Dagblaðið - 01.03.1976, Síða 1

Dagblaðið - 01.03.1976, Síða 1
iríálst, úháð dagblað Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022. í 0 í \ 2. árg. — Mánudagur 1. marz 1976 — 47. tbl. rfisbreyting ó kauptryggingu sjómanna Sjómcnn fengu verulegar kjara- bætur í síðustu lotu sjómarina- samninganna. Kauptrygging hefur hækkað, þannig að háseti getur verið kominn með um 100 þúsund krónur, þegar hann er nálægt þeim mörkum, að hlutur og trygging mætast. Að sögn Geirs Gunnarssonar al- þingismanns, eins sáttanefndar- manna í sjómannadeilunni, í morgun var nú gerð kerfisbreyting á kauptryggingunni. Þegar hlutur nær því að verða hálf tryggingin, kemur á hann bónus, sem verður því hærri því nær sem kemst, að hlutur og trygging mætist. Bónusinn er 25 prósent af mismuni af hlut og halfri tryggingu, sagði Geir. Háseti, sem er undir hálfri tryggingu, fær nú að vísti aðeins þær hækkanir, sem um samdist í almennu í kjara- samningunum, að meðtöldum 1500 króna láglaunabótum á mánuði. En þeir, sem komast yfir hálfa tryggingu með hlutinn, fá meira eins og að framan greinir. Sjómannasamningarnir voru undirritaðir upp úr miðnætti í nótt. Hafði þá lengi verið beðið með undirskrift, eftir því að gengið yrði frá fiskverði. Sjómannaverkfallinu, sem hefur staðið frá 14. febrúar, lýkur væntanlega í dag. Þar sem fiskverð hafði ekki komið, var ekki unnt að halda fundi í sjómanna- félögunum í gærkvöldi til að fjalla um samþykkt á nýju samningunum. Fundir voru boðaðir fyrir hádegi í dag. -HH. Sjó frétt um fiskverð ó baksíðu Kauptrygging verður um 100 í sumum tilvikum STRIÐINU LOKIÐ í dag á að komast á eðlilegt ástand í mjólkursölu. í þeim efnum kreppti skórinn hvað mest hja mörgum meðan vcrkfallið stóð. Hér sjáum við sjálfsbjargarviðleitni fólksins. Jóhannes Revkdal tók þessa mynd að Setbergi við Hafnarfjörð. Daglega mátti sjá fólk í straumum sækja sér mjólk þangað. Verkfallsfréttir bls. 8. Herför Dana ó hendur Bretum: „Skoðum óframhaldið í Ijósi yfirlýsingar Norðurlandaróðsins" — segir Hans Clausen „Þessar aðgerðir hafa vakið mikla athygli hér í Danmörku, sagði Hans Clausen, ráðgjafi danska verka- mannasambandsins í viðtali við Dag- blaðið í morgun. Clausen er forsvars- maður hóps Dana, er vilja leggja fslendingum lið í landhelgisdeilunni á all sérstæðan hátt, eins og fram hefur komið. Áforma þeir að leigja strandferðaskip og halda á íslands- „V-ið ætlum að taka ákvörðun um hcrförina í dag,” sagði Hans Clausen í viðtali við Dagblaðið í morgun. Símamynd frá Polfoto. mið, þar sem ætlunin er að áreita Breta sem mest. „Við ætlum ekki að beita vopna- valdi,” sagði Clausen ennfremur. „Aðgerðirnar mega kallast friðsam- legar ef af verður, og hefur fjöldi manna haft samband við mig og vill fá að komast með í ferðina. Auk þess hafa margir lagt fram fé til styrktar fyrirtækinu.” Sagði Clausen að haldinn yrði blaðamannafundur í dag til þess að skýra fjölmiðlum frá gangi mála, en í gærkvöldi voru forsvarsmenn her- fararinnar á fundi, þar sem rætt var, hvort heldur átti að stefna til Englands og gera Bretum einhverja skráveifu heima fyrir, eða halda beint á íslandsmið. „Við erum ekki sammála um það og auk þess viljum við skoða áformin í ljós samþykktar þings Norðurlandaráðs, sem loksins hefur tekið ábyrga stjórnmálalega af- stöðu í máli, sem varðar öll Norður- lönd,” sagði Clausen. Kvaðst hann fagna því, að ráðið hefði látið sig málið varða og sagðist vona, að þessar hugmyndir þeirra félaga hefðu haft einhver áhrif í þá átt. „Hugur er þrátt fyrir yfirlýsingu ráðsins mikill í mönnum og við reiknum með að leggja upp í herför- ina þrátt fyrir alli, ” sagði Hans Clausen. —HP — sjó baksíðu 9,9% verð- bólga fram til 1. júní Sjá bls. 8 Olympíusigur í Luxemburg — en „aðeins 18-12! Sjá íþróttir bls. 13-14-15-16 og 17 Harðnandi átok í ástrðlskum stjórnmála- heimi Erlendar fréttir bls. 6-7 Flugleiðir ögruðu okkur - bls. 9

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.