Dagblaðið - 24.04.1976, Side 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. APRlL 1976.
23
Utvarp
Sjónvarp
SONGVAKEPPNISJONVARPS-
STOÐVAEVROPU
í sjónvarpinu kl. 20,35
ó sunnudagskvöld
Annað kvöld veröur Eurovision söngvakeppnin á dagskrá sjón-
varpsins kl. 20.35. Keppnin fór fram í Hollandi 3. apríl sl. Er þetta í
tuttugasta og fyrsta sinn sem keppnin fer fram, en mörgum sem til
þekkja þykir nokkuð „vera farið að slá í hana.”
í upphafi var til þess ætlazt að flytjendur í keppninni væru frá
öllum Evrópulöndunum og sömuleiðis að þeir væru af því þjóðerni
sem þeir kæmu fram fyrir.
Þetta hefur hins vegar orðið svo, að þjóðirnar kaupa dýrum
dómum fræga skemmtikrafta til þess að koma fram fyrir sína hönd
og vilja allt til vinna til að hljóta sigur í keppninni.
Alls taka átján þjóðir þátt í keppninni í kvöld og fyrstir koma
fram brezku þátttakendurnir. Er það fjögurra manna söngflokkur
er nefnir sig Brotherhood of men. Varð hann sigurvegari í keppn-
inni og í umsögn um söngvakeppninarsem við höfum úr erlendu
blaði, segir að flokkurinn sé „alveg eftir Eurovision-uppskriftinni,
léttur og skemmtilegur söngflokkur, skipaður dæmigerðum
vinningshöfum: tveim stúlkum og tveim piltum.”
Sigurlagið þeirra heitir Save your kisses for me og hefur þegar
verið gefið út á plötu sem selzt hefur í milljónaupplagi.
Þýðandi er Jón Skaptason.
Nr. tvö á dagskránni eru kepp-
endur frá Sviss. Þeir nefnast
Peter, Sue og Marc og syngja
lag er heitir Djambo Djambo.
Nr. þrjú syngja fulltrúar Þýzkalands. Er það söngflokkurinn Les
Humphreys, en hann er skipaður söngvurum frá Frakklandi, Bret-
landi, Kóreu og Japan. Þeirra lag heitir Sing, sang, song.
Fulltrúar Israel eru nr. fjögur.
Eru það þrjár ísraelskar
stúlkur er nefna sig The
Chocolate girls og syngja lag er
heitir Say Hello.
»
Nr. sex er fulltrúi Belgíu. Er
það söngvarinn Pierre Rapsat,
sem syngur tregablandinn
söng með gítarundirleik. Talið
er að hann álíti sjálfan sig eins
konar Sacha Distel, en ekki
þvkir hann líklegur til að vinna
stórasigra í plötuheiminum.
Nr. fimm á dagskránni er full-
trúi Luxemborgar. Það er
söngvarinn Jurgen Marcus,
þýzkur að þjóðerni. Hann
syngur lagið Songs for those
who love.
Sigurvegarinn i söngvakeppninni er brezki söngflokkurinn Brotherhbod of
men og sungu þeir lagið Save your kisses for me.
Útvarp
Laugardagur
24. apríl
Til-
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
k.vnningar. Tónleikar.
13.30 iþróttir. Umsjón: Jón Asgeirsson.
14.00 Tónskáldakynning Atla Heimis
Sveinssonar.
15.00 Menn okkar í Vesturheimi. Páll
Heiðar Jónsson ræðir við Ingva
Ingvarsson sendiherra hjá Sameinuðu
þjóðunum, Harald Kröyer sendiherra
1 Washington, Tómas Karlsson vara-
fastafulltrúa og lvar Guðmundsson,
aðalræðismann. Tæknivinna: Þórir
Steingrimsson.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Islenzkt mól. Jón
Aðalsteinn Jónsson cand. mag. flytur
þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi.
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dágskrá kvöldsins. v
19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Bróðir minn Húni. Guðmundur
Daníelsson rithöfundur les kafla úr
nýrri skáldsögu sinni.
20.05 Hljómplöturabb Þorsteins Hannes-
sonar.
20.45 Staldrað við í Þorlókshöfn — þriðji
þáttur. Jónas Jónasson litast um og
spjallar við fólk.
21.45 Walter Ericson og fólagar leika
gömul danslög.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Oanslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
25. apríl
8.00 Morgunandakt- Séra Pétur
Sigurgeirsson vígslubiskup flytur
ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttirog veðurfregnir.
8.15 Lótt morgunlög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustu-
greinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10 VeðUl'-
fregnir). A. Þættir úr ..Messias" eftir
Georg Friedrieh Handel. Gundula
Janowitsj. Marga Hoeffgen. Ernst
Haefliger, Fran/ Crass, Bachkórinn
og Baehhljómsveitinn i Munchen
flytja, Karl Kichtei stj. b. Fiðlu-
konsert nr. 1 í D-dúr eftir Niccolo
Paganini. Shmuel Ashkenasi og Sin-
fóníuhljómsveitin í Vín leika
Heribert Esser stjórnar.
11.00 Messa í Hóteigskirkju. Prestur: Séra
Arngrímur Jónsson Organleikari:
Marteinn Hunger Friðriksson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.15 Þættir úr nýlendusögu- Jón Þ. Þór
cand. mag flytur fimmta hádegis-
erindi sitt: Hrun nýlenduvelda.
14.0Ö Staldrað við í Þorlákshöfn — fjórði
þáttur. Jónas Jónasson litast um og
spjallar við fólk.
15.00 Miðdegistónleikar Wilhelm
Kempff. Christoph Eschenbach,
Svjatoslav Rikhter, Margit Webero.fl.
flytja sígilda tónlist ásamt þekktum
söngvurum og hljómsveitum.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Létt-klassísk tónlist-
17.15 Að vera ríkur. Arni Þórarinsson og
Björn Vignir Sigurpálsson ræða við
Guðlaug Bergmann, Rolf Johansen,
Þorvald Guðmundsson og Aron Guð-
brandsson (áðurútv. 18.september).
18.00 Stundarkom með franska sellóleikar-
anum Paul Tortelier.Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Tilkynningar.
19.25 Bein lina til Vilhjálms Hjálmarssonar
menntamálaráðherra. Fréttamennimil*
Kári Jónasson og Vilhelm G. Kristins-
son sjá um þáttinn.
20.30 Frá hljómleikum Sameinuðu þjóð-
anna í Genf í október. Nikita Magaloff
og Suisse Romande hljómsveitin leika
Píanókonsert nr. 5 í Es-dúr, „Keisara-
konsertinn" eftir Beethoven" Janos
Ferencsik stjórnar.
21.00 ,,Komir þú á Grænlands grund" Arni
Johnsen og Einar Bragi taka saman
þátt um Grænland fyrr og síðar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög. Heiðar Ást-
valdsson danskennari velur lögin og
kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
I
i)
^ Sjónvarp
Laugardagur
24. apríl
17.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Gulleyjan. Myndasaga i sex þáttum,
gerð eftir skáldsögu Roberts Louis
Stevnsons. Myndirnar gerði John
Worsle.v. 3. þáttur. Maðurinn á eyjunni.
Þýðandi og þulur Karl Guðmundsson.
19.00 Enska knattspyman
Hló-
20.00 Fróttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Kjördæmin keppa. 5. þáttur. Vest-
firðir. Norðurland eystra.. Spurning
arnar samdi Helgi Skúli Kjartansson.
Spyrjandi Jón Ásgeirsson. Dómari
Ingibjörg Guðmundsdóttir, og hún
syngur einnig í hléi við undirleik
hliómsveitinnar B.G. frá ísafirði.
Stjórn upptöku Tage Ammen-
rlriiD.
21.05 Læknir til siós. Breskur gaman-
myndaflokkur. Fólk í fyrirrunji
Þýðandi Stefán Jökulsson
21.30 Eg græt að morgnl. (1*11 Cry
Tomorrow) Bandarísk bfómynd gerð
árið 1956. Aðalhlutverk Susan Hay-
ward, Richard Conte, Jo Van Fleet og
Eddie Albert. Myndin er gerð eftir
sjálfsævisögu leikkonunnar Lillian
Roth og greinir frá baráttu hennar við
áfengisástríðu sína. Þýðandi Heba
Júllusdóttii.
23.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur
25. apríl
18. 00 Stundin okkar. I Stundinni okkar 1
dag dansa börn úr Listdansskóla Þjóð-
leikhússins í tilefni sumarkomu, sýnd
verður teiknimynd um Matta, sem er
veikur og verður að liggja 1 rúminu,
og mynd úr myndaflokknum „Enginn
heima”. Slðan er kvikmynd um
Kristin Jón, 11 ára dreng í Hlíðar-
skóla og einnig kvikmynd frá
Svazilandi í Afriku og hvernig fólkið
þar fer að því að byggja hús.
Hló.
20.00 Fróttir og veður.
20.25 Auglýsingar oq dagskrá.
20.35 Söngkeppni sjónvarpsstöðva í
Evrópu 1976. Keppnin fór að þessu
sinni fram í Haag 3. apríl. og voru
keppjendur frá 18 löndum. Þýðandi
Jón Skaptason. Œvróvision—
Hollenska sjónvarpið).
22.45 Á Suðurslóð. Breskur framhalds-
’ myndaflokkur f 13 þáttum byggður á
sögu eftir Winifred Holtby. 2.
þáttun Brostnar vonir, fölnuð frægð.
Efni fyrsta þáttar: Fylgst er með
fundi i bæjarstjórn Kiplingtons. en
þar sitja ýmsar helstu persónur
sögunnar. Sarah Burton er ættuð úr
grenndinni Hún hefur ung farið að
heiman til að afla sér menntunar. en
er komin til bæjarins og sækir um
starf skólastjóra stúlknaskóla.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
23.35 Að kvöldi dags. Dr. Jakob.
Jónsson flytur hugvekju.
23.45 Dagskráriok.
Tjáningarfrelsj
er ein meginforsenda þess
aó frelsi geti vióhaldizt
í samfélagi.