Dagblaðið - 15.03.1976, Side 1

Dagblaðið - 15.03.1976, Side 1
2. árg. — Mánudagur 15. marz 1976 — 59. tbl. -Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2,:simi 27022 Einar Ágústsson í morgun: Óttast samtök um gerðardómsókvœði ## „Ég tel litlar líkur til að niðurstaða fáist á þessum fundi alþjóðlegu haf- réttarráóstefnunnar,” sagði Einar Ágústsson utanríkisráðherra í morgun. „Ég er auk þess hræddur um að samtök verði á hinum nýbyrjuðu fundum um að setja inn gerðardómsákvæði eða annað sem okkur yrði í óhag.” „Ég hef ekki verið á þessum fundum og verð að styðjast við frásagnir og spádóma annarra,” sagði ráðherrann. „Okkar hagur er að uppkastinu sem búið var að gera í Genf, verði sem allra minnst breytt. Það var mjög í okkar anda um flest atriði og þau leyst eins og við hefðum kosið. En ég óttast að þeir, sem telja sig hafa fengið minna út úr uppkastinu, bindist samtökum um að breyta því. Gerðardómsákvæði yrðu okkur mjög óhagstæð.” -HH Það var ekki áflogunum og látum fyrir að fara hjá herstöðvarandstæðingum að þessu sinni. Gott dæmi um rólegheitin var, að inni í lögregluskýlinu sat Grétar Finnbogason í mestu makindum við að semja árekstrarskýrslu. DB-mynd: emm. T ; \... 'STSgj. ' 7rt '- . 4 y - BflQ " JÉ •i ^ RÓLEGT VIÐ HUÐ KEFLAVÍKUR- ~ FLUGVALLAR Á LAUGARDAGINN Aðgerðir herstöðvarandstæðinga með lokun hliðanna á Keflavíkur- flugvelli á laugardaginn frá því klukkan sex um morguninn til hálf fjögur, fóru mjög friðsamlega fram. Fámennt var við þessi mótmæli — rúmlega tuttugu manns við hvort hlið — og heyrðust forráðamenn hópsins kvarta yfir því, að þátttaka væri ekki næg. Að sögn fréttaritara DB á Suður- nesjum, ollu aðgerðir herstöðvaránd- stæðinganna mun minni truflun en lokun hliðanna, sem sjómenn á Suðurnesjum stóðu fyrir. Starfsmenn Vallarins fóru gangandi í gegnum hliðin. Sömuleiðis var flugfarþegum ekið niður að hliði, þeir gengu í gegn og stigu síðan upp í rútu fyrir neðan. Eina röskunin, sem varð á daglegu^ lífi á Kefiavíkurvelli, auk þess að lögreglan átti óvenju rólegan dag, var að undanþága til að flytja mjólk inn á svæðið fékkst ekki. herstöðvar- andstœðingar fómennir i mótmcela- aðgerðum sínum Að lokinni varðstoounni, héldu herstöðvarandstæðingar í félagsheim- ilið Stapa, þar sem ræður voru flutt- ar, skáld lásu úr verkum sínum og hljómlistarmenn skemmtu. —ÁT— ■r.; ii.v;':.- Landhelgin: Diomede ógnar Freigátan Diomede gerir sig líklcga til að sigla á Tý. Alls sigldu tvær brezkar freigátur sjö sinnum á Tý og Þór á föstudag- inn. Diomede sigldi þó ekki á varðskip en hafði margsinnis hótanir í frammi. Ljósmyndin var tekin um borð í varðskipinu Tý í þessari atlögu brezku hcr- skipanna. (DB-mynd: Rithard L. Agnarsson). Norrœn samvinna ó sjónvarpssviðinu: fsland með í tíu mynda flokki um heimsstyrjöldina — bls. 8 Efnahagslíf Evrópu ó jafnvœgismörkum Ætla að stöðva selveiðar undan ströndum Ný- fundnalands — erl. fréttir bls. 6-7 VILLI- ÖNDIN — Leikdómur eftir Ólaf Jónsson ó bls. 9 Þekkt knattspyrnufélög hafa gert Ásgeiri Sigurvinssyni tilboð — Sjó íþróttir bls. 12, 13, 14 og 15

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.