Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.04.1976, Qupperneq 16

Dagblaðið - 08.04.1976, Qupperneq 16
16 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1976. Hvað segja stjörnurnar? Spáin gildir fyrir föstudaginn 9. apríl. Vatnsberinn (21. jan—19. feb.): Vertu ekki hræddur við að skipta um skoðun ef þér finnst þú hafa fundið betri leið til að fást við eitthvert vandamál. Astamálin taka mjög áhugaverða stefnu í kvöld. Fiskarnir (20. feb.—20. marz): Álit annarra á umdeildu máli virðist lítt skiljanlegt. Þú verður að gæta fyllstu varkárni í samskiptum þínum við manneskju af hinu kyninu. Bréf, sem þú hefur lengi átt von á, er nú u.þ.b. að koma. Hrúturinn (21. marz—20. april); Forðastu að gera breytingar á félagslegri ráðagerð ef þú kemst hjá því. Okunnur maður hefur áhuga á þér og er að reyna að nálgast þig. Allt lítur vel út í fjármálum og þú ættir jafnvel að geta veitt þér umframþarfir. Nautið (21. apríl—21. maí): Samkomulag innan fjölskyldunnar mun batna ef þú lætur vera að gagnrýna. Þú ert mjög fjölhæfur maður og hættir því til að missa þolinmæðina gagnvart þeim sem ekki geta mætt háum kröfum þínum. Tvíburarnir (22. maí—21. júní): Þú gerir allt of lítið úr hæfileikum þínum. Ef þú otar þínum tota aðeins betur ætti ekki að líða á löngu áður en þú dregur að þér athygli þeirra sem máli skipta. Krabbinn (22. júní—23. júlí): Ekki hrifsa of mikið til sjálfs þín. Afleiðingarnar yrðu verulega óskemmtilegar fyrir alla viðkomandi. Alvara virðist vera að færast í ákveðið ástarsamband og þú gætir þurft að taka ákvörðun um það fljótlega. Ljónið (24. júií—23. águst): Láttu ekki freistast til aðdrífaafeitthvert leiðinda- verkefni af því þá er hætt við að þú gerir alvarleg mistök. Þetta er heilladagur þeirra er nota sköpunargáfu sína. Meyjan (24. ágúst—23. sept): Þetta er prýðisdagur fyrir hina einhleypu. Það getur bæði komi til fjármálavandræða og deilna í dag en með því að beita skopskyninu ættirðu að sigrast á öllum vandamálum. Vogin (24. seðt.—23. okt.): Gríptu öll tækifæri sem gefast í dag. Kraftur þinn er í hápuntki núna og þú vekur athygli alls staðar. Vinur þinn lætur í ljósi óánægju yfir að fá ekki að vera með í félagsleguin atburði. Sporðdrekinn (24. okt.—22. nóv.): Nú er alveg einstaklega mikið að gera heima fyrir. Gættu þess að yngra fólkið geri sinn hluta af daglegum störfum. Þessi dagur er ekki hagstæður í ástamálum. Það ber dálítið á tilfinningasveiflum. Bogmaðurinn (23. nóv.—20. des.): Ættingjar koma af stað deilum. Það verður hörkuvinna að viðhalda þægilegu andrúmslofti heima fyrir. Þér býðst nú tækifæri til að selja eitthvað með gróða. Svaraðu bréfi með varúð. Steingeitin (21. des.—20. jan): Persónulegt vandamál þitt leysist með hjálp gamals vinar. Gamall vinur af hinu kyninu virðist nú fá aukinn áhuga á þér. Taktu bara lífinu eins og það er. Afmælisbarn dagsins: Þetta ár verður ógleymanlegt. Sértu einhleypur er líklegt að þú bindir þig eftir skjót og ólgandi kynni. Spáð er mjög óvenjulegu sumarfrii. Eitt ferðalag mun hafa í för með sér heillandi ævintýri. Fjármála- horfur virðast yfirleitt góðar. Nci. cg lapaði ciimim bolliim í (lag. I'.y lapaði ])i'cm kvifuiii! ,JÚ. vissulega hef ég stórtekjur. Mynduð þér treysta öðrum en stórtekjulækni fyrir heilsu yðar, frú?" Roykjavík: Líigreglan sími 11166. slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100. Kópavogur: Lögrei’lan sími 41200. slökkvilið (>K sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan simi 51166. slökkvi- lið og sjúkrabifreið sími 51100 Keflavik: Lögreglan sími 3333. Sjúkrabifreið 1110. Slökkvistöðin 2222. Akurayri: Lögreglan sfmi 23222. Slökkvi- og sjúkrabifreið sími 22222. Vestmannaeyjar: Lögreglan sími 3333. Sjúkra- bifreið 1110. Slökkvistöðin 2222. Rafmagn: I Reykjavik og Kópavogi, sími 18230. í Hafnarfirði 1 síma 51336. Hitaveituhilanir: Sími 25524. Vatnsveitubilanir: Sími 85477. Simabilanir: Simi 05. Bilanavakt borgarstofnana Sími 27311. Svarar alla virka daga frá kl. 17 síðdegis til kl. 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitu- kerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Reykjavík — Kópavogur Dagvakt: Kl. 8—17. Mánudaga, föstudaga, ef ekki næst í heimilislækni. sími 11510. Kvöld- og næturvakt: Kl. 17—08 mánudaga — fimmtudaga, sími 21230. Á laugardögum og helgidögum eru lækna- stofur lokaðar, en læknir er til viðtals á göngudeild Landspítalans, sími 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjón- ustu eru gefnar i símsvara 18888. (t Orðagáta D Orðagáta 14 Gátan líkist venjulegum krossgátum. Lausnir koma í láréttu reitina, en um leið kemur fram orð í gráu reitunum. Skýring þess er nafn ó verzlun. 1. Mannsnafn 2. Dansinn 3. Slefberi 4. llundurinn 5. Rannsakaði 6. Kunnur 7. Kaupa inn. Lausn á orðagátu 13: 1. Rindill 2. Raungóð 3. Læknaði 4. Aflakló 5. Sperrur 6. Flokkar 7. Knöttur Orðið í gráu reitunum: rakarar Sjúkrabifreiö: Reykjavík og Kópavogur, sími 11100. Hafnarfjörður, sími 51100. Tannlæknavakt: er í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg alla laugardaga og sunnudaga kl. 17—18. Sími 22411. Kvöld- og helgidagavarzla vikuna 2.—8. april er í Lyfjabúðinni Iðunni og Garðsapóteki. Það apótek, sem fyrr er nefnt, annast eitt vörzluna á sunnudögum, helgidögum og al- mennum frídögum, einnig næturvörzlu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni virka daga, en til kl. 10 á sunnudögum, helgidögum og almennum frídögum. Hafnarf jörður — Garðabær nætur- og helgidagavarzla, uppíýsirigar á slökkvistöðinni í síma 51100. Á laugardögum og helgidögum eru lækna- stofur lokaðar en læknir er til viðtals á göngudeild Landspitalans, simi 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu eru gefnar i simsvara 18888. Borgarspítalinn: Mánud. — föstud. kl. 18.30 — 19.30. Laugard. — sunnud. kl. 13.30 — 14.30 og 18.30—19. Heilsuvemdarstöðin: Kl. 15—16 og kl. 18.30— 19.30. Fæðingardeild: Kl. 15—16 og 19.30—20. Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15.30— 16.30. Kleppspítalinn: Alla daga kl. 15 — 16 og 18.30— 19.30. Flókadeild: Alla daga kl. 15.30—16.30. Landakot: Kl. 18.30 — 19.30 mánud. — föstud., laugard. og sunnud. kl. 15—16. Barnadeild alla daga kl. 15—16. Grensásdeild: Kl. 18.30—19.30 alla daga og kl. 13—17 á laugard. og sunnud. Hvítabandiö: Mánud. — föstud. kl. 19.—19.30. laugard. og sunnud. á sama tíma og kl. 15—16. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15—17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.—laugard. kl. 15—16 og kl. 19.30—20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15—16.30. Landspítalinn: Alla daga kl. 15 — 16 og 19 — 19.30. Bamaspítali Hringsins: Kl. 15 — 16 alla daga. f0 Bridge i) Keppni á Evrópumeistaramót- inu í Osló 1958 var gífurlega hörö. Italir sigruðu með 30 stigum — tvö stig fyrir unninn leik — Frakkland hlaut sömu stigatölu, en var með lakara hlutfall, og Bretland 29 stig. Eftirfarandi spil kom fyrir í leik Ítalíu og Bret- lands. Norður ♦ K7 ^ ÁG5 0 K * ÁKG8643 Vestur .. ♦ enginn <9 G1093 0 ÁG10762 * 1052 Austur 4 G964 V K86 0 D987 4 97 SUÐUR 4 ÁD108432 <2 742 O 53 * D Austur gaf. Allir á hættu. Þegar D’Alelio og Chiaradia voru með spil suðurs-norðurs opn- aði suður á tveimur spöðum — og ítalarnir runnu svo í hina ágætu slemmu í spaða. Spiluðu sex spaða. Reese í vestur spilaði út tígulás — og austur, Sehapiro, kallaði mjög. Reese hélt áfram i tígli — D’Alelio varð að trompa i blindum og gat svo ekki komizt hjá því að gefa trompslag, þegar trompið lá 4-0. Óheppni það. A hinu borðinu opnaði norður, Alan Truscott, eftir þrjú pöss á þremur gröndum — ákaflega „ljót” sögn á þessi miklu spil. Það varð lokasögnin — og árangurinn eins og efni stóðu til. Austur spil- aði út tígli og vörnin fékk sex fyrstu slagina á tígul. Italía vann því tvö stig á spilinu samkvæmt þágildandi skala. if Skák Á skákmóti í Berlín 1895 kom eftirfarandi staða upp í skák Pinner, sem hafði hvítt og átti leik, og dr. Lewitt. 1. Be3!! — Dxe5 2. Bc5+ — Kg8 3. Bxd5!! og svartur gafst upp. Ætli Gunna sé aö reyna að segja það með blómum!

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.