Dagblaðið - 16.12.1975, Page 23

Dagblaðið - 16.12.1975, Page 23
Dagblaðið. Þriðjudagur 16. desember 1975. 23 Sjónvarp 1 Útvarp Útvarp kl. 22,15: Kvöldsagan Dúó HVER ER HANN EIGIN- LEGA, „Þessi saga heitir Dúó eftir aöalpersónunni,” sagði Dagný Kristjánsdóttir, er við spurðum hana um nýju kvöldsöguna sem hefst I kvöld. Dagný hefur þýtt söguna og les þar að auki. „1 fyrsta lestrinum sér sögumað- urinn auglýsingar um ráðstefnu sem á að halda í Sandborg. Á ráðstefnu þessari á að fjalla um og komast að niðurstöðu um sannleikann. Þarna mæta til ÞESSI fundar allir vitrustu menn heimsins. Dúó tekur fram reiðhjólið sitt og heldur suður á bóginn til að vera viðstaddur þessa ráð- stefnu. Hann finnur hjá sér þörf til að vera þarna á staðnum þvi að hann er sannleiksleitandi maður. Meira vil ég eiginlega ekki segja um soguna þvi að þá missir spennan i henni marks.” Dúó er eftir danskan höfund, DÚÓ? Villy Sörensen. Við spurðum Dagnýju nánar um hann. „Villy Sörensen er einn af yngri höfundum Dana. Hann hefur gefið út nokkur smá- sagnasöfn og eru Danir mjög stoltir af honum. En auk þess að vera -rithöf- undur er Villy Sörensen einnig heimspekingur og hefur sent frá sér nokkur ritgerðasöfn um heimspeki. íslendingar þekkja kannski ekki mikið til hans, en þeir, sem eru i menntaskóla kannast vafalaust margir við sögu eftir hann, sem heitir Soldatens Juleaften. Ég held að hún sé i flestum dönsku- kennslubókum sem notaðar eru hér á landi.” — Hvernig kynntist þú verk- um Sörensens? „Ég kynntist Dúó i háskólan- um þar sem dálitið var fjallað um hana í bókmenntasögu. Mér fannst sagan skemmtileg og á- kvað að þýða hana til að fleiri gætu notið hennar.” — Og að lokum: Hver er Dúó? „Það vil ég ekki segja. Þú verður bara að hlusta á söguna til að komast að þvi.” —AT— Dagný Kristjánsdóttir, sem les kvöldsöguna „Dúó”, þýddi hana lika. Dagný stundar nám í is- lenzku og bókmenntum i Há- skóianum. Sjónvarp kl. 22,25: Utan úr heimi Þátturinn Utan úr heimi hóf göngu sina i haust og er á dag- skrá fjórum sinnum i mánuði. Gunnar G. Schram er með einn þátt, Jón Hákon Magnússon annan, Sonja Diego þann þriðja og fjórði þátturinn er erlend fréttamynd. 1 kvöld sér Sonja um þáttinn. Við spurðum hana að þvi, hvað hún hygðist taka fyrir. „I kvöld ætla ég að gera skil ráðstefnu, sem er að hefjast i Paris um orku- og hráefnismál. Þarna mæta 27 fulltrúarog ætla að reyna að koma einhverri stjórn á verðlagið á orku og hrá- efnum. Efnahagsbandalagsrikin senda einn fulltrúa á þessa ráð- stefnu og i þvi sambandi ætla ég að taka fyrir hvernig smárikj- um og rikjabrotum reiðir af inn- an Efnahagsbandalagsins. Ég á von á filmu, sem fjallar um fyrirætlun Bretlands að koma upp þingum i Skotlandi og Wal- es. Ég hef verið að kynna mér þetta mál og sé af þvi að þarna er margt látið ógert, sem full þörf hefði verið á, en það kemur allt betur fram i þættinum á morgun.” — Eigið þið i nokkrum erfið- leikum með að safna efni i þætt- ina? „Nei, i sjálfu sér höfum við nóg efni en með núverandi fyrirkomulagi þáttarins er dá- litið erfiðara að gera ýmsum málum skil en áður. Til dæmis er ekki grundvöllur fyrir að taka efni vikunnar eða mánað- arins fyrir. Það vantar eigin- lega meiri heildarsvip og á- kveðinn ramma, sem er hægt að ganga út frá.” — Hvaðan berst efnið aðal- lega? „Við fáum mest efni frá Vis- news fréttastofunni og einng kemur töluvert frá bandarisku fréttastofunni ABC, sem við hófum að skipta við fyrir skömmu.” Jón Hákon Magnússon, einn umsjónarmanna þáttarins Utan úr heimi freistar þess að tæia nokkrar upp iýsingar upp úr Einari Ágústssyni á ráðherrafundinum I Brussel i siðustu viku. LáÉtKBaKr ð Hin gömlu kynni — þóttur fyrir eldra fólkið: ( NÆSTA ÞÆTTI SEGIR JÓN HELGASON FRÁ ÞORLÁKS BLÓTI í KAUPMANNAHÖFN I ^Sjónvarp 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Dagskrá og auglýsingar. 20.40 Þjóðarskútan. Þáttur um störf alþingis. Um- sjónarmenn Björn Teitsson og Björn Þorsteinsson. 21.30 Svona er ástin. Banda- risk gamanmyndasyrpa Lokaþáttur. Þýöandi Jón O. Edwald. 22.25 Utan úr heimi. Þáttur um erlend málefni ofarlega á baugi. Umsjónarmaður Sonja Diego. 22.55 Dagskrárlok. Það er ábyggilega mikill minnihluti þjóðarinnar sem hef- ur tima til að hlusta á morgun- útvarpið. Þar er þó alls ekki siðra efni en eftir hádegi eða á kvöldin. Til dæmis er þarna þáttur, sem er mikið umtalaður og þykir skemmtilegur, — Hin gömlu kynni. Þættinum stjórnar Valborg Bentsdóttir. Við rædd- um við hana um þáttinn. „Ég legg áherzlu á að hafa efni fyrir eldra fólk, sem hefur ekki margt við að vera,” sagði Valborg. „Ég er litið fyrir að taka viðtöl en nota stundum viðtöl úr segulbandasafni út- varpsins. Hins vegar er i þættin- um dálitið um upplestra, frá- sagnir og svo auðvitað tónlist. 1 þættinum i dag var lesin saga eftir Ragnheiði Jónsdóttur og fékk ég dóttur Ragnheiðar, Sigrúnu Guðjónsdóttur, til að lesa söguna. Hún heitir Draum- ur og veruleiki.” — En hvað veröur i næsta þætti? „Næsti þátturinn minn verður á Þorláksmessu og þá leik ég spólu með efni sem Helga Jó- hannsdóttir tók saman fyrir ein- um sex árum. Þar segir Jón Helgason frá Þorláksblóti i Kaupmannahöfn. Það er siður hjá tslendingum i Káupmanna- höfn að skemmta sér 22. desem- ber og lesa þá gjarnan eitthvað um heilagan Þorlák. Þetta er skemmtilegt og fróðlegt efni, sem ég held að margir hefðu gaman af.” —ÁT— 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 „Skrumskæling konunnar” eftir Barbro Bachberger Guðrún Birna Hannesdóttir les þýðingu sfna (3) 15.00 Miödegistónleikar. a. „Lilja” eftir Jón Asgeirs- son. Sinfóniuhljómsveit ts- lands leikur, George Cleve stjórnar. b. Lög eftir Jóhann Ó. Haraldsson, Ingunni Bjarnadóttur og Sigurð Þórðarson. Friðbjörn Jóns- son syngur. Ólafur Vignir Albertsson leikur á pianó. c. Sex lög eftir Pál Isólfsson við texta úr Ljóðaljóðum. Þuriður Pálsdóttir syngur. Jórunn Viðar leikur ápianó. d. Lög eftir Árna Thor- steinsson. Sinfóniuhljóm- * ............................. g Útvarp sveit Islands leikur. Páll P. Pálsson stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir) Tón- leikar. 16.40 Litii barnatiminn. Sigrún Björnsdóttir sér um timann. 17.00 Lagið mitt. Anna-Marie Markan sér um óskalaga- þátt fyrir börn yngri en tólf ára. 17.30 Framburðarkennsla i spænsku og þýsku 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Eftirmæli eftir striðsára n n a . Björn Stefánsson búnaðarhag- fræðingur flytur þriðja og siðasta erindi sitt um efna- hagsmál, stjórnmál og félagsmál á Islandi eftir strið. 20.00 Lög unga fólksins. Sverrir Sverrisson kynnir. 20.50 Að skoða og skilgreina. Kristján Guðmundsson sér um þátt fyrir unglinga. 21.30 Kristfræði Nýja testa- mentisins. Dr. Jakob Jóns- son flytur fjórða þátt sinn. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Kvöld- sagan: „Dúó” eftir Willy Sörensen. Dagný Kristjáns- dóttir byrjar lestur þýðing- ar sinnar. 22.40 Harmonikulög 23.00 A hljóðbergi. /

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.