Dagblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 12
I)AíiKI Aí)Ifi FIMMTIID Af’ IIR '
Iþróttir
íþróttir
gþróttir
Iþróttir
Sigurður Kolbeinsson hefur
verið drjúgur i A-flokki
badniinton í vetur. Um síðustu
helgi sigraði hann í íslands-
mótinu á Akranesi. Hér er
Sigurður ásamt sigurvegaranum
úr A-flokki kvenna, Önnu
Njálsdóttur.
Heimsmet
í millivigt
Vartan Militosyan, Sovétríkj-
unum, setti nýtt heimsmet í jafn/
hendingu á Evrópumeistaramót-
inu í lyftingum í Austur-Berlín í
gær. Hann jafnhattaði 191 kg og
bætti met, sem Búlgarinn Jordan
Mitkov hafði sett rétt áður um
hálft kíló. Þetta var í millivigt og
báðir bættu fyrra heimsmet Búig-
arans Kolev og Vestur-
Þjóðverjans Peter Wenzei, en það
var 190 kg. Þá jafnaði Militosyan
heimsmetið samanlagt í vigtinni,
þegar hann varð Evrópumeistari
meó 340 kg.
Úrslit urðu þessi:
1. V. Militosyan, Sovét. 340.0
2. P. Wenzel, V-Þýzkai. 335.0
3. J. Mitkov, Búlgaría 330.0
4. A. Stark, Ungverjal. 322.5
5. W. Hubner, A-Þýzkal. 315.0
6. Ala-Poentioe, Finnl. 312.5
Skoraði með
fyrstu spyrnu
í landsleik!
Willie Pettigrew, miðherji
Motherwell og markhæsti leik-
maöurinn í skozku knattspyrn-
unni, skoraði með sinni fyrstu
spyrnu í sínum fyrsta iandsleik í
gær. Það var á Hampden Park í
Glasgow og Skotland vann Sviss
1—0 — þetta eina mark nægði til
sigurs. Kenny Dalglish, Celtic,
gaf knöttinn fyrir markið og
Pettigrew skoraði.
En Pettigrew var ekki alltaf
svona heppinn í leiknum. llapn
meiddist og varð að yfirgefa leik-
vöiiinn mikla, þar sem 16000
áhorfendur voru samankomnir.
Leikurinn í heild var slakur og
Svisslendingar áttu varla tæki-
færi í leiknum.
Skozka liðið var þannig
skipað: Rough, Patrick, McGrain,
Celtic, Forsyth, Rangers,
Blackley, Hibernian, Gray, Leeds,
Dalglish, Celtic, MacDonald.
Rangers, Craig, Newcastle,
Pettigrew, Motherwell. Andy
Gray, Aston Villa, Johnstone,
Rangers.
HM í íshokkey
Heimsmeistarakeppnin
íshokkey hefst í Póllandi í dag og
er reiknað meó að Svíar, sem ekki
tóku þátt í íshokkey-keppni
Olympíuleikanna í Innsbruck,
geti veitt sovézku heims-
meisturunum mikla keppni —
jafnvel sigrað í mótinu. En Sovét-
ríkin eiga harðsnúnu liði á að
skipa — einnig Tékkóslóvakía.
Önnur þátttökulönd í keppninni
cru Vestur-Þýzkaland,
Bandaríkin, Finnland, Austur-
Þýzkaland og Pólland.
fef'1 £/
Guðgeir lék
ogChoHeroi
skoraði sex
Guðgeir Leifsson lék með
Charleroi á ný eftir fjarveru í
nokkrum leikjum vegna meiðsla.
Hann átti skínandi leik og
greinilegt að það hafði góð áhrif á
liðið, að hann Iek með. Charleroi
vann sinn stærsta sigur á
leiktímabilinu — sigraði Liege á
heimavelli sínum með 6-1 og
hefur því enn möguleika að
bjarga sér frá fallinu niður í 2.
deild, sagði Asgeir Sigurvinsson,
þegar Dagblaðið ræddi vió hann í
gærkvöld.
Þetta var ákaflega þýðingar-
mikill sigur fyrir Charleroi og
ætti að þjappa leikmönnum
liðsins saman fyrir átökin, sem
framundan eru í fallbaráttunni. 1
gær var barizt af krafti og
stórsigur vannst, þó svo Liege-
liðið skoraði fyrsta mark leiksins.
Flestir veðja ó
Gullbjörninn
Fyrsta stórmótið í golfinu á
árinu — US Masters — hefst í dag
með þátttöku allra stórkarlanna.
Flestir veðja á, að gullbjörninn
Jack Nieklaus beri enn einu sinni
sigur úr býtum, þó hann hafi ekki
náð stórárangri í þeim mótum,
sem hann hefur keppt í á árinu.
Aðrir setja traust sitt á Hubert
Green, sem sigraði í þremur
mótum í röð á dögunum, og enn
aðrir á Tom Weisskopf. Hann
hefur sýnt mikið öryggi að
undanförnu, en vantað
herzlumun —ívið meiri heppni
— til að sigra. Orðið í öðru sæti í
fjórum af sjö síðustu mótunum.
Hann hefur aldrei sigrað á þessu
móti — og mörgum finnst tími til
kominn.
En Þjóðverjinn hjá Charleroi
jafnaði og síðan skoruðu þeir
Bohmer, Jacobs, tvö, Henrotay og
Zena. Guðgeir skoraði ekki, en
átti mikinn þátt í nokkrum
markanna, sagði Ásgeir ennfrem-
Okkur hjá Standard Liege tókst
ekki að ná nema jafntefli á heima-
velli gegn La Louviere—liði, sem
er í fallbaráttunni, sagði Ásgeir
ennfremur. Það var að mörgu
leyti ágætur leikur og leikmenn
La Louviere börðust eins og ljón
— greinilega ákveðnir í að selja
sig eins dýrt og hægt væri. Gerez
skoraði fyrsta markið í leiknum
fyrir Standard — en La Louviere
hafði jafnað fyrir hlé. t síðari
hálfleiknum tókst liðinu að ná
forustu, en Ásgeir jafnaði fyrir
Standard.
Þetta er fimmti leikurinn í röð
hjá Ásgeiri, sem hann skorar í —
og hann hefur nú skorað ellefu
mörk í deildakeppninni í Belgíu á
leiktímabilinu. Er annar mark-
hæsti leikmaður Standard Liege
— en markhæstur hjá liðinu er
Philippe Garot, sem skorað hefur
15 mörk í 1. deild á leiktíma-
bilinu.
Heil umferð var leikinn í 1.
deild í gærkvöld og úrslit þessi. urðu
Malines-CS Brugge 1-1
Anderlecht-Beveren 4-0
Ostende-Lierse 2-1
Standard-La Louviere 2-2
Charleroi-Liege 6-1
Antwerpen-Beerschot 1-3
Lokeren-Molenbeek 1-1
FC Brugge-Malinois 5-1
Berchem-Waregem 0-1
FC Brugge jók enn forskot sitt í
1. deild og liðið er alveg að verða
öruggt með meistaratitilinn.
Áimaim og Fram
í úrsit bikarsms
Fram og Ármann tryggðu sér
sæti í úrslitum bikarkeppni HSÍ í
kvennahandboltanum í gærkvöld.
Ármann sigraði Víking 11-7, þar
sem Ármann náði góðri forystu
fyrir hlé 6-2, en eftir það hélzt'
leikurinn í jafnvægi.
í Hafnarfirði léku FH og
Fram — FH hafði áður slegið
Val út, en íslandsmcistarar Fram
revndust FH ofviða — Framsigur
13-9.
Þrátt fyrir stærð sína hefur Pétur góðar hreyfingar — Þessar myndir
hliðina á Pétri á litlu myndinni er Örn Þórisson úr Fram og hann
Sjö felu pilt
með ungfing
— Pétur Guðmundsson kominn fró Bandar
Unglingalandsuoio i köriu-
knattleik heldur senn utan til
Tyrklands í Evrópukeppni
ungiinga 17-18 ára. Með liðinu fer
hinn hávaxni og efnilegi leik-
maður Pétur Guðmundsson, er
dvalið hefur við nám í Banda-
ríkjunum nú um 7 mánaða skeið.
Pétur er draumaprins körfu-
knattleiksmanna, þ.e. hann er
maðurinn sem ísland hefur beðið
eftir því hann er 2.16 m á hæð og
vex enn, aðeins 17 ára pilturinn
Við skruppum á æfingu hjá
unglingalandsliðinu og spjölluð-
um viö Pétur.
Er ekki erfitt í daglega lífinu
að standa eilíft upp úr
mannhafinu var það fyrsta sem í
hugann kom.
—- Nei, í sjálfu sér ekki, auðvitað
er eftir manni tekið vegna
stærðarinnar og í bænum þar
sem ég dvelst er ég þekktur sem
sjö feta maðurinn frá Islandi. Nú,
eins komu fréttamenn AP og
höfðu viðtal við mig og tóku
myndir, sem sendar voru um öll
Bandaríkin, þannig að eftir
manni er tekið.
Ég hef nú dvalið í 7 mánuði í
Bandaríkjunum og stunda nám í
Mercer Island High School.sem er
í Washington fylki. Ég reikna
með að vera í Bandaríkjunum í 5
ár við nám en ef ég verð beðinn
mun ég koma heim í landsleiki.
Eins og er einbeiti ég mér að
unglingalandsliðinu og Tyrk-
landsferðinni. Það er gaman að
koma heim og leika aftur með
strákunum en ég er nú í 3ja vikna
leyfi.
Hvort ég vildi fara á Polar Cup,
sem fer fram í endaðan apríl? Ég
veit ekki, sjálfsagt er nóg að fara
til Tyrklands, nógu erfitt þó
maður hlaupi ekki líka til Kaup-
mannahafnar.
SKÍÐASK0LI INGEMARS STENMARK f
Það er hægt að nota stangirnar við margs konar æfingar og ekki aðeins
til að búa til brautir. Myndirnar sýna hvernig hægt er að nota þær sem
hlið, sem hægt væri að kalla tjaldið. Fyrri myndin sýnir hvernig hliðin
eru sett niður í litilli brekku og litla myndin sýnir hvernig beygt er.
M.vndin til hægri sýnir hvernig farið er í gegnum hliðin. Takið vel
eftir hvernig hnén eru beygð þegar farið er í gegn. Myndin iengst til
hægri sýnir hvernig hægt er að taka margar litlar beygjur og siðan er
farið í gegnum tjaldið. Þessar æfingar krefjast töluverðrar einbeit-
ingar og eru mjög góðar sem þjálfun fyrir fætur og einnig fyrir
jafnvægið.