Dagblaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 5
DACBLAÐIÐ. LAUCARDACUK 24. AFRÍL 1976. 5 Fé Bjðrns á Longumýri baðcið þrótt fyrir hœstaréttardóminn Eins og mönnum mun kunn- ugt gekk ekki alls fyrir löngu hæstaréttardómur í fjárböð- unarmáli Björns Pálssonar bónda á Löngumýri þar sem undirréttardómur var felldur úr gildi og Björn þvi ekki skyld- aður til að baða fé sitt. I gær- morgun kom sýslumaðurinn í Húnavatnssýslu, Jón ísberg, að Löngumýri og kvað það skyldu sína að sjá um að féð yrði baðað. Tók hann svo til við böð- unina ásamt tveim lögreglu- mönnum er með honum voru og átta bændum úr sveitinni. Er þeir höfðu náð að baða 211 kindur af um 1100, sem Björn á, dreif að baðstaðnum fólk af Skagaströnd aðallega, um 15 manns. Styggðu aðkomu- menn svo féð að sýslumaður varð að hætta böðun og halda af staðnum. Var þá komið að há- degi. Um níuleytið í gærmorgun hringdi Björn í lögmann sinn, Jón E. Ragnarsson hrl., og kvað sýslumannkominnog værihann að gera sig líklegan til fjárböð- unar. Sendi lögmaður þá strax hraðskeyti til dómsmála- ráðuneytisins og ríkissaksókn- ara og krafðist þess að böðunin að Löngumýri yrði stöðvuð. Sendi dómsmálaráðuneytið inn- an 16 mínútna skeyti til sýslu- mannsins, þar sem hann var staddur að Löngumýri. Var skeytið þar lesið fyrir sýslu- mann. Var í því vísað til hæsta- réttardómsins og talið óheimilt að beita valdböðun við núver- andi aðstæður. Var sýslumaður um það leyti að hætta böðuninni og hélt hann frá Löngumýri. Taldi sýslumaður sig í fullum rétti við böðunina þar sem Björn bóndi hefði í marzmánuði sl. viðurkennt að hann vissi að skylda væri að baða féð. Voru allir bændur búnir að baða fé sitt að Birni undanskildum. Segir sýslumaður kláða hafa orðið vart í hreppnum hjá Birni svo nauðsynlegt hafi verið að baða féð. Jón E. Ragnarsson lögfræð- ingur Björns hafði um vald- böðun sýslumanns í gærmorg- un þetta að segja: ,,Ég lýsi furðu minni á slíkum aðgerðum en vil benda á að Björn Pálsson bóndi er harður á þeirri afstöðu að enginn kláði sé i fé hjá sér, enda eru aðgerðir þessar frá upphafi að ófyrirsynju. Slíkar aðfarir yfirvalda að bændum eru að vísu þekktar úr sögunni og þurftu bændur þá stundum að grípa til varna. En langt mun nú liðið síðan yfirvöld hafa verið svo heimarík i hér- aði sem hér varð.” —BH Nóg af grafík á Grensósveginum - Björg Þorsteinsdóttir sýnir Björg Þorsteinsdóttir mynd- listarkona opnar í dag sýningu á grafíkmyndum í húsakynnum Byggingaþjónustu Arkítekta- félags tslands að Grensásvegi 11. Þar sýnir hún grafíkmynd- ir, sem hún hefur unnið að á árunum 1972 og 1974—76. Þetta er í þriðja skiptið sem Björg heldur einkasýningu í Reykjavík. Áður sýndi hún í Unuhúsi árið 1971 og í Norræna húsinu árið 1974. Þá hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga víðs vegar um heim, m.a. á öllum Norðurlönd- unum, Þýzkalandi, Erakklandi, Bandaríkjunum og Ástralíu. Að þessu sinni sýnir Björg 34 grafíkmyndir, bæði í svart- hvítu og lit. Þær eru allar til sölu. — Sýningin verður opnuð í dag kl. 14. Hún stendur til 3. mai og er opin daglega frá kl. 14—22. —AT Björg Þorsteinsdóttir við uppstillingu á mvndum sínum að Grensás- vegi 11. DB-mynd BP. Það œttu allir ferðamenn að trunnífi ein^ — sagði Krislján Vilhelmsson sem varð f 331® fyrir árás átta Araba á Kanaríeyjum ,,Það ætti enginn að fara i ferðalag til útlanda öðruvísi en að sjúkra- og slysatryggja sig,” sagði Kristján Vilhelmsson kaupmaður í Coðaborg í viðtali við Dagblaðið, en hann er maðurinn, sem blaðið skýrði frá að ráðizt hefði verió á úti á Kanaríeyjum nýlega. „Ég kom heim í gærkvöldi, eins og áætlað var, en að vísu ekki alveg heill á húfi, þar sem ég verð með staurfingur á hægri þumalfingri eftir árásina sem ég varð fyrir,” sagði Kristján. Kristján hafði verið að fylgja kunningja sínum áleiðis heim á hans hótel, en hann hafði verið gestur Kristjáns og konu hans um kvöldió 2. apríl. Þegar Kristján fór heimleiðis til sín, þar sem hann bjó með konu sinni og 4 börnum í „Bungalow” sátu fyrir honum 8 Arabar. Höfðu þeir að vopni flösku, sem botninn hafði verið brotinn úr, auk hnífs. „Þeir ætluðu augsýnilega að ræna mig,” sagði Kristján. Eftir nokkra viðureign við þennan flokk kom kunningi hans honum til hjálpar en hann hafði heyrt til Kristjáns. Lögðu mennirnir á flótta og náði lögreglan þrem þeirra þá um nóttina. Er Kristján hafði gengið undir læknisskoðun vár hann lagður á sjúkrahús í Las Palmas en atvikið átti sér stað á Playa del Inglés, þar sem Kristján bjó. „Aðstoð sú og öll þjónusta, sem ég fékk hjá starfsfólki Flugfélags Islands þarna, var svo góð að því verður varla með orðum lýst,” sagði Kristján „en hann ferðaðist á vegum ferðaskrifstofunnar Urvals. Almennar tryggingar, sem ég var tryggður hjá, brugðu svo skjótt við að 50 þúsund pesetar komu frá þeim með flugvél til Kanaríey.ja til þess að standa straum af kostnaði sem Flug- félagið hafði orðalaúst lagt út fyrir. „Konan min, sem er hjúkrunarkona, var búin að tína glerbrot úr höfðinu á mér áður en ég náði sambandi við lækni og ég verð með staur- fingur en þetta hefði þó getað farið miklu verr." sagði Krist ján Vilholmsson að lokum. -BS. UÚ vill hefja umfangsmiklar kolmunnarannsóknir Landssamband islenzkra út- vegsmunna skrilaði nýlega stjörn- um Eiskiinálasjóðs og Aflatrvgg- ingasjóðs brél' |>ar som farið er l'ram á að sjóðirnir leggi l'ram l'jármagn til viðtiekra rannsókna á kolmunna hér við land en vitn- eskja um þennan hugsanlega nytjafisk er af skornum skammti. Í brél'unum er lagt til að rann- sóknaskip og venjuleg veiðiskip l'ramkvæmi rannsóknirnar. Ekki hefur LÍU enn borizt svar frá sjóðunum um þessa málaleitan en þess ber að geta að tiltöiulega skammt er síðan bréfin voru send. —G.S Aðalumboöið Vesturveri Verzlunin Neskjör. Nesvegi 33 Sjóbúöin viö GrandagarS B.S.R. Verzlunin Ro8i, Hverfisgötu 98 BókabuSin Hrísateig 19 BókabúS Safamýrar Háaleitisbraut 58—60 Hreyfill, Fellsmúla 24 Paul Heide, Glæsibæ Hrafnista, skrifstofan Verzl. Réttarholt. Réttarholtsvegi 1 Bókaverzlun Jónasar Eggertssonar, Rofabæ 7 Arnarval, Arn^bakka 2 Verzl. Straumnes, Vesturberg 76 f KÓPAVOGI: Litaskálinn, Kársnesbraut 2 BorgarbúSin, HófgerSi 30 I GARÐABÆ: Bókaverzl. Grlma, GarSaflöt 16—18 í HAFNARFIRÐI: Skipstjóra- og stýrimannafélagiS Kári, Strandgötu 11 —13 SALA A NYJUM MIÐUM ER HAFIN, EINNIG ENDURNÝJUN ÁRSMIÐA OG FLOKKSMIÐA Tilkynning um aðsföðugjald í Reykjavik Ákveðið er að innhcimta í Reykjavík aðstöðugjald á árinu 1976 samkvæmt heimild í V. kafla laga nr. 8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga og reglugerð nr. 81/1962 um aðstöðugjald, sbr. lög nr. 104/1973. Samkvæmt ákvörðun borgarstjórnar verður gjaldstigi eins og hér segir: 0.20% Rekstur fiskiskipa. 0.33% Rekstur flugvéla. 0.50% Matvöruverslun í smásölu. Kaffi, sykur og kornvara til manneldis í heildsölu. Kjöt- og fiskiðnaður. Endurtrvggingar. 0.65% Rekstur farþega- og farmskipa. 1.00%Sérleyfisbifreiðir. Matsala.Landbúnaður. Vátrygg- ingar ót.a. (Jtgáfustarfsemi. Útgáfa dagblaða er þó undanþegin aðstöðugjaldi. Rakara- og hárgreiðslu- stofur. Verslun ót.a. Iðnaður ót.a. 1.30% Verslun með kvenhatta, sportvörur, hljóðfæri, snyrti- og hreinlætisvörur. Lyf javerzlun. Kvikmyndahús. Fjölritun. Skartgripa- og skrautmunaverslun. Tóbaks- og sælgætisverslun. Söluturnar. Blómaverslun. Úmboðs- verslun. Minjagripaverslun. Barar. BiIIjardstofur. Persónuleg þjónusta. Hvers konar önnur gjaldskyld starfsemi ót.a. Með skirskotun til framangreindra laga og reglugerðar er ennfremur vakin athygli á eftirfarandi: 1. Þeir, sem ekki eru framtalsskyldir til tekju- og eignar- skatts en eru aðstöðugjaldsskyldir þurfa að senda skatt- stjóra sérstakt framtal til aðstöðugjalds sbr. 14. gr. reglugerðar nr. 81/1962. 2. Þeir, sem framtalsskyldir eru í Re.vkjavík, cn hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda starfsemi í öðrum sveitarfélögum. þurfa að senda skattstjóranum í Reykja- vík sundurliðun, er sýni hvað af útgjöldum þeirra er bundið þeirri starfsemi sbr. ákvæði 8. gr. reglugerðar nr. 81/1962. 3. Þeir, sem framtalsskyldir eru utan Reykjavíkur, en hafa með höndum aðstöðugjaldssk.vlda starfsemi i Reykjavík, þurfa að skila til skattstjórans í því umdæmi, sem þeir eru heimilisfastir, yfirliti um útgjöld sín vegna starfseminnar i Revkjavík. 4. Þeir. sem margþætta atvinnu reka. þannig að útgjöld þeirra teljast til fleiri en eins gjaldflokks samkvæmt ofangreindri gialdskrá, þurfa að senda fullnægjandi greinargerð um, hvað af útgjöldunum tilhevri hverjum einstökum gjaldflokki. sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 81/1962. Framangreind gögn ber að senda til skattstjóra fvrir 9. maí nk„ að öðrum kosti verður aðstöðugjaldið, svo og skipting í gjaldflokka. áætlað eða aðilum gert að greiða aðstöðugjald af öllum útgjöldum skv. þeim gjaldflokki. sem hæstur er. Reykjavík, 23. apríl 1976. SKATTSTJÓRINN I REYKJAVÍK.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.