Dagblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 4
4 r Dagblaðið. Föstudagur 12. marz 1976. .............. Mw elíASnnm<etAA UtfvalÁr* Rís á Ártúnshöfða iiy sKoounarsTOO diti oioo og kostar 300 milljónir samkvœmt Komsn of teikniboroinu verðlagi í dag Teikningar liggja nú fyrir að hinni ríkisins, sem á að rísa á Ártúnshöfða. stöð verður að fullu tekin í notkun, hennar ásamt öllum tækjum er í dag nýju skoðunarstöð Bifreiðaeftirlits Allmörg ár munu þó líða áður en sú því áætlaður byggingarkostnaður um 300 milljónir króna. Svona fínt á Þannig mun skoðunarstöð Bifreiðaeftirlitsins líta út séð úr lofti. Aðalbyggingin eru þeir hlutar byggingarinnar sem eru efst á myndinni til vinstri. Almurnar, sem út fra aðalbyggingunni ganga til suðurs og vesturs, eru skoðunarskálarnir. Bílum verður ekið inn frá vinstri ( þ.e. norðri), fólksbílum, þar sem örvarnar þrjar eru í krikanum milli húsanna en vörubílum í skálann neðst á myndinni. Síðan er ekið áfram eins og örvar sýna, fólksbílum í annað hús, áður en haldið er á brautina fyrir aksturspróf lengst til hægri. Loks er ekið út af lóðinni til norðurs,þar sem inn var komið, gegnum skála. þetta að verða. Teikningar allar að húsinu eru gerðar hjá Húsameistara ríkisins. Er húsið að hluta til kjallari og tvær hæðir. í því á að rúmast allt það starf sem bifreiðaeftirlitsmenn annast, svo og skrifstofur cmbættisins, skjala- geymslur, ökukennsla og margt flcira. í tveimur álmum, sem út frá þessari aðalbyggingu ganga til vesturs og suðurs, fer bif- reiðaskoðunin fram. Verður hægt að skoða 16 fólksbíla og 4 vörubíla samtímis. Gert er ráð fyrir að skoðun hvers bíls taki 10-20 mínútur Hugsanleg hámarksafköst verða því yfir 400 bílar á klukkustund en slíkt er þó frekar hægt að hugsa sér en gera ráð fyrir að hægt sé að ná. Aformað er að bíleigendur geti, þá er stöðin er risin, pantað sér ákveðinn skoðunartíma og losni þannig við biðraðir og þau leiðindi sem þeim fylgja. öll skoðun, að akstursprófi undanskildu, fer fram innanhúss, ýmist yfir gryfjum, gólfi eða vökvalyftum. Bifreiðaeftirlitið hefur þegar fengið lóð undir nýju stöðina. Við hlið hennar hefur nú verið tekið á leigu húsnæði er áður var bifreiða- verkstæði. Þar mun skoðun hefjast í sumar eftir breytingar, sem nú er unnið að á húsnæðinu. Nýja stöðin verður hins vegar byggð í áföngum og tekin í gagnið jafnóðum og unnt verður, að sögn Guðna Karlssonar. -ASt. V Skoðið borðstofuhúsgögnin - það er hvergi meira úrval - og verðið er við allra hœfi. Við bjóðum staðgreiðsluafslátt eða JL-kaupsamninga. Aðeins 1/4 hluti sem útborgun og eftirstöðvarnar eigið þér kost á að fá lánaðar til allt að 15 mánaða. K0STA KJÖR Opið til kl. 7 ó föstudögum — Lokað ó laugardögum Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt Á efri myndinni er norðurhlið hinnar nýju stöðvar samkvæmt teikningunni. Aðalbyggingin er lcngst til vinstri. Síðan sjást þrjár innkeyrsludyr fyrir fólksbíla. Lengst t.h. er skoðunarskáli. vörubíla. Á milli þessara innkeyrsludyra eru útkeyrsluopin að skoðun i Iokinni (sjá loftmyndina). Neðri myndin sýnir vesturhlið skoðunarstöðvarinnar, en á henni er aðal- inngangurinn. í miðið sést í vesturhlið vörubílaskála, en til vinstri í innkeyrsludyr skoðunarskála fólksbíla. Skipafélögin kvarta um óréttlœti Skipafélögunum finnst óréttlátt hvernig hagað cr álagningu tolls á frakt. Þau hafa lengi barizt fyrir breytingum og þau telja að flutningar með flugvél- um njóti fríðinda. Angi af þessu máli kom fram á nýafstöðnum aðalfundi Verzlunarráðs. Málinu var vísað til stjórnar Verzlunar- ráðs og var almennt talið að ráðið væri ekki vettvangur til að fjalla um það, þar sem í því eru ólíkir hagsmunahópar. Því er erfitt fyrir ráðið að beita sér fyrir málum þegar hagsmunir stangast á inn- an þess. Tollur er lagður á heila skipsfrakt en aðeins á hálfa flugfrakt. Skipafélögin telja að prósentan eigi að vera hin sama hvernig sem flutt er. Gunnar Einarsson var endurkjörinn formaður Verzlunarráðs. —HH STAFSETNING ENN TIL UMRÆÐU Á ÞINGI Auglýsingar, sem menntamálaráðu- nevtið hefur gefið út um stafsetningu, styðjast ekki við lög. Þannig cr til dæmis um auglýsinguna um afnám zet- unnar sem sumir hafa farið cftir cn aðrir ckki. Menntamálaráðhcrra hcfur nú borið fram á Alþingi frumvarp um stafsetn- ingu. Þar cr ckki iiHÍrkuð ncin ný stefna um stafsetningu. Hins vcgarsegir í frumvarpi ráðhcrra, scm hann flytur cinn, að mcnntamálaráðuncytið cigi að setja rcglur um stafsctningu scm taki til kennslu og cmbættisgagna. Við þctta á ráðuncytið að leita til ncfndar um tillögur Áfla skal hcimild- ar þings áður cn rcglur cru scttar. — HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.