Dagblaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ — FÖSTUDAGUR 11. JÚNl 197« Kýtt Dínamít: AFTUR AF STAÐ EFTIR MÁNAÐAR TAFIR-3E. NÝTT DÍNAMlT: Frá vinstri Ragnar Sigurðsson, Ingvi iteinn, Sigurjón Skúlason, Rúnar Þórisson, Jóhann Þóris- son og Herbert Guðmundsson. Ljósm.: L.As. „Við erum nú loksins að komast af stað eftir meira en mánaðar tafir,“ sagði Herbert Guðmundsson söngvari hljóm- sveitarinnar Dínamits, eða Nýs Dínamíts eins og hún nefnist nú. „Þessar tafir orsökuðust aðallega af því að Nikki Róberts gekk í Paradís. Þegar við vorum að komast i gang aftur eftir það, sprakk hljóð- himnan í Svavari trommu- leikara, svo að við urðum að fara að leita okkur að nýjum manni.“ Nýju mennirnir í Dínamiti eru þeir Ingvi Steinn píanó- leikari og Sigurjón Skúlason fyrrverandi trommari með Mánum. Einnig hefur verið skipt um bassaleikara. Guðjón Guðjónsson er hættur og kominn til Akureyrar, en í hans stað er kominn Jóhann Þóris- son, sem síðast lék með Dögg. Við spurðum Herbert um ástæðuna fyrir þessum bassa- leikaraskiptum. „Okkur fannst alltaf að Guðjón passaði ekki fyllilega inn í hljómsveitina, þó að hann sé ágætis hljóðfæraleikari. Þar sem okkur bauðst betri maður þá tókum við hann, eins og svo oft vill verða í þessum bransa." Herbert hefur orðið fyrirall- miklum óhöppum með Dínainít síðan hann stofnaði hljómsveit- ina. Hann var spurður að því, hvort hann væri ekki orðinn leiður á öllum skakkaföllunum. „Ef ég væri ekki bjartsýnn að eðlisfari væri ég löngu búinn að selja öll tækin mín og farinn að lifa eins óg venjulegur maður. Ég ætla samt að reyna betur og vona að nú sé Dína- mítið loksins orðið sú hljóm- sveit, sem ég beið eftir að hún yrði.“ Dínamít ieikur i fyrsta skipti eftir breytingar í Tónabæ í kvöld. Annað kvöld kemur hún fram ásamt Paradís í Festi í Grindavík. —AT— « Þannig skipuð átti Dínumít að verða i sumar. Daginn eftir að þessi mynd var tekin var Nikka Róberts boðið í Paradis. Síðar breyttist hljómsveitin meira, þannig að nú eru aðeins tveir af þessum mönnum eftir, — þeir Herbert og Rúnar Þórisson. DB-mynd: R.Th.S. Sigrún Harðardóttir á nýrri plötu Fyrir nokkru kom í verzlanir fyrsta sólóplata Sigrúnar Harðardóttur BA. Platan nefnist Shadow Lady. Útgef- andi er Júdas hf. Sigrún hefur samið bæði lög og texta á plötunni. Undirleik annast hljómsveitin Júdas, ásamt Gunnari Þórðarsyni, Ragnari Sigurjónssyni, Rúnari Georgssyni, Eggert Þorleifssyni flautuleikara og Valgeiri Skagfjörð. Spilverk þjóðanna annast röddun í nokkrum lög- um. Á þessari plötu eru samtals gerði fransarinn Robert C. ellefu lög. Hönnun albúms Guillemette. — AT — „Kátir voru karlar" fjórir Oddf ellowar á plötu Fjórir góðborgarar frá Akra- nesi, þeir Helgi Júlíusson, Hörður Pálsson, Sigurður R. Guðmundsson og Sigurður Ólafsson, hafa nýlega sungið inn á LP-plötu. Kvartett þessi nefnir sig Skagakvartettinn og platan heitir Kátir voru karlar. SG hljómplötur gefa út. Á þessari plötu syngur Skagakvartettinn tóif lög, létt dægurlög með hnittnum text- um.eins og segir á plötualbúm inu. Skagakvartettinn er orðinr. nokkuð gamall eða 9 ára. Þeir félagarnir starfa allir í Oddfellowreglunni á Akranesi og upphaf starfsemi þeirra var það, að þeir skemmtu á árshátíð reglunnar. Síðan hafa þeir skemmt víða og meðal annars í útvarpi og sjónvarpi. SK AOAIt VAWTETTUfN kátír voru karlar Plata þeirra er tekin upp í Tóntækni. Upptökumaður var Sigurður Árnason, en Ölafur Gaukur sá um útsetningar og hljóðblöndun ásamt Sigurði. — AT — SÓLÓPLATA JÓHANNS HELGASONAR KOMIN ÚT Hljómplötuútgáfa Svavars Gests, SG-hljómplötur, hefur nú á nýjan leik hafið útgáfu á hinni æðri poppmúsík, ef svo mætti að orði komast. Fyrsta platan er með Jóhanni Helga- syni — Jóa í Change — og nefnist Ég gleymi þér aldrei. Á þessari plötu Jóhanns koma fram fjöldamargir valin- kunnir tónlistarmenn. Jóhann sér sjálfur um allan gitarleik og leikur einnig á bassa í nokkrum lögum. t hinum lögunum leikur Sigurður Árnason á bassa. Trommuleikararnir eru þrir, Alfreð Alfreðsson, Sigurður Karlsson og Ásgeir Öskarsson. Hljómborðsleikurinn er í hönd- um Jakobs Magnússonar, Árna ísleifs og Péturs kapteins Kristjánssonar. Þá þenur Grettir Björnsson harmoníku i einu lagi. Allstór lúðrasveit kemur fram á Ég gleymi þér aldrei. Blásararnir eru Rúnar Georgs- son, Kristinn Sigmarsson, Kristinn Svavarsson, Björn R. Einarsson og Bjarni Guð- mundsson túbuleikari. Jóhann Helgason sér sjálfur um allan söng á plötunni og útsetur hana einnig, nema hvað hann naut aðstoðar Kristins Sigmarssonar í útsetningum fyrir blásturs- hljóðfærin. Á Ég gleymi þér aldrei eru tíu lög, öll eftir Jóhann. Upptakan fór fram í Tóntækni, en pressun og skurður í Soundtek í New York. Upptökumaður í Tóntækni var Sigurður Árnason og hann og Jóhann sáu um hljóðblöndun. — ÁT —

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.