Dagblaðið - 16.12.1975, Síða 24

Dagblaðið - 16.12.1975, Síða 24
Reykkafarar björguðu bíl, vélsleða og heyi Eldtungurnar stóðu út um glugga er qð vor komið Rétt eftir miðnætti i nótt varð elds vart i timburhúsi við Mikla- torg. í húsinu er bifreiðaverk- stæði og húsgagnaverkstæði. Allt slökkviliðið var kvatt út, þvi eldur var mikill er að var komið. Stóðu eldtungur út um glugga á norð- urhlið hússins, er slökkviliðið kom að. Slökkvistarfið gekk greiðlega og tókst að forða veru- legu tjóni. Maður, sem var við vinnu i hús- gagnaverkstæðinu varð eldsins var og tilkynnti um hann. Var cldurinn þá orðinn verulegur i bilaverkstæðinu., Norðurausturhl. hússins var þá fullur af reyk. Reykkafarar slökkviliðsins fóru inn á verkstæðið og tókst að bjarga út logsuðutækjum, sem hætta stafaði af. Einnig var bjargað út bifreið, sem inni var, vélsleða og nokkru af vélbundnu heyi. Eftir það tókst greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. Slapp húsgagnaverkstæðið að heita má alveg frá tjóni en i bilaverkstæð- inu brunnu einangrun og innvegg- ir. Skemmdir eru þó ékki taldar Reykkafari fer inn I reykkófið vopnaður mikiu kastljósi. verulegar að sögn slökkviliðsins i morgun, miðað við það sem útlit var fyrir er komið var á vettvang. — ASt— Véibundnu heyi var bjargað út úr húsinu.(DB-mynd Björgvin). frjálst, úháð dagblað Þriðjudagur 16. desember 1975. Geir Hallgrímsson, forsœtisróðherra, fimmtugur Geir Hallgrimsson, forsæt- isráðherra, er fimmtugur i dag. Öþarft er að kynna Geir sérstaklega, svo þekktur sem hann er. Hann baðst vægðar, er Dagblaðið leitaði uppgöngu til myndatöku i tilefni dagsins. Allt um það tekur Dagblaðið undir allar góðar óskir lands- manna til handa Geir Hall- grimssyni, konu hans, frú Ernu Finnsdóttur og fjöl- skyldu þeirra allri á þessum merkisdegi. STÁLU 200 KG. AF SYKRI TIL ÞESS AÐ BRUGGA STERKT ÖL Allt magnið fannst við húsleit Tvö hundruð kiló af sykri hurfu fyrir nokkru úr sölt- unarstöð kaupfélagsins á Höfn i Hornafirði. Lögregluyfir- völdum hefur nú tekizt að upp- lýsa málið og fyrir liggur játn- ing ungra manna um þjófn- aðinn. I játningu sinni viður- kenndu þeir að tilgangurinn hafi verið að brugga sterkt öl úr þessum sykri. Það var aðfaranótt 6. des- ember sem sykurinn hvarf úr söltunarstöðinni. Fimm dög- um siðar haföi Iögregluyfir- völdum staðarins tekizt að finna þjófana. Var húsleit gerð hjá einum hinna grunuðu eftir miklar undangengnar athug- anir og fannst þá allt sykur- magnið ósnert. Piltarnir sem voru viðriðnir þjófnaðinn sögðu i yfirheyrsl- unum að sykurverðlag i smá- sölu væri óhagstætt og þvl hafði þeim fundizt hentugra að afla sér sykursins á þennan hátt, heldur en að fá hann i smásölunni. ASt Féll 31/2 metra af fisklofti á steingólf LIGGUR STÓRSLASAÐUR í GJÖRGÆZLUDEILD Alvarlegt slys varð i fiskverk- unarstöð önnu h.f. á ólafsfirði i gærmorgun. Bragi Halldórsson bæjarfulltrúi, sem þar hefur unnið um árabil og veitt stöðinni að nokkru leyti forstöðu, féll þar ofan um lúgu. Var fallið um 3 1/2 metri og lenti Bragi á stein- gólfi. Bragi hlaut svo alvarleg meiðsli við fallið, að hann var fluttur flugleiðis til Reykjavlkur og liggur nú i gjörgæzludeild Borgarspitalans. Þar fékk blað- ið þær upplýsingar i morgun, að Bragi hefði hlotið alvarlega á- verka á baki og höfði. Hann er með meðvitund og llðan hans eftir vonum. Ekki liggur fyrir með hverj- um hætti slysið gerðist, og rann- sókn var ekki lokið I morgun. Talið er þó að lúgan hafi með einhverjum hætti sporðreistst og Bragi við það fallið niður á neðri hæðina. Hafði Bragi unnið að fiskþurrkun á loftinu. Bragi Halldórsson er fæddur 1941,eða 34ára að aldri. ASt. FÉLL AF ÞAKI 9 METRA Á FREÐNA JÖRÐ Fjörutiu og fjögurra ára smiður á Akureyri féll af þaki Gróðrarstöðvarinnar við Aðal- stræti kl. 15.20 i gær. Fallið er um 9 metrar. Liggur maðurinn nú I sjúkrahúsinu á Akureyri höfuðkúpubrotinn og mikið skrámaður auk þess sem hann fór úr vinstri mjaðmarlið við fallið. Maðurinn var við vinnu á þaki Gróðrarstöðvarinnar og var I stiga, sem bundinn var yfir hús- mæninn og inn um glugga hin- um megin hússins. Kaðallinn, sem stiganum hélt, skarst i sundur á mænisbrúninni. Féll maðurinn I stiganum frarn af þakbrúninni. Þarsem hann kom niður er jörð harðfreðin, en talið er vist að stiginn hafi dregið úr högginu og það hafi ef til vill bjargað lifi mannsins. Gróðrar- stöðvarbyggingin er hár kjallari og tvær hæðir auk þakrissins. ASt. FYLKINGIN AÐEINS AND- VÍG GREINARGERÐUNUM „Fylkingin var eini aðilinn, sem neitaði að verja rikisvald islenzku borgarastéttarinnar,” segir i greinargerð Fylkingarinn- ar, baráttusamtaka sósialista vegna afstöðu samtakanna til áskorana ungs fólks i landhelgis- málinu. Fylkingin og Heimdallur tóku ekki þátt I, þegar pólitisk samtök ungs fólks afhentu forsætisráð- herra kröfur um landhelgismálið i gær. Heimdallur kvaðst samþykkur þvi atriði I kröfunum, að slíta skyldi stjórnmálasam- bandi við Bretland, en ekki vilja, að tsland gengi úr Atlantshafs- bandalaginu, sem var annað atriði samþykktar þessarar. Fylkingin segist hafa lýst þvi yfir i undirbúningsviðræðum, að hún gæti samfylkt i þessu máli undir kröfum, sem samþykktar hafi verið þá. Slðar hafi „greinar- gerðum verið hnýtt við kjörorðin, sem Fylkingin var búin að sam- þykkja. Henni hafi verið ókleift að „útskýra kröfurnar út frá raunverulegum stéttarhagsmun- um verkalýðsstéttarinnar nema að ráðast á það, s'em stóð i greinargerðunum.” Fylkingin kveðst hafa verið samþykk kröfum um mótmæli við rányrkju, slit stjórnmálasam- bands við Bretland og endur- skoðun á veru Islands i NATO, aðeins ekki geta samþykkt, hvernig grein var gerð fyrir þess- um kröfum. Að samþykktinni stóðu félög ungs fólks i Framsókn, Alþýðu- bandalagi og Alþýðuflokki, auk Reykjavikurdeildar Einingar- samtaka kommúnista, Reykja- vlkurdeildar Kommúnistasam- takanna, marxistanna, Leninist- anna og samtaka ungs fólks i Samtökunum. —HH Kveikt I hasspipu. Hluti af fíkniefnunum sendur í efnagreiningu: ÞRÍR MENN í VARÐHALDI Eins og greint var frá i Dag- blaðinu á laugardag fannst mik- ið magn af fíkniefnum I bifreið, sem flutt var til landsins með skipi frá Hollandi. Var hasshundurinn notaður við leit i skipinu og fannst þá mikið magn af hassi falið I sils- um og viðar I bllnum. Eigendur bilsins, sem eru tveir, voru handteknir og settir I gæzluvarðhald og nú hefur þriðji maðurinn verið handtek- inn. Hafa þeir verið yfirheyrðir litillega hver I sinu lagi, er. ann- ars vinnur rannsóknarlögreglan að gagnasöfnun, sem er mjög vlðtæk. Bæði hafa mennirnir flækzt mjög viða á bilnum um alla Evrópu I sumar og eins er mögulegt, að þeir hafi komið heim I millitiðinni. Þá er þetta mikið magn af hassi alldýrt i innkaupi, svo gera má þvi skóna, að fleiri séu flæktir I málið. „Við höfum sent hluta af þeim efnum, sem fundust I bilnum I efnagreiningu, þar eð við erum ekki vissir á þvi, um hvaða efni sé að ræða. Það hefur hins veg- ar aldrei komið fram hjá okkur, að hér sé um morfín eða heróin að ræða eins og sagt var frá I einu dagblaðanna, sagði Þor- steinn Jónsson hjá Fikniefna- lögreglunni. „Þetta eru um 2,7 kg af hassi og eitthvert litilræði af þessu efni, sem við erum ekki vissir um hvað er”. Markaðsverð á hassi er i dag um 1500 kr. grammið svo hér er um nálægt fjögurra milljón króna virði af flkniefninu að ræða. HP. ENN LÍTIL HÆKKUN Litlar hækkanir hafa enn orðið á fjárlagafrumvarpinu en margt er I athugun og bfður 3. umræðu I Sameinuðu þingi. Meirihluti fjár- veitinganefndar lagði i gær fram tillögur sinar til annarrar um- ræðu. Það er óvenjulegt I tillög- unum, að framlög til stærstu fjár- festinga hækka ekki frá fjárlaga- frumvarpinu i upphaflegri mynd. Hins vegar segir meirihlutinn, að óv^njumörg atriði biði frekari meðferðar. Meirihlutinn segist hafa haldið fast við aðhaldsstefnu i fjárveitingum. Þvl séu ekki teknar upp enn nema sárafáar .breytingartillögur um fjárveit- ingar. Nefn din hefur haldið 38 fundi. —HH

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.