Dagblaðið - 24.06.1976, Blaðsíða 15
DACiBI.AtJli) — !• IMM I'UDACUK 24. JUNÍ 1976.
15
DB-MYNDIR
ÁRNIPÁU
Það þarf úðara, trjáklippur, grasklippur og margt fleira. Það sem er á þessari mynd fæst hjá
Sambandinu.
ÞAÐ KOSTAR EKKERT
— oð fá upplýsingar hjá Byggingaþjónustu arkítektafélagsins
Það þarf ýmislegt til garðyrkj-
unnar bæði eitur og áburð eins
og við sjáum hér. Substral er
blómaáburður, hitt er eitur-
úðari, hvort tveggja til hjá
Sölufélaginu.
sem liggja saman, séu úðaðir á
sama tíma svo að sníkjudýrin,
sem lifa góðu lífi í óúðaða garð-
inum, komi ekki askvaðandi
eftir smátima í úðaða garðinn.
Stór brúsi með Substral
blómaáburði var á boðstólum
fyrir 2.430 krónur. Kantrenn-
ingur úr plasti kostar 960
krónur með 10 metrum í rúllu,
en þeir, sem fást við ræktun,
kannast við hvernig grasrótin
teygir sig inn í öll beð.
Renningurinn er ætlaður til
þess að varna því. Voldugt
statíf fyrir garðslöngu kostar
9.740 krónur. stunguskófla
kostar 2.505 krónur, kantskeri
1.465, gaffall 2.665, garðhrífa
1.845, plastbakki til þess að
planta úr blómum 140, gras-
klippur 1.020 og 1.210 og tré-
klippur kosta 3.025 krónur.
Ginge-vélsláttuvél kostar
37.310 krónur 15 tommu breið,
og Gingevélsláttuvél 18 tommu
með drifi og skúffu á
hjólum kostar 48.235 krónur.
Handsláttuvélar fást einnig,
þótt ekki væru þær á sýning-
unni, og kosta þær frá kr. 11
þús. upp í rúmar kr. 16 þús.
Auðvitað eru svo til hjólbörur,
80 lítra á 8.765 og 100 1 á 12.960
krónur, þá fást einnig litlar
handskóflur — klórur og gaffl-
ar á kr. 455 stykkið.
petta eru auðvitað engan
veginn tæmandi upplýsingar
um verkfæri. sem notuð eru við
garðyrkjuna, en po alla vega
það helzta og sumu getur
maður, sem betur fer, sleppt.
—EVI
Þetta volduga statíf undir
garðslönguna fæst hjá Sölu-
félagi garðyrkjumanna.
Einnig upplýsingar
um tœknileg atriði
Það kennir margra grasa hjá
Byggingaþjónustunni varðandi
byggingar. Þar má sjá gólf-
dúka, parket, hurðir, utanhúss-
klæðningu, blöndunartæki,
málningú, harðvið og fleira og
fleira. Einnig eru veittar upp-
Það er margt sem þarf að nota
þegar loksins er búið að koma
sér upp garði. Hérna sýnir
Óskar ukkur þægilegar gras-
klippur frá Sambandinu.
lýsingar um ýmis tæknileg
atriði.
Við fáum að vita að það séu
hinir ýmsu framleiðendur og
innflyt jendur sem standi
straum af kostnaði við þessa
þjónustu með þvi að leigja sér
pláss fyrir vörur sínar. ,.Jú, við
reynum að velja og sýna ekki
nema það sem er gott en það
getur oft verið erfitt," segir
Óskar.
Opið er 10—12 og 1—6.
Þegar sérsýningar eru á virk-
um dögum eru þær opnar 2—1.0
og lika á helgum. Þá gefst
mönnum samtímis að skoða allt
sem Byggingaþjónustan hefur
á sínum snærum.
Fyrirhuguð er í ágúst sýning
seni nefnist„l.ýsing," „Baðher-
bergið" verður í septemher og
„Gólf' í októher Nýlega er af-
farin að teygja úr sér. Þá er*
betra að fara að fylgjast vel
nteð maðkinum og Iúsinni ef
eitthvað á að verða eftir af iauf-
inu sem er hið mesta góðgæti í
þeirta auguiij svo ekki sé talað
um iiinn Iífseiga arfa sem menn
stríða við allt sumarið, vopnaðir
alls konar áhöldum, og marga
má líka sjá skriðandi á fjórum
fótum reytandi þetta bölvaða
óféti.
Hvað kostar svo
að halda í horfinu?
Hvað kostar svo að eiga
græjur til að halda öllu í
horfinu?
Hjá Sambandinu gaf að lita
tvær vélsláttuvélar, Tornado
með poka til að safna í grasi á
handskóflu á kr.
686 hvert stk., beitta sköfu
með skafti á 969, moksturskófl-
ur á kr. 1274 og kr. 1236, malar-
skóflu á 2.777, ristuspaða á kr.
2.020, alls konar grasklippur
frá kr. 980 í 2.493 og eina sem
leit út fyrir að vera ákaflega
þægileg, með skafti, á kr. 1.554.
Þá eru þarna hinar ómissandi
hjólbörur á kr. 8.722, 90 lítra,
og líka fást 120 1 á kr. 12.520 og
15.096.
Hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna sáum við garðeitur-
úðara á -kr. 8.460 en margir eru
farnir að úða sjálfir. Sumir
segja að slíkt sé ágætt á meðan
trén eru lítil en betra sé að láta
hina sérstöku eiturúðunar-
menn um þetta þegar trén eru
orðin stór og þéttvaxin. Alla
vega er nauðsynlegt að garðar,
Óskar Guðmundsson framkvæmdastjóri svarar spurningu hjóna úr
Re.vkjavík um sprungur í húsum. Því miður nýtir fólk ekki bygg-
ingaþjónustuna sem skyldi. Það er eins og það sé hrætt við að verið
sé að selja því eitthvað.
staðin sýning er nefndist
„Sumar-annir“ og voru meðal
annars sýnd alls konar garð-
yrkjuáhöld frá Sambandinu og
Sölufélagi garðyrkjumanna.
Ekki nóg að búið
sé að tyrfa og
setja niður — nú
kúrnar fyrst gamanið
Það er sem sé ekki nóg að
vera búinn að tyrfa og setja
niður tré og blóm. Nei, nú
byrjar vinnan fyrir alvöru.
Auðvitað hafa allir borið vel á
tii þess að grassprettan verði
góð. Sá böggull fylgir þá líka
skammrifi að það þarf alltaf að
vera að slá, enda verður gras-
flöturinn, ekki fallegur öðru-
vísi. Og trén, þau eru loksins
kr. 67.183, Rotor með Bricks-
mótor og poka, 18” kostar"
37.917, og eins fæst með
Asperamótor á 34.205 krónur.
Þá var einnig handsláttuvél,
16“, á 8.163, hentug fyrir þá
sem vilja fá sér svolitla leikfimi
um leið og þeir slá blettinn,
fyrir utan að spara stórfé í
stofnkostnaði. Auk þess er
engin mengun hvað þá hávaði
að ráði af slíkri vél. Öskar
fræddi okkur á því að mun
léttara væri að slá með þessum
handsláttuvélum, sem fram-
leiddar eru í dag, en fyrri tíma
sláttuvélum. Meira að segja
gæti maður sparað tíma því
hvorki þarf að sækja bensín né
koma henni í gang.
Trjáklippur sáum við á kr.
708, skóflu og klóru á kr, 441,
úðara á kr. 416, úðara á 555.-
handgaffal, handklóru og.
„Nýjasta efnið til viðgerða á
sprungum í steinveggjum
hefur Ólafur Kr. Sigurðsson &
Co. Tilraunir voru gerðar með
þetta efni í húsi í Vestmanna-
eyjum, sem var illa farið eftir
gosið, og reyndist það mjög
vel.“
Það er Öskar Guðmundsson
framkvæmdastjóri hjá Bygg-
ingaþjónustu arkítekta á
Grensásveginum, sem er að
fræða reykvísk hjón um
sprunguviðgerðir þegar okkur
Dagblaðsmenn bar að garði. Og
hann bætir við að menn frá
fyrirtækinu komi og meti
skemmdir og gefi fast verðtil-
boð.Geti hann því hiklaust mælt
með þessu fyrirtæki, eins og
raunar fleiri. Og hann nefnir
Kísil. „Hins vegar,“ segir Óskar
„má vara sig á mörgum þeim
sem auglýsa í blöðunum
sprunguviðgerðir og láta það
jafnframt fylgja að á þeim sé
tíu ára ábyrgð, svo eru þeir
kannski hættir allri vinnu við
viðgerðir eftir eitt ár.“
Hjónin ætla að fara að taka
upp budduna og verða alveg
hissa þegar þau heyra að öll
upplýsingastarfsemin sé
ókeypis.
Óskar segir okkur að
þjónustan sé búin að vera við
lýði í 16 ár. Því miður noti fólk
sér hana ekki sem skyldi. Það
sé líklega helzt hrætt við að það
sé verið að selja því eiíthvað.
Það sé hins végar mesti mis-
skilningur. „Við reynum okkar
bezta til að plata ekki nokkurn
mann."