
bitlausar og samstundis brotnar
niður af sterkri vörn Belga.
Þannig leið fyrri hálfleikurinn
án þess Frakkar gætu skapað
sér eitt einasta marktækifæri.
1 siðari hálfleiknum færðist
töluverð harka i leikinn og leyfði
Davidson dómari mönnum að
komast upp með ljót brot. Hann
Liege 17. nóvember.
í þriðja sinn frá 1970 er lands-
lið Belgiu komið áfram i
Evrópukcppni Iandsliða. Til
þess þurfti eitt stig f landsleikn-
um á laugardaginn I Paris — og
það fengu Belgar gegn lélegu
liöi Frakka.
Frakkland 0— Belgia 0
Liðin. Frakkland. Baratelli,
Domeneek, Tresor, Orlanducci,
Bracci, Huck (45min. Larque),
Michel, Guillon, Rochtean,
Coste, Emon.
Belgia. Piot, Van Binst,
Vandendaele, Dock, Leekens,
Cools, Verheyen, Coeck, Van
der Eyken, Van Cool, Lambert
(78 min. Teugels).
Dómari. M. Davidson, Skot-
landi.
Aðstæður. Völlurinn Parc des
Princes i Paris, blautur og
þungur. Stanzlaus rigning
meðan leikurinn stóð yfir.
Leikurinn, sem mest fór fram
á miðju vallarins, var afar þóf-
kenndur og leiðinlegur á að
horfa. Belgar léku mjög skyn-
samlegan varnarleik og tak-
markið — jafntefli — náðist án
erfiðleika.
Belgar áttu af og til hættuleg
hraðaupphlaup. Eitt þeirra kom
á 23. minútu, þegar Ludo Coeck
VCl biupuictgi i pcaauiu íciiv ug
leikkerfi þess mjög vel útfært af
landsliðsþjálfaranum Reymond
Goethals. Bezti maður liðsins og
jafnframt bezti maður á vellin-
um var Jean Verheyen. Hann er f
34ra ára gamall og leikur með 3. 1
deildarliði Union. f
Lið Frakka virtist mjög á- 1
hugalaust i leiknum, enda f
möguleikar þess til sigurs i riðl- 1
inum engir. Bezti maðurinn var f
eins og svo oft áður svertinginn 1
Tresor. f
Urslitleikjanna og lokastaðan 1
i riðlinum varð þannig. (Svona f
til gamans birtum við úrklippu, 1
sem Asgeir sendi úr belgisku I
blaði). J
Groupe 7
Islande — Belgique
Allemagne Est — Islande
Belgique — France
France — Allemagne Est
Allemagne Est — Belgique
Islande — France
Islande — Allemagne Est
France — Islande
Belgique — Islande
Belgique — AlJemagne Est
Allemagne Est — France
France — Belglque
Jean Verheyen — bezti maður
belgfska liðsins — 34 ára.
0 La Belgique est qualifiée.
Dráttur i lokakeppni Evrópu-
keppninnar fer fram 14. janúar
næstkomandi.
Kveðja
Asgeir Sigurvinsson
Eftir ieikinn. Frá vinstri Van
Cool, Piot markvörður, sem
leikur með Standard, Goethals
þjálfari og Leekens. Þeir Van
Cool og Leekens léku báðir i
fyrsta sinn í landsliði.
RITSTJÓRN:
HALLUR
SÍMONARSON
KNATTSPYRNAN
í BELGÍU Sigurvinsson
Níu löndum raðað
í Evrópuriðla HM
— og niðurstaðan tilkynnt síðar í dag
t Guaetemaia var dregið i gær i
forkeppni heimsmeistarakeppn-
innar, sem fer fram i Argentinu
1978. Niðurstaöan veröur tilkynnt
i dag.
Eins og kunnugt er komast 16
lið i úrslit. Heimsmeistararnir V-
Þýzkaland og gestgjafarnir
Argentöia fara sjálfkrafa áfram.
Síðan eru átta lið örugg frá
Evrópu — tvö frá S-Ameríku og
eitt frá Asiu, Norður og
Mið-Ameriku og Afriku. Þá er eitt
sæti laust og um það keppa þjóðir
úr niunda riðli Evrópu og þriðja
riðli S.-Ameriku.
Þegar er búið aödraga iriðlana
i S-Ameriku og lentu eftirfarandi
þjóðir saman:
1 riðill: Brazilia, Paraguay og
Kólumbia.
2. riðill: Uraguay, Bólivia og
Venezúela
2. riðill: Chile, Perú og Equador.
Einnig hefur verið dregið í riðla
Asíu og Afriku, Astraliu og S- og
M-Ameriku. Þar er athyglisverð-
ast að tsrael, Japan, S-Kórea og
N-Kórea eru saman i riöli. Þó
ekki sé nema vegna stjórnmáia.
Eins og áöur sagöi eru Evrópu-
riðlarnir niu. Þegar hafa niu
þjóðir verið aðskildar i riðla —
sterkustu þjóöirnar, þannig að
þær siái ekki hver aðra út. Þessar
þjóöir eru: A-Þýzkaland, Hol-
iand, ttalia, Pólland. Skotland,
Fimm lönd hafa nú tryggt sér
rétt áfram I Evrópukeppni lands-
liöa — Sovétrikin, Belgia og
Spánn I siöustu viku I gær Wales
og Júgóslavia.
Nær öruggt má telja, að
Vestur-Þýzkaland, Holland og
Tékkóslóvakia nái þeim þremur
Sovétrikin, Sviþjóð, Júgóslavia
og svo annað hvort England eða
Búlgaria — um það ber frétta-
skeytum Reuters ekki saman.
Drátturinn I Evrópuriðlana
verður tilkynntur i dag og menn
biöa með miklum spenningi —
ekki siður hérá landi en erlendis.
Fáum við England — HoIIand —
ttalíu eða bara Búlgariu. Ur þvi
fæst skorið i dag.
h.halls.
sætum, sem þá eru eftir.
V-Þýzkaland þarf að vinna Möltu
heima— Tékkar Kýpur, sem ekki
hefur fengið stig eða skorað
mark, i Limasol á sunnudag — og
Holland má tapa siðasta ieik sin-
um — gegn Italiu — með tveggja
marka mun.
5 lönd komin í úrsllt
von
Ólafur H. Jónsson — skoraði
helming marka Dankersen.
Aldrei
glœta
Irum!
hjá N
JUgöslavar tryggöu sér rétt í
átta liöa Urslit Evrópukeppninnar
i gærkvöldi, þegar þeir sigruðu
N-íra 1-0 i Belgrad.
N-írar urðu að sigra með
tveggja marka mun til að komast
áfram en i raun kom það aldrei til
greina. Þeir voru aidrei liklegir
til að veröa fyrsta liöið til að sigra
Slavana i JUgóslaviu i 25 ár.
Þegar i upphafi pressuðu Slav-
arnir og á 19. minútu skoraði
Oblak gott mark. Surjak átti skot
i slá og Oblak fylgdi vel á eftir og
skoraði.
JUgóslvar gátu gert nánast
hvað sem þeir vildu — slikir voru
yfirburðir þeirra. 1 siðari hálfleik
átti Surjak aftur skot i slá en allt
kom fyrir ekki — boltinn vildi
ekki i markið, þrátt fyrir að
áhorfendur hvettu lið sitt ákaft.
Lokastaðan i 3. riðli varð:
JUgbslavia 6 5 0 1 12-4 10
N-trland 6 3 0 3 8-5 6
Svíþjóð 6 3 0 3 8-9 6
Noregur 6 1 0 5 5-15 2
Það merkilega var i þessum ó-
jafna leik, að írar fengu auðvelt
tækifæri tilaðjafna. Þaðvar d 63.
min., að Mcllroy stóð einn fyrir
opnu marki. Hikaði um of og
varnarmanninum Katalinski
tókst að bjarga á marklinu. h.hails
Lítil
Enska landsliðið var heppið að
ná jafntefli gegn Portúgal i Lissa-
bon i gær, 1-1, i 1. riðli Evrópu-
keppninnar. Enskir urðu að vinna
til að hafa raunverulegan mögu-
leika að komast I úrslit og hættu
þvi á ýmislegt á kostnað varnar-
innar. Portúgalinn Nene fékk tvö
auðveld tækifæri til aö skora —
einn meö Clemence — en brást
bogalistin.
Það kom á óvart, að Don Revie
gat stillt upp nær öllum sinum
beztu mönnum. Var þó án Bell og
McFarland, en Portúgalir höfðu
tögl og hagldir i leiknum vegna
stórgóðs leiks framvarðanna
Montreal á
grœnu Ijósi
Aðalleikvangurinn fyrir Olympiu-
lcikana næsta sumar verður til-
böinn á réttum tima — en mun
kannski skorta einhverja fln-
pússningu miðað við upphaflega
áætlun, sagði Fernard Lalonde,
dómsinálaráðherra Quebec-fylkis I
Montreal
Lalonder er yfirmaður gæzlu-
nefndar Quebec-stjórnarinnar i
sambandi við Olympíuleikana.
Hann sagði að útilokað væri-, að
hinn 70 þúsund sæta leikvöllur yrði
fullgerður fyrir 17. júli 1976, en þá
eiga leikarnir að hefjast, en hins
vegar á Olympiunéfnd Kanada að
setja fram sinar tillögur, svo
leikarnir geti farið fram, þó svo
leikvangurinn verði ckki alveg full-
gcrður.
Heimodómarar - varla
floutað á mótherjana
„Allt okkar æfingaprógramm
hefur miðast við þessa Evrópu-
leiki — ég er ekki frá þvi, að þess-
ir leikir okkar við Gummersbach
hafi komið niður á frammistöðu
okkar i islandsmótinu,” sagði
Páll Björgvinsson, þegar við
ræddum við hann i smekklegri
ibúð hans uppi i Alftahólum 2 i
Breiðholti.
,,Ég hlakka mikið til að leika
við Schmidt og co. Schmidt verð-
ur áreiðanlega erfiður — en ef
vörnin fer i gang, þá er ég ekkert
hræddur við markvörzluna. Auð-
I heild held ég, að þessi sigur
okkar i vor sé Vikingi afskaplega
mikilvægur. Að sjálfsögðu erum
við staðráðnir i að gera okkar
bezta i tslandsmótinu — og áreið-
anlega munum við standa i bar-
áttunni um titilinn.
En það verður helmingi erfið-
ara að standa undir titlinum en að
vinna hann. Allir vilja vinna
meistarana.
Nú, en ég þjálfa meistaraflokk
kvenna — að visu hefur okkur
ekki gengið sem skyldi — enda
misst margar góðar úr liðinu.
Þetta er þó allt á uppleið hjá okk-
ur. Eins og þú veizt þá er konan
min með flokknum, Ástrós
Guðmundsdóttir. Að sjálfsögðu er
þetta erfitt fyrirokkur — en hvað
gerir maður ekki fyrir iþrótt sina.
Og svo kemur hann Guðmundur
Helgi — strákurinn okkar — með
á æfingar. Hann er nú tveggja
ára, og þarf ég nokkuð að taka
fram um áhugann, hann er i blóð-
inu.”
Englands
Octavio, Toni og Nene. Ensku
sóknarmennirnir komust litið
áleiðis — og féllu mjög I rang-
stöðu taktik heimaliðsins.
A 15. min. náði Portúgal for-
ustu, þegar Rodrigues skoraði
beint úr aukaspyrnu — virkilegur
þrumufleygur, sem Clemence
hafði enga möguleika að verja.
England jafnaði á 41. min. —
einnig eftir aukaspyrnu. Að sögn
Reuters tók Channon spyrnuna —
og knötturinn fór af varnarmanni
i markið. BBC sagði að Channon
hefði gefið á MacDonald — og
hann spyrnt knettinum i varnar-
mann og i mark.
I byrjun siðari hálfleiks sótti
enska liðið talsvert — en árangur
enginn. Rodrigues borinn af velli
meiddur og kom Carolino i hans
stað. Revie tók MacDonald og
Madeley út af — setti Clarke og
Thomas inn á, en allt kom fyrir
ekki. Portúgalir voru betri — frá-
bær markvarzla Clemence og
góður varnarleikur Todd og
Watson kom i veg fyrir tap enska
liðsins.
Staðan i riðlinum er nú:
England 6 3 2 1 11-3 8
Tékkar 5 3 11 12-5 7
Portúgal 5 13 1 4-7 5
Kýpur 4 0 0 4 0-12 0
Tékkar verða að sigra á Kýpur
á sunnudag — annars komast
'Englendingar áfram.
Woles hafði það
Wales kom allra þjóöa mest á
óvart I Evrópukeppni landsliöa.
Sigraöi örugglega I 2. riöli meö 10
stigum, þremur stigum á undan
Austurrfki og Ungverjalandi — en
Ungverjar voru fyrirfram taldir
sigurstranglegastir i riölinum.
I grenjandi rigningu i Wrexham
i gær sigraði Wales Austurriki
með 1-0 — og fögnuður 30 þúsund
áhorfenda eftir leikinn var hreint
ótrúlegur. Eina mark leiksins
skoraði Arfon Griffith, elzti leik-
maðurinn á vellinum, 34ra ára, á
69. min. 33ja ára var hann fyrst
valinn i landsliðið og hefur skorað
i öllum leikjum Evrópukeppninn-
ar fyrir Wales nema einum.
Griffith hefur leikið i 17 ár með 3.
deildarliði Wrexham — smátima
með Arsenal og lék þar 15 leiki i
aðalliðinu.
Austurriki átti litla möguleika i
gær og fyrirliði liðsins, Werner
Kreiss, var borinn af velli ökkla-
brotinn á 28. min. Lokastaðan i
riðlinum
Wales 6 5 0 1 14-4 10
Ungverjal. 6 3 12 15-8 7
Austurriki 6 3 12 11-7 7
Luxemborg 6 0 0 6 7-28 0
vitað getur brugðið til beggja
vona — en við eigum góðan áhorf-
endahóp, sem mun styðja vel við
bakið á okkur. Við eigum að geta
unnið þá hérna heima — það fer
ekkert á milli mála. Þegar Vik-
ingsliðið spilaði við Gummers-
bach úti, þá töpuðu þeir með að-
eins þrem mörkum, enda mark-
varzlan i lagi. Að visu var þetta
æfingaleikur — en Gummersbach
lék þá á fullu. Og Jón Hákonarson
varði al.lt frá Hansa — hann var
lika með marbletti á eftir, dreng-
urinn sá.
Þegar ég var
hlaupadós
Ég byrjaði með meistaraflokki
strax sumarið eftir að ég gekk
upp úr 3. flokki — þá i útimótinu.
Þá voru þar gamlar kempur eins
og Siggi Bjarna og Rósi — sem þá
lék úti.
Einnig voru þá mestu stór-
skyttur islenzks handbolta i lið-
inu, Jón Hjaltalin og Einar
Magnússon — þá var maður
nokkurs konar hlaupadós — hljóp
i vörn og sókn. En i gegn um árin
hefur breiddin i liðinu aukizt og
árangurinn eftir þvi. 1 vor hlutum
við okkar fyrsta Islandsmeistara-
titil. Að baki honum voru æfingar
og aftur æfingar — mannskapur-
inn æfði feikivel undir stjórn
Karls Benediktssonar, sem er
bezti þjálfari okkar i dag.
Ef vörnin fer í gang
er ég ekki hrœddur
leiknum seig Kielarliðið framúr
— sigraði 12-8.
Ólafur skoraði helming marka
Dankersen — eða fjögur — og
Axel Axelsson skoraði eitt mark.
Einnig þeir Kramer, Busch og
Becker eitt mark hver fyrir
Dankersen.
Þetta var slæmt tap fyrir okk-
ur, sagði ólafur ennfremur. Við
höldum þó enn öðru sæti, en
Wellinghofen er hættulegt I sam-
bandi við það sæti. Kielar-liðið er
sterkt — en það, sem skeði i
gærkvöld var of mikið af þvi
góða. A sunnudag leikum við i
Dankersen I Evrópukeppninni á
útivelli i Salzburg — og við. Axel
komum svo heim á þriðjudag,
sagði Ólafur að lokum. Aðrir leik-
ir voru ekki i 1. deildinni
vestur-þýzku i gær. 3. desember
mætir Dankersen Gummersbach
i nórðurdeildinni.
en til leiksins kom — en þetta var
þó verra en við höfðum búizt við.
Eftir leikinn sögðu áhorfendur, að
önnur eins heimadómgæzla hefði
ekki sézt i Kiel frá 1960.
Stemning meðal áhorfenda var
sú mesta, sem ég hef komizt i
kynni við. Þeir voru 7000 þarna i
Kiel 1 gærkvöld og létu okkur
heldur betur i sér heyra. Þeir
tóku landsliðsmanninn hjá okkur
Busch sérstaklega fyrir. Það var
pípt á hann I hvert sinn, sem hann
fékk boltann.
Það var mikil harka i þessum
leik. Varnarleikur — og mark-
varzla — mjög góður. Staðan i
hálfleik var 4-4 — en I siðari hálf-
*
Páll Björgvinsson — fyrirliði Víkings — að skora i Laugardalshöll.
Aldrei. I fótbolta vinnur
maður eða tapar. En að
hætta, aldrei,
sem skeður.
*J.
Kannski gætum
frestað leiknum
i tvær vikur
Fts J. G. P. N. p.-c.
Belgique 8 6 3 1 2 6-3
Allemag. E. 7 6 2 1 3 8-7
France 5 6 1 2 3 7-6
Islande 4 6 1 3 2 3-8
Hana nú!
— segir Páll Björgvinsson, fyrirliði íslandsmeistara Víkings,
um Evrópuleikinn við Gummersbach á laugardag
Dankersen tapaði í norðurdeildinni þýzku í gœr í Kiel 12-8
Ólafur H. Jónsson skoraði helming marka Dankersen
Þetta er það versta, sem ég hef
nokkru sinni lent i. Dómararnir
dæmdu bókstaflega ekki á mót-
herja okkar — varla flautað á þá
— dæmigeröustu heimadómarar,
sem ég hef komizt I kynni viö.
Kielar-liðið gekk á lagiö og sigr-
aöi Dankersen I gærkvöld 12-8 á
leikvelli sinum I Kiel, sagöi Ólaf-
ur H. Jónsson, þegar Dagblaöiö
haföi samband viö hann i Danker-
sen i morgun.
Við hjá Dankersen gátum
ekki annað en brosað að vit-
leysunni hjá dómurunum undir
lokin. Við hefðum átt að fá sjö
vitaköst — bókstaflega hangið og
haldið I leikmenn i dauðafærum,
en ekkert dæmt. Þessir dómarar
eru frægir — það vissum við áður
íþróttir