Dagblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 3
Dagblaðið. Föstudagur 12. marz 1976. CD Einíl CAIUIA UUAD CD Spurning EK EIVIVI JAIvlA tlVUK tK, dagsins JON EÐA SERA JON? Hefurðu farið á Ásgríms- sýninguna á Kjarvals- stöðum? GUNNAR GUÐMUNDSSON, Keflavík hringdi: „Nú hafa verið hertar aðgerðir um innheimtu söluskatts — beinlínis á að ganga af mönnum dauðum geti þeir ekki staðið í skilum. Hótanir hafa verið uppi um að ef menn ekki~ borgi þá verði fyrirtækjum lokað. Punktur og basta og þar hefurðu það! Mér finnst þetta skjóta skökku við því innan þjóðfélagsins þrífast menn sem árum saman hafa komizt hjá söluskatti, að vísu með. svikum. Þekktasta dæmið er að sjálfsögðu Klúbburinn títtnefndi og margfrægi að endemum. Hvernig er það — þar hefur verið svikið undan söluskalti árum saman — á ekki að loka þessu veitingahúsi? Maður skyldi ætla að svo væri — að minnsta kosti verður hinn almenni söluskattsgreiðandi að sæta lokun. Er ekki sama hvor er, íón eða séra Jón? ” Veitingahúsið Lækjarteigi. 2 — öðru nafni Klúbburinn. Lesandi spyr: — Á ekki að loka húsinu vegna sölqskattsvika? SIGRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR, starfsstúlka á Landspítalanum: Nei,en ég hef hugsað mér að sjá hana. Verk eftir þennan málara hef ég gaman af að sjá og ætla því að sjá þessa sýningu. INGA GUÐMUNDSDDÓTTIR Forsœtisráðherra ykkar er kommúnistii — lesendabréf frá Skota sem óttast að Rússarnir komi, hverfi NATO héðan 191 Meadowpark Street Demistown Glasgow SCOTLAND 3/31 ’76 „Herra ritstjóri. Ég óttast að ísland verði bráðlega hernumið af.Rússum. Um leið og NATO fer .frá fslandi koma Rúss- arnir. Þið losnið ekki við Rússana. Ég hef ekki trú á að íslenzka þjóðin komi til með að verða ánægð með breyt- inguna. Forsetisráðherra ykkar er kommúnisti sem vill Rússum vel. Þess vegna stendur þorskastríðið yfir nú. James Baird húsmóðir: Nei, en ég hefði áhuga á að sjá hana, hef bara ekki tækifæri til þess. VILMUNDUR JÓSEPSSON viðskiptafræðingur: Nei, það eru alltaf þessi vandræði með tímann. Sýningin er óneitanlega áhugaverð. SIGURJÓN SIGURÐSSON: Ekki ennþá, en ég ætla að gera það og lít áreiðanlega inn um næstu helgi. SÓLVEIG HJARTARDÓTTIR húsmóðir: Ég kannast við myndirnar hans Ásgríms, en hef nú ekki lagt leið mina á Kjarvalsstaði. SÓLVEIG KRISTINSDÓTTIR húsmóðir: Það hefur verið árviss viðburður hjá mér að lita inn á Berg- staðastrætið, þar er alltaf viss stemning og ekki spillir Bjarnveig fyrir. Ég mun líta inn á Kjarvalssstaði þeg^r timi gefst til. SAMMY FRÁBÆR! Úr þætti Sammy Davis sem sjónvarpið sýndi síðastliðið sunnudagskvöld — Sammy í hringnum. --------- ^ SIGURÐUR, sem býr við Vestur- berg, hringdi: „Satt bezt að segja — get ég ekki þagað yfir hinum ágæta þætti með Sammy Davis jr. á sunnudags- kvöldið. „Gamli maðurinn” eins og hann sjálfur kallaði sig, er greinilega ekki farinn að láta á sjá og alltaf er jafngaman að horfa á þennan frá- bæra listamann. Eins og raunar sást á gamalli filmu frá því Sammy var 7 ára, þá er Sammy Davis fæddur listamaður og gleði hverjum sem á horfir. Ástæða þess að ég hringdi er að ég vildi koma á framfæri þökkum til sjónvarpsins fyrir að sýna þennan þátt með Sammy og vonandi haldið þið áfram á þeirri braut að sýna þætti með þessum gömlu, góðu, ef að sjálfsögðu hægt er að fá þessa þætti. Svo ég snúi mér aftur að Sammy, þa undirstrikar það einungis ágæti Sammys að áður en þessi þáttur var tekinn upp í Englandi, þá hafði Sammy Davis fengið hjartaáfall, já, mundi nokkur trúa því.”. MOTMÆLA ÞAÐMÁ ENGINN! — grár leikur atvinnurekenda gagnvart verkafólki, segir verkakona ó Skaganum VERKAKONA af Skaganum hringdi: „Vegna fréttar í sjónvarpi 8. marz sl. frá Vinnuveitendasamb. langar mig til að eftirfarandi komi í Ijós. Þar segir m.a.: „Væru konur að vinna í dag og sl. föstudag (þ.e. föstud. 5.3. og mánudag. 8.3), fara þær fram á að fá síðustu viku greidda, þessa viku og fjóra daga í næstu viku.” Veit Vinnuveitendasambandið að atvinnurekendur hér á Akranesi mundu aldrei og hafa aldrei eftir uppsögn kallað konur í vinnu á föstudegi sé ekki um nema tveggja daga vinnu að ræða? Það þykir ekki mikið hér að geyma fisk sem berst að landi á fimmtudegi fram á mánudag. Veit Vinnuveitendasambandið að hér eru atvinnurekendur svo samtaka að ef eitt frystihús er búið að segja upp sínum konum og togari kemur að landi með afla, þá vill þetta umrædda fiystihús ekki taka neinn afla? Þannig hafa þeir skipt þessu niður. Þetta hafa at- vinnurekendur leikið oftar en einu sinni. En að mínu mati ber öllum fiystihúsum að taka sinn hlut þegar togari kemur (þ.e. Ver og Krossvík) því tilurð þessara togara er fjármögnuð að miklu leyti með almannafé. Veit Vinnuveitendasam- bandið hvernig uppsögn á kaup- tryggingarsamningnum hefur verið beitt hér? Ég hef haft af því spurnir að víða um landið hefur ekki verið beitt eins oft uppsögnum og hér á Akranesi, þrátt fyrir hráefnaskort. Þegar allsherjarverkfallinu lauk heyrði ég í sjónvarpi og útvarpi að samningar hefðu verið undirritaðir með fyrirvara. Ég hef skilið það svo að þá ætti eftir að samþykkja eða mótmæla í hverju verkalýðsfélagi fyrir sig. Ég sé það núna, að ég hef ekki skilið þetta rétt, því að mótmæla, það má enginn! Mér finnst þetta koma óbeint fram í yfir- lýsingunni frá Vinnuveitasam- bandinu: „Þið, verkakonur á Akra- nesi áttuð að samþykkja þessa samn- inga.” Sem sagt, við áttum að segja já, já, þvert um hugi okkar.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.