Dagblaðið - 16.12.1975, Side 3

Dagblaðið - 16.12.1975, Side 3
Dagblaðið. Þriðjudagur 16. desember 1975. 3 ALLT, ER ATHUGAVERT ÞÓTTI,VAR LAGAÐ — segir Einar Hólm forstöðumaður Skólatúnsheimilisins vegna fréttar í Dagblaðinu Einar Hólm ólafsson, forstöðu- maður vistheimilisins að Skála- túni skrifar: „Vegna fréttar á baksiðu Dagblaðsins þann 10. des. siðastl. um orðróm þess efnis að brunavarnir á Skálatúns- heimilinu séu ófullnægjandi, finn ég mig knúinn til að taka fram eftirfarandi: Ég tók við forstöðumanns- starfi Skálatúnsheimilisins þann 1. ágúst 1974. Þá um haust- ið komu tveir menn frá Eldvarnaeftirlitinu á staðinn til þess að kanna, hvernig bruna- vörnum heimilisins væri háttað. Ég fór með mönnum þessum um öll húsakynni heimilisins og gerðu þeir réttilega athuga- semdir við einstök smávægileg atriði, er að þeirra dómi voru ófullnægjandi. Fékk ég at- hugasemdir þessar i hendur skriflega og ætlazt var til, að úr yrði bætt. Var ég þakklátur fyrir ábendingar og var allt það, er athugavert þótti, lagfært á næstu dögum. I framhaldi af þessu vil ég geta þess, að um það bil einni viku áður en um- rædd frétt birtist i Dagblaðinu, var þess farið á leit við Eldvarnaeftirlitið, að það sendi hingað á Skálatúns- heimilið fulltrúa til þess að hafa brunaæfingu með starfsfólkinu. Á Skálatúnsheimilinu er húsakosti þannig háttað að f jögur ibúðarhús eru á staðnum. Tvö þessara húsa eru starfs- mannahús og tvö eru heimili vistfólks. I svokölluðu drengja- húsi eru 19 vistmenn, og i stúlknahúsi eru vistmenn 39 talsins. Sérstök næturvakt er sin i hvoru húsinu, þ.e. tvær vöku- konur eru á staðnum hverja nótt. Sérstakt kallkerfi er milli þessara tveggja hús og einnig frá þeim báðum i annað starfs- mannahúsið og að auki hafa vökukonurnar báðar sima i vaktherbergjum og geta á þann hátt einnig komizt i samband hvor við aðra og starfsmanna- húsin bæði svo og slökkvilið. Það að starfsfólkið búi i nokk- urri fjarlægð, verð ég að segja að sé alrangt þar eð öll þessi hús eru á sömu lóðinni. Það sem ég hefi hér skrifað, geri ég mestmegnis til þess að aðstandendur vistfólksins sem sumir hverjir búa viðs fjarri verustað barna sinna óttist ekki aðbúnað barna sinna, vegna fleipurs og „orðróms” sem þess, er vitnað er i i Dagblaðinu 10. des. siðastliðinn. SkólatúnsbainiM: Óskað eftir meiri og betri eldvörnum „Skdla túnsheimilib er kannski ekkert verr útbúið en margar aörar stofnanir, en bitt er annab mál, aB þar mætti ymislegt betur fara,” svaraði Gunnar ólafsson hjá Eldvarnaeftirlitinu spumingu Dagblaösins um oröróm þess efnis aö Skálatúnsheimiliö væri sérstaklega slæmt hvaö eldvarnir snerti. Þaö, sem helzt er ábótavant I Skálatúni, er aö vaktmaöur- inn á staönum á óhægt meö aö ná I starfsfólkiö ef eldur kem- ur upp. Starfsfólkiö býr i nokkurri fjarlægö frá heimil- inu sjálfu og ekki næst f þaö nema 1 gegnum slma. Eld- varnaeftirlitiö hefur fariðv íram a ati 1 startsmannaíbo!)- unum yérQi. Jtomiö upy bjollu- 'ITerli. sem váktmaöurinn 1 sett l eang f emu vetfangi ef_l ígætl eltlur kæmi upp. 1 Mosfellssveit er hvorki slökkviliö né sjúkrablll. Spurningunni um, hvort ekki væri æskilegt aö hreppurinn kæmi sér upp slökkviliöi svar- aöi Gunnar, aö í rauninni væri litiö lengra upp I Mosfellssveit en til fjarlægustu staöa innan- bæjar. Aö svo stöddu væri þvf ekki ástæöa til slfks. —AT— t svari samgönguráðherra, við fyrirspurn þingmannsins Sigurlaugar Bjarnadóttur, kemur fram að dælupramminn Hákur sé útbúinn „skera” á inn- taki dælurörsins, sem er mjög þarflegt tæki þegar losa þarf föst eða þjöppuð jarðefni á botn- inum. Ég vil benda samgönguráð- herra á það að i dæluskipinu Grjótjötunn er einnig slikur „skeri” fyrir hendi og einnig er i þvi skipi mjög öflugur og fljót- virkur „krabbi” sem lokast og opnast með vökvaþrýstingi. Þessi krabbaútbúnaður er mjög fljótvirkur við uppmokstur á botnefnum, sem oft er erfitt að ná upp með venjulegri sugu — þ.e. dælingu. Samgönguráðherra heldur þvi fram að reynzt hafi illa að ætla þessum skipum erfiðari verkefni en að dæla lausum sandi. Ráðherra ætti ekki að staðhæfa slikt áður en „full- reynt” er og þau tæki sem til eru i landinu fái viðunandi tækifæri til að sýna hvað þau raunveru- lega geta gert. Ég efast um að þessi skip hafi fengið tækifæri til að sýna ágæti sitt — enda varla von þar sem litið sem ekkert hefur verið gert i hafnarmálum landsbyggðarinnar mörg und- anfarin ár. Ráðamenn verða að taka hafnamál föstum tökum nú þegar — það er búið að salta þau of lengi. Betur væri að þvi fjár- magni sem ausið er i óþarfari og óarðbærari verkefni, væri varið til hafnamála. Það er mál til komið að dusta rykið af hafna- málastofnuninni sem og mörg- um öðrum stofnunum rikisins. Timi er til kominn að rikisstofn- anir taki upp nútimalegri og raunsærri vinnubrögð.” HAFNAMÁL í ÓLESTRI Trausti Guðmundsson skrifar: „Dýpkunarframkvæmdir i höfnum landsins eru mjög brýnt verkefni og ástæða skrifa minna sú að mig Iangar til að gera at- hugasemd við svar samgöngu- ráðherra við fyrirspurn á Al- þingi. Það er mjög brýnt verkefni, sem liggur fyrir, varðandi dýpkun fiskihafna viða um land. Áreiðanlega ekki siður brýnt en brúarævintýrið yfir Borgar- fjörð. 1 dýpkunarmálum hafna hef- ur mjög litið verið aðhafzt sið- ustu árin — svo litið að furðulegt verður að teljast. Þannig mun nú viða skapast neyðarástand þegar hin nýju fiskiskip okkar koma inn til að landa afla sinum og einnig þegar flutningaskipin koma til að lesta afurðir til út- flutnings og losa vörur. Ég vil gera athugasemd við umræður sem hafa orðið áþingi varðandi tækjakost landsmanna til dýpkunar hafna. Þingeyri byggir að mestu afkomu sina á sjónum eins og svo mörg fiskiþorp á tsiandi gera. Höfnin er þvi lifæð staðarins og þvi mikilvægt að hún sé i góðu ásigkomulagi. Við viljum þó taka fram að Þingeyri dregst engan veginn inn I þetta bréf — aðeins sem dæmigert dæmi um islenzkt fiskiþorp sem byggir af- komu sina á sjónum. Aðeins eitt af mörgum. Ljósm. Mats Wibe Lund. BIRTIÐ NÝJAR SKÁKIR Gunnar Finnlaugsson, Seifossi skrifar: „Þegár DAGBLAÐIÐ hóf göngu sina kom i ljós að skák- unnendur myndu geta gengið að skákþætti visum i hverju laug- ardagsblaði. Undirritaður hefur lesið flesta þá þætti sem birzt hafa og orðið fyrir miklum von- brigðum og kemur þar einkum tvennt til. Umsjónarmaður þáttarins hefur upp til hópa birt gamlar skákir og virðist ekki gera sér grein fyrir að litið gildi hefur að birta skákir sem birzt hafa i innlendum og erlendum blöð- um. Væri æskilegt að umsjónar- maður þáttarins gerði sér far um að birta nýjar skákir og gæti þá e.t.v. fengið sér sterkari skákmenn til hjálpar við gerð skákskýringa. Hitt atriðið sem undirrituðum finnst ámælisvert er að umsjón- armaðurinn hefur upp ■ á sið- kastið skrifað væmna lofrullu um sitt eigið félag sem er Tafl- félag Reykjavikur. Einnig hefur hann notað dálkana til að aug- lýsa mót i sinu félagi. Er ekki DAGBL. „frjálst og óháð"? Er það von undirritaðs nð þessum lofskrifum linni og að umræddurdálkahöfundur gerist „frjáls og óháður” i skrifum sinum og fréttaflutningi.” Svar: „Gunnar hefur hér einkum við tvennt að athuga: Gamlar skákir og auglýsing á starfsemi T.R. Skýringin á fyrra atriðinu er sú að Dagblaðið hefur ekki yfir þeirri tækni að ráða að setja upp skákstöðumyndir þannig að við höfum stundum gripið til þess ráðs að birta gamlar skák- irúrerlendum blöðum og fengið lánaðarstöðumyndir þaðan. Við vonum að þetta atriði leysist fljotlega. I sambandi við seinna atriðið er varla hægt að segja. að kynn- ing á unglingastarfsemi T.R. sé nein lofrulla um félagið og þó birzt hafi fréttir af mótshaldi T.R. i skákþættinum er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að birta þar fréttir um starfsemi annarra félaga. Bréfritari mun vera ritari Skáksambands Suð- urlands og væri ekki úr vegi að hann sendi þættinum fréttir af starfsemi sins félags og er það auðsótt mál að birta þær i skák- þættinum sem og fréttir frá öðr- um skákfélögum. ólafur Orrason. Hefur skammdegiö mikil áhrif á þig? Ragnheiður Axelsdóttir sjúkra- liði: „Nei — það er sjaldgæft að ég sé eitthvað niðurdregin. Það fer þó nokkuð eftir veðri”. Brynjólfur Arnason hárgreiðsiu- maður: „Já — það hefur mjög slæma verkan á mig. Ég á erfitt með að vakna á morgnana og þegar það tekst, erég hálfsofandi allan daginn”. Aðalheiður Vilhjálmsdóttir af- greiðslust.: „Nei — það hefur engin áhrif á mig. Ekki nokkur. Ég er sennilega svona skapgóð manneskja”. Edda Steingrfmsdóttir, nerai: „Nei — ekki hefur það nein yfir- þyrmandi áhrif á mig. Þö geta þessir dagar veriö leiðinlegir. sérstaklega þegar maður er alltaf i prófum". Pagný Pálsdóttir hjúkrunar- kona: „Jú — ekki get ég neitað þvi. Svartasta skammdegið hefur oft deyfandi áhrií á mann. sér- staklega er erfitt að vakna". Ingunn Magnúsdóttir af- greiðslust.: „Svona hundaveður og myrkur hefur aldrei haft nein góð áhrif á mig. Ég nýt min bezt i sól og sumri".

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.