Dagblaðið - 24.06.1976, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 24.06.1976, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1976. Q VALHÚSASKÓLI ^ Seltjarnarnesi Valhusaskóli, Seltjarnarnesi, auglýsir eftir kennurum frá og með 1. september 1976 að telja í eftirtöldum greinum: íslenzku, stærðfræði, eðlis- og efnafræði, íþróttum stúlkna og myndíð. Ums>óknir sendist skólastjóra Valhúsaskóla, Ólafi H. Óskarssyni, Logalandi 16, R., sími 30871, eða Valhúsaskóla, Seltjarnarnesi, sími 27744 eða 27743. Skólastjóri. Blaðburðarbörn óskast strax í eftirtalin hverfi: Hverfisgata (Reykjavík) Garðabœr Silfurtún Uppl. í síma 22078 iBLADIÐ sýningarsalurinn Tílsölu: Fiat 126 ’74 550 þús. Fiat 126 ’75 600 þús. Fiat 125 Spccial ’71 450 þús. Fiat 125 Berlina ’72 580 þús. Fiat 125 P ’72 450 þús. Fiat 125 P ’74 700 þús. Fiat 127 ’72 400 þús. Fiat 127 ’73 550 þús. Fiat 127 ’74 650 þús. Fiat 128 ’71 320 þús. Fiat 128 ’72 460 þús. Fiat 128 ’73 570 þús. Fiat 128 ’74 730 þús. Fiat 128 ’75 900 þús. Fiat 128 rallv ’74 800 þús. Fiat 128 rally ’75 950 þús. Fiat 128 rallv ’76 1150 þús. Fiat 132 '73 950 þús. Fiat 132 ’74 1100 þús. Fiat 132 GLX ’75 1350 þús. Ford Escort '74 750 þús. Toyota Carina '74 1250 þús. Datsun 180 B ’72 1200 þús. Austin Mini '73 480 þús. Citroen GS 1220 '74 1350 þús. Lanzia Beta '74 1800 þús. FIAT EINKAUMBOÐ A ISLANDI Davíð Sigurðsson h.f., SÍÐUMULA 35, SÍMAR 38845 — 38883 | Hinar bjartari hliðar gossins: Nú eygja þeir hita- veitu, Eyjamenn! „I fyrsta áfanga verða tengd inn 30 hús auk sjúkrahússins og er vonazt til að því verki verði lokið i haust,“ sagði Páll Zóphaníasson, bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum. í Eyjum standa nú yfir miklar framkvæmdir í hitaveitumálum. I næsta áfanga er fyrirhugað að tengja í vesturbæinn nýja. Húsin sem þar hafa verið byggð eru án kynditækja. Hitaveitan í Vestmannaeyjum er sérstæð fyrir þær sakir að hit- inn í hrauninu er notaður til að ylja mönnum. Framkvæmdum er þannig háttað, að 20 metra djúpir brunnar eru grafnir í hraunið. t þá eru lögð holræsarör, sem tengj- ast inn á miðstöð. í þeirri stöð er stakkur þar sem komið hefur verið fyrir hitaflötum. Heita loft- ið úr hrauninu safnast saman í miðstöðinni. Gufan sezt á hitaflet- ina og hitar þá. Gegnum hitaflet- ina er síðan dælt vatni sem sjóð- hitnar. Heita vatnið er siðan leitt aftur inn 'í bæinn. Þetta er lokað kerfi sem er tvöfalt eins og önnur miðstöðvarkerfi. Vestmannaeyingar ætla ekki að lenda í vandræðurp ef eitthvað bilar í hraunhitaveitunni. Komið Hér sjást þeir Gísli Guðlaugsson til vinstri og Hlöðver Johnsen vera að leggja rör heim að húsi einu. hef ur verið fyrir hitakatli í að grípa til ef í nauðirnar rekur. vesturbænum, sem unnt verður —bA Útlón Útvegsbankans jukust lítið Tekjuafgangur Utvegsbankans nam 73 milljónum á síðasta ári. Innlán í heild jukust um 17,9 af hundraði, en útlánin um aðeins 7,8 af hundraði. Olli þar mestu, að útlán útibúa bankans jukust um aðeins 1,8 af hundraði, en útlán aðalbankans jukust um 17,1 af hundraði. Innlánin jukust í heild um 833 milljónir og námu um áramót 5.478 milljónum. Utlánin í heild jukust um 591 milljón og námu um áramótin 8.139 milljónum. 52,7 prósent útlánanna fóru til sjávarútvegs 14,8 prósent til verzlunar, 11,4 prósent til iðnaðar og 21,1 prósent til annarra greina. Af hagnaði var 30 milljónum ráðstafað til varasjóðs, 15 milljón- um til afskriftasjóða, 2,1 milljón- um til húsbyggingarsjóðs, 19 millj. til afskrifta fasteignareikn- ings og 6 millj. til eftirlaunasjóðs starfsmanna bankans. Bankinn greiddi 75 milljónir í skatt af gjaldeyrisverzlun og rúmar 2 milljónir í landsútsvar. —HH «C Það er engin furða þótt menn brytu heilann um hvernig nota mætti alla þessa gufu. Gufuþrýstingsmælir við hraunið. Það gerist alltaf eitthvað Heimsókn ó snyrtistofu — Andlitslyfting ón hnífs — Sérfrœðinqur snyrtir tvœr konur fyrii sem alls ekki eru nein svín — Sveinn ó Vellinum og sveinar hans — Sakamólasaga — Krossgóta — Póstur — Stjörnuspó — Draumar — Tœkni — Matur — í þessari Viku:

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.