Dagblaðið - 08.04.1976, Side 24
HLUTAFÉ ALÞÝÐUBANKANS
AUKSÐ UM 60 MILUÓNIR
Stefnumarkandi ákvarðanir
bíða aðalfundar
„Alþýðusambandið stendur
að sjálfsögðu við þau loforð,
sem það gefur,” sagði Snorri
Jónsson, framkvæmdastjóri
ASÍ, er fréttamaður Dagblaðs-
ins spurði hann, hvað liði hluta-
fjáraukningu í Alþýðubank-
anum, sem miðstjórn ASl lýsti
yfir, að það myndi beita sér
fyrir i desember sl. „Að öðru
leyti tel ég það ekki þjóna hags-
munum bankans að ræða slík
áform frekar á þessu stigi og
geri það því ekki,” sagði Snorri.
Sem kunnugt er varð Seðla-
bankinn við beiðni bankaráðs
Alþýðubankans um lánsfyrir-
greiðslu í byrjun desember sl.
til þess að tryggja greiðslustöðu
bankans. Nam sú upphæð 125
milljónum. Þá lá einnig fyrir
yfirlýsing frá miðstjórn
Alþýðusambands Islands um
stuðning við fyrirgreiðslu-
beiðni Alþýðubankans, auk
yfirlýsingar um, að miðstjórnin
myndi gera það, sem í hennar
valdi stæói til stuðnings
bankanum, meðal annars með
því að beita sér fyrir því, að 60
milljón króna samþykkt hluta-
fjáraukning í bankanum kæmi
til framkvæmda eins fljótt og
framast væri unnt.
Dagblaðinu er kunnugt um,
að áhrifamikil verkalýðsfélög
innan ASl telja eðlilegt að
frekari ákvörðunartaka um
fyrrgreint atriði, sem og fleiri,
verði látin biða þar til að
loknum aðalfundi bankans,
sem haldinn verður hinn 24.
þessa mánaðar. Á dagskrá aðal-
fundarins er að venju kosning í
bankaráð, sem og aðrar stefnu-
markandi ákvarðanir varðandi
bankann. Er meðal annars talið
eðlilegt, að t.d. ráðning banka-
stjóra komi í hlut þess banka-
ráðs, sem kjörið verður.
—BS
Blómvöndur var í gær festur á fótstall styttu Jóns Sigurðs-
sonar á Austurvelli. Honum fylgdi borði með enskri áletrun: „To
the great Icelandic Peopie for the help to us. Hungarians of
1956.”
Blómvönd þennan lagði formaður samtaka ungverskra flótta-
manna að styttunni. Blómunum fylgja þakkir fyrir veitta aðstoð
við ungverska flóttamenn. Aprílregnið bældi rósirnar fljótt og á
Db-mynd Ragnars Th. falla þær í styttustallinn að baki.
Rökréttast að
víð höldum Jötni
— segir bœjarstjóri á Akureyri
Við viljum halda bornum
Jötni áfram hérna,” sagði
Bjarni Einarsson, bæjarstjóri á
Akureyri, í morgun. Akureyr-
ingar teldu það rökréttara en
til dæmis að fá borinn, sem
Hitaveita Reykjavíkur notar
nú.
„Eg legg ekki til, að Kröflu
verði frestað um eitt ár eða svo
úr því sem komið er, en við
teljum enga möguleika á, að
Krafla verði tilbúin fyrir ára-
mót,” sagði Bjarni. Hann taldi,
að alltof margt væri á siðasta
snúningi til þess að Krafla
komist i gagnið fyrir áramót.
Menn hafa viljað fá Jötun að
Kröflu, en bæjarstjóri telur
rökréttara, að hann ljúki við að
bora eina holu til viðbótar fyrir
Akureyringa.
Hitaveita Reykjavikur telur
mikil vandkvæði fylgja því, ef
hún missir borinn, sem hún
hefur.
Fundur var um mál Akureyr-
ar í Reykjavík i gær, og sögðu
fulltrúar Akureyrar, að hann
hefði verið „jákvæður" en eng-
in endanleg niðurstaða orðið
önnur en sú, að leysa þyrfti
borunarvanda Akureyrar hið
bráðasta. —HH
Mynd Colin Porters af gjaldþrotamáli Air Vikings birtist 9. desem-
ber, þá er málin voru hulin leynd og óvissu. Nú má sjá hversu
spámannlegur teiknarinn hefur verið. Flugféiagið varð gjald-
þrota og bankinn hlaut verulegt högg, þó nú sé að rétta við. En
Guðni Þórðarson komst tiltölulega lítt skaddaður frá ævintýrinu, á
sitt „fljúgandi teppi” eins og fræg eru úr arabísku ævintýrunum.
SKODA EKKI MOSKWITCH
Bifreiðin með V-númerinu,
sem stúlkan í Geirfinnsmálinu
fékk far með frá Keflavík
snemma morguns hinn 20. nóv-
ember 1974, reyndist vera af
gerðinni Skoda en ekki Mosk-
vitch, eins og hún hafði talið.
Þegar ökumaðurinn áttaði sig á
því, að þarna kynni að vera um
misskilning að ræða, gaf hann
sig fram enda mundi hann eftir
því að hafa tekið upp stúlku,
sem fór úr bifreið hans við
Grindavíkurafleggjarann.
Þá mun ökumaðurinn telja,
að hann hafi séð stúlkunni
bregða fyrir í vörubifreið, sem
ók fram úr honum á leiðinni frá
Grindavíkurafleggjaranum til
Reykjavíkur. —BS
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1976.
Bensíngufur
valdo
bílskúrs-
bruna ó
Akureyri
, Eldur varð laus í bílskúr í
Steinnesi í Glerárhverfinu á
Akureyri í gær, en fljótlega
tókst að slökkva hann með
aðstoð handslökkvitækis og
slökkviliðsins sem kom
nokkru seinna á staðinn. í
gærdag voru menn oftar
sem áður við vinnu í bílskúr
þessum og var haft bensín
um hönd í opnu íláti. Alitið
er að gufað hafi upp nokkuð
mikið af bensíninu og
mettað loftið inni í
bílskúrnum, sem þá verður
afar viðkvæmt ,fyrir
verulegum eða óverulegum
eldi. Voru mennirnir að
vinna með borvél og álíta
þeir að ekki hafi þurft meira
til en neistaflug það sem
inni í borvélinni er til þess
að valda 'eldinum. En sem
fyrr segir tókst mönnunum
fljótlega að slökkva hann
með handslökkvitæki svo
lítill eldur var eftir er
slökkviliðið kom að.
-BH
Kristján Jóhannsson:
„Svar óskast, herra ríkissaksóknari"
„Ég vil því, herra ríkissaksókn-
ari, spyrja yður, hvað rannsókn
þessari líði og hvort ekki séu
möguleikar á, að niðurstöður
hennar geti legið fyrir áður en
aðalfundurinn verður haldinn,”
segir í lok bréfs, sem Kristján
Jóhannsson afhenti saksóknara
ríkisins í gær í framhaldi af fyrra
bréfi sínu til hans varðandi
Alþýðubankann.
Hinn 15. desember sl. fór
Kristján Jóhannsson þess bréf-
Skipstjórar bátanna tíu sem
varðskipið Þór stóð að ólöglegum
veiðum á Selvogsbanka á sunnu-
dagskvöldið munu allir mæta
fyrir rétti í dag. Sex bátanna eru
frá Þorlákshöfn og verða mál
skipstjóranna tekin fyrir hjá
sýslumanninum á Selfossi,
byrjaði rannsókn hjá nokkrum
strax í gær. Einn báturinn var frá
Vestmannaeyjum og var ætlunin
að taka mál skipstjórans fyrir hjá
lega á leit við saksóknara ríkisins,
að hann léti fara fram opinbera
rannsókn á því, hvort bankaráð
Alþýðubankans hafi átt þátt I, eða
verið í vitorði með bankastjórum
bankans í sambandi við
ákvarðanatöku um það að lána
rúmlega 50% af ráðstöfunarfé
.bankans til 8 aðila, sem til-
greindir voru í bréfi Kristjáns.
I gær afhenti Kristján Jóhanns-
son rikissaksóknara annað bréf,
þar sem meðal annars segir og
vitnað til áðurgreinds bréfs:
bæjarfógeta í Eyjum í dag. Frá
Reykjavík, Keflavík og Grindavík
kom frá hverjum stað einn bátur,
þar af gerir Reykjavikurbáturinn
út frá Grindavík og verða mál
skipstjóranna þriggja tekin fyrir
hjá bæjarfógetanum í Keflavík
fyrir og eftir hádegið. Hvenær
dóms er að vænta í málum þeirra
er ekki gott að segja til um en
reikna menn þó frekar með að
það verði fyrr en seinna. —BH
„Tilgangur bréfs þessa var m.a.,
sá að fá þetta upplýst svo að hlut-
hafar gætu á sínum tíma tekið
afstöðu til þess, hvort bankaráð-
inu yrði falið að fara með yfir-
stjórn Alþýðubankans hf. áfram.
Samkvæmt auglýsingu í Lög-
birtingablaðinu, hefur verið
ákveðið, að aðalfúndur bankans
verði haldinn 24. þ. mán., og þá
eitt af hlutverkum aðalfundarins
að kjósa bankaráð.”
—BS
Skothvellir i
Vogahverfi
Nokkrir íbúa Vogahverfis
vöknuðu í fyrrinótt við hvelli
sem talið er víst að hafi verið
skothveilir. Var skotið 4 til 5
skotum sem heyrðust afar vel í
kyrrð næturinnar Og berg-
máluðu í húsunum allt í kring.
Álitið var hvellirnir kæmu úr
áttinni frá Grensásvegi og
sendi lögreglan nokkra bíla
þangað á vettvang til að kanna
málið. Kom ekkert í ljós og
varð lögreglan einskis vör.
—BH
Mál landhelgisbrjót-
anna tekin fyrir í dag
— dómanna að vœnta fljótlega
Hraðbátaleigan:
„Þeir gefa bara biðsvör"
— segir Baldur Möller, ráðuneytisstjóri
„Það eina, sem rætt hefur
verið um í sambandi við það að
fá hingað hraðbáta frá Banda-
ríkjunum eru láns eða leigu
kjör,” sagði Baldur Möller,
ráðuneytisstjóri i dómsmála-
ráðuneytinu í vitali við Dag-
blaðið. „Þar höfum við skír-
skotað til samningsins frá 1974
um samvinnu um landhelgis-
mál, en eins og áður hefur
verið sagt, er ennþá lítið að
frétta af gangi mála.”
Sagði Baldur, að á það væri
að líta, að Ashville-
hraðbátarnir væru ekki nema
14 að tölu og þaó hefði án efa
sitt að segja.
„Eins eru þeir að athuga, að
hve miklu leyti þessi skip eru
vetrartæki,” sagði Baldur
ennfremur. „Eftir er að sigla
skipinu austur um haf, ef af
verður og það er ekki víst, að
það reynist eins vel á Haianum
og meðfram ströndum
Bandaríkjanna.” -HP.