Dagblaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 22
DACBLAÐIÐ. DAUCARDACUK 24. AFRÍL 1976.
Sjónvarp
9
22
Utvarp
Sjónvarpið í kvöld kl. 18,30: Gulleyjan
MAÐURINN
Á EYNNI
Þaó gengur á ýmsu í síóasta
þætti. Jim er heldur betur
búinn að kynna sér kortið af
Culleyjunni, þar sem hinn digri
fjársjóður er fólginn og hefur
lærl hvert einasta nafn á fjalli
og firði utan að. Hann bíður
óþolinmóður eftir þvi að fá að
vita hvort af forinni til eyjar-
innar verður.
Loks koma hinar langþráðu
fréttir frá landeigandanum og
lækninum að þeir séu búnir að
fá farkost, glæsilegt seglskip,
Espaninana. Þeim tekst einnig
að manna skipió og njóta til
þess leiðsagnar hins einfætta
kráareiganda, Johns Silvers,
sem þeir hafa mikið álit á. John
vill fara með, því að hann segist
vera þreyttur á kránni og vill
gerast kokkur á skipinu.
Það er stigið um borð. 1 ljós
kemur að það er ekki bara einn
skipstjóri um borð. Smallet.
heldur líka páfagaukur Johns
Silvers, Flint skipstjóri,
Smallet skipstjóri hefur tllan
bifur á skipshöfnirini og þótt
landeigandinn og læknirinn
vilji ekki trúa þessu kemur að
þvi að þeir verða að horfast í
augu við að Smallet hefur rétt
fyrir sér. Jim sofnar í epla-
tunnu uppi á þilfari eitt kvöldið
og verður vitni að tveggja
manna tali. Annar mannanna
er John Silver. Það eru ófagrar
lýsingar hans á því hvernig
hann ætli að ganga frá landeig-
andum og mönnum hans þegar
þeir séu búnir aðkrækja i fjár
sjóðinn. Þeir skulu brytjaðir
niður í spað.
Við skiljum við Jim og þá
félaga um það leyti sem þeir
finna land og gera sér ljóst að
þeir eru 7 á móti 19 forhertum
glæpamönnum. -EVI.
Sjónvarp í kvöld kl. 20,35:
5. þóttur spurningakeppninnar:
NÚ SKEMMTIR
DÓMARINN í
W
HLEINU
Hinn umdeildi spurninga-
þáttur, Kjördæmin keppa, er á
dagskránni í kvöld kl. 20.35.
Þetta er fimmti þátturinn og í
kvöld eigast við Vestfirðir og
Norðurland eystra. Dómari er
Ingibjörg Cuðmundsdóttir, en
stjórnandi þáttarins er Jón
Ásgeirsson. Stjórn upptöku
annaðist Tage Ammendrup.
1 kvöld eru undanúrslit, en
næsta laugardagskvöld keppa
lið Reykjavíkur og Suðnriands.
Sjöundi og síðasti pátturinn
verður á dagskránni laugar-
daginn 8. maí og fer þá fram
úrslitakeppni.
Liðsmenn Vestfjarða eru: sr.
Þðrarinn Þór, Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli og
Kristín Aðalsteinsdóttir, líf-
fræðingur. Liðsmenn Norður-
lands eystra eru: Gisli Jónsson
menntaskólakennari, Cuð-
mundur Cunnarsson gagn-
fræðaskólakennari og Indriði
Ketilsson bóndi.
Nú bregður dómaniin .->ei a
leik og skemmtir áhorfendum
með söng í leikhléi, en Ingi-
björg hefur sungið með hljóm-
sveitinni B.G. frá Isafirði.
Vmislegt hefur verið látið
fjúka um þessa spurninga-
keppni og þykir mörgum sem
óréttlátir dómar hafi verið
kveðnii upp.
Hefur dómum varðandi svör
verið líkt við dóma í knatt-
spyrnuleik þar sem viti er
dæmt án saka og engu hægt að
breyta þar um
I síðasta þættinum um Stjána
og Stínu eftir Svavar Cests í
útvarpinu sl. sunnudag var gert
góðlátlegt grín að keppninni.
Spurningin: ,,Hvaö er það
sem hoppar og skoppar yfir
heljarbrú, með mannabein í
maganum og gettu nú” var lögð
fram.
Báðir aðilarnir sem svöruðu,
sögðu áð þarna væri átt við
skip, það vissu allir.
Þá sagði „dómarinn” að það
væri rangt svar!
„Hér stendur að það sé bátur,
fley, farkostur, en hvergi er
minnzt á að það sé skip.” -A.B.j.
Sjónvarp kl. 21,30:
SJÁLFSÆVISAGA
SÖNGKONUNNAR OG
BARÁTTA HENNAR
VIÐ DRYKKJUSÝKI
Ég græt að morgni heitir
bandarisk bíómynd frá árinu 1965
sem er á dagskrá sjónvarpsins kl.
21.30 í kvöld. Aðalhlutverk leika
Susan Hayward, Richard Conte
Eddie Albert, Jo Van Fleet og
Don Taylor.
í kvikmyndahandbók okkar
fær þessi mynd fjórar stjörnur.
Er lokið miklu lofsorði á frá-
bæran leik Susan Hayward í hlut-
verki söngkonunnar Lillian Roth
en myndin segir frá ævisögu
söngkonunnar og baráttu hennar
við drykkjusýkina. Einnig er
getið um góðan leik Jo Van Fleet
sem leikur móður söngkonunnar.
Karlmennirnir sem nefndir eru
í hlutverkaskránni leika hlutverk
eiginmanna Lillian Roth.
Sýningartími myndarinnar er
ein klukkustund og fimmtíu Pg
fimm mínútur. Þýðandi er Heba
Júlíusdóttir. —A.Bj.
Susan Havward i hlutverki hinnar drykkjusjúku söng- og leikkonu. Lillian Roth
Áhuginn ó henni glœddist ó ný
eftir útkomu œvisögunnar
Söngkonan Lillian Roth er
fædd árið 1911 í Boston. Hún var
ekki nema fimm ára gömul ■þegar
hún kom fyrst fram i kvikmynd.
Þegar hún var fimmtán ára dans-
aði hún aðalhlutverk í skemmti-
leikhúsum. Hún kom fyrst fram í
fullorðinshlutverki árið 1929 og
var mötleikari hennar Maurice
Chevalier. Smám saman náði
dr.vkkjufýsnin öllum tökum á
henni og hún varð að hætta að
korna frarn.
Hún skrifaði og gaf út ævisögu
sina „Eg græt að morgni". C.erð
var kvikmynd eftir henni og það
er einmitt hún. sem er á dagskrá
sjónvarpsins i kvöld.
Eftir það vaknaði áhugi á
Lillian Roth á ný og kom hún
frant i nokkrunt sjónvarpsþáttum
og næturklúbbum á sjötta ára-
tugnum. Hún kom fram að nýju á
Broadway árið 1962 og lék m.a. í
söngleiknum Kun'ny girl.
—A.Bj.
/