Dagblaðið - 01.03.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 01.03.1976, Blaðsíða 14
14 Dagblaðið. Mánudagur 1. marz 1976. þróttir þróttir Iþróttir róttir Þrjú heims- met Steve Hollands Stephen Holland, hinn frábæri ástralski sundmaður, bætti fjögurra daga gamalt heimsmet sitt í 800 m. skriðsundi um næstum fjórar sekúndur, þegar hann synti á 8:01.91 sek. á meistaramóti Ástralíu í Sydney í gær. Holland, sem aðeins er 17 ára, synti fyrr í vikunni á 8:06.27 mín. og hefur því bætt heimsmet Bandaríkjamannsins Tim Shaw, sem einnig er 17 ára, um 6.69 sek. í báðum þessum sundum. Þó var hann enn þreyttur í gær eftir keppnina á föstudag, en þá setti hann einnig frábært heimsmet í 1500 m. skriðsundi — synti á 15:10.89 mín.!! — en Shaw átti einnig efdra heimsmetið þar. Hol- land bætti heimsmetið um 10 sekúndur. Það var metaregn á ástralska mótinu. Neil Rogers setti samveldismet í 100 m. flugsundi 55.47 sek. og Mark Kerry í 200 m. baksundi 2:03.58 mín. Áströlsku metin féllu í nær hverri grein. Glenda Robertsson synti 100 m. baksund á 1:06.26 — Judy Hudson 200 m. bringusund á 2:41.83 mín., Jenny Turrall 1500 m. skriðsund á 16:53.68 mín. Neil Rogers 100 m. skriðsund á 53.05 og Judy Hudson 200 m. fjórsund á 2:22.47 mín. Nýi Hollendingur fljúgandi varð heimsmeistari! Hollendingurinn Piet Kleine, sem svo mjög kom á óvart á Olympíuleikunum í Jnnsbruck með að sigra í 10.000 metra skautahlaupi þar, bætti enn skrautfjöður í hatt sinn, þegar hann varð heimsmeistari í skautahlaupi um helg- ina. Hinn 27 ára gamli Kleine, sem er póst- maður, sigraði í 10.000 metra hlaupinu á 15.12.25 mín. Annarvarð heimsmeistarinn frá í fyrra Sten Stensen á 15.13.10. Kleine sigraði einnig í 1500 m hlaupinu á 2.03.33. Þetta gaf honum sigur því eftir fyrri daginn — í 500 og 5000 metra hlaupunum — var hann í öðru sæti. Hann varð annar í 5000 metra skautahlaupinu á eftir landa sínum Van Helden, sem varð þriðji að loknum greinun- um fjórum. í 500 metra hlaupinu varð Kleine fjórði. Þar urðu óvænt úrslit þegar Bandaríkja- maðurinn Eric Heiden sigraði á 39.11 sekúnd- um. Annar varð Kaj Stenshjemmet frá Nor- egi. Hann fékk tímann 39.65 og þriðji Gaitan Boucher frá Kanada á tímanum 39.68. Piet Kleine varð svo fjórði á tímanum 39.80. Þrátt fyrir 10 stiga frost og sterkan vind fjölmenntu áhorfendur til að hvetja sína menn en heimsmeistarakeppnin fór fram í Heerenveen í Hollandi, 20 þúsund manns voru báða dagana. Úrslit samanlagt urðu: 1. Piet Kleine, Hollandi 170.225 stig. Hann varð fyrstur í 10.000 og 1500 metrunum. Annar í 5000 og fjórði í 500. 2. Sten Stensen, Noregi 170.956 stig. Sten varð annar í 10.000 m, sjöundi í 500 m og þriðji í 5000 m. 3. Van Helden, Hollandi 171.092 stig. Hann hafði forystu eftir fyrri daginn. Þá sigraði hann í 5000 m hlaupinu og varð 3. í 1500 metrunum. En Van Helden brást illilega bogalistin í 10.000 metra hlaupinu, varð þar tíundi og missti þar með af öllum möguleik- um á fyrsta sætinu. h.halls. Stúdentar nú ú grœnu Ijósi — eftir sigur gegn Víking í blakinu Stúdentar nálgast nú óðum meistara- titilinn í blaki — þeir sigruðu Víking örugglega með 3 hrinum gegn 1. Yfir- burðir stúdenta voru umtalsverðir — 14 úra og heimsmet! Sunddrottningin mikla, Kornelía Ender, sem er fremsta skriðsundskona heims, sýndi hve fjölhæf hún er , þegar hún sigraði heimsmeistarana í bak- sundi, Birgit Treiber og Ulrika Richter, í sérgrein þeirra í Austur-Berlín á laugardag. Kornelia synti þá og sigraði í 100 m baksundi á 1:03.28 mín. og var aðeins 0.25 sek. frá heimsmetinu á vegalengd- inni. Hún skauzt framúr Treiber 1:03.66 mín. og Richter 1:03.79 mín. rétt í lok sundsins. í 200 m fjórsundi sigraði Birgit Treiber á 2:19.78 mín., sem er aðeins lakara en heimsmetið. Ulrika Tauber varð önnur á 2:20.14 mín. í gær setti 14 ára stúlka, Antje Stille, sem er nær óþekkt á alþjóðlegum vett- vangi í sundinu, nýtt heimsmet á mót- inu í Austur-Berlín. Það var í 200 metra baksundi og Stille synti vegalengdina á 2:14.41 mín. Bætti heimsmetið um 1.05 sek. og sigraði fyrri heimsmethafa, Birg- it Treiber, en hún synti vegalengdina á 2:17.01 mín. ÁRangur Stille var afar óvæntur. Hún er frá Magdeburg og í fyrra var hún tólfta á austur-þýzku afrekaskránni í baksundinu. í meistara- mótinu fyrir viku varð hún í 3ja sæti á eftir Richter og Treiber. Enn einn ísl. þjúlfari til Fœreyja Færeyingar hafa greinilega álit á íslenzkum knattspyrnuþjálfurum, Þeir Sölvi Óskarsson og Eggert Jóhannesson, kunnir þjálfarar, hafa báðir starfað í Færeyjum og innan tíðar heldur hinn þriðji utan. Það er Kjartan Sigtryggsson, fyrrum mark- vörður ÍBK og landsliðsins. Kjartan mun annast þjálfun hjá Tvöroyrar Boltfelag á Suðurey, en það leikur i I-deildinni i Færeyjum með sæmilegum árangri, — og hefur nú i hyggju að gera enn betur. emm. sigruðu i tveimur fyrstu hrinunum 15-2 og 15-4. Víkingar hins vegar tóku sig saman í andlitinu og sigruðu i þeirri 3ju 15-8. En þar með var draumurinn búinn — Stúdentar tróna nú einir og efstir — hafa ekki tapað leik. Þeir eru með 12 stig eftir 6 leiki og hafa aðeins tapað 5 hrinum unnið 18. Þróttur vann sinn þriðja sigur í deild- inni í ár — sigraði UMFB 3-1. Þróttur vann tvær fyrstu hrinurnar 15-12 og 15-7 en UMFB vann þá þriðju 15-11. Þróftur sýndi svo ótvírætt hvort liðið var sterkara i fjórðu hrinunni þegar liðið sigraði 15-4. Staðan í 1. deild er nú: ís 6 6 0 18-4 12 UMFL 7 5 2 18-8 10 Víkingur 8 5 3 18-11 10 Þróttur 6 3 3 11-12 6 UMFB 8 1 7 6-21 2 ÍMA 4 0 4 0-12 0 h.halls Slappað af og litið í kennslubæku mar milli sundgreina á Ægismótinu í gær DB-mynd Bjarnleifur. Ármann nú aðeins þremur leðqum fró meistaratign — sigraði Val 104-98 en ÍR heldur I við Ármann með sigri gegn Fram 88-75 Ármann stefnir hraðbyri á íslands- meistaratitilinn í körfuknattleik — á laugardaginn lögðu Ármenningar Val að velli 104-98. Leikur Vals hefur breytzt mikið til batnaðar eftir að Þórir Magnýsson hóf að leika aftur eftir meiðsli. Liðið er því hvaða liði sem er skeinuhætt og gott að hafa tvö stig á bak við sig eftir leik gegn Val. Þórir var í miklum ham — skoraði tæplega helming stiga Valsmanna — 45 stig af 98 stigum — mesta skor Vals í vetur. En það dugði skammt gegn sterku Ármannsliði — Þar er breiddinni fyrir að fara, með þá Jón Sigurðsson og Jimmy Rogers í fararbroddi. Ármenningar byrjuðu leikinn af miklum krafti — pressuðu vel. Valsmenn reyndu að dripla sig út úr því — en það var aðeins að færa leikinn í hendur Ármanni, þar sem þar eru mun leiknari einstaklingar. Ármenningar náðu brátt góðu forskoti 21-8 og síðan 31-12 en þá fóru Valsmenn að leika af meiri skynsemi, letu boltann ganga meir sín á milli. Fór þá að draga saman með liðunum og í hálfleik var staðan 59-44. Um miðjan síðari hálfleik var 10 stiga munur á liðunum — 65-55 en í raun ógnaði Valur aldrei sigri Ármanns, sem í lokin komst í 104-90 en Valur skoraði 8 síðustu stig leiksins, 104-98. Ögerlegt er að segja hvernig hefði farið ef Valur hefði hafið leikinn af meiri skynsemi en ekki gefið Ármanni þetta góða forskot, sem liðið var síðan að eltast við allan leikinn. í liði Ármanns bar mest á Jóni Sigurðssyni, sem átti mjög góðan leik og hittni hans með ágætum. Jón skoraði 33 stig — og Jimmy Rogers skoraði 26 stig. Hjá Val var Þórir Magnússon stiga- hæstur með 45 stig — Torfi Magnússon skoraði 25 en tilfinnanlega vantar breidd í liðið. KR og Fram áttust einnig við á laugardaginn — og ekki bauð sú viðureign upp á spennu né góðan körfu- knattleik, síður en svo. KR sigraði 86-72 eftir að hafa haft yfir í hálfleik 39-35. Um miðjan síðari hálfleik hafði Fram jafnað 55-55 en þa skoraði KR 12 stig í röð og gerði út um leikinn. Að venju var Trukkurinn langstigahæstur KR inga, — nú með 36 stig, næsti leikmaður skoraði 11 stig. Hörður Ágústsson var stigahæstur Framara með 15 stig, Eyþór Kristjáns- son skoraði 14 stig. í gær lék Fram enn — þá gegn ÍR. Ekki hefur verið laust við að um Kristin Jörundsson hafi farið, leikmaður með ÍR og þjálfari hinna ungu Framara. Fram hélt lengi í við hina leikreyndu ÍR-inga. ÍR byrjaði ágætlega — komst í 16-8 en þá náði Fram ágætum leikkafia og komst yfir 18-16, og var yfir 26-24. Staðan í hálfieik var 40-38 fyrir Fram. Fram jók við forskot sitt í byrjun síðari hálfieiks, komst í 48-43 en síðast var liðið yfir 56-55 — þá skoraði ÍR 8 stig í röð og eftir það voru úrslit ráðin — lokatölur urðu 88-75 rög ÍR því eina liðið sem enn getur ógnað Ármanni. Fram hefur valdið áhangendum sínum nokkrum vonbrigðum, ekki laust við að liðinu hrtii farið aftur er á mótið hefur liðið. Liðið sannaði þó í gær að margt gott býr í því — eins* og vanti einhvern afgerandi leikmann, leikmenn með reynslu til að leiða liðið áfram." > SKIÐASKOLI INGEMARS STENMARK Stöðvað er þannig að skíðunum er snúið snöggt til hliðar. Myndirnar sýna hvernig þetta er gert og með því að nota kantana á skíðunum er hægt at stöðva mjög snöggt. Dagblaðið. Mánudagur 1. marz 1976. 15 Iþróttir þróttir íþróttir íþróttir I Ennþó íslands- met Þórunnar! og sundfólk okkar almennt í mikilli sókn Þórunn Alfreðsdóttir, sundkonan snjalla úr Ægi, setti enn eitt íslandsmet á sundmóti Ægis í Sundhöllinni í gær. Hún synti 400 m fjórs. á 5:31.7 mín., en eldra íslandsmet hennar á vega- lengdinni var 5:32.1 mín. Sveit Ægis stórbætti íslandsmetið í 4 X 200 m skrið- sundi karla — synli á 8:36.5 mín. en eldra metið var 8:45.0 mín. Árangur á mótinu var í heild mjög athyglisverður og sýnir, að hið unga sundfólk okkar er í mikilli sókn á ný. Á föstudag var keppt í 1500 m skrið- sundi karla og kvenna. Sigurður Ólafs- son sigraði á 17:40.4 mín. sem er annar bezti árangur íslendings á vegalengd- inni. Bjarni Björnsson, Æ, varð annar á 17:44.9 mín. og Brynjólfur Björnsson, Á, 3ji á 17:57.9 mín. sem er nýtt drengjamet. Hann synti 800 m á 9:22.3 mín. sem einnig er drengjamet. Þá eru tímar Bjarna og Brynjólfs 3ji og 4ði bezti árangur, sem hér hefur náðst í þessu sundi. í 1500 m kvenna sigraði Þórunn Alfreðsdóttir á 19:29.6 mín. og var því nokkuð frá íslandsmeti Vilborg- ar Júlíusdóttur 19:01.3 mín. Bára Ólafsdóttir, Á, varð önnur á 19:48.4 mín. Aðalhluti mótsins var svo í gær. Axel Alfreðsson, Æ, sigraði í 400 m fjórsundi á 5:05.6 mín. Árni Eyþórsson, Á, varð annar á 5:06.3 mín. og Brynjólfur setti 3ja drengjamet sitt þar, þegar hann synti á 5:09.9 mín. (Aldursflokkur 16 ára og yngri). Sigurður Ólafsson náði sínum. bezta tíma á 55.7 sek. og nálgast íslandsmet Finns Garðarssonar 54.9 sek. Þá náðu Axel 58.1 sek. og Árni Eyþórsson 58.6 sek, sínum bezta árangri á vegalengd- inni. Brynjólfur Björnsson synti einnig innan við mínútu — 59.7 sek. Þórunn Alfreðsdóttir sigraði í 100 m skriðsundi kvenna á 1:04.8 mín. Vilborg Sverris- dóttir, SH, varð önnur á 1:07.1 mín. og Hrefna Rúnarsdóttir, Æ, varð 3ja á 1:08.8 mín. Örn ólafsson, SH, sigraði í 100 m bringusundi á 1:12.6 mín., Hermann Alfreðsson — enn einn úr sundættinni — Æ, varð annar á 1:14.0 mín. og Sigmar Björnsson, ÍBK, 3ji á 1:15.2 mín. Bjarni Björnsson fór of rólega af stað í 200 m baksundi og tókst því ekki áð slá íslandsmet kappans kunna, Guð- mundar Gíslasonar 2:23.4 mín. frá 1971. Bjarni synti á 2:24.1 mín. Axel varð annar á 2:28.9 mín. í 200 m bringusundi kvenna sigraði Elínborg Stigahæstur ÍR-inga var Agnar Frið- riksson með 34 stig, Kolbeinn Kistins- son skoraði 28 stig. Hörður Ágústsson var stigahæstur Framara með 23 stig, Guðmundur Hallsteinsson skoraði 16 stig. Leik Snæfells og UMFN varð að fresta vegna þess að Hólmarar komust ekki til leiks vegna ófærðar. Staðan í 1. deild er nú: Ármann ii 11 0 1032-832 22 ÍR 11 9 2 990-845 18 KR 9 6 3 789-691 12 UMFN 10 6 4 798-771 12 ÍS 10 4 6 792-850 8 Valur 10 3 7 909-952 6 Fram 11 2 9 744-870 4 Snæfell 9 0 9 507-758 0 h. halls. Gunnarsdóttir, HSK, á 3:00.6 mín. Þór- unn Alfreðsdóttir varð önnur á 3:01.9 mín. sem vel sýnir fjölhæfni hennar. Bára Ólafsdóttir varð 3ja á 3:06.0 mín. í 50 m bringusundi telpna sigraði Unnur Brown, sem aðeins er 10 ára, á 46.5 sek. og eru Ægismenn afar montnir af henni. Gunnhildur Davíðs- dóttir, Breiðabliki, varð önnur á 46.8 sek. og Stefanía Einarsdóttir, HSK, 3ja á 46.9 sek. í 50 m bringusundi sveina sigraði Bill Hursfield, Viking — skóla- liðinu á Keflavíkurflugvelli, á 46.4 sek. og í 100 m skriðsundi telpna sigraði Ingibjörg Jensdóttir , Æ, á 1:12.0 mín. Það var hörkuspennandi sund, enda keppt um bikar, sem Geir Ólafsson, tengdafaðir Vilborgar Júlíusdóttur, gaf, vegna fæðingar sonardóttur, til keppni á vegalengdinni. Olga Ágústsdóttir, Á, varð önnur á 1:12.1 mín. og Hrefna Magnúsdóttir, HSK, 3ja á 1:12.4 mín. Sigurður Ólafsson synti fyrsta sprett- inn í 4 X 200 m skriðsundinu, þegar Ægissveitin setti íslandsmetið. Hann synti á 2:02.5 mín., sem er hans bezti árangur, og var alveg við íslandsmet Friðriks Guðmuridssonar, KR, 2:02.2 Þórunn Alfreðsdóttir, ákveðin á svip, á leið í íslandsmetið í fjórsundinu. DB-mynd Bjarnleifur. Tók tínn dómgœzl n að aðlai lu Hollenc gost linga — en íslenzka landsliðið vann Luxemborg 18-12 í Olympíuleiknum á laugardag eftir að jafnt hafði verið í húlfleik 7-7 — Það tók strákana nokkurn tíma að átta sig á dómgæzlu hollenzku dómaranna í Olympíuleiknum við Luxemborg á laugardaginn — en þegar það hafði tekizt náði íslenzka liðið sér allvel á strik og sigraði Luxerhborg með 18-12 eftir að jafnt hafði verið í hálfleik 7-7, sagði Bergur Guðnason, fararstjóri í Luxemborg í gær. — Dómararnir voru talsvert undar- legir í dómgæzlu sinni og lögðu skrítinn skilning á brot. Það var ekki flautað á brot, þó leikmönnum væri beinlínis hent í gólfið eða haldið í hendurnar á þeim ef þeir höfðu einhverja tilburði í frammi að reyna markaskot, sagði Bergur ennfremur. Þetta notfærðu leikmenn Luxemborgar sér og voru oft afar grófir í vörninni án teljandi áminninga frá dómurum. Það tók fyrri hálfleikinn að venjast þessu. Þetta var ekki stórleikur hjá íslenzka liðinu — síður en svo, enda kannski skiljanlegt eins og málum var háttað. Leikmenn okkar flestir vöknuðu kl. fimm á laugardasmorgun. Mæting kl. sex út á Keflavíkurflugvelli. Komið undir hádegi til Luxemborgar og leikurinn um miðjan dag. Þar voru fyrir Ólafur H. Jónsson, fyrirliði liðsins og Ólafur Einarsson — einnig Gunnar Einarsson, sem Iék þó ekki gegn Luxemborg, og Jón Hjaltalín Magnússon, en hann Iék sinn 50. landsleik gegn Luxemborg. Ólafur Einarsson skoraði fyrsta mark leiksins, en Luxemborg jafnaði, en Friðrik Friðriksson og Ólafur Ein. komu fslandi í 3-1. Aftur tókst Luxemborg að jafna í 3-3, en þá komu fjögur íslenzk mörk í röð —Ólafur Ein., Ólafur H., Páll Björgvinsson og Jón Karlsson. Þá leit vel út og 18 mín. af leik — en lokakafla hálfleiksins fór allt í baklás hjá íslendingum. Luxemborgarar skoruðu fjögur mörk og jöfnuðu í 7-7. Guðjón Erlendsson stóð í marki fyrri hálfleikinn og átti prýðisleik — en skotnýting íslenzku leik- mannanna var slæm. Jón Karlsson og Páll komu íslandi í 9-7 í byrjum s.h., en þá skoruðu Luxemborgarar. Jón Karlsson og Ólafur Ein. svöruðu og staðan varð 11-8. Luxemborg stakk inn marki, en Sigurbergur Sigsteinsson og Ólafur Einarsson komu íslandi í 13-9 og greini- legt að hverju stefndi. Þá skoraði Jón Hjaltalín sitt fyrsta mark í leiknum — og Árni Indriðason sem lék hvíldarlaust allan leikinn og átti góðan leik, skoraði 15. mark fslands. Staðan var þá 15-11 og lokakaflann skoraði ísland þrjú mörk gegn einu Sigurbergur, Ölafur Ein. og Jón Hjaltalín. Mörk íslands skoruðu því Olafur Einarsson 6, Jón Karlsson 3, Páll 2, Jón Hjaltalín 2, Sigurbergur 2, Friðrik, Ólafur H. og Árni eitt mark hver. í fyrri leik liðanna hér í Reykjavík sigraði ísland með 29-10 og stóðu Luxemborgarar því sig miklu betur þarna á heimavelli. Leikmenn þeirra börðust vel — og markvörðurinn varði snilldarlega. Var langbezti maður liðsins. Júgóslavar léku í Luxemborg 7. febrúar og sigruðu með 27-11. Sögðu Luxemborgarar, að lið Júgósla'va hefði ekki virkað nándar nærri eins sterkt og sl. haust. Luxemborgarar Iéku skynsam- lega gegn okkur — fjórum var þó vísað af leikvelli í 2 mín. hverjum, en tveimur íslendingum — talsvert betur en heima, sagði Bergur Guðnason. Hann var ekki beint ánægður með leik íslenzka liðsins — Ólafur Einarsson beztur, en Jón Karlsson, Sigurbergur og Arni léku vel. ÓÍafur Benedikts- spn var í marki í síðari hálfleik — en náði ekki markvörzlu Guðjóns frá f.h., þó svo ísland fengi á sig færri mörk. í kvöld leikur íslenzka landsliðið í Metz — síðan í Nancy. Þá tvo æfingaleiki við þýzk 1. deildarlið áður en að stórleiknum við Júgóslava kemur, sunnudaginn 7. marz. StU sigruðu! Heil umferð var leikin í 1. deild kvennahandboltans og öll efstu liðin sigruðu í sínum leikjum örugglega þannig að staðan á toppnum breyttist ekki. Ármann gjörsigraði slakt lið Breiða- bliks 15-5 og Valur var ekki í vandræð- um með KR — sigraði örugglega 15-6. Frant vann sigur á Viking 15-9 eftir að hafa komizt 8-3 i fyrri hálfleik. FH negldi enn einn naglann i kistu ÍBK og liðið er nú dæmt að falla í 2. deild eftir aðeins eitt ár í 1. deild. ÍBK tapaði fyrir FH 13-19. Yfirburðir Olympíu- meistarans Olympíumeistarinn í skíðastökki af 90 metra palli, Austurríkismaðurinn Karl Schnabl, sigraði í 47. alþjóðamótinu í Sapporo í gær. Hann stökk fyrst 103.5 metra, en 112 metra í síðara stökkinu (af 90 metra palli), sem var hið lengsta í keppninni. Olympíumeistarinn hafði al- gjöra yfirburði. Hlaut 247.7 stig og var með 12.4 stigum betri árangur en sá, sem varð í öðru sæti. Það var landi hans Gans Wallner, sem varð sjötti í Innsbruck. í Sapporo stökk hann 102.5 metra og 107 metra. Á 70 m pallinum í Sapporo, þar sem Olympíuleikarnir voru háðir 1972, varð Karl Schnabl í 3ja sæti á föstudag. Bikarinn í Belgíu! Standard Liege og Charleroi — lið Ásgeirs Sigurvinssonar og Guðgeirs Leifs- sonar í Belgíu léku ekki um helgina, því þá fóru fram leikir í bikarkeppninni. Bæði liðin hafa fallið úr bikarnum. Úrslit leikja í 8-liða úrslitum urðu: Waregem — Liers 1-2 Liegeois — Racing Malines 2-1 FC Brugge — Eeklo 9-2 Anderlecht — Lauwe 7-1 Eeklo leikur í 4. deild og Lauwe í 3 deild. ÍAjax slegiö út Mjög óvænt úrslit urðu í hollenzku bikarkeppninni þegar Ajax tapaði fyrir Pec Zwolle 0-3 Zwolle leikur ekki í 1. deild og því er af sem áður var — þegar Ajax var nánast ósigrandi í Hollandi. Einnig fór fram annar leikur í 8-liða úrslitunum — þá sigraði Eindhoven — AZ ’67 2-0. RITSTJÓRN: HALLUR SÍMONARSON Heimsmet i kúluvarpi Bandaríkjamaðurinn Albritton setti fyr- ir nokkrum dögum nýtt heimsmet í kúlu- varpi. Varpaði 21.85 metra, en eldra heimsmetið átti A1 Feuerbach og var það 21.81 metrar. 4

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.