Dagblaðið - 12.03.1976, Side 12

Dagblaðið - 12.03.1976, Side 12
12 1 Dagblaðið. Föstudagur 12. marz 1976. Iþróttir þróttir róttir Stórleik stór- liða Glasgow- borgar frestað Leik Rangers og Celtic, sem t'ara átti fram á laugardaginn, hefur verið frestað vegna inflú- ensu, sem hrjáir leikmenn beggja liða. Celtic varð einnig að fresta síðasta leik sínum, þá gegn Ayr United, sem átti að fara fram síðastliðinn laugardag. Celtic hefur hlotið stigi meira í hinni hörðu baráttu sinni við Rangers um sigur í 1. deildinni skozku. Grótta vann ó Skaganum Grótta sigraði Akurnesinga í gær uppi á Skaga í bikarkeppni handknattleiks- sambandsins. Úrslit 24-18 eftir 12-10 í hálfleik fyrir 1. deildarliðið. Stórt hjó Real Madrid í körfu Real Madrid sigraði frönsku meistarana Asvel Villerrbanne í fyrri leik liðanna í Evrópukeppni meistaraliða í körfuknattleik með 113-77. Leikurinn fór; fram i Madrid. Eftir að staðan hafði verið 50-40 í hálfleik tók Real Madrid öll völd í síðari hálfleik og bókstaflega hakkaði franska liðið í sig. Þvi verður að telja Real Madrid margfalda Evrópumeistara liklega i úrslit í Evrópu- keppninni i ár. Spánska liðið vann Oppsal í Osló Oppsal fékk heldur en ekki bakslag í seglin þegar liðið tapaði fyrir spænska liðinu Balon- rnario Granolletrs í Osló 13-15. Þetta var fyrri leikur liðanna í undanúrsitum Evrópu- keppni bikarhafa — síðari leikurinn fer fram á Spáni. Við þetta tap hefur draumur Gjerde og félaga um sigur í Evrópukeppninni í ár minnkað verulega. Oppsal sló FH út í keppn- inni fyrr í vetur. Það sem gerir ósigur Oppsal enn ótrúlegri er að liðið hafði aldrei tapað leik í Evrópukeppni á heimavelli og meðal ann- arra liða hafði liðið sigrað Gummersbach með 7 mörkum á heimavelli. Yolur gegn Ármanni í bikarkeppni KKÍ Nú hefur verið dregið í 8-liða úrslit bikarkeppni Körfuknattleikssambands íslands og drógust þessi lið saman: Snæfell — UMFN Valur — Ármann KR b — Fram ÍS — KR a. Fróðlegt verður að sjá hvernig Þóri Magnússyni og félögum vegnar gegn bikar- meisturum Ármanns en Valsliðið hefur tekið miklum framförum við endurkomu Þóris í liðið. h.halls. Þingeyingor sigursœlir! — í Bikarglímunni á Húsavík Bikarglíma íslands fór fram á Húsavík 7. marz. sl. Glímuráð Héraðssambands Suður- Þingeyinga sá um mótið, sem for í alla staði vel fram og voru áhorfendur margir. 5.-6. Árni Bjarnason, KR 0.5 5.-6. Helgi Bjarnason, KR 0*5 Finnar sigursœlir á Holmenkollen! Keppt var í tveim aldursflokkum, flokki fullorðinna 20 ára og eldri og sameiginlegum flokki drengja og unglinga. Úrslit urðu þessi: Flokkur fullorðinna. 1. Ingi Yngvason, HSÞ 2. Guðmundur Ólafsson, Árm 3. Þorsteinn Sigurjónss., Víkv. 4. Pétur Yngvason, HSÞ 5. Kristján Yngvason, HSÞ 6. Eiríkur Þorsteinsson, Víkv. 7. Halldór Konráðsson, Víkv. 8. Elías Árnason, KR Fl. drengja og unglinga. 1. Eyþór Pétursson 2. Hjörleifur Sigurðsson, HSÞ 3. Jón Magnússon, KR Finnar voru sigursælir á fyrsta degi Holmenkollen skíðamótsins sem fram fer í Noregi. Þeir áttu tvo fyrstu menn í 15 km skíðagöngu karla og í kvennaflokknum sigraði Olympíu- meistarinn Helena Tkalo í 5 km göngunm — og eins áttu Finnar tvær næstu í 5 km skíðagöngunni. En lítum á úrslitin í 15 km göngunni. min. 1. Arto Koivisto, Finnl. 43.57.1 2. Juha Mieto, Finnl. 44.20.3 3. Masha Myrmo, Noregi 44.57.0 Þrjár fyrstu í 5 km göngunni urðu: mín. 1. Helena Takalo, Finnl. 16.06.1 2. Hilka Kuntola, Finnl. 16.19-.9 3. Taina Impioe, Finnl. 16.43.9 vinn. 7 6 5 4 3 2 1 0 vinn. 4,5 + 1 4,5 3 Ingi Yngvason sigraði í flokki fullorðinna — vann sigur í öllum glímum sínum. Þarna heldur hann á bikarnum. Guðmundur Ólafsson Ármanni og Þorsteinn Sigurjónsson Víkverja standa við hlið hans. Heimsmeistarinn vestur-þýzki Klaus Steinbach bendir stoltur á timatöfluna þegar hánn varð fyrstur til að brjóta 50 sekúndna-múrinn í 100 m skriðsundi. Það var í Bremen 8. marz. og Steinbach synti á 49.78 sek. í 25 metra laug. Annar varð landi hans Peter Nocke á 50.46 sek. í gær setti Steinbach nýtt Evrópumet í 200 m skriðsundi — synti á 1:52.95 mín. í 50 m. laug, en skortir 2 sek. á heimsmet Bruce Furniss, USA, þar. Ármann staðfesti em toppsœlí sitt í körfubohanum! — þegar liðið sigraði ÍR í bikarkeppni KKI 97-90 Ármenningar sönnuðu enn einu sinni í gærkvöld, að þeir eiga bezta liðinu á að skipa á íslandi í dag, þegar liðið sigraði ÍR í bikarkeppni KKÍ vestur í Hagaskóla í gærkvöld 97-90. Ármann mætir því Val í næstu umferð. Sigur Ármanns í gærkvöld var sanngjarn — Það var aðeins í byrjun að IR hafði yfirtökin en Ármann seig framúr og staðan í hálfleik var 57-47 Ármanni í vil. Bilið hélt áfram að breikka í síðari hálfleik — eftir 5 mínútur var staðan 71-57 og eftir 8 mínútna leik skildu 20 stig að — 81-61. Flest gekk liðinu í haginn, frábærar sendingar Jóns Sig- urðssonar gerðu ætíð usla, og Jimmy Rogers var iðinn við að skora. ÍR- ingum urðu á hreinustu byrjendamis- tök og klúðruðu iðulega boltanum klaufalega. En ÍR-ingar náðu þó að snúa leiknum sér í vil — drifnir áfram af stórgóðum leik jóns Jörundssonar. ÍR saxaði smám saman á forskot Ármanns án þess þó verulega að ógna sigri liðsins, er lagði alla áherzlu á að halda boltanum sem lengst. Þannig var staðan eftir 15 mín- útna leik 93-79 og þegar 2 mín. voru eftir var staðan 95-87. Bæði liðin misstu klaufalega af einföldum tækifærum — ÍR til að mynda hitti ekki í 8 vítum síðustu 4 mínúturnar, átta stig í súginn og aðeins sjö stig skildu þegar upp var staðið 97-90. Sem fyrr voru þeir Jón Sigurðsson og Jimmy Rogers mest áberandi í liði Ármanns en liðið spilaði sem heild og barátta leikmanna til fyrirmyndar. Jimmy Rogers skoraði 37 stig og Jón Sigurðsson 20. Hjá ÍR stóð Jón Jörundsson upp úr en vítahittni brást liðinu auk þess sem samstaða leikmanna var ekki nógu mikil. Jón Jörundsson skoraði 34 stig — Birgir Jakobsson 12. h.halls. 'Haltu áfram einn. y[— og skilja þig\ © King Fe.tui.i Syndicltc. Inc„ 1974. V/aM En frumskógurinn, regniö, Inéiánar eru .11 j.mniinL .answ [( SKÍÐASKÓLI INGEMARS STENMARK t)] Það virðist ckki skipta miklu máli fljótt a litio nvernig handleggirnir eru hafðir, en það hefur mikið að segja ef jafnvægið á að vera gott. Rétt er að Ví hafa handleggina eins og sést á stóru myndinni. Fv.ær minni mynannar sýna hvernig ekki á að hafa handleggina.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.