Dagblaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 8
Gróska í íslenzkum kvikmynda- iðnaði: DAGBLAÐIÐ — FÖSTUDAGTTR 11. JÚNÍ 197fi TVÆR KVIKMYNDIR TEKNAR f SUMAR Um þessar mundir er unniö að gerö að minnsta kosti tveggja kvikmynda hér á landi. Sjónvarpið gerir einn þátt af níu í myndaflokki, sem Noregur, Danmörk og Svíþjóð taka einnig þátt í. Flokkur þessi nefnist Projekt 44 og fjaílar um styrjaldarárið 1944 frá sjónarhóli barns. Hin myndin er gerð af Reyni Odds- syni kvikmyndagerðarmanni og nefnist Morðgáta. Dagblaðið leitaði í vikunni upplýsinga um gerð þessara mynda. Myndataka Projekt 44 hefst eftir viku. „Kvikmyndataka Projekt 44 hefst í næstu viku,“ sagði Jón Þórarinsson tónskáld og yfirmaður Lista- og skemmtideildar sjónvarpsins í samtali við DB. „Þátturinn verður um hálftíma langur og verður tekinn til sýninga með öllum flokkum næsta vetur.“ — Hvar verður myndin tekin? V „Hún verður að miklum hluta tekin í stúdíói sjónvarpsins. Einnig verða nokkrar útimyndatökur, en ég kæri mig ekki um að gefa upp hvar þær fara fram til þess að alls konar fólk flykkist ekki að og trufli kvikmyndatökuna.“ — Kosta íslendingar sjálfir að öllu leyti gerð þessa þáttar? „Já, að öllu leyti,“ svaraði Jón. „Við fáum hins vegar hina þættina átta til sýningar hjá okkur ókeypis. Þessi mynda- fiokkur verður sýndur á öllum Norðurlöndunum í vetur nema i Finnlandi, sem var ekki með að þessu sinni." — Hve mikið kostar gerð islenzka þáttarins? „Það vil ég ekkert segja um.“ — En segðu mér þá, hverjir verða helztu leikararnir? „Þnð eru allmargir sem þarna koma fram. Aðal- leikararnir hafa vitanlega verið valdir, en ég sé ekki að lesendur séu neinu bættari þó að þeir fái að vita hverjir það eru.“ — Er það þá einnig leyndarmál Hjallfískur h/f Sef brotaharðfisk og mylsnu nœstu daga. Opið frá kl. 8 - 6, laugardaga 1 - 5 Hjallfískur h/f Hafnarbraut 6 — Kópavogi. 0% 'i' Reynir Oddsson, sá með gleraugun, stjórnar töku myndar sinnar. Leyndardómur mikill hvílir yfir allri tökunni. Meðal leikara ma sjáþau Guðrúnu Asmundsdóttur og Steindór Hjörleifsson. komizt er hún komin í fullan gang á ný. I þessari viku voru tekin upp atriði í veitinga- húsinu Klúbbnum, þar á meðal af dansleik i diskótekinu þar. Blaðamaður DB fór fram á að fá að vera viðstaddur er Klúbbatriðin voru tekin upp. Því var algjörlega synjað á þeirri forsendu að engar upplýsingar um myndina mættu berast til blaða til að forðast umtal. Einnig vildi framleiðandinn, Reynir Odds- son, forðast að verða fyrir á- troðningi forvitinna borgara við töku myndarinnar. Dagblaðinu tókst að fá þær fregnir eftir óopinberum leiðum að Morðgáta fjallaði í stuttu máli um salernispappírs- innflytjanda, sem væri í þann veginn að gera samning við ríkið um að selja því allan þann pappír, sem stofnanir þess þurfa á að halda. I veizlu, sem innflytjandinn heldur fulltrúa ríkisins til heiðurs, lendir allt í háalofti og gestir yfirgefa sam- kvæmið í fússi. Er gestirnir eru farnir tekur maðurinn sig til og slær eiginkonu sína í rot. Stuttu síðar kemur dóttir hans heim af dansleik og gerir maðurinn sér þá lítið fyrir og reynir að nauðga henni. Er hann er kominn ofan á dótturina, raknar eiginkonan úr rotinu, og sér aðfarir manns síns. Hún gerir sér lítið fyrir, naér I heljarmikla búrbreddu og stingur henni i bakið á manninum. Að þessum verknaði loknum taka kónan.og dóttirin líkið og aka því út í hraun. Myndinni lýkur síðan er þær aka heim á leið eftir að hafa komið manninum fyrir í gjótu. — Margt fleira fléttast inn I söguþráðinn, sem ekki er hægt að geta hér. Reynir Oddsson er höfundur handritsins, framleiðandi, kvik- myndatökumaður og leikstjóri. Aðstoðarleikstjóri er Hörður Torfason.Með aðalhlutverkin fara Steindór Hjörleifsson, Guðrún Ásmundsdóttir og ung stúlka, sem heimildarmaður DB vissi ekki nafn á. -AT- hver verður leikstjóri þáttarins? „Nei. Leikstjórinn er Agúst Guðmundsson og höfundur handrits Stefán Júlíusson." Við þetta fróðlega spjall við Jón Þórarinsson yfirmann LSD sjónvarpsins má því bæta, að handrit Stefáns Júlíussonar fjallar um tvö systkini og líf þeirra í lok seinni heims- styrjaldarinnar. Þar kemur einnig við sögu móðir barnanna, amma, nokkrir hermenn og fjöldi almennra borgara. Dagblaðið hefur fregnað að Hafnarfjörður hafi orðið fyrir valinu til útimyndatöku. Mörg húsanna í gamla bænum þar munu henta vel til myndatöku, þar sem þau eru svo til óbreytt frá stríðsárum. Morðgáta — hressileg hasarmynd Kvikmyndun Morðgátu hófst síðastliðið sumar. I vetur lá starfsemin að mestu leyti niðri, en eftir því sem næst verður Áður vor það geirfugl og Skarðsbók: Nú fara sektirnar til menningar- og mannúðarmóla Frægt var, þegar peningum úr sjóði, sem safnaðist við inn- heimtu sekta af „gúmmítékk- um", var varið til að kaupa geir- fugl og Skarðsbók. Nú hefur ekki lengi frétzt um slikt. Hvað er nú gert við peningana? „Þeim er varið til að styrkja menningar- og mannúðarstarf- semi.“ sagði Guðmundur Hjart- arson bankastjóri i viðtali við Dagblaöið. Hann sagði, að hlut- v.erk sjóðs þessa væri mjög þröngt afmarkað og skyldi fé úr honum varið til framan- greindra málefna. Sem dæmi um menningar- starfsemi, sem hefði verið styrkt, nefndi hann Hið ís- lenzka bókmenntafélag og bókasafn á Bessastöðum. Þá hefur fé verið varið til hjálpar- félaga, svo sem Öryrkjabanda- lagsins og Rauða krossins. Fé hefur einnig farið til hjóna- garða, að sögn Björns Tryggva- sonar aðstoðarbankastjóra. Björn sagði, að sektir hefðu verið innheimtar í sjóð þennan síðan 1964. Að meðaltali væri sektargjaldið um ellefu pró- sent. Stjórn sjóðsins skipa þrír bankastjórar Seðlabankans. auk bankastjóranna Helga Bergs og Stefáns Hilmarssonar frá viðskiptabönkunum. Guðmundur Hjartarson sagði, að nú væri í athugun, hvað yrði um sjóðinn, eftir að Reiknistofa bankanna fer að fá „gúmmítékkana" samdægurs frá bönkunum. Allt sem að þessu lyti væri í athugun. Stjórnin kemur saman einu sinni eða tvisvar á ári til að úthluta úr sjóðnum. Ekki höfðu Guðmundur og Björn svar á reiðum höndum um það hversu miklar fjár- hæðir kæmu í sjóðinn á ákveðnu tímabili. en þær færu stöðugt vaxandi. — HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.