Dagblaðið - 15.03.1976, Síða 14
Dagblaðið. Mánudagur 15. marz 1976.
14
^HHHHHHIIB
Kapphlaupið heldur ófram
öll efstu liðin sigruðul
Strákarnir hans
Docherty halda sínu
striki í 1. deildinni
ensku. Á laugardaginn
lögðu þeir Leeds United
að velli 3-2 og í raun
gefur endanleg marka-
tala enga mynd af leikn-
um, slíkir voru vfirburðir
Manchesterliðsins. í
fyrsta skipti í 20 leikjum
þurfti Docherty að
breyta liðinu, því Lou
Macari var meiddur og
gat ekki leikið með. Þess
í stað kom McCreery inn
í liðið og þetta virtist alls
ekki veikja liðið — síður
en svo. United beinlínis
tætti Leeds í sig og langt
er um liðið síðan Leeds
hefur verið yfirspilað
eins og á Old Trafford á
laugardaginn.
Þegar frá upphafi buldu sóknar-
lotur á rnarki Leeds og Manchester-
liðið fékk óskastart þegar Stewart
Houston skoraði þegar á 2. n'ínútu.
Gordon Hill og Steve Coppel ógnuðu
vel á köntunum og auk þess voru
bakverðirnir drjúgir — þeir Houston
og Forsyth, þegar þeir komu upp og
studdu sóknina.
Það var einmitt Forsyth, sem á 43.
mínútu lék upp kantinn, lék á tvo
varnarmenn Leeds og gaf síðan vel
fvrir á Stuart Pearson sem ekki átti í
neinum erfiðleikum með að skora úr
dauðafæri. Fleiri urðu mörkin ekki í
fyrri hálfleik en áður hafði boltinn
þrívegis smollið í stöngum Leeds.
* Manchester United hélt upptekn-
um hætti í síðari hálfleik og stöðugt
pressaði United. Á 60. mínútu bætti
Steve Daly við þriðja markinu og
öríög íbeeds voru ráðin Sá eini sem
eitthvað kvað að hjá Leeds var Hillv
Bremner, sem aftur lék með eftir 7
Ieikja fjarveru. Það var Billy
Bremner sem splundraði vörn Man-
chester á 87. mínútu með frábærri
sendingu á Trevor Cherry og hann
átti ekki í erfiðleikum með að skora.
Strax í næsta upphlaupi skoraði
Bremner sjálfur og þögn sló á hina
tæplega 60 þúsund áhorfendur. En
Leeds náði ekkert að ógna það sem
eftir var leiksins og því öruggur sigur
Manchester United í höfn.
Úrslit leikja á laugardag urðu:
1. deild
Birmingha m Livcrpool 0-1
Burnlev — Man. Citv 0-0
Covcnt ry Arsenal 1-1
Dcrbv > CorvN ich :í-i
Evcrton QI'R 0-'J
1 pswich Siokc i-i
Miin. t td. 1 • eds •i-1
M iddlcsbr migh - Lciccs U'l 0-1
\r\\ cast lc Wcst Ham 2-1
Shcli. Utd . — Wolvcs 1-1
Tot tcnhan ii Aston Villa 5-2
2. dcild:
Bolton - Plymouth 0-0
Bristol Rovcrs - Hull 0-1
Chclsea Southampton i-i
C ’.harlton Bristol Citv 2-2
Luton ( ! .larlislc :»-»
Nottm. Forcst Fulham 1-0
()ricnt Sundcrland 0-2
'Oxford Notts (iountv 2-1
Portsmout h Blackpool 2-0
WBA Blackburn 2-2
Yo.rk Oldham 1-0
(QPR ti rónir nú stojt á U)J)|)i 1.
dcildar cf tir sigur í Ltvo rpuol vift
Mcrscyáni i liðið lagði E •vcilui) aO
vclli 2-0.
Mikill s ikriður hcfut vcri i<1 á (,)I'K
imdanlari* 5 <»g í átta síðust u lcikjiin)
hefur liðið unnið 7 — eitt jafntefli.
Sem sagt 15 stig af 16 mögulegum og
slíkt eru meistarataktar.
Á Goddison Park sótti Everton
mun meira cn QPR hafði klassann
— getuna til þess að skora mörk.
Stan Bowles skoraði í fyrri hálfleik og
í síðari hálfleik sótti Everton en þrátt
fyrir það bætti QPR við öðru marki
sínu. Mick Leach skoraði með sinni
fyrstu spyrnu í leiknum — hafði
komið inn á skömmu áður sem vara-
maður fyrir Francis. Þar við sat og
dýrmæt stig í safn litla vesturbæjar-
liðsins í Lundúnum.
Á meðan QPR og Man. Utd.
unnu sína andstæðinga — þá voru
helztu keppinautar þeirra, Liverpool
og Derby, einnig að sigra. Liverpool í
Birmingham og Derby heima gegn
Norwich. En þau stig fengust ekki
átakalaust. Leikur Biriningham og
Liverpool þótti með eindæmum
leiðinlegur — rétt eins og bæði liðin
hcföu sætt sig fyrirfram við jafntefii,
hvorugt hafði hugrekki til að sækja,
létu bæði skeika að sköpuðu. L.ukkan
Þessir kappar berjast um meistaratit-
ilinn. — Phil Thompson, miðvörður
Iaverpool, sem á laugardag fékk vítið
sem nægði liði hans til sigurs gegn
Birmingham, í návígi við David
Webb, miðvörð QPR, og Dave
Thomas ber í fætur hans.
Phil Parkes markvörður QPR hélt liði sínu ó floti framan
af með snilldarmarkvörzlu
Liverpool vann Birmingham á vítaspyrnu og Manch. Utd.
lék sér að Leeds en vann aðeins 3-2
var hins vegar með Liverpool —
aðcins fjórum mínútum fyrir leikslok
fékk Liverpool víti. Phil Thompson
var brugðið innan vítateigs og nafna
hans Phil Neal urðu ekki á nein
mistök. skoraði ('irugglega. og
dýrmæt stig til Liverpool.
Á meðan Liverpool var að fá sín
heppnisstig í Birmingham sigraði
Derbv Norwich, liðið sem hafði
sigrað bæði Liverpool og Leeds á
útivöllum. Svo virtist sem Norwich
ætlaði enn að endurtaka leikinn —
Duncan Forbes skoraði fyrir Norwich
í fvrri hálflcik, fór upp í hornspyrnu
og skallaði í markið fram hjá Mose-
ley í marki Dcrbv. Við þetta áfall var
scm leikur meistaranna riðlaðist —
sendingar fóru forgörðum og meistar-
arnir virtust sakna Charlie George,
sem var meiddur. Norwich hafði því
yfir í hálflcik en fijótlega í síðari
hálflcik tók fvrirliði Derbv, Archie
Gemmill, leikinn í sínar hendur.
Hann skoraði þegar á 5. mínútu og
átti síðan frábæra sendingu á Bruce
Rioch sem skoraði. Leighton James
bætti síðan þriðja markinu við og
sigurinn var Dcrby en sannárlega
þurftu leikmenn liðsins fvrir sigrin-
um að hafa.
Það er því Ijóst að þessi fjögur lið
mumi berjast um titilinn í ár
Lceds hefur endanlega misst af
möguleikanum með ósigri sínum á
Old Trafford.
Baráttan á botninum cr nú hins
vegar í algleymingi — af botnliðun-
um sigraði aðeins Wolves, Burnley
gerði jafntefli og Sheffield United og
Birmingham töpuðu.
Mikil var lukka Burnley gegn
deildarbikarmeisturunum Man-
chester City. Dennis Tueart, sem við
sáum skora svo fallegt mark í úr-
slitalciknum gegn Newcastle, skildi
heldur en ekki skotskóna eftir í Man-
chester. City var mun sterkari aðili í
leiknum og í fyrri hálfleik var Tueart
brugðið innan vítateigs. Hann
tók vítið sjálfur en hinn kornungi
Peyton í marki Burnley varði
snilldarlega. Ekki nóg með það
— City fékk annað víti í
síðari hálficik og enn gekk
Tueart fram til að taka vitiö, en
þetta var ekki hans dagur, aftur
mistókst honum og City varð að
sætta sig við aðcins eitt stig. Burn-
ley fékk hins vegar dýrmætt stig í
fallbaráttunni.
Úlfarnir heimsóttu neðsta liðið —
Sheffield U;iited. Þrátt fyrir að
United ætti mun hættulegri færi og
virkaði betra liðið í sóknarlotum sín-
um þá skoraði liðið aðeins eitt mark
— fékk á sig fjögur. Það þarf ekki
mikilla skýringa við á hinni slöku
frammistöðu United, frá hnífa-
borginni frægu í Yorkshire. Vörn
liðsins er afskaplega slök og eins
vantar menn til að styðja við bakið á
enska landsliðsmanninum Tony
Currie á miðjunni. Richards skoraði
fyrsta mark leiksins og Palmer bætti
. öðru marki við fyrir Úlfana. Jimmy
Johnstone minnkaði muninn, þegar
hann skallaði glæsilega í markið en
cnn juku Úlfarnir muninn — Steve
Kindon skoraði. Þannig var staðan í
hálfleik — 1-3 og tvisvar hafði bolt-
inn smollið á stöngum Úlfanna. Já,
lukkan cr ekki með Sheffield United.
Steve Kindon bætti síðan við marki í
síðari hálfieik, sínu öðru.
Dæmalausir eru strákarnir hans
Jackie Charlton, þeir fóru til Liver-
pool í síðustu viku og sigruðu, þeir
unnu sigur í Leeds en í annað skiptið
í röð tapaði Middlesbrough á Ayr-
some Park og nú fvrir Lcicester 0-1.
Það var sjálfsmark Stuart Boam í
fvrri hálficik, sem varð Middles-
brough að falli því fieiri urðu mörkin
ekki.
Arsenal heldur áfram að hala inn
stig eftir að hafa verið komið ískvggi-
lcga nálægt botnliðunum fyrir nokkr-
um vikum. Liðið fór til C.ovcntry og
kom heim með stig — Powling
skoraði fyrir Arscnal í fyrri hálfleik.
Alan Green jafnaði fyrir Coventry í
þeim síðari.
Þau lið sem valdið hafa hvað mest-
um vonbrigðum í vetur, Ipswich og
Stoke, léku á Portman Road í Ips-
wich. Auðvitað varð jafntefii. Dennis
Smith skoraði fyrir Stoke og Rogers
Osborne 'jafnaði fyrir Austur-
Anglíuliðið.
í 2. deild vann Sunderland góðan
sigur í London á Orient og var það
fyrsti útisigur liðsins í 2 mánuði.
Bobby Kerr skoraði bæði mörk
Sunderland en liðið frá Roker Park
varð fyrir verulegu áfalli þegar fyrir-
liði liðsins og liðs Englands undir 23
ára, Tony Towers, meiddist og leikur
sennilega ekki meir það sem eftir lifir
keppnistímabilsins.
Eftir þrjá tapleiki í röð á útivelli
náði Southampton loks stigi á úti-
velli. Það var á Stamford Bridge í
Lundúnum þar sem stig vannst gegn
hinu unga liði Chelsea — Channon
skoraði fyrir Dýrlingana en
Finnieston jafnaði fljótlega fyrir
Chelsea. Bolton og Bristol City
misstu bæði stig — Bolton náði
aðeins jafntefii gegn Plymouth á
Brunden Park í Bolton og það sem
meir er — Plymouth hefur ekki enn
sigrað á útivelli í vetur. Bristol City
gerði hins vegar jafntefli við Charl-
ton í Lundúnum.
I 3. deild var til þess tekið að
Wrexham, er stóð sig svo frábærlega
vel í Belgíu gegn Anderlecht í 8-liða
úrslitum Evrópukeppni bikarhafa,
sigraði efsta liðið í 3. deild, Hereford,
2-1. Leikurinn þótti mjög vel leikinn
og 3. deildinni til mikils sóma.
Crystal Palace sigraði loks — í
Grimsby og hver skoraði bæði mörk
Palace nema PeterTaylor.
Staðan í 1. deild er nú:
1. deild
QPR 35 18 11 6 53-26 47
Liverpool 34 16 13 5 50-27 45
Man. Utd. 33 18 9 6 54-31 45
Derby 34 18 9 7 56-43 45
Leeds 33 16 8 9 51-36 40
Man. City 32 13 10 9 51-28 36
Middlesbro 34 13 10 11 37-30 36
Leicester 34 10 15 9 36-42 35
Ipswich 32 10 14 8 38-33 34
Stoke 32 13 8 11 41-38 34
West Ham 35 13 8 14 43-53 34
Everton 33 11 11 11 48-56 33
Tottenham 34 9 14 11 48-55 32
Newcastle 31 12 7 12 57-44 31
Coventry 34 10 11 13 36-46 31
Norwich 32 11 8 13 48-50 30
Arsenal 33 11 8 14 36-39 30
Aston V. 34 9 12 13 41-50 30
Birmingh. 33 10 5 18 44-60 25
Wolves 33 8 8 17 38-54 24
Burnley 35 7 10 18 38-56 24
Shef. Utd. 34 2 9 23 23-68 13
2. deild
Bristol C. 33 16 11 6 51-28 43
Bolton 32 16 10 6 49-29 42
Sunderland 31 18 5 8 49-29 41
Notts Co. 33 16 7 10 47-33 39
Luton 34 16 7 11 48-39 39
WBA 32 14 11 7 37-29 39
Southampt. 33 16 6 11 55-39 36
Nottm. For. 33 12 10 11 42-34 34
Chelsea 34 12 10 12 45-43 34
Oldham 34 12 10 12. 49-52 34
Fulham 34 12 9 13 39-38 33
Bristol R. 33 10 13 10 31-35 33
Charlton 32 13 7 12 48-55 33
Hull 34 13 6 15 36-39 32
Plymouth 35 11 9 15 43-47 31
Blackpool 33 10 11 12 31-39 31
Carlisle 34 10 11 13 37-49 31
Orient 32 10 10 12 27-31 30
Blackburn 33 7 13 13 32-42 27
Oxford 34 7 11 16 32-48 25
Portsmouth 34 8 6 20 26-47 22
\'ork 33 7 5 21 27-57 19
Indlánarnir hefja eftirförina
J7K