Dagblaðið - 16.12.1975, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 16.12.1975, Blaðsíða 14
^ r 14 ✓ Dagblaftið. Þriðjudagur 16. desember 1975 ............... Staðurinn var með „hringum- ferð”, líkt og nú er i Klúbbnum. Þessi hringstigi lá upp á svalir sem voru yfir aðaldansgólfinu á neðri hæðinni. deginum sem liður. Þykir mönnum þvi þessi „uppeldis- staður” stórs hluta reykviskrar æsku ætla að fara fyrir litið vegna sinnuleysis yfirvalda. Skemmtistaðurinn Glaumbær gjöreyðilagðist i eldsvoða vorið 1973 og gat æskufólk ekki á heilu sér tekið i langan tima á eftir. Framsóknarflokkurinn átti húsið og lét það i skiptum fyrir eignarlóð rikisins nálægt Hlemmi, þar sem þeir eru nú búnir að reisa hús. Rikið tók húsið til afnota fyrir Lista- safnið.sem búið hefur við þröng húsakynni i bjóðminjasafninu um áraraðir. Hreinsað var út úr húsinu og sett á það bráða- birgðaþak, en siðan voru fram- kvæmdir stöðvaðar. Komu fram kvartanir frá ibúum nær- liggjandi húsa um að þakið væri of hátt, miðað við það sem áður var, og stóð i þrefi um það mál fram á sumarið en siðan siigldu framkvæmdir algjörlega i stra nd. Hefur ekkert verið unnið i húsinu siðan, nema við að reyna að halda i horfinu, dæla út vatni og reyna að þétta þakið. Það er hins vegar ljóst, að verði ekkert að gert nú, muni verða ennþá dýrara að koma húsinu i viðun- andi horf. HP Má bióða bér í Glaumbœ?: Hús Listasafnsins í niðurníðslu Það var nokkuð vistlegra hér i gamla daga. Þar sem mennirmr standa var bar, rétt fyrir utan diskótekiö. Þarna er nú geymt þjóðhátiðardrasl. Þaö er siövenja í Týról aö þegar sonur fæöist, þá fer faðirinn út í skóg og velur sér bita af steinviði, sem hann geymir þar til sonurinn giftir sig, þá sker faóirinn andlit í vióarbútinn og hengir þaö yfirdyrnar á nýja heimilinu til þess að andi skógarins haldi frá öllu illu. Þak hússins er miglektog tjarnirnar á gólfinu segja sina sögu um viðhald hússins. TÖSKUHÚSIÐ LAUGAVEGI 73 — REYKJAVfK SlMI 15755 Það eru nú orðnir margir sem ekki voru komnir til skjaianna þegar Glaumbær brann. Húsið var einn vinsælasti skemmtistaður borgar- innar og var þar oft þröng á þingi. Hér á efri hæðinni var diskótek. LUKKUTR m TÝROL ’-ns.. Týróla lukkutröllin eru handskorin úr „Stone pine” steinviði af listrænum kunnáttumönnum. Engir tveir hlutir eru eins. — Takmarkað magn. Framkvæmdum við framtiðarhúsnæði Listasafns rikisins i gamla ishúsinu, sem einu sinni var hinn margrómaði Glaumbær, miðar ákaflega hægt og liggur húsið undir skemmdum. Ekki hefur fengizt fjármagn til þess að halda húsinuvið. þakið lekur og frost og vindar leika um veggi að vild. Eru þeir smám saman að springa og verður án efa dýrara að endur- byggja húsnæðið með hverjum GEIR OG WILSON HITTAST EKKI Embættismenn i Bretlandi hafa visað á bug blaðafrétt um, að forsætisráðherrarnir Geir Hallgrimsson og Harold Wilson muni hittast i næsta mánuði til að freista þess að leysa landhelgisdeiluna. Blað i London sagði, að Wilson hefði stungið upp á slikum fundi i bréfi, sem hann ritaði Geir Hallgrimssyni i nóvemberlok. Geir Hallgrimsson segir, að i bréfi Wilsons felist ekkert nýtt. James Cailaghan brezki utan- rikisráðherrann, hefur sagt, að Bretar séu tilbúnir til að hefja viðræður að nýju, hvenær sem Islendingar fáist til þess. Rikisstjórn tslands hefur sett það skilyrði fyrir framhaldi við- ræðna, að brezku herskipin fari á brott. Bretar leggja hins vegar áherzlu á, að ekki megi klippa á togvira brezkra togara, meðan viðræður standi yfir, ef af þeim yröi. —HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.