Dagblaðið - 01.03.1976, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 01.03.1976, Blaðsíða 17
Dágblaðrð. Mánudagur 1. 'márz 1976' íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Sjötti stórsigurinn hjó Man. City Manchester City — sigursælasta lið síðasta áratugsins á Bretlandseyj- um sigraði Newcastle United í úrslitaleik deildabikarsins á laugar- daginn 2-1. Leikurinn, sem fór fram á Wembley að viðstöddum 100 þús- und áhorfendum, þótti vel leikinn og skemmtilegur fyrir áhorfendur — mikið um marktækifæri. Já, City hefur gengið vel síðan liðið vann 2. deildina 1966. Aðeins tveimur árum síðar — 1968 — varð liðið Eng- landsmeistari eftir harða baráttu við granna sína Manchester United, sem þá reyndar varð Evrópumeistari meist- araliða — stórt ár fyrir vefnaðarborgina Manchester. Ári síðar, 1969, var City í úrslitum bikarkeppninnar — lék þá gegn Leicester og sigraði 1-0. En City lét ekki staðar numið — 1970 var einnig stórt ár í sögu félagsins — þá sigraði liðið WBA í úrslitaleik deildabikarsins á Wembley 2-1. Þá lék Asa Hartford með WBA og var þá í tapliði — nú hins vegar bætti City honum það upp — Hartford lék með City á laugardaginn. En City vann ekki aðeins deildabikarinn árið 1970 — liðið vann einnig Evrópukeppni bikar- meistara, sigraði pólska liðið Gornik Zarbze í úrslitaleik í Vín 2-1. Enn heimsótti Manchester City Wembley — þá 1974 í úrslitaleik deildabikarsins. City lék þá gegn Úlfun- um og þrátt fyrir að liðið hefði átt mun meira í leiknum og opnari tækifæri tapaði City 1-2. Francis Lee — enski landsliðsmaður- inn fyrrverandi, sem nú leikur með Englandsmeisturum Derby hefur sagt, að þetta ,,gullaldarlið” City hefði verið það bezta, sem hann hefði leikið með — betra en Derby er nú með allar sínar stórstjörur. Framkvæmdastjóri City, Tony Book varð sigurvegari með City öll þessi ár og þótti leika stórt hlutverk, sem bak- vörður og fyrirliði. Leikmaðurinn sem kom til City frá utandeildaliðinu Bath City 32 ára og vann til allra helztu verðlauna, sem hægt er að vinna til í enskri knattspyrnu. Book var valinn leikmaður ársins árið 1969 ásamt Dave Mackay, þetta var því stór stund fyrir hann á laugardaginn, leiddi City til sigurs eftir mögur ár undanfarið. Leikurinn á laugardaginn þótti góður — boltinn gekk frá marki til marks og marktækifæri á báða bóga. Bæði lið léku sóknarknattspyrnu en á ólíka vísu. Newcastle með sína sterku miðherja, McDonald og Gowling kraftur og bar- átta, City hugmyndaríkari og leiknari með Tueart og Barnes í broddi fylking- ar. Newcastle byrjaði sterkar — fékk nokkrar hornspyrnur í upphafi en þrátt fyrir það skoraði City fyrsta mark leiks- ins. Hartford tók hornspyrnu — gaf vel fyrir markið. Joe Royle stökk hærra en aðrir og skallaði boltann fyrir fæturna á Peter Barnes, sem í þröngri aðstöðu sendi knöttinn rakleiðis í netið með þrumuskoti. Frábært mark hjá hinum 19 ára Peter Barnes, sögðu fréttamenn BBC. En áfram hélt leikurinn — mikill hraði og spenna. Tækifæri á báða bóga. Newcastle jafnaði metin á 33. mínútu. Boltinn gekk á milli leikmanna New- castle — Kennedy til Craig til Nattrass til McDonald og hann sendi boltann beint á kollinn á Gowling og í netinu lá knötturinn. Staðan í hálfleik var 1-1 en hefði allt eins getað verið 4-4 sögðu fréttamenn BBC. Það var því allt að vinna í síðari hálfleik og þegar aðeins mínúta var liðin af síðari hálfleik hafði City aftur náð forystu. Donachie sendi boltann fyrir markið — og Denis Tueart sendi boltann í netið með hjólhestaspyrnu— framhjá Mike Mahoney í marki New- castle. Frábært mark og enn þurfti Newcastle að sækja á brattann. Tueart fékk skömmu síðar ágætt tækifæri en tókst ekki að nýta, Newcastle sótti meir en vörn City var föst fyrir. Þó fékk Mick Burns gott tækifæri 10 mínútum fyrir leikslok en brást illa bogalistin — hitti ekki markið. City stóð uppi sem sigurvegari — 6. stórsigur liðsins á áratug var staðreynd og annar ósigur Newcastle á Wembley á tveimur árum. Mike Doyle, sem hefur verið í öllum sigurliðum City og nú í fyrsta skipti fyrirliði, tók við hinum eftirsótta bikar. Mike Doyle átti þetta svo sannarlega skilið, bezti maðurinn á vellinuin, sögðu fréttamenn BBC. Lið City var skipað: Joe Corrigan — Jeff Keegan, Dave Watson, Mike Doyle, Willie Donachie — Tommy Booth, Al'an Oakes, Asa Hartford — Dennis Tueart, Joe Royle, Peter Barnes. Varamaður var Ken Clement. Lið Newcastle var skipað: Mike Ma- honey, — Irviríg Nattrass, Pat Howard, Glen Keeley, Alan Kennedy — Tommy Craig, Stuart Barrowclough, Tom Cassidy — Malcolm McDonald, Alan Gowling, Mikey Burns. Varamíaður var Paul Cannell. Bæði lið voru án sterkra leikmanna — Newcastle án David Craig og Geoff Nulty. City án enska landsliðsmannsins Colin Bell. Alla vikuna fyrir leikinn átti Newcastle í erfiðleikum, margir af leik- mönnum liðsins lögðust í inflúensu sem nú gengur yfir Bretlandseyjar. Þannig var lengi vafasamt hvort þeir McDonald og Mahoney gætu leikið með, en úr rættist þó sigur fengist ekki. h.halls. durjaca cJywaktt STÓRK0STLEG KAUP Fœst ósamsettur. Yerð kr. 55.720 Meðol samsetningartími 91/2 klst. Samsetning auðveld og tryggir verksmiðjugœði Verð samsett 77.686 Skipholti 19 við Nóatún Sími 23800 BÚÐIRNAR Klapparstíg 26 Sími 19800 ÚTGANGSORKA: 2X40 sin W með möguleikum á fjórum hátölurum og fjórvíddar- kerfi. SVEIFLUBJÖGUN: minni en 0,5% á fullri orku, allt að 40 sin W á hvaða tíðnibili milli 20—20.000 rið með báðar rásir keyrðar samtímis. Bjögun minnkar við lægri styrk. TÓNBRENGLUN: Myndun nýrra tóna vegna blöndunar tveggja eða fleiri frumtóna. Minni en 0,5% á fullum styrk, á hvaða tíðnibili milli 20—20.000 riða. Þessi óæskilega blöndun minnkar við lægri styrk. ORKUTÍÐNISVIÐ: 8 rið upp í 50.000 rið með minni en 0,5% tónblöndun á ful&m styrk (2 X 40 sínus vött). TÍÐNISVÖRUN: Eiginleikarnir til að skila ákv. tíðnisviði. Plötuspilara + 0,5 dB RIAA jöfnun. HÁSVIÐ: ■+■ 12 dB á 5 rið og 10.000 rið. TÓNSTILLAR: + 12 dB á 50 rið og 10.000 rið. ÓHLJÓÐ: Við lága tíðni frá orkulínu. Plötuspilari betra en 60 dB. Hástaða betra en; 80 dB. AÐSKILNAÐUR Á STEREO: 65 dB; (með IHF standards) 50 dB eða meira frá 20—10.000-rið. HÁLFLEIÐARA-INNIHALD 20 transistorar 10 diodur. STÆRÐ: b.h.d. 13,/2”X4,/2,,X 11 Vi dýpt. Samsetning auðveld og tryggir verksmiðjugæði. vovt-*'*4* ( > V '* V /t % .miac0 rJUífoíu \ ' w...... AM^'1 Tœknilegar upplýsingar 4-vídda stereo magnt,ri 120 vðtt musík

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.