Dagblaðið - 03.06.1976, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 03.06.1976, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 3. JÚNl 1976. SMEBÍAÐIB Srjálst, úháð dagblað ÚtKefandi Dattblaðið hf. I'ramkva'mdastjóri: Sveinn R. Eyjólfssnn. Ritstjóri Jónas Kristjánsson. Fréttastjóri: Jón Birjtir Pétursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Heljtason. Aðstoðarfrétta- stjóri: Atli Steinarsson. Iþróttir: Hallur Simonarson. Hönnun: Jóhannes Reykdal. Handrit Ásj>rimur Pálsson. Blaðamenn: Anna Bjarnason. Ásjteir Tómasson, Brajti Sijjurðsson. Erna V. Injtólfsdóttir, f'.issur Sijturðsson, Hallur Hallsson, Heljti Pétursson. Jóhanna Birjjisdóttir, Katrin Pálsdðttir, Kristín I.ýðsdóttir. Olafur Jónsson. Omar Valdimarsson. Ljósmyndir: Árni Páll Jóhannsson. Bjarnleifur Bjarnleifsson. Bjiirjjvin Pálsson. Rajtnar Th. Sijturðsson. G.ialdkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Áskriftarjjjald 1000 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakið. Ritstjórn Siðumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir og afgreiðsla Þverholti 2. simi 27022. Setmng og umbrot: Dagblaðið hf. og Steindórsprent hf. Armúla 5. M.vnda-og plötugerð: Hilmir hf. Slðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunnl 19. Viðskipti ístað draumóra Bandaríska herliðið á Kefla- víkurflugvelli getur ekki varið ísland. Það hefur þó dálítið óbeint varnargildi, þar sem það er hlekkur í varnarkeðju Atlants- hafsbandalagsins. Fyrir okkur er nokkurt öryggi fólgið í að vera undir regnhlíf þessa svæðisbandalags. En um leið felast hættur í að hafa hér herlið, sem gæti dregið að sér árás á ófriðartíma. Hlutverk herliðsins í vörnum Atlantshafs- bandalagsins er miklu veigaminna en hlutverk þess í vörnum Bandaríkjanna sjálfra. Herliðið er fyrst og fremst yzta heimavarnalína Banda- ríkjanna, eftirlits- og aðvörunarstöð, sem Bandaríkin geta varla verið án. Islenzkir stjórnmálamenn hafa frá upphafi blekkt sjálfa sig og aðra að því er varðar tilgang bandaríska herliðsins. Menn hafa bitið sig fast í orðalagið „varnarlið íslands“ og þannig gert lítið aukahlutverk að aðalhlutverki. Þetta viðhorf er á engan hátt raunsætt. 1 skjóli þessarar sjálfsblekkingar hafa íslenzk stjórnvöld veitt bandaríska herliðinu ýmis fríðindi, sem eiga engan rétt á sér. Það er fráleitt, að herliðið og starfsmenn þess skuli ekki greiða tolla og söluskatt til jafns við innfædda. Þar á ofan virðist eðlilegt, að starfs- menn þess greiði hér tekjuskatt og einnig útsvar, ef þeir eru búsettir utan flugvallar- svæðisins. Einnig má líta svo á, að herliðið hafi hingað til tekið allt of lítinn þátt í uppbyggingu þeirra samgangna í landinu sem nauðsynlegar eru vegna hlutverks herliðsins á vegum Atlants- hafsbandalagsins. Bandaríska herliðið tekur alltof lítinn þátt í kostnaðinum við að greina á milli borgaralegs og hernaðarlegs flugs frá Keflavíkurflugvelli. Þar sem ætlunin er að eftirláta því gömlu flugstöðina, er ekki nema eðlilegt, að herliðið kosti sama fermetrafjölda í nýju flugstöðinni, sem senn á að reisa. Bandaríska herliðið ætti að kosta að verulegu leyti gerð alþjóðlegs varaflugvallar á Egilsstöðum. Það ætti ennfremur að kosta að verulegu leyti gerð varanlegra vega frá Kefla- víkurflugvelli vestur á Öndverðarnes og austur á Stokksnes og Egilsstaðaflugvöll framtíðar- innar. Að sjálfsögðu verður að veita herliðinu eitt- hvert svigrúm til að afskrifa slík mannvirki. Ekki virðist óeðlilegt, að gerður verði tíu ára samningur við Bandaríkin um dvöl herliðsins og þær framkvæmdir, sem raktar eru hér að ofan. Ríkisstjórn íslands ætti þegar að hefja undirbúning að framkvæmd slíkrar endur- skoðunar við fyrsta leyfilega tækifæri. Sumir eru af siðferðisástæðum andvígir við- skiptum af þessu tagi. En hinum hefur að undanförnu farið ört fjölgandi, sem sjá, að undanfarna áratugi höfum við ástæðulaust og getulaust verið að spila stórmenni. Það er orðið tímabært að svipta brott blekkingunni og taka upp raunsæja stefnu í samskiptunum við bandaríska herliðið. Varnarliðið svonefnda gat ekki varið okkur, þegar við þurftum á því að halda, í þorska- stríðinu. Við skulum því láta af draumórum og taka upp viðskipti í staðinn. Múhameðstrúarmenn ú Filippseyjum: SKÆRUUDARNIR, SEM HEIMURINN HEFUR GLEYMT Aö ganga um í Tuburan minnir óneitanlega á stríðsárin í Víetnam og Kambódíu. Margt er eins: Niöurbrennd húsin, sundursprengdir skólarnir, pálmatrén, sem hand- sprengjurnar hafa tætt krónurnar af. En í Tuburan eru engar kirkjurústir eins og í Víetnam, engar hofrústir eins og í Kambodíu. I Tuburan var það moskan sem var skotin í sundur, kúlan er götug eins og sigti eftir byssukúlurnar og múhameðski hálfmáninn á þakinu er ekki einu sinni hálfur. Þetta er ríki múhameðstrúarmanna í bænum Tuburan á eynni Basilan í sunnanverðum Filippseyjaklasanum. I fjöllunum og frumskógunum er barátta uppreisnarmanna i full- um gangi, bylting múhameðs- trúarmannanna. Eyðileggingin í Tuburan er til merkis um að þeir standa höllum fæti gagn- vart kristnu stjórninni og her hennar, flugher og flota. Balik-bayans I dag er Tuburan hlutlaus bær, íbúarnir hafa leitað þangað undan stríðinu og reist sér bráðabirgðaskýli á rústum bæjarins. Stjórnarherinn kemur ekki lengur til Tuburan og uppreisnarmennirnir sem koma ofan úr fjöllunum skilja vopn sln þar eftir I virðingar- skyni við óbreytta borgara. Ferðamenn geta komizt til Tuburan frá Isabela, höfuðstað Basilan en þar ræður stjórnar- herinn lögum og iofum. I fylgdarliði sínu er betra að hafa nokkra múhameðska uppreisnarmenn sem eru hættir að berjast. Balik-bayans eru þeir nefndir „þeir sem snúið hafa aftur“. Margir þeirra reyna að vinna málstað sínum fylgi og stuðning með störfum i stjórn fyrrum fjenda. Einn þeirra er settur bæjar- stjóri í Tuburan. Þeir fara vel vopnaðir um og bæjarstjórinn er með skammbyssu í rass- vasanum. „Vopnin eru aðeins notuð til að vernda okkur fyrir sjó- ræningjum," segir hann. En vopnin eru einnig tákn um öryggi og manndóm og uppreisnarmennirnir fyrr- verandi eru fúsir til að stilla sér upp með byssur sinar fyrir ljós- myndara. Vandamjálin eru nœg fyrir Það gegnir öðru máli með hina raunverulegu uppreisnar- menn. Þeir taka á móti gestunum þegar báturinn kemur að landi og vaðið er í land. Gamlir félagar hittast og gleði skín úr augum. En uppreisnarmennirnir eru óneitanlega heldur varkárir gagnvart þessum „balik- bayans“ sem eru farnir að starfa fyrir stjórnina. Þegar myndavétinni er beint að þeim setur kommandör Abdullah höndina fyrir ljósopið. „Vandamál okkar eru næg fyrir,“ segir hann. En hann vill gjarnan tala, segja frá baráttunni. Ekki þó inni í bænum mitt á meðal íbúanna og gömlu félaganna. Hann kallar saman undirforingja sína og þeir fara með gestjnurn út fyrir bæinn, þar sem þeir setjast undir pálamtré. Þetta eru ungir skæruliðar með sítt, svart hár. Nokkrir þeirra eru með málmbanu um hárið. Þeir eru fallegir og msmr^ Filippseyjar Á sunnanverðum Filippseyjum er hóð stríð milli hermanna einrœðisstjórnar Ferd- inands Marcos og skœruliðo múhameðs- trúarmanna. Þeir hafa um aldaraðir verið mjög afskiptir og berj- ast enn í dag fyrir sjálf sstjórnarríki múhameðstrúarmanna á Suðureyjunum. Ekki alls fyrir löngu rœndu nokkrir úr hópi skœruliðanna tveimur flugvélum í Manilla. í síðara skiptið lauk þeim viðskiptum með blóðbaði og flugvélin var brennd. Stjórnin hefur ákveðið að láta hart mœl hörðu. En skœruliðarnir gefast ekki upp. LUZ0N Suftur-Kínahaf VsMINDANA vBASILAN^ .1 - stoltir. Nokkrir eru með þreytuleg augu. Þeir eru aðeins um tvítugt en margra ára dvöl í fjöllunum hefur þreytt augun. Þetta eru kommandör Ab- dullah, kommandör Bobby, kommandör Jerry, kommandör Abdur og nokkrir aðrir. A leið til skæruliðanna í Tuburan. Bæjarstjórinn er fremstur með riffiiinn sinn.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.