Dagblaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 24
Orðið vonlítið að gera út sildar- og ioðnuskip: Meslu dflaskipin eru nú til sölu — Norðmenn greiða hœsta verð fyrir skipin séu þau yngri en 10 óra Þaó er nú í athugun hjá fleiri en einum aðila hérlendis að selja loðnuskip úr landi og er blaðinu kunnugt að margfræg aflaskip, svo sem Loftur Bald- vinsson og Þorsteinn RE. eru til sölu og mun útgerðaraðili fyrr- nefnda skipsins ekki hafa í hyggju að kaupa annað skip í staðinn en ekki er vitað um fyrirætlanir hins. Útgerðarmenn margra ann- arra báta eru í sömu hugleið- ingum og vilja þeirýmist hætta útgerð eða fá sér fjölhæfari veiðiskip i staðinn. Skv. upplýs- ingum blaðsins mun bezt að selja skipin til Noregs en síðasta loðnuvertíð þar gekk vel og þvi er hugur i Norðmönnum á þessu sviði Þannig var t.d. Faxaborgin frá Hafnarfirði seld til Noregs fyrir skömmu fyrir um 5,7 milljðnir norskra krðna nettð en hún er tæp 460 brúttðtonn að stærð. Astæðan fyrir þessu alvar- lega ástandi er fyrst og fremst verkefnaskortur fyrir skipin. Hin svonefndu loðnuskip eru nú 60 til 70 talsins og er meóal- stærð þeirra um 260 tonn. Þau eru flest smíðuð á síðasta ára- tug. Hið algera hrun síldarstofns- ins í Norðursjó er alvarlegasta áfallið fyrir útgerð þessara skipa en veiðarnar þar voru þyngstar á metunum að brúa bilið milli loðnuvertíðanna hér. Arið 1974 veiddu íslenzku skipin um 44 þús. tonn af síld i Norðursjónum, meira en helm- ingi minna í fyrra, eða 17 til 18 þúsund tonn, og horfur eru á að þessar veiðar verði enn minni i ár og kvóti okkar fari stór- minnkandi. Norðaustur At- lantshafsnefndin er nú að þinga um kvótaskiptingu þar en fjöldi vísindamanna margra landa hefur lagt til að algert bann verði lagt við síldveiðum þar, a.m.k. í nokkur ár. Loðnubátar reyndu lítillega loðnuveiðar fyrir norðan land í fyrrasumar en þær urðu stuttar og að óbreyttu verðlagi fyrir loðnuna þaðan er ekki grund- völlur fyrir þeim veiðum. Mjög slæm útkoma varð einnig hjá þeim bátum sem fylgdu Nor- global suður til Afríkustranda í fyrrasumar. Þótt sennilega verði leyfilegt að veiða allt að 16 þúsund tonnum af síld hér við land í haust, eða sex þúsund tonnum meira en í fyrra, er ósennilegt að stóru nótabátarn- ir fái að veiða nema svona helming í mesta lagi, smærri reknetabátar fái að veiða af- ganginn. Það þýddi nokkurra daga úthald hjá stóru bátunum, fái margir þeirra að taka þátt í þeim veiðum. Þá má að lokum geta að flestir loðnubátanna eru taldir of stórir og dýrir í rekstri til togveiða yfir sumar- tímann. —G.S. Eldur í Hegningarhúsinu: Fangi kveikti í rúmdýnunni sinni — vildi með því mótmœla 60 daga gœzluvarðhaldi Um fimmleytið í gær kom upp eldur í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Öll vakt slökkviliðsins á þremur slökkvibílum og tveimur sjúkrabílum þusti þegar á vettvang. Eldurinn reyndist þó ekki vera mikill, — aöeins í einu rúmi. Fanginn, sem gisti klefann sem eldurinn kom upp í, mun hafa kveikt i rúmdýnu sinni. Hann er 16 ára gamall og haföi fyrir tveimur dögum verið dæmdur í allt að 60 daga gæzluvarðhald vegna síbrota. Hann hefur áður gist Hegningarhúsið. Fangavörðurinn, Valdimar Guðmundsson, sem kom fyrstur i klefann eftir að eldurinn kom upp, sagði í samtali við Dagblaðið að fanginn hefði verið með fullri meðvitund. Hann veitti þó mót- spyrnu og neitaði að yfirgefa rúmið. Er komið var með hann fram á gang kastaði hann sér niður og neitaði að ganga. Valdimar telur að með þessu athæfi sinu hafi fanginn verið að mótmæla gæzluvarðhaldinu. Við rannsókn á slysadeild Borgarspítalans kom í ljós að pilturinn var ekkert brenndur en hafði fengið reykeitrun. -ÁT- Á stærri myndinni sést að atburður við Hegningar- húsið dró fljótt að sér athygli fólks. A þeirri minni er rúmið sem gæzlufanginn kveikti í. — DB-myndir Björgvin Pálsson. írfálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1976 ísofjörður: Hótuðu lög- reghiþjón- unum með hn'rfum Þrír menn á aldrinum milli tvítugs og þrítugs hugðust fremja ofbeldisverk á lögregluþjónum þegar vísa átti þeim út úr Hótel Mána- kaffi á ísafirði. Menn þessir eru þekktir drykkjumenn á ísafirði og komu þeir inn á Hótel Mána- kaffi um . miðjan dag á sumardaginn fyrsta til að fá sér að borða. Sem oftar áður vildi gestgjafinn losna við þá þegar hávaði og læti í þeim færðust í vöxt svo til óþæginda var fyrir aðra matargesti. Hringdi þá gestgjafinn á lögregluna og kom einn lög- regluþjónn á vettvang. Þar sem þarna var um þrjá menn að ræða taldi hann ráðlegra að sækja liðsauka. Fór hann og kom svo aftur við þriðja mann. I millitíðinni höfðu hinir óspöku gestir farið í eldhús hótelsins og náð sér þar í tvær stærðar breddur. Skipti það engum togum að þegar lögregluþjónarnir komu aftur, skóku þeir hníf- ana og voru með allskyns hótanir. Fór þó svo á endan- um áður en meiðsl urðu á mönnum, að lögregluþjón- unum tókst að afvopna þá og færa í fangageymslu þar sem þeir dúsa enn. —BH Veðrið um helgina „Hæðin fyrir austan land veldur því að veðrið um helgina verður svipað og undanfarna daga,” sagði Borgþór Jónsson veðurfræðingur í gær. „Áttin á landinu verður áfram suðaustan og hlýindi fyrir norðan en skýjað sunnanlands og þokusúld um nætur. Engin lægð er nú svo nálægt landinu að hún geti haft nein áhrif á veðrió á næstunni.” í dag er spáð 8-9 stiga hita í Reykjavík og nágrenni en fer kólnandi með nóttinni. -AT-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.