Dagblaðið - 01.03.1976, Blaðsíða 7
Dagblaðið. Mánudagur 1. marz 1976.
7
íftirhreytur áströlsku þingkosninganna:
„Lögregluríki" segir Whitlam
um aðferðir eftirmanns síns
hefur jafnframt harðneitað því að hafa
rætt við þá um framlög í kosningasjóð-
inn.
Gough Whitlam á nú í vök að verjast
sem formaður Verkamannaflokksins og
er talið, að hann eigi ekki eftir að gegna
þeirri stöðu mikið lengur.
Whitlam: Þáði hann 85 milljónir króna
frá skuggalegum írökum í Svdney?
Erlendar
fréttir
Janctte Charles hefur haft drjúgar tekjur af því hversu lík hún er drottning-
unni. Hérsést hún í leikhlutverki með Mickey Rooney.
Tvífarí drottningar fœr ekki
aðild að samtökum leikara
Konu einni, sem er sláandi lík
Elísabetu Englandsdrottningu hefur
verið neitað um aðild að samtökum
brezkra atvinnuleikara.
Þrátt fyrir það að konan, sem
heitir Janette Charles og er gift auð-
ugum kaupsýslumanni, hafi um ára-
bil unnið fyrir sór við auglýsingar og
önnur leikræn störf og notið þar þess
hversu h'k hún er drottningunni
hefur leikarasambandið haldið fast
við sína skoðun.
Frú Charles, sem er 47 ára, á sér
að vísu enga aðra ósk heitari en að
verða starfandi leikkona. Samtökin
segja að hún sé ekki „atvinnumann-
eskja” í faginu og því kemur aðild
hennarekki til greina.
„Ég get ekki skilið að það eitt að
ég lít út eins og drottningin eigi að
koma í veg fyrir að ég geti gerzt aðili
að leikarasamtökunum,” hefur
Janette sagt við fréttamenn.
Og frú Janette Charles hefur lent í
mörgum atvikum vegna þess, hversu
lík hún er Elísabetu drottningu. Er
hún var á unglingsárum var
klappað fyrir henni er hún steig af
skipinu til Hollands en sjálf segir
hún að stærsta atvik í lífi sínu hafi
verið það er bifreið drottningarinnar
ók framhjá henni. Konurnar tvær
tóku að sjálfsögðu hver eftir annarri,
„og það var eins og augu okkar
festust og við störðum hvor á aðra,”
segir frú Charles. „Drottningin sneri
sér við í sætinu til þess að horfa á
cftir mér.”.
Leiðtogi áströlsku stjórnarandstöð-
unnar, Gough Whitlam, hefur ásakað
Malcolm Fraser forsætisráðherra um að
nota aðferðir á borð við þær er tíðkast í
lögregluríkjum til að rannsaka ásakanir
um fjáröflun Verkamannaflokks Whit-
lams erlendis.
Skýrt var frá því af hálfu stjórnarinn-
ar í Canberra í síðustu viku, að rann-
sókn væri hafin á því hvort stjórnin í
írak hefði boðið Verkamannaflokknum
sem svarar 85 milljónum króna í kosn-
ingasjóð flokksins. Tveir menn í Syd-
ney áttu að hafa milligöngu þar um.
Yfirlýsing Whitlams kemur í kjölfar
þess, að á föstudaginn voru gerðar upp-
tækar dagbækur fimm lífvarða hans.
Dagbækurnar eiga að færa sönnur á
ferðir Whitlams fyrir kosningarnar í
Ástralíu í desember.
Whitlam og flokkur hans töpuðu illa
í kosningunum. Hann hefur viður-
kennt að hafa hitt tvo írakska sendi-
menn á einkaheimili í Sydney, en
Bandarískur
verkfrœðingur
njósnarí
Róssa í 30 ár!
Sextíu og níu ára gamall verkfræð-
ingur í olíuiðnaðinum, sem notið hefur
mikils álits í starfi sínu, fannst látinn á
heimili sínu í Connecticut nú um helg-
ina. Segir nú í einu víðlesnasta dagblaði
í Texas að verkfræðingurinn, John Rees
að nafni, hafi verið njósnari í þjónustu
Rússa um langt árabil. Rees, sem unnið
hefur hjá Mobil-olíufyrirtækinu í um
tuttugu ár, virðist hafa framið sjálfs-
morð.
Þá segir blaðið, The Dallas Times-
Herald, að Rees hafi viðurkennt í við-
tali núna fyrir skömmu, að hafa þegið
þúsundir dollara af Rússum undanfarin
ár gegn því að láta þeim í té upplýs-
ingar um amerískan olíuiðnað og þróun
innan hans.
Sagt er að vissir aðilar innan leyni-
þjónustunnar bandarísku hafi vitað um
feril Rees, m.a. að hann hafi fengið
orðu hjá Rússum og eftirlaun allt að
fimm þúsund dollurum, þar til hann
samþykkti að gerast gagnnjósnari árið
1971. FBI hefur sagt að leyniþjónustan
hafi „vitað um kynni Rees af erlendum
sendiráðsmönnum” og segir ennfremur
að Rees hafi verið kallaður til þess að
bera vitni í nokkurskipti gegnum árin.
í viðtalinu við dagblaðið segir Rees
að hann hafi verið á bandi kommúnista
í síðari heimsstyrjöld og þess vegna hafi
hann haldið áfram að hjálpa þeim, þó
að kalda stríðið skylli á. Segir hann
ennfremur að sú aðstoð hans hafi komið
Rússum mest að notum er hann lét
þeim í té upplýsingar um nýtt hreinsi-
kerfi sem auðveldaði vinnslu á hráolíu.
Einnig segir Rees í viðtalinu, að hann
hafi fyrst haft samband við Rússana
árið 1942 og haldið því síðan.
Nixon kominn frá Kína
Richard Nixon, fyrrum Bandaríkja-
forseti, hefur aftur farið í „felur” á
heimili sínu í San Clemente í Kali-
forníu eftir hina umdeildu heimsókn
sína til Kína, þar sem tekið var á móti
honum sem stórmenni — í fyrsta skipti
eftir að hann hrökklaðist frá völdum
með skömm fvrir tveimur árum.
Nixon, sem átti langan fund með
Mao formanni — og slíkt gera yfirleitt
aðeins þjóðhöfðingjar — kom heim til
Bandaríkjanna í gærkvöld ásamt konu
sinni með sérstakri flugvél kínversku
stjórnarinnar.
Aðeins örfáir fjölskylduvinir tóku á
móti Nixon-hjónunum við komuna til
Los Angeles. Þau héldu rakleiðis út í
bíl sinn og óku heim til San Clemente,
sem cr í 105 km fjarlægð.
Henry Kissinger, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem var í leyfi þar
skammt frá á heimili leikarans Kirks
Douglas, hefur lagt á það mikla
áherzlu, að hann muni ekki sjálfur ræða
við Nixon um för hans til Kína.
Atta daga ferð Nixons til Kína var
fyrsta meiriháttar framkoma hans opin-
berlega síðan hann yfirgaf Hvíta húsið
vcgna Watergate-hneykslisins.Kínaförin
var nákvæmlega fjórum árum eftir hina
frægu fcir hans 1972, scm varð til að
gjörbrcyta sambúð Bandaríkjanna og
Kína til hins betra eftir aldarfjórðungs
langa óvináttu.
I vrn fcrðin vakti mikla athygli og
aðdáim hcima og crlcndis. cn þcssi
hcfur vcrið gagnrýnd harðlcga. Þahnig
hcfur t.d. Ford forseti sagt. að Kínaför-
in hafi vcrið líklcg til að skemma fyrir
scr í forkosningunum í New Hampshirc
fyrir viku síðan og Barry Coldwatcr,
fyrrum frambjc'jðandi Repúblikana-
flokksins til forsctakjörs, stakk einfald-
lcga upp á því að Nixon kæmi ckki
aftur frá Kína.
Spánn:
verkföllum
Dregur ór
Verkfallaaldan, sem gengið hefur yfir
Spán undanfarnar vikur, virtist í morg-
un vera á undanhaldi í fyrsta skipti
síðan í janúar. Byggingaverkamenn og
vörubílstjórar í Barcelona ætluðu í
morgun að mæta til vinnu á ný.
Engin lausn var hins vegar sjáanleg á
verkfalli vörubílstjóra annars staðar í
landinu. Verkfallið hefur haft alvarleg
vandræði í för með sér í stærri borgun-
um, þar sem yfirvofandi er skortur á
matvælum, lyfjum og. öðrum nauð-
synjavörum.
Stjórnin í Madrid hefur til þessa
reynt að láta verkfallið afskiptalaust, en
í gær voru hermenn þó látnir flytja klór
til borgarinnar Badajoz, í SV-hluta
landsins, til að hreinsa drykkjarvatn
borgarbúa.
Verkfallið er nú á sjöunda degi.
Vörubílstjórarnir gera kröfur um lægri
vegatolla og ódýrara bensín.
Fréttir eru óljósar um hvort vörubíl-
stjórarnir í Barcelona hafa fengið sínar
kjarabætur, en þeir ætla samt að mæta
til vinnu í dag, eins og áður segir.
Byggingaverkamenn í borginni, sem eru
um 80 þúsund talsins, hafa fengið
launahækkun og skemmri vinnutíma,
og telja sig þar með geta mætt til vinnu
á nýjan Ieik.