Dagblaðið - 03.06.1976, Blaðsíða 23
DACHI.AÐItí — FIMMTUDAGUR 3. JÚJVl 1976.
fI
23
Útvarp
Sjónvarp
Útvarpkl. 19,35: — Óperan Rigoletto
25 ára
upptaka á
óperunni
„Rigoletto"
flutt í
útvarpinu
í kvöld
Óperan „Rigoletto” eftir
Giuseppe Verdi veröur flutt í
útvarpinu í kvöld kl. 19.35.
Upptakan var gerð í Þjóðleik-
húsinu árið 1951 er óperan var
frumflutt þar fyrir nákvæm-
lega 25 árum. Sungið verður á
frummálinu.
Margir af beztu söngvurum
Islands fóru með hlutverkin
í óperunni, að öðru leyti en þvl
að Else Miihl söng hlutverk
Gildu. Stefán íslandi fór með
hlutverk hertogans, Guðmund-
ur Jónsson með hlutverk
Rigolettos, Kristinn Hallsson
Sparafucile og Guðmunda
Ellasdóttir Magdalenu. Leik-
stjóri var Simon Edwardsen frá
Kgl. óperunni í Stokkhólmi.
Hljómsveitarstjóri var dr.
Victor Urbancic, félagar úrFóst-
bræðrum sungu með.
Rigoletto var sýnd 29 sinnum
í Þjóðleikhúsinu árið 1951.
Cperan var frumflutt I
Feneyjum árið 1851 svo hún er
125 ára gömul i ár, en alltaf
síung.
Óperan segir frá hertoganum
af Mantúa, sem er kvennabósi
mikill og hirðfífl hans, Rigo-
letto, sem aðstoðar hann við öll
uppátæki þar að lútandi. Her-
toginn lítur Gildu, dóttur Rigo-
lettos hýru auga. Hirðmenn
hertogans ræna Gildu og halda
Óperan var frumflutt í Þjóðleikhúsinu árið 1951 og fór þá Stefán Islandi með hlutverk hertogans frá
Mantúa, en Eise Miihl með hlutverk Gildu. Hér sjást þau í hiutverkum sínum.
að hún sé greifafrú nokkur sem
hertoginn hafði átt vingott við.
Síðan segir frá viðskiptum
Rigolettos og hertogans en
Rigoletto er ekkert of hrifinn
af því að láta dóttur sínar í
hendurnar á hertoganum og
hyggur á hefndir. Hann ræður
til sín leigumorðingja, Spara-
fucile að nafni, til að drepa
hertogann. Gilda, sem nú er
orðin ástfangin í hertoganum
klæðist karlmannsfötum og
ákveður að bjarga honum. Svo
hefndinni er vísað heim til
föðurhúsanna.
Höfundurinn Giuseppe
Verdi fæddist í Re Roncole árið
1813 og samdi alls 28 óperur.
Hann lézt I Milano árið 1901.
— KL
Gilda (Eise Miihl) og faðir hennar Rigoletto sem leikinn var af
.Guðmundi Jónssyni.
I
^ Utvarp
Fimmtudagur
3* # *
. jum
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Á frívaktinni. Margrét Guð-
mundsdóttir kynnir óskalög sjó-
manna.
14.30 Miðdegissagan: „Myndin af Dorian
Gray" eftir Oscar Wilde. Valdimar
Lárusson les þýðingu Sigurðar Einars-
sonar (7).
15.00 Miðdegistónleikar. Kammersveit
Emils Seilers leikur Konsert í B-dúr
fyrir þrjú óbó, þrjár fiðlur og sembal
eftir Georg Philipp Telemann. Daniel
Barenboim, Pinchas Zukerman og
Jacqueline du Pré leika Tríó í B-dúr
fyrir píanó, fiðlu og selló „Erkiher-
togatríóið” op. 97 eftir Ludwig van
Beethoven.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.40 Litli bamatíminn. Sigrún Björns-
dóttirsérumtímann.
17.00 Tónleikar.
17.30 „Eitthvaö að lifa fyrir" eftir Victor E.
Frankl. Hólmfríður Gunnarsdóttir les
þýðingu sína á bók eftir austurriskan
geðlækni (2).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fróttaauki. Tilkvnningar.
19.35 óperuflutningur Þjóöleikhússins:
Aldarfjórðungsafmœli. Óperan „Rígó-
lettó" eftir Giuseppe Verdi. Hljóðritun
var gerð á sviði Þjóðleikhússins árið
1951. Flytjendur: Else MUhl, Stefán
Islandi, Guðmundur Jónsson, Guð-
munda Elíasdóttir, Kristinn Hallsson
o.fl. ásamt félögum úr karlakórnum
Fóstbræðrum og Sinfóniuhljómsveit-
inni. Leikstjóri: Simon Edwardsen.
Stjórnandi: Dr. Victor Urbancic. Þor-
steinn Hannesson ræðir við Stefán
Islandi, Guðmund Jónsson og Jón
Þórarinsson — og kynnir óperuna.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Sé
svarti senuþjófur", œvisaga Haralds
mam
S
Bjömssonar. Höfundurinn, Njörður P.
Njarðvík, lýkur lestrinum (28).
22.40 Kvöldtónleikar: Þœttir úr klassiskum
verkum.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
4» / #
• juni
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugreinar dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbœn kl. 7.55. Morgunstund
bamanna kl. 8.45: Einar Björgvin
heldur áfram sögu sinni „Palla, Ingu
og krökkunum í Vík” (3). Tilkynning-
ar kl. 9.30. Létt lög milli atriða.
Spjallað við bœndur kl. 10.05. Tón-
leikar. Morguntónleikar kl. 11.00: Ida
Haendel og Alfred Holecek leika
Sónötu í g-moll fyrir fiðlu og píanó
„Djöflatrillusónötuna” eftir Tartini /
John Williams leikur Gítarsónötu í
A-dúr eftir Paganini / Augustin
Azievas leikur á píanó.Tilbrigði eftir
Brahm6 um stef eftir Paganini.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Myndin af Dorian
Gray" eftir Oscar Wilde. Sigurður
Einarsson þýddi. Valdwnar Lárusson
les (8).
15.00 Miðdegistónleikar. Margot Rödin
syngur lög eftir Hugo Alfvén, Jan
Eyron leikur á píanó. Sigurd Rascher
og Fllharmoníusveitin i Múnchen
leika Konsert fyrir saxófón og hljóm-
mmmmammmmmmammtBammammmmmam
sveit eftir Erland von Koch; Stig
Westerberg stjórnar.
15.45 Lesin dagskra nœstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphom.
17.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dag;skrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mél. Guðni Kolbeinsson
flytur þáttinn.
19.40 Myndlist é listahétíð í Reykjavík.
Þóra Kristjánsdóttir flytur síðari
kynningarþátt sinn.
20.00 Karíakór isafjaröar syngur nokkur
lög. Stjórnandi: Ragnar H. Ragnar.
20.15 „Charies", smasaga eftir Shiriey
Jackson. Asmundur Jónsson þýddi. Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir leikkona les.
20.30 Frá listahétíð: Beint útvarp fré Hé-
skolabíói. Sinfóníuhljómsveit Islands
leikur. Stjórnandi: Paul Douglas
Freeman. Einleikari: Unnur María
Ingólfsdóttir. a. „Flower shower” eftir
Atla Heimi Sveinsson. b. Forleikur að
þriðja þætti óperunnar „Lohengrin"
eftir Richard Wagner. c. Fiðlukonsert
í e-moll op. 64 eftir Felix Mendelssohn
Bartholdy.
21.30 Útvarpssagan: „Síöasta freistingin"
eftir Nikos Kazantzakis. Sigurður A.
Magnússon les þýðingu Kristins
Björnssonar (35).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Staða kirkjunnar í íslenzku þjóð-
félagi. Haraldur Ólafsson lektor flytur
erindi.
20.55 Afangar. Tónlistarþáttur I umsjá
Asmundar Jónssonar ogc.uðna Rúnars
Agnarssonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.