Dagblaðið - 08.04.1976, Page 9
DAGBLAÐH). FIMMTI DAC.UR 8. APRÍL 197«.
í súkkulaði hjá
Vilhjálmi ráðherra
Verðlaunaafhending i teiknimyndasamkeppni
um umferðarmál
endur keppninnar höfðu látið
sér detta í hug. Það voru
einungis níu ára börn sem þátt
gátu tekið í keppninni og er
hún hin fyrsta hér á landi með
þessu sniði. Þátttakendurnir
voru frá 56 skólum í landinu.
Dómnefnd skipuðu: Þórir
Sigurðsson, námsstjóri, Borg-
hildur Öskarsdóttir, mynd-
listarkennari og Árni Þór
Eymundsson. upplýsingafull-
trúi.
Alls voru veitt tólf verðlaun.
Fyrstu verðlaun hlaut Aðal-
heiður Diego Hjálmarsdóttir
Fossvogsskóla, reiðhjól sem
Fálkinn h/f gaf. Önnur verð-
laun hlaut Vilhjálmur Kári
Heiðdal, Breiðholtsskóla,
íþróttabúning sem Sportvöru-
verzlun Ingólfs Óskarssonar
gaf. 2.-12. verðlaun, sem voru
bækur frá bókaforlaginu Örn
og Örlygur, hlutu eftirtalin
börn: Birgitta Guðmundsdóttir,
Kópavogsskóla, Guðný Hafdís
Hill, Sandgerðisskóla, Jens
Reynir. Breiðagerðisskóla, Jón
Garðar. Æfinga og tilrauna-
skólanum, Petra B. Árnadóttir,
Vogaskóla, Ragna Sigurlaug
Ragnarsdóttir, Akureyri, (var
ekki viðstödd), Ríkharður
Reynisson, Breiðholtsskóla,
Sigurður Guðmundsson, Sand-
gerðisskóla. Sólveig Rósa Ölafs-
,,Það var ekki fyrr en um árið
1947 sem f.vrsti bíllinn kom í
mína sveit og ég var einn af
eigendum hans,” sagði Vil-
hjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráðherra í kaffisamsæti í
ráðherrabústaðnum, er verð-
laun voru veitt í teiknimynda-
samkeppni um umferðarmál.
Keppnin var haldin á vegum
menntamálaráðune.vtisins og
umferðarráðs.
..Ilugsið ykkur bara,” sagði
menntamálaráðherra ennfrem-
ur. ,,Þá niætti maður aldrei bil.
Það eina sem maður þurfti að
hugsa um og gá að var að aka
ekki útaf. Það voru engir bílar
að mæta og sárafáir á ferli.”
Miklar breytingar hafa orðið
á allri untferð hvar sem er á
landinu frá þeim tíma sem
menntamálaráðherra sagði frá.
Börnin sem þátt tóku í þessari
teiknimyndasamkeppni voru
alls 769 og af öllu landinu. Þátt-
taka var mun meiri en aðstand-
Þarna eru allir krakkarnir sem verðlaunin hlutu utan ein stúlka frá Akureyri.
Ljósm. DB-Bjarnleifur.
dóttir, Æfinga og tilrauna-
skólanum og Una Margrét Jóns-
dóttir, Vesturbæjarskóla.
—A.Bj.
Menntamálaráðherra skoðar verðlaunabók, og verðlaunahaf-
arnir hlýða á orð hans með „andakt.”
s
9
\
■
V' ■• '
V
Nú kynnum við nýja og frumlega gerð af
hjónarúmi, einnig skápahurðir í úrvali
(sjá mynd) o.fl. o.fl. Hagstœtt verð.
Komið — sjáið — sannfœrízt