Dagblaðið - 22.03.1976, Page 9
Dagblaðið. Mánudagur 22. marz 1976.
Allar þjóðernistil-
finningar í garð
Flugleiða dauðar
— íslendingar í Hðfn mjög óánœgðir
„Það eru allar þjóðernistilfinningar í
garð Flugleiða roknar út í veður og vind
hjá fólkinu hér í Kaupmannahöfn,
sagði Már Magnússpn sálfræðinemi og
formaður nemendafélagsins í Höfn í
samtali við Dagblaðið.
„Fólk er ekki bjartsýnt á að það
komist heim í sumar vegna þess að
fargjaldið verður mjög dýrt. Tilboð
Flugleiða, sem við fengum eftir langa
bið, hljóðaði upp á 1.008 danskar
krónur og þá er eftir að greiða flugvall-
arskatt og fleiri gjöld. Þetta er mikið
stökk frá því boði, sem við fengum frá
félaginu nú um síðustu jól, en það var
720 danskar krónur. Þá notfærðu
mar<r'r.sér það nð konutst til íslands og
við fylltum tvær vélar. Skýringin á
þessari hækkun hlýtur að vcra sú, að nú
er öll samkeppni úr sögunni og þeir
geta sett upp hvaða verð sem þeim
dettur í hug. Þegar tilboðið frá þeim
kom í jólaferðirnar, þá fylgdi með að
þeir byðu það sama og lægsta tilboðið
hljóðaði upp á, sem þeir og gerðu.”
„Það er mjög erfitt að semja við
erlend félög um flug til íslands, vegna
þess að vélarnar fara þá tómar til baka.
Eini möguleikinn væri, ef hópur tæki
sig saman og notaði ferðina til baka. Þá
kæmumst við að mun hagstæðari kjör-
um en þeim sem Flugleiðir bjóða
okkur. Það er aldrei gott þegar heil-
brigð samkeppni er ekki fyrir hendi og
einokun á sér stað í þjónustugrein sem
þessari,” sagði Már að lokum. KP
Ovenjuleg lœgð
fór yfir landið:
Um helgina var stormur eða rok víða
um land. Því olli mjög djúp lægðar-
miðja sem fór norður yfir landið. Lægð-
in var 950 mb og er það að sögn
veðurfræðings með því dýpra sem ger-
ist. Hann sagðist muna eftir þrem til
fjórum álíka djúpum lægðum sem hér
hafa farið yfir í vetur.
Víðast voru þetta 9—10 vindstig, en
sums staðar fór vindur upp í 11 vind-
stig, en sá vindstyrkur mældist á Stór-
höfða kl. 6 á sunnudagsmorgun.
í Reykjavík voru um 9 vindstig kl. 9,
Olli stormi og sums
staðar fárviðri
en ekki nema 7 á Akureyri, en þar
hvessti þó nokkuð þegar leið á sunnu-
daginn. Var sérlega hvasst á flugvellin-
um, annars var einna hvassast á Sauð-
árkróki og Siglufirði og víða annars
staðar á vestanverðu Norðurlandi.
Á miðunum var mjcig hvasst, víða
11-12 vindstig, sérstaklega á miðunum
milli 20 og 30 mm aðfaranótt sunnu-
Þessum stormi fylgdi mikil úrkoma
sunnanlands og austan og mældist víða
milli 20 og 30 mm aðfaranótt sunnu-
dags. Mesta úrkoma mældist á Dala-
tanga, 33 mm. Þetta var mest megnis
rigning í byggð, en var smám saman að
breytast í slydduél upp úr hádegi í gær.
Það hefur kólnað dálítið og hiti var
víða 1—2 stig í byggð en undir frost-
marki strax og eitthvað kemur upp á
heiðar. Og þegar þetta mikill vindur er
verður skafrenningur á fjöllum og sums
staðar blindbylur.
Skömmu eftir hádegi í gær var búizt
við áframhaldandi suðvestlægri átt,
nokkuð hvassri, en veðurfræðingurinn
taldi að það versta væri gengið yfir í
bili. —A.Bj.
9
Grjótjötunn í
gagnið ó ný
— Nýir eigendur taka við
Um helmingur neytenda steypu-
efnamarkaðarins eru með í stofnun
og stækkun hlutafélagsins Náman hf.
Fyrirhugað er, að hlutafélag þetta
kaupi og reki Sanddælu- og dýpk-
unarskipið Grjótjötun, sem hefur
verið og er líklega enn í eigu Sand-
skips hf.
Stofnendur Námunnar hf. er all-
dór Jónsson, forstjóri Steypustöðvar-
innar hf., stjórnarformaður., Guð-
mundur Einarsson, framkvæmda-
stjóri verktakafyrirtækisins Að-
albrautar hf., Ingvar Jóhannsson,
forseti bæjarstjórnar Njarðvíkur-
bæjar, Ólafur Jónsson, Lækjartúni,
Ölfusi, og Ólafur J. Bjarnason Dala-
landi 7. Hlutafé er kr. 500
þúsundir en heimild til að auka það í
50 milljónir króna.
Dagblaðinu er kunnugt um,
að verktakafyrirtækið Breiðholt hf.
eða steypustöð þess, hefur samþykkt
að taka þátt í þessu fyrirtæki, ef svo
fer sem búizt er við.
Grótjötunn er sanddælu og dýpk-
unarskip, keypt frá Þýzkalandi.
Hefur útgerð þess af ýmsum ástæð-
um gengið illa og hefur það ekki
getað sinnt þeim verkefnum, sem
annars kunna að standa til boða fyrir
sanddæluskip.
Guðmundur Einarsson verkfræð-
ingur, framkvæmdastjóri Aðalbraut-
ar, sagði í viðtali við Dagblaðið, að
áhugi síns fyrirtækis beindist að
notum skipsins við dýpkunarfram-
kvæmdir við hafnargerðir á vegum
verktakafyrirtækisins. Hins vegar
væri áhugi annarra núverandi og
fyrirhugaðra þátttakenda fyrst og
fremst öflun steypuefnis af hafsbotni.
—BS—
r
■\
Tœknilegar
upplýsingar
Magnari
6 — IC, 33 transistorar
22 dióður, 60 vvött.
60 wött
4 vídda
stereó
Nóatúni Klapparstíg 26
Sími 23800 Sími 19800
ÖLL SAMSTÆÐAN
VERÐ: 129.980.-
FETI FRAMAR
Úvarp:
örbylgja: (FM) 88-108 megarið
Langbylgja: 150-300 kílórið
Miðbylgja: 520-1605 kílórið
Stuttbyglja: 6-18 megarið
Segulband
Hraði: 4,75 cm/s
Tíðnisvörun venjulegrar kasettu (snældu) er
40 — 8000 rið.
Tíðnisvörun Cr02 kasettu er 40 — 12.000 rið.
Tónflökt og - blakt (wow & flutter) betra en
0.3% RMS
Tími hraðspólurnar á 60 mín. spólu- er 105
sek.
UpptökukerFi: AC bias, 4 rása stereo
Afþurrkunarkerfi: AC afþurrkun
Plötuspilari:
Full stærð , allir hraðar, sjálfvirkur cða hand-
stýrður. Nákvæm þvngdarstilling á þunga
nálar á plötu. Mótskautun iniðflóttans sem
tryggir lítið slit á nál og plötum ásamt
fullkominni upptöku. Magnetískur tónhaus.
Hátalarar:
Bassahátalari 20 cm af konískri gerð. Mið- og
hátíðnishátalari 7,7 cm af kónískri gerð
Tíðnisvið: 40 — 20.000 rið
Aukahlutir:
Tveir hátalarar
Tveir hljóðnemar
Ein Cr02 kasetta
FM loftnet
Stuttbylgju loftnetsvír
Tæki til hreinsunar á tónhausum scgulbands.