Dagblaðið - 24.06.1976, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 24.06.1976, Blaðsíða 3
DACBLADlt) - KIMMTllDAíilIK 24. JÚNÍ 1976. N 3 GREIÐSLAN TYNDISTI KERFINU — gilda ekki sömu reglur hjá bönkum um innlegg og úttekt? Skúli Skúlason Kópavogi hringdi: Þegar ég ætlaði að nota simann minn þann 22. júní var hann ekki nothæfur. Mér þóttu þetta mikil undur, ekki gat það verið að búið vieri að loka vegna þess að ég hafði greitt reikning minn 15. júní. Reikningurinn var greiddur í gíró í Otvegsbankanum í Kópa- vogi. Eg fór því á stúfana og athug- aði hverju þetta símaleysi sætti. Jú, símanum hafði verið lokað vegna þess að greiðsla hafði ekki verið innt af hendi, sögðu þeir. Ég lagði því leið mína i Útvegsbankann og spjallaði við þá þar. Þar fékk ég þau svör að þar lægju ekki upp- hæðir ncma í mesta lagi dag- langt. Þar sem ei er iangt frá bankanum og út i pósthúsið lá leiðin þangað næst. Þar var mér sagt að þetta gæti ekki staðizt. þeir hefðu ekki fengið neitt frá bankanum. Sem sagt, greiðslan hafði týnzt í kerfinu margumtalaða. Mér finnst þetta nú dálítið hart, að greiða simareikninga og svo týnist allt í kerfinu og enginn kannast við neitt. Allir vísa hver á annan. Þetta kostar mikla og óþarfa fyrirhöfn fyrir fólk sem á alls ekki að eiga sér stað. Ef svona gírógreiðslur týnast og komast ekki til skila eða þá ef bankarnir nota sér þessa peninga í veltu. þá finnst mér þetta missá marks. Bankarnir eru ekki seinir á' sér, ef peningar eru teknir út hjá þeim, og því á sama regla að gilda ef um innlegg er að ræða. -Póstur og simi innheimtir nú greiðslur með gíró-seðlum en það er miður ef þær týnast i kerfinu. Listin ekki bora í Reykjavík — Litli leikklúbburinn ú Bfldudal Jón Kr. Ólafsson skrifar: .. t grænum Edensgarði gerðist saga sú“, var upphaf að dægurlagatexta sem Guðbergur Auðunsson söng á sínum tíma. En á Bíldudal gerðist hins vegar sá atburður að Litli leik- klúbburinn á Isafirði kom fyrir stuttu og sýndi söngleik eftir Hafliða Magnússon, sem er Þessi m.vnd er frá heimabæ Litla leikklúbbsins, ísafirði. einn af okkar beztu listamönn- um. Hann teiknar, semur og málar af sannri list. í litlum byggðarlögum eins og hér, er fleira til en slor og grútur með allri virðingu fyrir því. Mér finnst sjálfum að það þurfi að koma fram í fjölmiðl- um þegar svona hlutir gerast þvi hér úti á landsbyggðinni eru líka listamenn eins og á Stór-Reykjavíkursvæðinu. En það er heldur ekki legið á liði sínu að tala um það sem þar gerist, í okkar yndislegu borg. Sabína hlaut góða dóma hér, eftir því sem ég bezt veit. Vona' ég, að svo megi verða í framtíð- inni. Veldur garðaúðunin fleirum skaða en skordýrunum? Haukur Bent Guðjónsson hringdi: Ég er búsettur uppi í Árbæjarhverfi þar sem fuglalíf hefur verið mjög fjölbreytt og skemmtilegt á sumrin. Á ég þar sérstaklega við skógarþrestina sem vekja okkur á hverjum morgni með söng sínum svo að það er bókstaflega unun að vakna. Nú er sá tími þegar úðun garða stendur einna hæst og hefur þá svo brugðið við að fuglarnir flýj*a á brott eða jafnvel deyja. Nú langar mig til að vita hvort ekki sé til einhver önnur leið til varnar gegn skordýrum, sem ekki kemur þannig niður á fuglunum. Dagblaðið sneri sér til Náttúrufræðistofnunarinnar með þessa fyrirspurn, en þar voru fáir til svara. Þó benti einn góður maður okkur á að mjög mismunandi væri hversu sterk þessi skordýraeitur væru. Sum þeirra gætu reynzt fuglum hættuleg, en önnur ættu að vera þeim algerlega skaðlaus. Þetta er eflaust vandamál sem kemur víða upp í hús- görðuin og væri gaman ef náttúrufræðingar og aörir þeir er vit hafa á, létu í sér heyra hér í lesendadálkunum i þessu sambandi. Er þessi fallegi og skcmmtilegi fugl, skógarþrösturinn, líka fórnarlamb skordýravarnanna? ✓ Spurning dagsins Hver heldurðu að verði nœsti forseti Bandaríkjanna? Kristinn Arnason nemi: Það verðurFord. Eg er viss um að Bandarlkjamenn breyta ekki til. Hann hefur einnig staðið sig svo vel í starfinu. Ömar Elisson vélstjóri: Reagan, ég er alveg viss um að hann vinnur Ford hefur líka gengið illa í forkosningunum. Sigrún Ó. Boysen ritari: Ég held nú að Ford fari með sigur af hólmi. Hann hefur líka staðið vel i sínu stykki. Gísli Guðmundsson verzlunar- maður: Ætli Carter vinni ekki. Hann hefur alla vega staðið sig mjög vel í forkosningunum og hefur fjöldann allan af fulltrúum að baki sér. Stefán Gissurarson, vinnur hjá Sjóvá: Þeir skipta ekki um for- seta þetta árið, það er ég alveg viss um. Forsetinn mun heita Ford næstu árin. Jófríður Leifsdóttir, vinnur á Hvanneyri: Ætli þeir skipti nokkuð, ég held að það verði Ford sem sigrar í ár.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.