Dagblaðið - 11.12.1975, Side 8

Dagblaðið - 11.12.1975, Side 8
8 Dagblaðið. Fimmtuclagur 11. desember 1975. MMSBUmB frjálst, óháð dagblað Ctgefaudi: Dagblaðið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn’ R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason iþróttir: llallur Simonarson ilönnun: Jóhannes Reykdal Blaðamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir, Haliur Ilallsson, Helgi 'Pétursson, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson. Ilandrit: Asgrimur Pálsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Inga Guðmannsdóttir, Maria ólafsdóttir. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson Gjaldkeri: Práinn Þorleifsson Auglýsingastjóri: Asgeir llannes Eiriksson Dreifingarstjóri: Már E.M. llalldórsson Áskriftargjald SIIO kr. á mánuði innanlands. 1 lausasölu 10 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Ritstjórn Siðumúla 12, simi S3J22, auglýsingar, áskriftir og af- greiðsla Þverholti 2, simi 27022. Vaxtalækkun Bankavextir eru miklu hærri hér en annars staðar gerist. Háu vöxtunum er ætlað að hamla gegn verðbólgunni. Þeir eru mikil byrði á atvinnuvegum og einstaklingum. Nú virðist hafa skapazt tækifæri til að lækka vextina, án þess að það stuðli að verðbólgu. Það kynni þvert á móti að verða til þess, að verðbólgan yrði minni. Hóflegar kauphækkanir á siðastliðnu vori eiga mestan þátt i, að úr hraða verðbólgunnar hefur dregið siðustu mánuði. Þegar atvinnuvegirnir hafa ekki svigrúm til að veita verulegar kauphækkanir með þvi að skerða hagnað sinn koma kauphækkanir fram i verðhækkunum eða gjaldþroti fyrirtækja. Það er lýðum ljóst, að verði talsverð kauphækkun nú um áramótin le.'ðir hún einungis til þess, að verðbólguhjólið eykur hraðann. Það verður að finna aðrar leiðir. Kjaramálaráðstefna Alþýðusambandsins benti á eina slika leið, vaxtalækkun. Launþegar hafa með þessu lýst yfir, að þeir muni meta lækkun vaxta sem kjarabætur, draga úr kröf- um sinum um kauphækkanir, ef vextirnir lækka. Það eru óhóflega háir vextir, nema við sérstak- lega óeðlilegar aðstæður, þegar sá sem tekið hefur lán til fimm ára, sem greiðist með jöfnum af- borgunum, borgar álika mikið i vexti og hann" greiðir i afborgunum. Þannig er málum farið i ár. Vextirnir eru þung byrði á launþega almennt. Þvi er rökrétt að lækkun vaxta sé metin tii jafns við kauphækkun. Það þýðir, að beinar kauphækkanir verða minni, ef komið er til móts við launþega i þessu. En vaxtalækkun verkar með öðrum hætti að lausn kjarasamninga. Hún gerir at- vinnuvegunum auðveldara að greiða hærra kaup, þar sem þessi kostnaðarliður minnkar. Fyrir aldrað fólk og aðra, sem kunna að eiga ein- hverja peninga i banka, skipta vextirnir litlu máli i samanburði við verðbólguna. Aðalhagsmunamál þessa fólk er, að úr verðbólgunni dragi. Það er með örðum orðum hagur þess að kauphækkunum verði haldið innan þeirra marka, sem efnahagurinn þolir, án þess að enn ein verðbólgusprengingin dynji yfir. Ennfremur má færa þau rök fram til stuðnings vaxtalækkun um þessar mundir, að verðbólgan er minni en áður. Ef sérfræðingar hér hugsa sér, að vera skuli eitthvert ákveðið hlutfall milli vaxta og verðbólgu, þá ber að lækka vextina, þegar verðbólgan minnkar. Við núverandi aðstæður, þegar flestir eru tilneyddir að taka lán þrátt fyrir vextina, gefst út- lánastopp betur en háir vextir til að hamla gegn þenslu. Vitað er að sumir ráðherrar að minnsta kosti telja vaxtalækkun koma til greina, en Seðlabankinn hefur önnur sjónarmið og tekur fyrst og fremst mið af áhrifum hárra vaxta á þenslu. Meginmálið er að leiðir finnist til að koma til móts við kröfur alþýðusamtakanna um kjarabætur án þess að allt fari i loft upp. Við verðum að halda verðbólgunni niðri, úr þvi að tækifæri gefst til þess. ÞORA ÞEIR AÐ Þorir rikisstjórnin að skera niður framlög til almannatrygg- inga um tvo milljarða króna eins og hún boðaði i haust er fjárlög voru lögð fram? Gera ráðherrar, þingmenn og aðrir stuðningsmenn stjórnarinn- ar sér ljóst hvað slíkur niður- skurður mundi þýða fyrir gamla fólkið, öryrkjana, fyrir sjúklinga á sjúkrahúsum og fjöískyldur þeirra? Þessar spurningar biða nú svara að tjaldabaki á Alþingi þar sem frumvörp um niðurskurð rikisútgjalda hafa loksins verið lögð fram, eftir að þingið hefur verið aðgerðalitið i tvo mánuði. En stærsti bitinn er eftir: almannatryggingarnar. Það er rétt að tryggingarnar kosta þjóðina of fjár — ef rétt er að nota orðið kosta.af þvi að þær eru tilflutningur á tekjum, frá þeim sem helzt eru aflögufærir, til hinna sem verst eru stæðir vegna aldurs, veikinda eða af öðrum ástæðum. Tryggingakerfi okkar hefur nú verið að þróast og vaxa i nokkra áratugi, og er sjálfsagt að halda uppi ýtrustu gætni hvað framkvæmd þess snertir. Það mun án efa vera nokkuð um mis- notkun trygginga. Slik kerfi eru alltaf misnotuð að einhverju marki. En það eru smámunir i samanburði við það gagn sem þau gera, þá mannúð sem þau sýna. Almannatryggingar eru krist- indómur i framkvæmd, sagði frægur klerkur i Reykjavik eitt sinn, enda þótt hann væri ekki „vinstrisinnaður” i stjórnmála- skoðunum. Við skulum dæma hvert þjóðfélag eftir þvi hvernig það fer með sjúka og aldraða, segir fornt orðtæki. Okkur hættir til að telja al- mannatryggingar sjálfstæðar og þvi er hollt að hlusta eftir dæmum um þýðingu þeirra. Amerisk stúlka, sem er öryrki, giftist tslendingi, átti með honum tvö börn og fluttist hingað. Þau skildu og hún var spurð hvort hún vildi fara heim. Nei, hún sagðist bjarga sér miklu betur við trygg- ingar og aðstoð hér á Islandi en i Bandarikjunum Það er talað um að láta sjúklinga greiða daggjöld á sjúkrahúsum eins og gerist erlendis án trygginga. Flestir vilja byrja lágt, e.t.v. með 800 krónur á dag. En þessi gjöld mætti hækka með ákvörðunum Hann er gamaldags hann Jón foreldror eru heldur ekki við- mœlandi í dag Það er ekki ofsögum sagt að hann Jón og hún Gunna hans hafi fengið fyrir hjartað eftir lesturinn á þvi sem eftir framkvæmda- stjóra Tónabæjar, Ómari Einars- syni, var haft i Dagblaðinu á dögunuraÞetta var út af drykkju- skap og skemmdarverkum unglinganna við Tónabæ, en Omar sagði: „Þetta fólk hefur aldrei upplifað það að fullorðinn maður hafi talað við það af viti. Reyni maður slikt eiga krakkarnir það hreinlega til að skæla. En auðvitað verður maður að halda áfram að reyna. Það ber náttúrlega ekki árangur nærri strax, þetta er miklu meira mál en svo.” Gat það verið að hann Jón hefði ekki talað við börnin sin af viti, en þau voru einmitt á þeim aldri sem mest hafði haft sig i frammi i Tónabæ? Ekki gat Jón staðið á móti þvi að 15 og 16 ára unglingar fengju að fara út að skemmta sér. Það fengju „allir” eftir þvi sem Jón vissi bezt. Að visu hafði samkomulagið ekki verið sem bezt við krakkana að undanfömu. Hann hafði svo sem fengið að heyra ab hann væri gamaldags og bezt geymdur á elliheimilinu. Og hún Gunna hans átti ekki sjö dagana sæla þar sem hún gekk um með bómull i eyrun- um. Hvers vegna? Jú, það var verið að spila poppmúsik og þau Jón og Gunna áttu steriótæki. Ef Á öndverðum áttunda tug aldarinnar hefur hvert merkisár- ið af öðru heilsað og kvatt. 1971 var til að mynda ár nýrrar rikis- stjórnar sem sálaðist úr innan- meini á þjóðhátiðarárinu. Striðs- skip danskt flutti upp hingað Flateyjarbók og fleiri handrit is- lensk, þjóðargjöf dana. Þetta var ár geirfuglsins sem við keyptum á tvær milljónir úttroðinn; mundi vist leggja sig á einar 7—8 nú. 1972 ber hátt heimsmeistara- mót i skák og þvi heimsfrægt. Þó ekki að endemum, en nærri lá það. Landhelgin færð út i 50 milur og hófst þorskastrið. Floti hennar hátignar fékk verkefni við sitt' hæfi eins og nú, og varla seinna vænna að berjast um siðustu titt- ina. Þetta var ár bókarinnar. 800 millj. manna geta ekki lesið bæk- ur samkv. skýrslum það ár. Hall- dór Laxness sjötugur, og minntist jafnvel háskólinn afmælisins. Arsins 1973 verður lengi minnst sem árs náttúruhamfara og þá um leið háfleygra loforða, en um efndirnar má minna 'á visu eina gamla: Þótt þú lofir fögru fljóð o.s.frv. Þetta var og ár hinna „tignu gesta” og þá fjölgaði orðu- bræðrum. — Áður fyrr borguðu krossberar metorðaskatt, skv. röðun i 9 tignarflokka og var þetta hár skattur. Þar sem mjög skort- ir nýja tekjustofna legg ég til að metorðaskattur veri lagður á að nýju. Dýrtiðardraugurinn fitnaði. Skattakerfið varð óskiljanlegra en nokkru sinni fyrr; vel fjáðir menn gátu orðið skattlausir og fengu jafnvel endurgreiðslur úr rikissjóði. Þetta hét neikvæður tekjuskattur. 1 ár eru 3000 orða skýringar prentaðar á skattseðil- inn, enda óskiljanlegri en nokkru sinni fyrr. Þá er komið að þjóðhátiðarár- inu með tilheyrandi þjóðhátið af litlu tilefni, nýjum þjóðhátiðar- vegi, sem var þó litt notaður, en þetta var góð hátið og lauk með umferðarhnút aldarinnar. Auk Þingvallahátiðar margar minni um landið vitt og breitt með góð- um ræðum og meiru sem geymt var niðursoðið útvarpshlustend- um til andlegrar upplyftingar og entist út árið. Og þjóðhátiðarbók- menntir urðu til. Rangæingar gáfu út myndarlega bók sem þeirra var von og visa. Skáld þeirra — og þjóðarinnar — Guð- mundur Danielsson, skrifaði Óra- tóriu ’74, sloppinn úr heljargreip- um, en lifði auk þess af þjóðhátið- ina miklu og tvennar kosningar. Guðmundur er af Vikingslækjar- ætt. Það brá nokkrum skugga á vel- nefnda hátið að andinn brást þeim sem ortu h-ljóð samkvæmt útboði. En betur fór en áhorföist þvi út kom ljóðabók eftir formann hátiðarnefndar, nýr landvinning- ur skáldsins og „gagnbylting ljóðsins”. Þar sem viðurlög nokk- ur eru gegn þvi að vitna i Ljóð ’74 læt ég flakka visu eftir Halldór Laxness úr Aþingishátiðarljóði 1930: Heimsfræga stund nær pólitiin prúð puntuð með bláhvitt og visuðu oss i gjána, þángað sem hnipin hlustar Snorrabúð á helga ræöu um Jesúkrist og Stjána. Merkasta atriði hátiðarinnar var þingmannasýning á palli og þjóðargjöfin sem þó hefur verið klipið af. Og ekki má gleyma gjöf Norðmanna, teinæringunum. Dag hvern sögðu fjölmiðlar frá hinni frækilegu siglingu. Loks tóku frændur okkar land i Grindavik og hlutu góða gistingu i verbúð. En landar virtust ekki sérlega

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.