Dagblaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 6
6
DAGBLA'ÐIÐ — FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1976
Líbanon:
Bardagar blossa upp þrátt
fyrir friðargœzlus veitir
— aukning í flota Rússa og Bandaríkjamanna á Miðjarðarhafi
Svo virðist sem bardagar hafi
blossað upp að nýju í Líbanon
þrátt fyrir samþykktir Samtaka
Arabalanda þess efnis, að
senda þangað sameiginlegar
friðárgæzlusveitir.
Að sögn talsmanns Frelsis-
samtaka Palestínumanna, PLO,
hófu Sýrlendingar stórskota-
liðsárás á höfuðborgina, Beirút
seint í gærkvöldi. Ekki er
ennþá vitað um manntjón.
Þá munu brynvarðar her-
deildir vera í sókn að borginni
frá norðurhéruðum landsins og
hafa flóttamannabúðir við
Borja-Al-Barajnoh orðið fyrir
árásum í nótt.
Bandaríkjamenn hafa nú
gengið í lið með Sovétmönnum
og aðvarað aðrar þjóðir við að
skipta sér of mikið af innan-
ríkismálum Líbana. Sameigin-
legar friðargæzlusveitir Araba
héldu inn í landið í nótt, en
Bandaríkjamenn hafa sagt, að
slíkt sé þakkarvert, svo lengi
sem tryggt sé að þar sé um
friðargæzlu en ekki áframhald-
andi styrjöld að ræða.
Sovétmenn létu það boð út
ganga í gær, að réttast væri að
reyna að binda enda á styrjöld-
ina i Líbanon eins fijótt og
auðið yrði og koma á vopnahléi.
Styrjöldin hefur nú staðið yfir í
14 mánuði og talið er, að um 20
þúsund manns hafi látið lífið f
þeim átökum.
Þá segir í fréttum frá frétta-
stofunni Tass að augljóst sé að
styrjöldin sé ekki lengur innan-
ríkismál Líbana. Burtséð frá
friðargæzlusveitum Araba er
þar taíið, að Sovétmenn eigi við
það tilboð Frakka að senda her-
lið til landsins og aukin umsvif
bandaríska flotans á Miðjarðar-
hafi.
í fréttum frá París segir, að
töluverð aukning hafi einnig
orðið í Miðjarðarhafsflota
Sovétmanna, — þar væru nú
76 herskip af ýmsum gerðum,
— á móti 32 he'rskipum Banda-
ríkjamanna, þar af tveim flug-
móðurskipum.
»
Þrátt fyrir friðargæzlusveitlr
hafa bardagar blossað upp að
nýju í Beirút og víðar i
Líbanon.
I ||*|
I:1 Iff r ^
Austur-Þjóðverjar reyna
að stela tundurskeyti
frá Dönum
Austur-þýzki flotinn gerði til-
rauri til þess að stela einu
æfingartundurskeyti danska
flotans á Finnska flóanum í
gær. í átökum á opnu hafi tókst
dönskum sjómönnum að ná eig-
urn sinum aftur, að sögn tals-
manns' flotans.
Hefur utanríkisráðuneytið
danska borið fram mótmæli
vegna þessara atburða við
austur-þýzka sendiráðið i Kaup-
mannahöfn.
Tundurskeytabátur frá
austur-þýzka flotanum renndi
sér að öðru tundurskeyti af
tveimur, sem skotið hafði verið
frá dönskum kafbáti, á meðan
danskur bátur var önnum kaf-
inn við að ná hinu. Tókst skip-
verjum austur-þýzka bátsins að
festa línu í skeytinu og voru að
reyna að hífa það um borð, er
sá danski kom að. Brugðu þeir
hart við og komu línu í hinn
enda tundurskeytisins, en þeir
austur-þýzku létu sér ekki
segjast.
Varð áhöfn danska bátsins að
mjaka honum milli tundur-
skeytisins og austur-þýzka
bátsins áður en þeir slepptu
skeytinu.
Atburður þessi átti sér stað
undan Borgundarhólmi, en þar
hafa umsvif Austur-
Evrópuþjóða aukizt til muna að
undanförnu. Hafa NATO-menn
í Danmörku og víðar af þessu
þungar áhyggjur.
Að sögn talsmanns danska
flotans var tundurskeyti þetta
af eldri vestur-þýzkri gerð, en í
því voru þó ný miðunartæki,
sem Austur-Þjóðverjunum
hefði þótt fengur í að komast
yfir.
A meðan á atburðum þessum
stóð, munu allir aðilar hafa
haldið ró sinni, en talsmaður-
inn kallaði aðgerðir Austur-
Þjóðverjanna „barnalegar“
Austur-Kvrópuþjöðir hafa stóraukið umsvif sín á Finnska flóanum að undanförnu
rússneska hermenn á æfingum við strendur Pöllands.
FÓTBOLTAUÐIÐ
í FANGELSI
— drápu bílasala
klúbbnum til þess að halda upp
á að einum hafði fæðzt sonur.
Lögreglustjórinn í brasilíska
smábænum Teresína hefur
hneppt allt fótaboltalið
staðarins í fangelsi og ákært
það fyrir að hafa tekið bílasala
úr bænum af lífi án dóms og
laga eftir átök í næturklúbbi.
Sölumaðurinn var barinn og
sparkaður til dauða af
liðsmönnum knattspyrnu-
liðsins, sem fyrir skömmu
komst í fyrsta sæti í deildar-
keppni héraðsins. Sölumaður-
inn hafði unnið það til saka að
skjóta og særa einn liðsmann-
anna þar sem hann var að
lumbra á vændiskonu í nætur-
klúbbnum.
Knattspyrnuliðið, sem um
síðir var allt handtekið af lög-
reglunni, en það var í nætur-
Erlendar
fréttir
REUTER
Bolivía:
Tugir þúsunda
í verkfalli
Að sögn talsmanns ríkis-
stjórnar Bolivíu, hófu um sjö
þúsund námumenn verkfall í
gær til þess að mótmæla því, að
her landsins liefur hernumið
allar tinnámur.
Segir í fréttum frá Bolivíu, að
allir námumenn herteknu
svæðanna hafi yfirgefið vinnu-
siaúi sina. Htri mcnn iiéiúu iii
námasvæðanna og tóku þær
herskildi i gær, stuttu áður en
herforingjastjórnin í Boliviu
lýsti yfir að herlög hefðu tekið
gildi. Var það gert í ljósi þess
sem stjórnin nefnir „stórkost-
legt samsæri um að kollsteypa
efnahag landsins".
Leiðtogar námumanna og
stúdenta hafa verið handtekn-
ir.
Atök þessi hafa sprottið upp
vegna þess, að verkafólki og
námsmönnum þykir ríkis-
stiórnin ekki hafa sýnt hinum
látna herforingja Torres nægi
lega virðingu. Lík Torres var
aciit iu dui iviu 11 a nigcnuuu,
þar sem hann var ráðinn af
dögum nú fyrir skömmu.
Törres hafði verið landflótta í
nokkur ár, eftir misheppnaða
tilraun til þess að koma á
vinstri stjórn í landinu og voru
verkamenn og stúdentar helztu
stuðningsmenn hans.