Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.03.1976, Qupperneq 6

Dagblaðið - 22.03.1976, Qupperneq 6
6 Dagblaðið. Mánudagur 22. marz 1976. Þjálfarinn Ken Takefusa 3ja Einnig er lögft rfk áherzla á dan kennir Ooju-Kyu Karate llkamsrækt meft vöftva- og spm er bæfti keppnisíþrótt og öndunaræfingum. frábær sjálfsvarnarlist. Byrjendanámskeið í Karate Innritun verður í dag, mánudag og á morgun þriðjudag, frá kl. 19. Getum bætt við einum byrjendaflokki fyrir bæði ktínur og karla, 15 ára og eldri, einnig einum unglingaflokki 12—15 ára, ef nægileg þátt- taka fæst. Athugið að Karate er ekki einung- is frábær keppnisíþrótt, heldur einnig holl og góð heilsurækt í sérflokki. Karatefélag Reykjavíkur Ármúla 28, R. sími 35025 Til sölu iðnaðarhúsnœ iðnaðarhverfi Húsið selst fokhelt eða undir tréverk. 1. hœð: 300 ferm, 4 innkeyrsludyr, lofthœð 5.60 m. 2. hœð: 300 ferm, lof***1-* nmyii og skip Garðastræti 38, sími 26277 og 20178. PATTY FUNDIN SEK! — dómur kveðinn upp eftir mánuð Lögfræðingar Patriciu Hearst, sem fundin hefur verið sek um vopnað bankarán, hafa farið fram á það, að ferð hennar til Los Angeles, þar sem frekari ákærur bíða hennar, verði frestað. Albert Johnson, verjandi Patty, segir, að framsal hennar sé „óþarfa óþægindi” og hefur beðið Carter dómara að bíða með það, þar til dómur hefur verið kveðinn upp yfir Patty 19. apríl. n.k. Vera kann, að ákærurnar á hendur Patty í Los Angeles um að hafa tekið þátt í skotbardaga fyrir utan sport- vöruverzlun, aðeins um mánuði eftir bankaránið í San Fransisco, eigi eftir að hafa alvarlegar aflciðingar fyrir hana, vegna þess að við slíku getur legið allt aðlífstíðarfangelsi. Skotbar- daga þennan háði Patty með Harris hjónunum, sem bíða dóms, og var búizt við því, að henni yrði sleppt, ef hún vitnaði gegn þeim við réttar- höldin, þar eð það voru þau, sem létu hafa eftir sér að hún hefði tekið þátt í þessu ráni. SIGUNGAR UM PANAMA- SKURD HAFNAR AFTUR Siglingar um Panama-skurð hófust aftur með eðlilegum hætti í gær eftir fimm daga verkfall bandarískra starfs- manna við skurðinn. Bandaríska fyrirtækið, sem hefur rekstur skipaskurðarins með höndum, gréindi frá því í gær að undanfarinn hálfan sólarhring hefðu 57 skip farið um skurðinn, sem er 80 km langur. Enn biðu þó 150 skip þess að komast í gegn á milli Atlantshafsins og Kyrrahafsins. ralið er að það muni taka allt að fjórum vikumað koma málum í eðlilegt horf. Bandarísku starfsmennirnir fóru í óopinbert verkfall til að mótmæla reglugerð, sem hefði smám saman dregið úr forréttindum þeirra sem er- lendra starfsmanna og gert það að verk- um, að þeir hefðu búið við sömu laun og skilyrði og innfæddir starfsmenn. Margir þeirra 2500 bandarísku starfs- manna, sem vinna við skurðinn, eru úr fjölskyldum, sem hafa lifað og starfað við skipaskurðinn í allt að þrjár kyn- slóðir. Þeir hafa látið í ljós mikla andstöðu við yfirstandandi samningaviðræður bandarískra yfirvalda og Panama- stjórnar um framtíðarstöðu skurðarins og áætlanir bandarískra og panamískra starfsmanna. Rekstrarfyrirtæki skurðarins tapaði 14 milljónum Bandaríkjadala á síðasta ári. Flutningaskip af öllum tegundum eru farin að raðast upp, eftir tveggja daga „veikindaverkfall” starfsmanna við Panama skipaskurðinn. Meira en 700 starfs- menn eru í verkfalli þessu til þess að mótmæla fyrirhuguðum kauplækkunum og brottrekstri starfsmanna. Ródesía: Callaghan skýrir stefnu brezku stjórnarinnar í dag Ítalía: Fellur stjórn Aldo Moros? Varnarmálaráðherra Ítalíu, Arnaldo Forlani, mun að öllum Hk- indum gefa kost á sér til formanns- kjörs í kristilega demókrataflokkn- um á þingi flokksins, sem nú er haldið. Mun þá koma í ljós skoðanamis- munur sá, er ríkt hefur innan flokks- ins milli stuðningsmanna Zaccagnini, núverandi formanns og íhaldssamari afla innan flokksins, sem styðja munu Forlani. Og ef Zaccagnini fellur, má búast við því, að minnihlutastjórn Aldo Moros verði að segja af sér, vcgna þess að hún nýtur stuðnings hans. Taldar eru líkur á því, að kosningar nú kúnni eð leiða til þess, að kommún- istaflokkur Ítalíu nái völdum. Zambía biður um íhlutun Breta Mark Chona, stjórnmálalegur ráðunautur Kenncth Kaunda for- seta, hefur boðað komu sína til London. þar sem hann er álitinn eiga að hvetja bre/.k yfirvöld til þess að skerast í leikinn. eftir að samn- ingaviðræður Afríkana og hvíta minnihlutans i Ródesíu sigldu i strand. Chona hefur gegnt lvkilhlutverki í viðræðunum milli Sambíu og Suður-Afríku og er búi/.t við að hann fari fram á það að Bretarsendi herlið til Ródcsíu til að miðla málum þar. Var hann vamtanlegur t il London í dag. James Callaghan, utanríkisráðherra Bretlands, mun í dag gera grein fyrir þeim skilyrðum, sem brezka stjórnin sctur Ródesíumönnum eigi þeir að njóta hjálpar Breta eftir að samningaviðræður hvítra og blakkra um framtíð landsins sigldu í strand fvrir hclgina. Brc/.ki utanríkisráðherrann mun á þingi skýra þá afdráttarlausu afstöðu brc/.ku vcrkamannastjórnarinnar, að Ian Sntith, forsætisráðherra Ródesíu verði að fallast á að mcirihlutastjórn blökkumanna taki við völduin í Ródesíu innan skamms, eigi bre/.ka stjórnin að koma til hjálpar. Pólitískir fréttaskvrcndur eru flestir Búi/.t er við, að kvikmyndastjarnan fyrrverandi, Ronald Rea'gan, verði að hætta baráttunni gegn Ford forseta um útnefningu Repúblikanaflokksins, ef hann tapar í forkosningunum í Norður- Karólmu í dag. Sömu örlög bíða demókratans Georgé Wallaee, sein ekki hefur tekizt þeirrar skoðunar í brezku blöðunum í morgun, að Callaghan muni fullvissa hvíta íbúa Ródesíu um öryggi þeirra og lífsafkomu ef þeir fallast á meirihlutastjórn blökkumanna. 1 sömu blaðafréttum er talað um „umfangsmikla aðstoð” við hina nýju blökkumannastjórn í Rþdesíu. Ian Smith, forsætisráðherra Ródesíu, sagði á laugardaginn að Bretar yrðu að taka þátt í tilraunum til að Finna lausn á Ródesíu-deilunni. Hann sagði jafnframt um helgina, að hann gæti hugsað sér að fella einhliða sjálfstæðisyfirlýsingu Ródesíu frá 1966 úr gildi, jafnvel þótt hann teldi það rangt. að vinna fylgi kjörmanna flokksins á við Jimmy Carter, sem virðist hafa berg- numið kjörmennina, eftir að hann vann glæsilega sigra á fyrstu dögum kosn- ingabaráttunnar. ' Carter er nú í New York, þar sem hann keppir um hylli 274 kjörmanna fyrir kosningarnar þar, sjötta apríl n.k. Bandarísku forsetakosninaarnar í hgust DRAGA WALLACt OG RtAGAN SIG í Hlí?

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.