Dagblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 23
Dagblaðið. Föstudagur 12. marz 1976. (i Útvarp 23 Sjónvarp 8 Sjónvarp i kvöld kl. 21.40: Teíknimynd um frœgon franskan mólara Hinn frægi, franski plakatamálari, Toulouse-Lautrec, var fæddur árið 1864 í borginni Albi og var skíður fullu nafni Henri Marie Raymond de Toulouse-Lautrec Monfa. Ungur að árum byrjaði hann að teikna og það að fimmtán ára varð hann algjör krypplingur átti eftir að hafa áhrif á allan stíl hans, líf og skapgerð. Hann vann í fyrstu hjá ýmsum frægum málurum Parísarborgar og m.a. með Vincent van Gogh. Dáðist hann að Degas og E1 Greco auk japanskrar teiknikunnáttu. Seinna settist Toulouse-Lautrec að í Montmartre og málaði þar sfriar þekktustu myndir, úr Rauðu myllunni, í hring- leikahúsum og á veitingahúsum. Málaði hann m.a. kunningja sína dansmeyna jane Avril og laga- höfundinn Aristide Bruant. Áhugi hans í myndbyggingunni var fyrst ög fremst fólginn í breytileika manns- andlitsins. Heilsu Toulouse-Lautrec fór veru- lega hrakandi 1898 og var hann þá sendur á drykkjumannahæli, hann lézt í Gironde haustið 1901. Meðal listamanna sem nefna má að urðu fyrir áhrifum Toulouse-Lautrec má nefna kempuna gömlu Pablo Picasso. —BH BOLLI HÉÐINSSON Þetta er mynd Toulouse-Lautrec af dansmeynni Jane Avril. I ^ Sjónvarp 9 FÖSTUDAGUR 12. marz 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Dagskrá og auglýsingar. 20.40 Kastljós. Umsjónarmaður Guðjón Einars- son. 21.40 Lautrec. Teiknimynd byggð á nokkrum verka listmálarans Toulouse- Lautrec. 21.45 Opri Finnsk bíómynd frá árinu 1954. Höfundur Kyllikki Mántylá. Leikstjóri Edvin Laine. Opri gamla vatð að flýja frá átthögum sínum í stríðinu og setjast að á nýjum stað. i Þar unir hún sér vel, unz að þvi kemur að rífa þarf kofa hennar vegna vega- gerðar. Hún fær inni á elliheimili og líkar þar ákaflega illa fyrst í stað. Þýðandi Kristín Mántylá. 23.00 Dagskrárlok Finnsk mynd um flutning aldraðrar konu ó elliheimili Kyllikki Mántylá höfundur myndarinnar Opri sem sýnd verður í sjónvarpinu í kvöld. # i sjónvarpi í kvöld kl. 21.45 „Þetta er um tuttuga ára gömul finnsk mynd gerð eftir þekktu leik- riti, meinlaust gaman er það sem þar kemur fram,” tjáði Kristín Mántylá, þýðandi myndarinnar sem sýnd verður í sjónvarpinu í kvöld, okkur. Leikritið fjallar um gamla konu frá Kyrjálahéruðunum er vegna afleið- inga síðari heimsstyrjaldarinnar verður að flýja heimkynni sín og setjast að á nýjum stað. Seinna verður hún svo einnig að flýja þennan nýja stað vegna nútímans er ryðst að henni í líki vegagerðar. Er þessi ágæta kona, sem vill öllum vel, flutt á elliheimili sem hún er ekki of hress yfir. Þó rætist úr og margt skemmtilegt á sér stað áður en kvik- myndinni lýkur. Leikritahöfundurinn heitir Kyllikki Mántylá og er hún tengda- móðir þýðandans, Kristínar Mántylá. Var Kyllikki vel þekktur leikritahöfundur í Finnlandi á sjötta áratugnum og skrifaði talsvert um stríðið og hinar ýmsu afleiðingar þess á finnsku þjóðina. Kyllikki sjálf er ættuð frá Kyrjálahéruðunum, þaðan sem gamla konan í myndinni í kvöld einnig er ættuð. —BH FÖSTUDAGUR 12. marz 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan; „Hofstaða- bræður” eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili Jón R. Hjálmarsson les (9). 15.00 Miðdegistónleikar. Daniel Barenboim og Enska kammer- sveitin leika Píanókonsert í D-dúr frá píanóinu. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar.(16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn 17.10 Utvarpssaga barnanna: Spjall um Indíána. Bryndís Víg- lundsdóttir heldur áfram frásögn sinni (4). 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynn- ingar. 19.35 Daglegt mál. Guðni Kol- beinsson flytur þáttinn. 19.40 Þingsjá. Kári Jónasson sér um þáttinn. 20.00 Tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í Háskólabíói kvöldið áður. Hljómsveitarstjóri: Karsten Andersen. Einleikari á fiðlu: Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari sveitarinnar a. Sinfónía nr. 6 í h-moll (Pat- hetique eftir Pjotr Tsjaíkovskí. b. Fiðlukonsert eftir Igor Stravinský. c. „Bakkus og Ariadne,” danssýn- ingartónlist eftir Albert Roussel. — Jón Múli Árnason kynnir tón- leikana —. 21.30 Útvarpssagan: „Síðasta freist- ingin” eftir Nikos Kazantzakis. Kristinn Björnsson þýddi. Sig- urður A. Magnússon les (3). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíu- sálma (22). 22.25 Leiklistarþáttur. Umsjón: Sigurður Pálsson. 22.55 Áfangar. Tónlistarþáttur í umsjá Ásmundar Jónssonar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. LAUGARDAGUR 13. marz 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00,8.15 og 10.10. Morgun- leikflmi kl. 7.15 og 91.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl. ), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Vilborg Dagbjarsdóttir end- ar lestur sögunnar „Afsakið, ég heiti Trana” eftir Gunvor Hákansson í þýðingu Grétu Sig- fúsdóttur (6). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Óskalög sjúklinga kl. 10.25: Kristín Svein- björnsdóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 íþróttir. Umsjón: Jón Ásgeirsson. 14.00 Tónskáldakynning Atla Heimis Sveinssonar. 15.00 Vikan framundan. Björn Baldursson kynnir dagskrá út- varps og sjónvarps. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. íslenzkt mál. Dr. Jakob Benediktsson flytur þáttinn. 16.40 Popp á laugardegi. 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynn- ingar. 19.35 Gatan mín. Sólveig Eyjólfs- dóttir gengur um Jófríðarstaða- veg í Hafnarfirði með Jökli Jakobssyni, síðari þáttur. 20.05 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 20.45 Tákn Einars Jónssonar myndhöggvara, — gildismat og skoðanir Geir Vilhjálmsson sál- fræðingur flytur erindi og lesið verður úr bókum Einars. 21.30 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur. Stjórnandi: Hans P. Franzson. 21.50 Ljóð ort Flateyjar-Frey Guð- bergur Bergsson les frumort ljóð. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíu- sálma (23). 22.25 Danslög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.