Dagblaðið - 22.03.1976, Síða 14
Dagblaðið. Mánudagur 22. marz 1976.
Efstu líðin holda strikinu, -
heppnissigrar ó útivðllum!
Þau halda sínu striki efstu liðin í 1.
deildinni ensku í knattspyrnunni. öll
sigruðu á útivöllum, Q.PR í Stoke,
Manch. Utd. í Newcastle, Liverpool
í Norwich og Derby í Middlesbrough
— og allir áttu þessir sigrar eitt
sameiginlegt hjá öllum liðunum —
HEPPNI. En það þarf heppni til að
vera að berjast um enska
meistaratitilinn ásamt mikilli getu í
þessari erfiðustu deildakeppni heims.
Árangur Queens Parks Rangers er
hreint undraverður síðustu vikurnar.
— Átta sigrar í níu leikjum, aðeins
eitt jafntefii við neðsta lið
deildarinnar, Sheff. Ut. 17 stig af 18
mögulegum. Það eru meistarataktar
og sex þessarar leikja á útivöllum. En
það þurfti furðuleg mistök enska
landsliðsmarkvarðarins, Peter Shilt-
on, hjá Stoke, til að bjarga báðum
stigunum á laugardág.
Stoke hafði sýnt mikla hæfni
framan af leiknum og Phil Parkes
hafði tvívegis varið snilldarlega frá
Jimmy Greenhoff áður en QPR
skoraði. Það var á 34. mín. QPR fékk
aukaspyrnu. Don Masson lyfti
knettinum inn í vítateig á höfuð
varnarmannsins sterka, David
Webb. Hann skallaði frekar laust á
mark og beint í hendurnar á Shilton.
Þá skeði það ótrúlega — Shilton
missti knöttinn og hann rúllaði hægt
inn fyrir marklínuna. Eftir markið
lék QPR ákafiega sterkan varnarleik
— og lið Stoke, sem leikið hafði svo
vel framan af, missti smásaman tökin
á leiknum. Möguleikar á að jafna
voru sáralitlir. QPR lék án fyrirliða
síns, Gerry Francis.
QPR heldur því efsta sætinu, og á
eftir sex leiki. Fjóra á heimavelli, þar
sem liðið hefur ekki tapað leik á
keppnistímabilinu, og þeir eru gegn
Arsenal, Manch. City, Middlesbro
og Leeds. Vissulega erfiðir leikir —
og útileikirnir tveir eru gegn
Newcastle og Norwich. QPR, þetta
litla lið úr vesturbæ Lundunaborgar,
hefur aldrei unnið meistaratignina.
Möguleikarnir nú hljóta að vera
góðir. Markatala liðsins að auki lang-
bezt.
En lítum á úrslitin áður en lengra
er haldið.
1. deild
Arsenal-West Ham 6-1
Birmingham-Coventry 1-1
Burnley-Tottenham 1-2
Everton-Leeds 1-3
Leicester-Aston V. 2-2
Manch. City-Wolves 3-2
Middlesbro-Derby 0-2
Newcastle-Manch. Utd. 3-4
Norwich-Liverpool 0-1
Sheff. Utd.-Ipswich 1-2
Stoke-QPR 0-1
Chris Nicholl, hinn sterki, írski
landsliðsmiðvörður hjá Aston Villa,
lék furðulegan leik á Filbert Street í
Leicester. Fyrst skoraði hann sjálfs-
mark — síðan jafnaði hann fyrir
Villa. í síðari hálfieik skeði það sama.
Fyrst sendi Nicholl knöttinn í eigið
mark — síðan jafnaði hann fyrir
Villa. Fjögur mörk í leik — tvo fyrir
hvort lið — og þar með jafnaði
Nicholl met í ensku knattspyrnunni.
Einhver kappi hjá Oldham lék sama
lcik 1923 — og þess má geta að
Nicholl skoraði sjálfsmark í leik
Norður-írlands í siðustu viku.
2. deild.
Bristol City-Fulham
Charlton-Blackburn
Chelsea-Bristol Rov.
Notts. Co -Blackpool
Oldham-Sunderland
Orient-Luton
Oxford-Portsmouth
Plymouth-Hull
Southampton-Carlisle
WBA-Bolton
York-Nottm. Forest
0-0
2-1
0-0
1-2
1-1
3-0
1-0
1-1
1-1
2-1
3-2
Þó heppni QPR hafi verið talsverð
í Stoke var hún þó enn meiri hjá
Manch. Utd. í Newcastle. Eftir
aðeins 15 mín. stóð 0-2 og leikmenn
Newcastle voru heldur betur
gjafmildir. Fyrst átti Tom Cassidy
Ielega sendingu aftur til markvarðar
— Stuart Pearson komst á milli og
skoraði og rétt á eftir sendi John Bird
knöttinn í eigið mark. En leikmenn
Newcastle gáfust ekki upp og í
leikhléi var staðan 3-2 fyrir
Newcastle!! — Fyrst skoraði Mick
Burn, þá jafnaði Malcolm Mac-
Donald, og á 40 mín. átti
MacDonald aftur skot á markið —
Alan Gowling potaði í knöttinn og
stýrði honum framhjá Alex Stepney í
mark Manch. Utd. Mörg lið hefðu
brotnað við þessi ósköp — en hinir
ungu leikmenn Manch. Utd. fengu
aftur aðstoð, þegar þeir í síðari
hálfieik íéku undir sterkum vindi.
Pat Howard byrjaði á því að skora
sjálfsmark — og á 58. mín. kom
Stuart Pearson Manch. Utd. yfir 3-4.
Þar með lauk markaskoruninni í
þessum „skemmtilega vitlausa” leik.
Manch. Utd. hefur tapað fæstum
stigum liðanna í 1. deild. Hefur 48
stig, og á eftir fjóra leiki á heimavelli,
þar sem liðið hefur ekki tapað leik á
leiktímabilinu. Þeir eru gegn
Everton, Manch. City, Middlesbro
og Stoke — og þrjá leifci á útivöllum.
Gegn Ipswich, Burnley og Leicester.
Norwich sýndi miklu betri leik en
Liverpool lengstum á Carrow Road,
það svo, að leikurinn var oftast
einvígi milkli framherja Norwich og
enska landsliðsmarkvarðarins, Ray
Clemende. Markvörðurinn sigraði í
þeirri viðureign — varði glæsilega.
Þrisvar að minnsta kosti í
„heimsklassa”. Svertinginn John
Miller (keyptur frá Ipswich) lék með
Norwich á ný og var maðurinn
bakvið sókn Norwich. Lék hvenær
sem var á Phil Neal, bakvörð Liver-
pool. En Clemence, sem lék sinn
400 leik með Liverpool, var
ósigrandi og heppinn að auki.
Þannig spyrnti Boyer knettinum í
þverslá eftir að Clemence hafði varið
írá McGuire, og Boyer fékk svo
knöttinn aftur, en spyrnti yfir opið í
markið.
Liverpool varð fyrir því áfalli að
missa John Toshack útaf meiddan—
en ungi miðherjinn David
Fairclough, sem aðeins er 19 ára og
spáð miklum frama, kom í hans stað
og skoraði eina mark leiksins í 65.
mín. Áhorfendur voru tæplega 29
þúsund. önnur mesta aðsóknin hjá
Norwich í vetur — aðeins meiri,
þegar Manch. Utd. kom þar í
heimsókn fyrr í vikunni. Liverp. er
með 47 stig og á eftir sjö leiki. Fóra
heima gegn Burnley, Everton,
Leicester og Stoke, en þrjá úti gegn
Aston Villa, Manch. City og Wolves.
Derby sýndi frábæran varnarleik í
Middlesbro og þurfti þess með, því
að flóðbylgjur gengu beinlínis á mark
meistaranna. Middlesbro sótti nær
látlaust — en Derby skoráði mörkin.
Fyrst Charlie George, sem lék með að
nýju eftir flensu, á 32. mín. og svo
Kevin Hector sjö mín. fyrir leikslok.
Góður sigur hjá Derby og það án
Bruce Rioch. Derby á eftir sjö leiki
og er með 47 stig. Fjóra heima —
leiki gegn Birmingham, Stoke,
Everton og Leicester og þrjá úti gegn
Manch. City, Aston Villa og
Ipswich.
Dave Thomas hefur átt frábæra leiki
með QPR á keppnistímabilinu, en
þarna brást honum bogalistin gegn
West Ham. Til vinstri á myndinni
gegn Tommy Taylor. West Ham
sigraði 1-0 á Upton Park 24. janúar
og síðan hefur QPR ekki tapað leik.
Leeds, sem setti Duncan
McKertzie úr liði sínu, vann
athyglisverðan sigur í Liverpool —
gegn Everton, þó sá sigur komi of
seint til að Leeds geti blandað sér í
baráttu fjögurra efstu liðanna. Joe
Jordan skoraði fyrir Leeds eftir
markalausan fyrri hálfieik og það
virtist ætla að verða eina mark
leiksins. En þrjú mörk voru skoruð
eftir að leikið hafði verið í 90 mín.
Fyrst Billy Bremner úr víti fyrir
Leeds. Þá Martin Dobson fyrir
Everton og þegar 96 mín. höfðu verið
leiknar Carl Harris, en hann tók
stöðu McKenzie í Leeds-liðinu.
En nú verðum við víst að fara
fijótt yfir sögu. Arsenal vann stærsta
sigurinn gegn nágrannaliði sínu í
Lundúnum, West Ham, sem alveg er
heillum horfið í deildakeppninni.
Alan Ball skoraði strax á 2. mín.
og gat aukið markatöluna, þegar
Arsenal fékk víti á 12. mín., en
Merwyn Davy varði frá Balljcnnings
jafnaði fyrir West Ham á 23. mín.,
en Arsenal fékk aftur víti sem Ball
skoraði úr. Síðan skoraði George
Armstrong og Brian Kidd þrívegis.
Powell skoraði fyrir Coventry á 25.
mín., en Trevor Francis tókst að
jafna fyrir Birmingham í s.h. úr
vítaspyrnu og Birmingham náði því í
dýrmætt stig. Úlfamir og Burnley
töpuðu hins vegar og útlitið verður
ljótari hja liðunum. Þó náói
Daley forustu fyrir Úlfana á Maine
Road á 29. mín., en það nægði
ekki. Gerard Keegan, Dennis
Tueart, vítaspyrna, og Mike Doyle
skoruðu fyrir Manch. City í síðari
hálfieik, en Steve Kindon fyrir
Úlfana. Ipswich sigraði botnliðið
Sheff. Utd. með mörkum Derek
Johnson og fyrirliðans Mick Mills, en
Eddie Colquhoun skoraði mark
Sheff. Utd. 1
Bristol City er komið með annan
fótinn í 1. deild, en 65 ár eru síðan
Bristol-liðið hefur leikið í 1.
deildinni. Hefur nú fjögurra stiga
forskot á Sunderland og Bolton.
Sunderland náði jafntefii í Oldham
eftir að Graham Bell hafði náð
forustu fyrir heimaliðið á 10. mín.,
en Billy Hughes jafnaði. Bolton, sem
stóð svo vel að vígi fyrir nokkrum
vikum, en virðist hafa „sprungið” á
bikarleikjunum við Newcastle,
tapaði í West Bromwich og lið
Johnny Giles, WBA, hefur því enn
möguleika á að komast í 1. deild á
ný. Það hafði mikla yfirburði gegn
Bolton, en það var þó ekki fyrr en
rétt fyrir hálfleik að Joe Mayo tókst
að skora. í byrjun síðari hálfieiks
skoraði miðvörðurinn John Wile eftir
aukaspyrnu Giles.
í 3ju deild hefur yngsta
deildarliðið Herefoird sínu striki og
er efst með 49 stig eftir sigur á
útivelli gegn Bury, 2-3, og það var
góður sigur. Brighton, sem vann
Swindon 2-0, er í öðru sqpti með 46
stig. og Crystal Palace, sem gerði
jafntefii 1-1 við Mansfield, í 3ja sæti
með 45 stig. Síðan kemur Walsall
með 43 stig. Walsall vann Aldershot
4-1 og Alan Buckley skoraði þrjú
markanna. Hann er nú markhæstur í
Englandi með 30 mörk á
leiktímabilinu.
í 4. deild skoraði Northampton sex
mörk í fyrri hálfieik gegn
Bournemoth — en þar við sat. Úrslit
6-0. Northampton er efst með 55 stig.
Lincoln hefur 54 stig, Reading 48,
'Tranmere 47, og Huddersfield, sem
tapaði heima fyrir Barnsley 1-2, er
með 46 stig.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Q.PR 36 19 11 6 54-26 49
Man. Utd. 35 19 10 6 59-35 48
Liverpool 35 17 13 5 51-27 47
Derby 35 19 9 7 58-43 47
Leeds 34 17 8 9 54-37 42
Man. City 33 14 10 9 54-30 38
Middlesbro 35 13 10 12 37-32 36
Tottenham 36 11 14 11 51-56 36
Leicester 35 10 16 9 38-44 36
Stoke 33 13 8 12 41-39 34
West Ham 36 13 8 15 44-59 34
Arsenal 35 12 9 14 42-40 33
Everton 34 11 11 12 49-59 33
Newcastle 33 12 8 13 60-48 32
Coventry 35 10 12 13 37-47 32
Norwich 34 11 9 14 49-52 31
AstonV- 35 9 13 13 43-52 31
Birmingh. 34 10 6 18 45-61 26
Wolves 35 8 8 19 40-58 24
Burnley 36 7 10 19 39-58 24
Shefl. Utd. 35 2 9 24 24-70 13
2. deild
Bristol C. 35 17 12 6 52-28 46
Sunderland 33 18 6 9 51-32 42
Bolton 33 16 10 7 49-31 42
WBA 34 15 11 8 39-30 41
Southampt. 34 16 7 11 56-40 39
Nott. Co. 34 16 7 11 48-35 39
Luton 35 16 7 12 48-42 39
Nottm. For. 35 13 10 12 46-38 36
Chelsea 35 12 11 12 45-43 35
Oldham 35 12 11 12 50-53 35
Charlton 33 14 7 12 50-56 35
Fulham 35 12 10 13 39-38 34
Bristol Rov. 34 10 14 10 31-35 34
Hull 35 13 7 15 37-40 33
Blackp. 34 11 11 12 33-40 33
Orient 33 11 10 12 30-31 32
Plymouth 36 11 10 15 44-48 32
Carlisle 35 10 12 13 38-50 32
Blackburn 34 7 13 14 33-44 27
Oxford 35 8 11 16 33-48 27
Portsmouth 35 8 6 21 26-48 22
York 34 8 5 21 30-59 21
Aðeins Glasgow-Kðin berjost um titilinn
CJIasgow Celtic mcð mjcig brcytt
lið vcgna vcikinda og meiðsla vann
góðan sigur í Dundcc á laugard. og
hcldur þar mcð forustu sinni í aðal-
dcildinni sko/.ku, Er stigi á undan
Rangcrs — cn cinnur lið koma ckki
til grcina lcngur í baráttunni um
mcistaratitilinn.
Sigur Ccltic var vcrðskuldaður
gcgn Dtindcc. Eina markið skoraði
fvrirliðinn Kcnnv Dalglish, þcgar 12
mín. voru af sícYiri . hálílcik. l ckk
knöttinn utan vitateigs. l’ók hann
vcl niður og lék inn í teiginn, síðan á
Tommy Allen, markvörð Dundee og
skoraði. Dundee-liðið át.ti afar litla
mögulcika gegn stcrkri vörn Celtic,
þar scm Jóhannes Eðvaldsson lék að
vcnju aðalhlutverkið. John Doyle,
scm Celtic kcypti frá Ayr fyrir 90
þúsund stcrlingspund, lék sinn fyrsta
lcik mcð Ccltic — cn mciddist og
kom Poul Wilson í hans stað cftir
lcikhícið.
Miklar brcvtingar voru á Ccltic-
liðinu, t.d. var Roddy MacDonald,
sem lengstum hefur leikið miðvörð
með nr. níu á bakinu, en Celtic-liðið
var annars skipað þessum leik-
mönnum. Latchford, McGrain,
Lynch, McClusky, Jóhannes, Aitken,
Dalglish, McNamara, Doyle,
MacDonald og Harry Hood og Wil-
son kom svo í stað Doyle.
Úrslit í aðaldeildinni urðu annars
þessi:
Dundee-Celtic 0-1
Hibernian-Dundee Utd. 0-1
Motherwell-Aberdeen 2-1
Rangers-Hearts 3-1
St. Johnstone-Ayr 1-2
svo tvö mörk tyrir Rangers.
Staðan er nú þannig:
Óvænt var tap Hibernian heima
fyrir Dundee Utd., þar sem Hall
skóraði eina markið. Hearts er komið
í alvarlega fallhættu. — þar gengur
ckkert. Derek Johnstone skoraði fyrir
Rangers í f.h. en Kenny Aird tókst
að jafna fyrir Hcarts — Colin
Jackson og Tommv McLean skoruðu
Celtic 27 18 4 5 57-30 40
Rangers 27 1/ D 5 46-22 39
Hibernian 27 14 6 7 45-30 34
Motherwell 27 13 7 7 47-34 33
Aberdeen 28 10 7 11 42-39 27
Dundee 28 9 7 12 42-50 25
Hearts 28 8 8 12 29-41 24
Dundee Utd. 26 8 6 '12 34-38 22
Ayr Utd. 27 9 4 14 32-47 22
St. Johnst. 27 2 2 23 25-158 6