Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 24.04.1976, Qupperneq 1

Dagblaðið - 24.04.1976, Qupperneq 1
RITSTJÓRN SÍÐUMIJLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022. Varðskip vildi ekki stugga við þýzkum veiðiþjófum - 5 þýzkir togarar mokveiddu í friði ó alfriðuðu svœði 1 fyrrinótt mokveiddu fimm v-þýzkir togarar á alfriðuóu svæði í Berufjarðarál og voru þeir látnir óáreittir við þá iðju, að því er Friðjón Þorleifsson um borð í skuttogaranum Baldri símaði til DB í gær. Sagði hann að varðskip hefði verið þar skammt frá og hefði einn íslenzku togaraskip- stjóranna, sem var við veiðar í grenndinni, tilkynnt varðskip- inu framferði Þjóðverjanna. Varðskipið sinnti hins vegar ekki ábendingunni og fengu Þjóðverjarnir að moka upp fiski óáreittir og höfðu hvorki meira né minna en frá 12,5 tonnum upp í 25 tonn í togi sem er mjög góður afli. Friðjón sagði að austfirzkir sjómenn yndu þessu afskipta- leysi varðskipsmanna mjög illa og greinilegt væri af þvi að þýzkir sjómenn nytu þarna for- réttinda fram yfir íslenzka, enda er þetta svæði alfriðað allt árið. í svari sínu lil islenzka togaraskipstjórans, sem sagði frá Þjóðverjunum, sögðu varð- skipsmenn að þeir vissu ekki hvort þeir hefðu heimild til að stugga við Þjóðverjunum þarna. Þá sagði Friðjón að lokum að einn hinna fimm þýzku veiðiþjófa væri ekki á skrá yfir þá þýzku togara sem leyfi hafa til veiða hér. Nefnist sá Garmstad og er um þúsund tonnaðstærð. -G.S. ÍSLANDSMET í HÁRSÍDD? Hún hefði ekki verið í vandræðum með að lána Gunnari á Hlíðar- enda lokk úr hári sínu, þessi stúlka sem Bjarnleifur smellti mynd af í Eden i Hveragerði á dögunum. Ekki vitum við nafn á stúlkunni né nokkur deili en gaman væri að vita hvort hún á ekki Islands- metið í hársídd. ÁFRAM ÞÓFÁ MIÐ- UNUM Slagurinn á miðunum fyrir austan land stóð áfram í allan gærdag. Varð- skipunum tókst að fá brezku togarana til að hífa oft á tíðum, þegar þau komu að þeim. Brezku togurunum hefur fjölgað síðustu daga. Þeir voru í gær orðnir um 50. Þoka var á miðunum, sem gerði báðum allerfitt fyrir. Tveir brezkir togarar voru á útleið, annar til viðgerða í Færeyjum. Þá varð Landhelgisgæzlan vör við 16 vestur-þýzka togara innan landhelgi, tvo belgíska og tvo færeyska. -HH. Hagfrœðingur ASÍ: Förum líklega tveimur pró- sentum upp fyrir rauða strikið Launþegar geta sennilega átt von á tveggja prósenta kaup- hæk'kun 1. júli. Þetta er það sem verðbólgan mun að líkind- um fara fram yfir „rauða strik- ið" 1. júni. að því er Asmundur Stefánsson. hagfræðingur Alþýðusambandsins, telur. Auk þess er samkvæmt samn- ingunum 6% almenn kaui>- hækkun 1. júni. Asmundur leggur áherzlu á aó auðvitað sé enn ekki með fullu séð hversu miklar verð- hækkanirnar verði. en nú stel'n- ir i það að verölagið fari Iveimur af hundraði fram úr „rauöa visiliilustrikinu" sem samningar kveða á um. Þá ber að gæta að hækkanir á áfengi og tóbaki og sá hluti búvöru- hækkunar. sem stafar af hækk- un á „launalið" bóndans. koma ekki til greina þegar visitalan er reiknuð i sambandi við rauða strikið. Hluti af hækkununum bætist því ekki. Verðlag hækkaði frá febrúar- byrjun lil 1. april um 7,3 prósent. Þar af hefur Alþýðu- sambandið reiknað að 1.5 af hundraði hal'i . verið vcgna hækkunar á opínbern þjon- ustu og 3.3 prðsenl vegna búvöruhækkunar. Auk þessarar hækkunar á opinberri þ.jónustu hækkaði áfengi og tóbak sem nenuH’ 0.8 prósent almennri verðlags- hækkun. llið opinbera tók því til sín 2.3 ■ prósent almenna verðhækkun en þar að auki er um þriðjungur af búvöruhækk- uninni vegna minnkunar á niðurgreiðslum sem sparar hinu opinbera dr.júgan skild- ing. Kíkið fær auk þess hækkun á tek.jum af söluskatti sem hverri verðhækkun f.vlgir. Alþýðusambandið telur að af 7.3 prósent almennum verð- hækkunum á þessu timabili hafi aðcins 1.3 prósent stafað af kauphækkununum 1. marz. Auk framangreinds hækkaði bensín sem nemur 0.3 prósent almennri verðhækkun. fiskur Hið opinbera hefur tekið til sín stœrstan hluta verðhœkkana sem nemur 0,5 prósentum, dag- blöð 0.3%. kaffi 0,2% og ýmis- legt „smávegis" sem nemur 0,4% almennum verðhækk'm- um. Asmundur sagði. að opinber þ.jónusta hefði til dæmis hækkað miklu meira en sér- fræðingar hefðu sagt í k.jara- samningunum. Einnig hefði komið á óvart hve mikil bú- vöruhækkunin var. Alþýðusambandið visar á bug þeim staðhæfingum að verðhækkanirnar stal'i af kaup- hækkunum og segir. að „ríkis- stjórnin hafi brUgðizt" í verð- lagsmálunum. —HH ■ ■ Missti stöðuna eftir að hann kom upp um veiðiþjófnað Sjó baksíðu Mestu afla- skipin eru nú til sölu Sjá baksiðu- Baðað á Löngumýri þrátt fyrir hœstaréttar- dóm Sjá Ms. 5 Eru prests- kosningar lýðrœðislegar, þegar öllu er á botninn hvolft? Sjá kjaHaragrein Sigurðar A. Magnússonar bls. 10-11

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.