Dagblaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 7
DAGHLAÐIÐ — FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1976
7
Kynlífshneykslið í Washington:
WAYNE HAYS
FLUTTUR MfÐ-
VITUNDARLAUS
Á SJÚKRAHÚS
Þingmaðurinn Wayne Hays,
aðalmaðurinn í kynlffs-
hneyksli því er nú tröllríður
Washington, hefur verið lagður
inn á spítala eftir að hann tók
of stóran skammt af svefntöfl-
um í gær.
Svefnpillur þessar hefur þing-
maðurinn orðið að taka í þó
nokkurn tíma vegna maga-
kveisu sem hefur þjáð hann í
nokkur ár.
Enn er auðvitað ekki vitað,
hvort þingmaðurinn tók
þennan stóra skammt af ásettu
ráði eða af vangá. Eiginkona
þingmannsins kom að honum
meðvitundarlausum í gærmorg-
un og var hann fluttur í skyndi
á sjúkrahús. Hann hefur enn
ekki komið til meðvitundar, en
iæknar segja, að hjartsláttur
hans sé eðlilegur og hann sé
ekki í lífshættu.
Hinn áhrifamikli formaður
stjórnunarnefndar fulltrúa-
deildar þingsins hefur verið
ákærður fyrir að hafa ráðið
ungfrú Elisabet Ray sem einka-
ritara sinn fyrir 14 þúsund doll-
ara á ári, en í stað einka-
ritarastarfa segist ungfrúin
hafa verið höfð að leiksoppi.
Þessu h'etur Hays staðfastlega
neitað, en þó viðurkennir hann
að hafa staðið í ástarsambandi
við ungfrúna.
Hinn áhrifamikli þingmaður
Wa.vne Hays er enn i dái eftir
að háfa tekið inn of stóran
skammt af svefnpilium.
Elisabet Ray hefur nú gefið út
bók um ævintýri sin i Washing-
ton.
FYRSTA RÚSSNtSK-AMíRÍSKA
KVIKMYNDIN FRUMSÝND
Eyrsta kvikmyndin, sem
Rússar og Bandaríkjamenn
hafa gert í sameiningu, „The
Bluebird", var frumsýnd í
Moskvu í gærkvöld fyrir boðs-
gesti í kvikmyndahúsi verka-
manna þar í borg.
Bandaríkjamaðurinn George
Cukor, sem leikstýrði mynd-
inni, leikkonan Cecily Tyson og
rússneska leikkonan Margarita
Terekhova voru viðstödd frum-
sýninguna, en flestir leikendur,
þar á meðal Elisabet Taylor,
Jane Fonda og ballettdansarinn
Nadezhda Pavlova, voru fjar-
verandi.
Myndin er byggð á ævintýri
eftir belgíska rithöfundinn
Maurice Maeterlinck og var
tekin í Leningrad fyrir sovézka
kvikmyndafyrirtækið Lenfilm
og 20th Century Fox félagið
ameríska. Hefur myndinni
þegar verið dreift um Banda-
ríkin.
Tæknileg vandamál töfðu
framkvæmdir og töluverðai
breytingar voru gerðar á hlut-
verkaskrá og stjórnendum
meðan á tökunni stóð.
Heimurinn hefur áður orðið vitni að hryðjuverkum Palestinumanna. Arið 1972 létu 11 íþróttamenn
frá ísrael lífið á Olympíuleikunum, eftir að þeir höfðu verið gíslar skæruliða.
ÍSRAítSMlNN ÓTTAST HERMD-
ARVERK PAIESTÍNUMANNA
Israelsmenn óttast nú mjög
að Palestínuskæruliðar muni
vinna hermdarverk í ísrael, eða
einhvers staðar þar sem tsraels-
menn eiga hagsmuna að gæta,
til þess að vekja athygli á stríði
því, sem þeir eiga í í Líbanon.
„Palestínumenn eru að
berjast við Sýrlendinga um
stjórnmálalegt líf sitt svo og
tilverurétt," segir talsmaður
israelska varnamálaráðueytis-
ins.
„Ef Sýrlendingar vinna sigur
i Líbanon, munu Palestínu-
menn missa þann stað einan í
Mið-Austurlöndum, þar sem
þeir hafa notið hvað mests
frelsis að undanförnu, vegna
tiltölulegá veikrar stjórnar í
Líhanon."
„Af biturri reynslu vitum
við, að í hvert skipti, sem
Palestínumönnum finnst
sem halli verulega undan fæti,
reyna þeir að vinna hermdar-
verk til þess að vekja athygli á
málstað sínum og vinna traust í
heimi Araba," sagði talsmaður-
inn. „Við óttumst að slíkt kunni
að gerast i náinni fraintíð.“
ALLT ÍFÓKUS HJÁ OKKUR
NOTIÐ
fílmuna
í ferðalagið
FÓkuS, Lœkjargötu 6b, sími 15555
Auglýsing
Af marggefnu tilefni vekur heilbrigðismálaráð athygli á
því, að samkvæmt ákvæðum 39. 2. gr. heilbrigðisreglu-
gerðar er bannað að hleypa hundum, köttum eða öðrunf
dýrum inn í matvöruverzlanir, veitingastofur eða önnur
fyrírtæki, þar sem framleiðsla eða dreifing matvæla fer
fram.
Leyfishafar ofangreindra fyrirtækja bera ábyrgð á a£
fyrirmælum þessum sé framfylgt.
fReykjavík, 10. júní 1976,
Heilbrigðismálaráð
Reykjavíkurborgar
Tónlist
T ónmenntarkennarar
Skólastjóri óskast að Tónlistarskóla
A-Húnvetninga, Blönduósi nk. haust.
Vinsamlegast talið við Jón Sigurðsson
í síma 41404 eða Jónas Tryggvason í
síma 95-4180.
Útboð
Stjórnir húsfélaganna Dúfnahólum 2, 4 og 6 óska eftir
tilboðum í fullnaðarfrágang lóða við Dúfnahóla 2, 4 og 6.
(Jtboðsgögn verða afhent á verkfræðistofunni Hönnun
hf. Höfðabakka 9 gegn 3000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sama stað og verða þau opnuð þar
ki. 11 miðvikudaginn 23. júni 1976.
i|A B|j|||| ■ | Höfðabakki 9 Reykjavik
nUNNUN Sími 84311
Skrifstofustarf
Ríkisstofnun óskar eftir að ráða starfsmann ul
skýrslugerðar, vélritunar og atmennra skrifstofustarfa.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
f.vrri störf leggist inn á afgr. blaðsins fyrir 20. þ.m.
merktar „530“.