Dagblaðið - 01.03.1976, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 01.03.1976, Blaðsíða 18
Diabolici Musica. Tónlislarskrattarnir. hcitir þessi hópur sem kemur úr Menntaskólanum við Hamrahlíð, og „átti” staðinn sl. fimmtudagskvöld. Menn hvisluðu sin á ntilli um „nýtt Spilverk” og ef til vill ekki að ástæðulausu, en skrallarnir virðast þó öllu tslen/kara fyrirbæri en Spilvcrkið. Dagblaðið. Mánudagur 1. marz 1976. Cabaret kom fram með órafmagnaða dagskrá, gömul lög og ný, flest eftir þá félaga sjálfa. Þeir æfa stíft undir væntanlega LP-plötu sem þeir virðast þegar lita á sem orðinn hlut. Á myndinni að ofan er Tryggvi Hiibner, gítarleikari hljómsveitarinnar, en á neðri myndinni eru nokkri gestanna þetta kvöld. Sá hetjulegi á miðri myndinni er Ágúst Harðarson, yfirrótari Paradísar. ÓMAR VALDIMARSSON NýenHurreistur Klúbbur 32 hélt skemmtikvöld á Loftleiðahótelinu finimtudaginn 19.feb.og var húsfyllir, þrátt fyrir að aðgangseyrir var óheyrilega hár, eða 1000 krónur. Fyrir það fé urðu menn jafnframt félagar í ,,klúbbnum.” Klúbbur 32 er undarlegt fyrirbæri, sem rýkur af stað af og til með nýjum stjórnum og hástemmdum loforðum um suðræna sæluvist fyrir lítið fé, en til þessa hefur oft orðið minna úr framkvæmdum en um hefur verið talað. í nýju stjórninni eru heljarmenni á borð við Kristin T. Haraldsson, fyrr- um ferðastjóra Júdasar, en ekki fór á milli mála á fimmtudagskvöldið að reynsluleysi stjórnenda sam- komunnar bitnaði talsvert á þúsund króna gestunum. Þetta er að vísu atriði sem ekki er hægt að gera við og lagast með góðum vilja. Loftleiðahótelið er annars kjörinn staður til að halda litlar samkomur af þessu tagi, enda hafa oft verið haldin þar músík- og skemmtikvöld með ágætum árangri. Verði af aukinni starfsemi Klúbbs 32, eins og stjórnin lofaði á fimmtudagskvöldið, og SAM-komur verði teknar upp á ný, eins og einnig hefur verið lofað, megum við vel við una. Ef boðið er upp á eitthvað forvitnilegt, það er að segja. -ÓV. Þessir tveir náungar komu hressilega á óvart. Þeir voru í skemmtiferð í höfuðborginni frá Sauðárkróki, þar sem þeir hafa verið driffjaðrir í félags- og skemmtanalífi bæjarbúa. Hægra megin er Hilmir Jóhannesson mjólkur- fræðingur, sem er þúsund þjala smiður og einstakur húmoristi, nafn hins höfum við ekki, en framlag þeirra var kærkomið. Myndirnar tók Ragnar Th. Sigurðsson. ljósmyndari DB. Söngsveitin Randvcr tróð upp og fékk alla menningarpoppara bæjarins til að syngja og klappa með sér. Randver,er greinilega árshátíðarskemmtiatriði ársins, ekki sízt fyrir fjörlega framkomu Ellerts Borgar Þorleifssonar, sem er lengst til hægri. Finnur M. Jóhannsson söngvari Cabaret hefur tekið töluverðum framförum að undanförnu. Hann lék á als oddi þetta kvöld,dansaði m.a. við unga stúlku sem ekki þótti nóg að sitja og hlusta. ER AÐ KOMA BETRI TÍÐ MED BLÓM í HAGA? J

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.