Dagblaðið - 15.03.1976, Qupperneq 13
Dagblaðið. Mánudagur 15. marz 1976.
13
i
Iþróttir
þróttir
þróttir
róttir
^að er ekki gaman að veltast í snjónum á vellinum í Keflavík áJaugardag — en hér horfa strákarnir steinhissa á kappana, sem liggja á vellinum. DB-mynd Bjarnleifur.
Aðeins skorað úr víta-
spyrnum í fyrsta leik!
— og Keflavík og Fram gerðu jafntefli í meistarakeppni KSÍ ó laugardag
Tvær vítaspyrnur á tveimur mínút-
um, ein hjá hvoru liði er fremur fátítt í
knattspyrnuíþróttinni, en það gerðist
nú samt suður í Keflavík á laugardag-
inn, þegar ÍBK og Fram léku fyrsta
leikinn í Meistarakeppni KSÍ. Mörgum
Jannst dómarnir full strangir en það
iverður að segja dómaranum, Sævari
:Bjarnasyni, til lofs að hann var sjálfum
sér samkvæmur, — bæði brotin svipaðs
eðlis, þótt svo efast megi um réttmætið.
Knattspyrnuvöllurinn í Keflavík var
alhvítur, þegar leikurinn hófst — og þá
leiktímabilið árið 1976, — en veður
yar gott, hægur andvari og sólskin. En
það var eins og voraði þegar knötturinn
fór að velta, snjóinn tók upp, eftir því
sem lengra leið á leikinn og knattspyrn-
an varð að sama skapi skemmtilegri og
allgóð á köflum.
Samt er ekki verið að gefa í skyn, ad
leikurinn haFi verið í heild lélegur.
Hann bar að vísu keim af tilraunastarf-
semi og má það til sanns vegar færa,
þar sem bæði liðin tefldu fram nýliðum,
en létu margar af hinum stærri stjörn-
um undanfarinna ára verma vara-
mannabekkina, eða leika í b-liðunum,
eftir fyrri leikinn.
Keflvíkingar voru öllu meira í sókn
framan af með nýliðana þá Einar Ólafs-
son og Þóri Sigfússon sem aðaldriffjaðr-
ir í sínum fyrsta meistaraflokksleik og
áreiðanlega ekki hinum seinasta. Þriðji
nýliðinn, Sigurður Björgvinsson, kom
inn á í seinni hálfleik, mjög kröftugur
leikmaður, sem lofar góðu.
Þrátt fyrir nokkur góð skotferi tókst
ÍBK ckki að koma knettinum fram hjá
Þorbergi Atlasyni, sem leikur að nýju í
Frammarkinu eftir meiðsli. Hann
virðist ekki hafa gleymt neinu, — varði
nokkur góð skot mjög örugglega.
Það var ekki fyrr en um miðjan
seinni hálfleik, að ÍBK hafði árangur
sem erfiði. Ólafur Júlíusson var hindr-
aður í vítateignum með þeim afleiðing-
um sem fyrr greinir. Or vítaspyrnunni
skoraði Gísli Torfason örugglega, fyrsta
márkið, árgerð ’76. Hið sama gerði
Pétui^Ormslev Framari eftir að honum
hafði verið brugðið innan sömu marka,
— en Þorsteinn Ólasson markv. hafði
þó aðeins hönd á knettinum. Pétur var
þó ekki eins öruggur í fyrri hálfleik,
þegar hann komst einn inn fyrir Þor-
stein, en tókst ekki að nýta færið.
Varnir beggja liðanna voru betri
hlutinn. Guðni Kjartansson, sem jafn-
framt er þjálfari ÍBK ásamt Jóni Jó-
hannssyni, lék sinn fyrsta leik eftir
langa fjarveru vegna meiðsla, svo og
Lúðvík Gunnarsson, og eru sannarlega
ekki dauðir úr öllum æðum. Sóknarleik-
ur liðsins var oft á tíðum fálmkenndur,
— útherjarnir yfirleitt of innarlega.
Jón Pétursson var burðarás Fram-
varnarinnar ásamt Kristni Atlasyni,
efnilegum leikmanni, en sóknarleikur-
inn hjá Fram var öllu „breiðari’ en hjá
ÍBK, — þar voru útherjarnir á réttum
stað, sérstaklega þegar líða tók á leikinn
og liðið fór að Finna sig.
Keflvíkingar unnu b-liðs leikinn með
tveimur mörkum gegn engu. Mörkin
skoruðu Guðjón Guðjónsson og Friðrik
Ragnarsson. Grétar Magnússon og
Gunnar Jónsson, gamlar kempur, léku
þar, með ÍBK. Framarar tjölduðu einn-
ig þekktum mönnum eins og Marteini
Geirssyni, sem lítið hefur æft undan-
farið, Sigurbergi Sigsteinssyni og
Eggerti Steingrímssyni. Ekki má
gleyma Árna Stefánssyni markverði,
sem getur ekki æft með liðinu vegna
náms við íþróttaskólann á Laugarvatni.
Samkeppnin um að komast í þessi tvö
lið verður því hörð í sumar. emm
Þrjú íslandsmet og Ægir
vann í Bikarkeppninni
Sigurður Ólafsson, Ægi, vann at-
/glisverð afrek í Bikarkeppni Sund-
mbands íslands, sem háð var um
ílgina í Sundhöllinni. Hann setti ís-
ndsmet í 200 m skriðsundi og varð
rstur fslendinga til að synda innan við
ær mínútur. Synti á 1:59.6 mín., en
dra íslandsmetið í 25 metra laug átti
riðrik Ciuðmundsson, KR, 2:02.2 mín.
'lympíulágmark í sundinu er 2:01.5
ún. og er Sigurður líklegur til að vinna
að afrek. Þá setti hann cinnig nýtt
landsmet í 600 m skriðsundi á föstu-
ag. Synti hann vcgalcngdina á 9:04.9
lín. Eldra mctið átti Friðrik cinnig,
:12.5 mín. Árni Eyþórsson, Á, synti
innig innan við mcttímann 9:12.2 mín.
g Brynjólfur Björnsson, Á, sctti ný’tt
rcngjamct 9:19.9 mín.
Þctta var í sjötta skipti, scm Bikar-
eppnin cr háð. Sundfclagið /Egir
sigraði örugglega í stigakeppninni eins
og í öll skiptin áður — en þjálfari
félagsins er Guðmundur Harðarson.
Ægir hlaut 251 stig að þessu sinni. í
öðru sæti varð HSK með 202 stig, þá
Ármann 175 stig, Sundfélag Hafnar-
fjarðar 107 stig, ÍBK 78 stig, KR 42
stig, Brciðablik 40 stig, Óðinn, Akur-
eyri, 32 stig og íþróttabandalag Akra-
ness 16 stig.
Auk fslandsmctanna, scm áður cru
ncfnd sctti karlasvcit Ægis nýtt íslands-
mct í 4X100 m fjórsundi — synti á
4:23.5 mín. Eldra íslandsmctið átti
svcit Ármanns, 4:24.9 mín. Elínborg
Gunnarsdóttir, HSK, jafnaði fslands-
mct Hclgu Gunnarsdóltur í 100 m
bringusundi synti á 6:12.1 mín.
Sonja Hrciðarsdóttir, IBK, sctti nýtt
tclpnamct, 13 11 ára, svnti á (>: 17.0
mín. og Þórunn Magnúsdóttir, ÍBK,
synti einnig á betri tíma en gamla
telpnametið, 6:22.5 mín.
Sigurvegarar í einstökum greinum
urðu: 400 m bringusund Hermann Al-
frcðsson, Ægi, 5:44.3 mín. 800 m skrið-
sund Þórunn Alfrcðsdóttir, Æ, 10:06.0
mín. 400 m fjórsund Þórunn Alfreðs-
dóttir 5:34.8 mín. 200 m flugsund
Brynjólfur Björnsson, Á, 2:24.5 mín.
100 m skriðsund Vilborg Sverrisdóttir,
SH, 1:03.7 mín. 100 m baksund Bjarni
Björnsson, Æ, 1:05.6 mín. 200 m
bringusund Elínborg Gunnarsdóttir
2:57.0 mín. 100 m bringusund 1. Hcr-
mann Alfrcðsson 1:12.6 mín. 2. örn
Ólafsson, SH, 1:12.6 tnín. og 3. Stcin-
grímur Davíðsson, Brciðablik, ■ 1:12.6
mín
100 m flugsund Þórunn Alfrcðsdóttir
1:12.2 mín. 200 m baksund Vilborg
Sverrisdóttir 2:46.4 mín. 400 m fjórsund
Axel Alfreðsson 5:06.1 mín. 200 m flug
sund Þórunn Alfreðsdóttir 2:35.2 mín.
100 m skriðsund Sigurður Ólafsson 55.3
sek., sem er annar bezti tími íslendings>
á v^galengdinni íslandsmet Finns
Garðarssonar er 54.9 sek. Annar varð
Þorsteinn Hjartarson HSK á 57.7 sek.
og bætti sinn bezta tíma um tvær
sekúndur!! — 100 m flugsund Sigurður
ólafsson 1:06.0 rpín. 200 m skriðsund
Vilborg Sverrisdóttir 2:19.2 mín. 200 m
baksund Bjarni Björnsson 2:24.4 mín.
100 m baksund Vilborg Sverrisdóttir
1:20.4 mín. 200 m bringusund Stein-
grímur Davíðsson 2:39.2 mín. 100 m
bringusund Elínborg Gunnarsdottir
1:23.2 mín. og 4X100 m fjórund
kvenna HSK 5:11.0 mín., en sveit Ægis
synti á 5:11.8 mín.
E___________________
Heimsmet
í sundi
Hin 14 ára austur-þýzka skólastúlka,
Antje Stille, bætti eigið heimsmet um
næstum sekúndu í 200 m baksundi á móti
í Tallinn á laugardag. Hún synti vega-
lengdina á 2:13.5 mín. Á mótinu í gær
setti Ulrike Richter setti heimsmet í 100
m baksundi, synti á 1:02.98 mín. og
Rosemary Kother setti heimsmet í 200 m
flugsundi á 2:13.60 mín. Allar þessar
stúlkur eru austur-þýzkar.
Stenmark
heimsmeistari
Ingemar Stenmark sigraði í keppninni
um heimsbikarinn, þegar hann hafði al-
gjöra yfirburði í svigkeppninni í Aspen,
Colorado, í gær. Ingemar hefur nú hlotið
241 stig og aðrir keppendur geta ekki náð
honum. Gífurlegur fögnuður varð í Sví-
þjóð í gær, þegar fréttist um árangur þessa
snjalla skíðamanns. Ingemar Stenmark
verður tvítugur nk. þriðjudag.
í gær hafði hann algjöra yfirburði í
sviginu — keyrði báðar umferðirnar á
109.76 sek. Mahre, USA, varð annar á
111.34 sek. Gustavo Thoeni, Ítalíu, 3ji á
111.64 sek. og Piero Gros, Ítalíu, fjórði á
112.67 sek.
Enn á eftir að keppa á tveimur mótum í
heimsbikarnum í St. Anne 17. og 21. marz
— en Ingemar hefur þegar tryggt sér
sigur. Hlotið 241 stig. Thoeni er annar
með 190 stig. Gros 3ji með 189 stig og
Franz Klammer, Austurríki, fjórði með
181 stig.
Úrslitin í
Þýzkalandi
Aftur er Borussia Mönchengladbach
komið á skrið eftir nokkra lægð — liðið
sigraði bikarmeistarana Eintracht
Frankfurt í Mönchengladbach örugg-
lega 4-2.
En úrslitin í Þýzkalandi urðu:
Kaiserlautern — Rot-Weiss Essen 5-0
Offenbach — Bayern Munchen 2-2
Borussia — Eintracht Frankfurt 4-2
Fortuna Dusseldorf — Eintracht Bruns-
wick 3-3
Bayer Uerdingen — Karlsruher 1-1
FC Köln — Werder Bremen 1-1
Schalke — Hertha Berlin 2-2
Hannover — Bochum 4-1
Hamborg — Duisburg 3-0
Alls voru skoruð 37 mörk — eða 3.1
mark í leik. Ekki hægt að segja að
Þjóðverjarnir hafi gleymt hvernig á að
skora þó Gerd Muller sé ekki upp á sitt
bezta.
7 heimsmet i
skautahiaupum
Sjö heimsmet voru sett á skautamóti í
Inzell í Vestur-Þýzkalandi í gær.
Olympíumeistarinn Sheila Young, USA,
hljóp 500 m á 40.68 sek. og bætti met sitt
um 0.23 brot. Hin 25 ára gamla afreks-
kona setti einnig heimsmet samanlagt
166.210 stig.
Olympíumeistarinn Piet Kleine, Hol-
landi, setti heimsmet í 10.000 m hlaupi —
hljóp á 14:43.92 mín. og stórbætti heims-
met Sten Stensen, Noregi, 14:50.31 mín.
Þá setti Kleine einnig heimsmet saman-
lagt 165:884 mín.
Hans van Helden, Hollandi, setti frá-
bært heimsmet í 1500 m hlaupi — hljóp á
1:55.61 mín. og bætti heimsmet skauta-
snillingsins Art Schenk stórlega 1:58.7
mín. Nancy Swinder, USA, setti heismet í
3000 m hlaupi kvenna 4:40. 85 mín. og
Sylvia Burka, Kanada, heimsmet í saman-
lögðu 176.468, en heimsmet Sheilu Young
var í spretthlaupum samanlagt,
Olympiumeistari
stðkk bezt
Karl Schnabl Olympíumeistarinn
austurríski sigraði í skíðastökkinu á
Holmenkollenmótinu í Noregi í
gær. Schnabl stökk 96.5. Annar varð
silfurhaFinn frá Innsbruck — Tony Inn-
auer, sem stökk 94,5. Geysilegur áhorf-
endafjöldi fylgdist með —70 þúsund
manns og þeir sáu landa sinn, Johan
Seatre ná þrigja sæti.