Dagblaðið - 08.04.1976, Page 6

Dagblaðið - 08.04.1976, Page 6
6 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. APRtL 1976. Eftir átökin í Kína: Vandlega skipulagðar göngur stuðningsmanna Hua Koo-feng setja svip sinn á Peking Trumbur og önnur ásláttar- hljóðfæri voru barin, svo að bergmálaði í fjöllunum um- hverfis Peking, þegar stuðn- ingsmenn hins nýja forsætis- ráðherra, Hua Kuo-feng, flykkt- ust út á götur, til þess að votta honum hollustu sína. Vel skipulögð stuðningsher- ferð þessi stakk mjög í stúf við tætingslegan fólksfjöldann, sem að óeirðunum stóð á torgi híns himneska friðar sl. mánu- dag. Af þeim atburðum segir í fréttaskeytum fréttastofu Nýja Kína, að fólkið hafi verið æst til óláta af vandræðamönnum, það hafi brennt farartæki og rænt eina opinbera byggingu. Meðal fólksfjöldans voru hópar, sem hrópuðu hvatning- arorð til Tengs varaforsætisráð- herra, sem nú hefur verið settur af, og líktu honum og stjórnmálaskoðunum hans við skoðanir Chou En-lais, fýrrum forsætisráðherra. Mannfjöldinn, sem gekk um göturnar í gær, var kominn út úr húsum sínum í skipulegar raðir, nokkrum klukkustund- um eftir að tilkynnt hafði verið að Hua hefði verið kjörinn for- sætisráðherra sem i rauninni þýðir, að hann er nú annar valdamesti maður Kína, næstur á eftir Mao formanni sjálfum. Jafnframt var tilkynnt, að Teng hefði verið sviptur öllum völd- um, en hann mætti þó halda áfram að vera í kommúnista- flokknum, þar sem honum hefði verið gefið tækifæri á því að^ bæta ráð sitt, eftir að hafa villzt inn á veg auðvaldsins. Flugrán á Fifippsey/um: Gíslum sleppt í morgunsárið — áframhaldandi samninga- viðrœður við rœningjana um borð í vélinni Yfirmaður filippeyska flug- hersins hefur siðan í gær staðið í samningaviðræðum við ræningj- ana um borð í flugvélinni á flug- vellinum í Manila, höfuðborg Filippseyja. Ekkert hefur verið getið um áhöfnina, sex manns, en talið er að hún verði öll áfram um borð í vélinni á meðan samningaviðræð- um er haldið áfram. Flugvélin, sem er . af gerðinni BAC-111, kom til Manila skömmu fyrir hádegi í gær. Henni var rænt í Cagayan de Oro City, sem er 800 km SA af Manila. Ræningjarnir, sem eru taldir félagar í aðskilnaðarsamtökum á suðureyjum Filippseyja, hótuðu fyrst að drepa alla gíslana ef þeir fengju ekki lausnargjald, sem Þrír menn, sem rændu filipp- eyskri flugvél í Manila, féllust á það í morgun að sleppa hinum 69 gíslum sínum, eftir að hafa verið fullvissaðir um að fjórir fangar stjórnarinnar, sem þeir vildu fá látna lausa, yrðu ekki látnir sæta ábyrgð fyrir flugvélarránið. Þegar fréttir bárust síðast í morgun var verið að semja við ræningjana um hvernig ætti að haga flutningi farþeganna frá vél- inni í bíla, ér flyttu þá á brott. svarar 54 milljónum ísl. kr., og tilteknum föngum yrði sleppt. Ferdinand Marcos forseti kom í veg fyrir að lausnargjaldið yrði greitt. Mennirnir eru sagðir vopnaðir skammbyssum og handsprengjum og grímuklæddir. REUTER Flugrœningjamir í Manila hafa nú slappt öllum farþogum vólarinnar, somþeir tóku á flug- vellinum þar. Þeir halda þó eftir áhöfninni á meöan samningaumleitanir eru í gangi viö þar- lend stjórnarvöld. Tólf manns létu lífið í átökum í Argentínu — fyrír töku indónesísku rœðismanns- skrifstofunnar í Amsterdam Tólf manns létust í átökum í Argenlínu í gær og er tala lát- inna bá komin upn í 94 síðan bylting var gerð þar fyrir hálf- um mánuði. Lík níu manna fundust skammt fyrir utan Buenos Aires í gær, og telur lögreglan. að þar hafi aftökusveit h.egri manna, sem töluvert let á sér bera, áður en Maríu Peron var vikið frá, verið að verki. Þrír vinstri sinnaðir skæru- liðar létust svo í átökum við her landsins í borginni Cordoba. Á fundi með eftirlaunamönn- um úr röðum yfirmanna í hern- um hefur Videla foreti ságt. að byltingin hafi verið nauðsyn- leg, þar eð valdataka marxista ,,hafi verið á næsta leiti”. AÐEINS STJÓRNARÞÁTTTAKA KOMMÚNISTA GETUR KOMIO í VEG FYRIR KOSNINGARNAR Mólúkke yingarnir dœmdir í dag Sjö mólúkkeyskir skæru- liðar, sem héldu 43 gíslum í skrifstofu indónesíska ræðis- mannsins í Amsterdam í desember sl., verða dæmdir þar í dag. Réttarhöldin fóru fram fyrir hálfum mánuði. Þar var þess krafizt, að hver þeirra yrði dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsisvist. Sjömenningarnir, sem allir eru félagar í samtökum þjóð- ernissinnaðra Suður- Mólúkkeyinga, sögðu fyrir rétt- inum að þeir hefðu ráðizt inn í ræðismannsskrifstofuna til að beina athygli heimsins að kröf- um þeirra um sjálfstæði ætt- lands þeirra — eyjaklasa í Kyrrahafinu — frá Indónesíu. Mólúkkeyingarnir eru 22 og 23 ára. Þeir héldu 25 gísla sinna í haldi í fimmtán daga. Tveimur gíslanna og sextán skólabörnum slepptuþeir laus- um skömmu eftir innrásina I bygginguna 4. desember. Allir játuðu að hafa staðið fyrir ólöglegri frelsissviptingu — sem er brot nokkurn veginn sambærilegt við mannrán — en hámarksrefsing fyrir slíkt er tíu ára fangelsi. Sjö aðrir Mólúkkeyingar voru dæmdir í fjórtán ára fang- elsi í Hollandi 26. marz fyrir að ræna lest í Beilen um svipað leyti. Réttarhöldunum yfir Mólúkkum þoim tntn tóku sendirsö Indóneoíu i Amtterdam sl. haust lauk f yrir hólfum mánuöi og veröur dómur kveðinn upp yfir þeim i dag. Einn maöur lézt í umsátrinu er hann stökk til jaröar frá annarri hseð sendiráösbyggingarinnar. segja sósíalistar á Ítalíu Minnihlutastjórn kristilegra demókrata á Ítalíu neyðist líklega til þess að efna til kosninga fyrr en ætlað hafði verið vegna deilna um breytingar á fóstureyðingar- lögum og efnahagsstefnu stjórnarinnar. Hinn áhrifamikli kommúnista- flokkur iandsins hv-tti au- flokka til þess í gærkvöld að finna lausn vandans eins fljótt og auðið er, svo hægt yrði að komast hjá því að efna til kosninga nú. Sósíalistar. sem halda stjórn- inni á lífi meðhlutleysi sínu á þingi, telja nú að ekkert geti komið í veg fyrir kosningar nema ijiyndun samsteypustjórnar með þátttöku kommúnista. Ágreiningurinn á milli kristi- legra demókrata og annarra flokka um fóstureyðingarmálið virðist óleysanlegur. Kristilegir, sem njóta stuðnings Páfagarðs, vilja láta lækna hafa síðasta orðið um fóstureyðingar, en sósíalistar vilja láta konuna sjálfa ráða fyrstu 90 daga meðgöngutimans. Minnihlutastjórn kristilegra demókrata undir stjórn Aldos Moros var mynduð í febrúar. Aldo Moro

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.