Dagblaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 7
DA(iBLAf)H). LAUCAHDACUH 24. APRÍL 1976. 7 Haukur Angantýsson varð skákmeistari íslands 1976 Tapaði fyrstu skákinni en varð þó sigurvegari Haukur Angantýsson, TR, varð skákmeistari íslands 1976, er hann varð sigurvegari í landsliðsflokki í skák á Skák- þingi íslands. Hann vann glæsilegan sigur þar sem hann hlaut níu vinninga af 11 mögu- legum, en það er óvenju gott hlutfall. Ekki lofaði byrjunin þó góðu hjá honum því hann tapaði fyrir Helga Ólafssyni 1 1. umferð. Helgi Ölafsson, einnig úr TR, varð annar með átta vinninga og Ingvar Ásmundsson úr Mjölni þriðji með sjö vinninga. 1 áskorendaflokki urðu Jón Þorsteinsson og Gunnar Gunnarsson efstir og jafnir með átta vinninga af 11 mögulegum, og í þriðja til fimmta sæti með sjö vinninga, voru Þröstur Bergmann, Björn Jóhannesson og Gunnar Finn- laugsson. Einar Valdimarsson varð efstur í meistaraflokki með 7,5 vinninga af 9 mögulegum. I flokki 14 ára og yngri sigraði Frans Jezorski með 7,5 af 9 mögulegum. Páll Baldursson sigraði í opnum flokki. Birna Nordal og Svana Samúelsdóttir urðu efstar og jafnar í kvenna- flokki með 7,5 vinninga af 9 mögulegum. -G.S. UNDIRBÚA BYLT- INGU A ÍSLANDI „Kommúnistaflokkur íslands — Marxistar—Lenínistar — mun sameina verkalýðsstéttina undir forystu sinni og leiða hana fram til sósíalískrar valdbyltingar i bandalagi við smábændur og aðra vinnandi alþýðu og afnema þannig auðvaldsþjóðfélagið og reisa alræði öreiganna.” Svo segir í stofnsamþykkt Kommúnistaflokks íslands. „Valdataka verkalýðs og vinnandi alþýðu mun marka endalok núverandi arðráns og kúgunar örfárra auðjöfra og auðhringa á yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar í krafti einkaeignar þeirra á öllum helztu framleiðslu- fyrirtækjum þjóðfélagsins,” segir þar. „Þess i stað mun alþýðan, undir forystu verkalýðsins, hefja uppbyggingu sósíalismans sem byggir á samvinnu alls vinnandi fólks og sameign þess á fram- leiðslufyriríækjunum.” Stofnendur kommúnista- flokksins segja að með stofnun hans sé tekinn upp að nýju sá þráður sem hafi slitnað þegar Kommúnistaflokkur íslands var lagður niður 1938 og Sósíalista- flokkurinn stofnaður. Flokkurinn byggir á marxisma-leninisma- kenningum Maós í Kína. 30 fulltrúar sátu stofnþing flokksins. Formaður er Gunnar Andrésson rafvirki. - HH. FORKASTANLEGT HIRÐULEYSi Oft gætir furðulegs hirðuleysis hjá þeim aðilum, sem sjá urn viðhald og verk- legar framkvæmdir á fjöl- förnum götum hér í Reykjavik. Skilja verkamennirnir eftir sig spýtur og annað lauslegt, járn- plötur og moldarhauga, allt eftir því hvað unnið hefur verið við. A myndunum hér sést greini- lega, hverjar afleiðingar þetta háttalag getur haft. Unnið hafði verið við að leggja hellur í gangstétt við horn Laugavegar og Hlemms, en er verkinu var lokið hafa menn skilið eftir eina hellu ofan á öðrum á miðri gangstéttinni. Gamla konan, sem þarna.kom að tók ekki eftir henni og varð því fótaskortur og féll í götuna. Hjálpsamur vegfarandi kom að og hjálpaði henni á fætur og virtist gamla konan ekki meidd að ráði. Hins vegar vita allir hversu gömlu fólki er hætt við að brotna illa og er því mildi að ekki fór verr. — HP. Ljósm. Vilhj. Ragnars- son. Innanlandsflugið í fullan gang ísafjarðarflugið opnaðist á hádegi á föstudag og voru farnar 10 ferðir frá kl. 1-7 og fluttir um 600 farþegar, að sögn Sveins Sæmundssonar, blaðafulltrúa Flugleiða hf. Vestmannaeyjaflugið opnaðist 1 gærmorgun og höfðu 3 ferðir oftur verið farnar þegar kl. 9. Svo til ekkert hefur verið hægt að fljúga til þessara staða frá 17. þ.m., en nú má segja að innanlandsflug sé allt komið 1 samt lag og flogið eftir áætlun um allt land eftir fyrrgreindar tafir, sem urðu vegna veðurs. -BS. Smurbrauðstofan B«JÖFIIMÍIMIM Njálsgötu 49 - Sími 15105 Finnsk listakona á Kjarvalsstöðum Terttu Jurvakainen við eitt af listaverkum sínum. DB-m.vnd Bjarn- leifur. sölu. „Eg vonast til að selja sem flestar,” sagði hún. „Það er ákaf- lega dýrt að koma til Islands með myndirnar og ég þarf að fá einhverja peninga upp í þetta.” Listakonan kom til landsins 20. apríl og lauk við að setja sýninguna upp á þremur dögum. Sýningin verður opnuð í dag kl. 2 og stendur til 9. mai. Jurvakainen málar landslagsmyndir og einnig abstrakt. Hún notar sterka liti og virðist blátt og rautt vera í miklu uppáhaldi hjá henni. Á meðan sýningin stendur er leikin finnsk tónlist eftir Sibelius, Mendelssohn, Rautavaara og fleiri. -AT- „Eg hef lengi haft áhuga á að heimsækja Island en þaó, sem réð úrslitum um að ég kom hingað með myndirnar mínar, var að kunningi minn, Karl Tryggvason, sagði mér frá Kjarvalsstöðum og ég sótti um að sýna þar,” sagði finnska listakonan Terttu Jurvakainen er DB leit inn á sýningu hennar í gærdag. Hún skrifaði Alfreð Guðmunds- syni, forstöðumanni Kjarvals- staða í fyrra og fékk jákvætt svar. — Þetta er næstsíðasta sýningin sem hússtjórnin veitti heintild fyrir. Sú síðasta verður ljós- myndasýning bandarísks ljós- myndara. Terttu Jurvakainen sýnir hér 79 myndir og eru þær flestar til Vantar umboðs- mann í Njarð- víkum wm BIAOIB að sjá nýtt DAS hús aö Hraunbergsvegi 9 Setbergslandi, fyrir ofan Hafnarfjörö HúsiÖ verður til sýnis virka daga frá kl. 6-10 laugardaga sunnudaga og helgidaga frá kl.2 -10 HúsiÖ er sýnt meö öllum húsbúnaöi

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.