Dagblaðið - 24.06.1976, Blaðsíða 8
DAGBr,AÐTÐ_— FIMMTUDAGUR 24. JtJNÍ 1976.
Var nauðsynlegt að fara
í kappakstur ó 140 km
hraða í Fossvoginum?
utvoow My|orwr htw:
LÖGREGUN Á140 KM
HRAÐAENÍSUNDURDRÓ
Slutlur en nUiu •lllnsa-
Mkur V.rí l irrrinMl á
Halnarf|ár«*nr>álmun nuUc
Getur verið að lögreglan hafi
með því að auka hraðann, æst
drukkna unfilinfía á stolnum bíl
til að aka enn hraðar? Af
hver.ju var ekki reynt að kalla
til aukalið og sitja fyrir bíl pilt-
anna þar eð þeir gátu ekki farið
af veginum?
Frétt Dagblaðsins og m.vndir
af endalokum eltingarleiks lög-
reglunnar við tvo pilta, annan
16 ára og hinn 18 ára og drukk-
inn, hefur vakið mikla athygli.
Piltarnir höfðu stolið bílnum
við Umferðarmiðstöðina og
þeirra varð fyrst vart er þeir
óku á miklum hraða suður
gamla Hafnarfjarðarveginn.
Lögreglan hóf þegar eltinga
leik, sem endaði með því að
ökumaðurinn á stolna bílnum
rnissli stjórn á honum og
hentist bíllinn lit í skurð. Fyrir
einhverja mildi sluppu piltarn-
ir lifandi.
Kom fram i fréttinni, að lög-
reglumennirnir töldu sig hafa
verið á allt að 140 km hraða, er
mest var, en þó hefði dregið
sundur með bílunum. Eins kom
fram að bremsuförin eftir bíl
piltanna hefðu mælzt 150 m og
um tíma virtist bíllinn hafa
verið á tveim hjólum.
Nú hafa margir haft sam-
band við blaðið, þar á meðal
lögreglumenn, og spurt hvort
þarna hafi verið rétt að farið.
Sérstaklega vildu lögregluþjón-
arnir benda á það, að yfirleitt
væri það skoðun þeirra, að
stofna ekki lífi og limum allra í
hættu með svo gífurlegum
akstri — handhægt hefði verið
í þetta sinn að nota talstöð og
kalla til meira lið, sem síðan
hefði getað króað bifreiðina af,
í stað þess að æsa drukkna
unglinga til glannaaksturs með
þvl að elta þá á enn meiri
hraða. Megi telja mestu mildi
að þarna hefði ekki orðið stór-
slys.
Dagblaðið spurði lögreglu-
stjórann í Reykjavík, Sigurjón
Sigurðsson, hvort lögreglu-
menn hefðu fyrirskipun um að
elta menn uppi, hvað sem það
kostaði.
„Nei, ekki hvað sem það
kostar. Það er matsatriði
hverju sinni og lögreglumenn
hafa tiltölulega frjálsar hendur
með ákvörðun í því sambandi.“
— Nú hefur verið haldið
fram, m.a. af lögreglumönnum,
að þarna hafi lögreglumenn-
irnir beinlinis ýtt undir glanna-
akstur í stað þess að kalla til
meira lið?
„Hvaða íögreglumenn hafa
sagt það?“
— Það segi ég auðvitað ekki.
„Nei, en á bifreiðum lögregl-
unnar í Reykjavik eru yfirleitt
vanir og reyndir menn og ég
hef enga ástæðu til þess að ætla
að þeir hafi tekið rangt á þessu
máli.“
— HP.
Hstaverkin voru óttu: Myndhöggvarar
vilja sérstakan garð fyrir
menn með skemmdarfýsn
íbúar Reykjavíkur eru
haldnir meiri skemmdarfýsn
en íbúar landsbyggðarinnar. 1
fréttatilkynningu frá Mynd-
höggvarafélaginu í Reykjavík
kemur fram að átta myndir,
sem voru sýndar á Lækjartorgi
í tilefni Listahátíðar 1976,
skemmdust eða eyðilögðust al-
veg, þrátt fyrir það að lögreglan
hafði gefið vilyrði fyrir að hún
myndi standa vörð um verkin.
Vill félagið að komið veröi upp
afgirtum skemmtigarði þar sem
þessir vesalingar, sem haldnir
eru þessari afbrigðilegu
skemmdarfýsn, geti fengið út-
rás með því að fara í skítkast,
brotið flöskur, beyglað bílhræ
og drukkið sitt brennivín.
Myndhöggvarafélagið hefur
haldið fjölmargar sýningar á
síðustu árum víðsvegar um
landið, og það var fróðlegur
samanburður við höfuðborgina
að ekkert verkanna á þeim sýn-
ingum var skemmt. Segið þið
svo að dreifbýlisfólk kunni
ekki að meta list!
— KL
Húsbruninn í Gljúf urholti í Ólf usi
Orsök brunans enn óljós
Ekkert hefur komið fram,
sem bendir til þess hver hafi
verið orsök brunans að Gljúfur-
holti í Ölfusi á sunnudagsmorg-
uninn. Að sögn lögreglunnar á
Selfossi brann húsið til kaldra
kola og engin verksummerki er
að sjá.
Jörðin Gljúfurholt hafði
nýlega verið seld Reykvíkingi
nokkrum, sem hugðist reka þar
félagsbú ásamt tveimur öðrum
mönnum. Ætlaði hann sjálfur
að leggja fram jörð, hús og
vélar, en bústofn allir að jöfnu.
Þegar húsið — annað tveggja
gamalla íbúðarhúsa á jörðinni
— brann, var verið að vinna að
endurbótum á því og hafði tölu-
verðu verið kostað til. Hefur
augljóslega orðió töluvert tjón
við þennan bruna, því húsið var
aðeins tryggt fyrir liðlega 3,5
milljónir króna.
Lögreglan á Selfossi vill ekki
útiloka þann möguleika, að um
sjálfsíkveikju hafi verið að
ræða. í húsinu sem brann var
rafmagnsinntak fyrir bæði
gömlu húsin og eins nýtt
ibúðarhús, sem fyrrverandi eig-
andi byggði.
Hinn nýi eigandi keypti
jörðina fyrr í þessum mánuði
og hefur afsali ekki verið þing-
l.vst. — ÓV.
Valkyrjurnar er tvímæla-
laust með lélegri afþreyingar-
efni, sem flutt hefur verið
hingað til lands. I fyrsta lagi er
hún svo fáránlega barnaleg og
áætlanir allar svo einfaldar að
hvert barn hefði getað upp-
hugsaö þær. Það er því næsta
kátbroslegt að hún skilli vera
bönnuð yngri en 16 ára þegar
nær væri að segja að eldri en 14
væri óheimill aðgangur. Þá er
efnisþráður kvikmyndarinnar
þannig að lugir ef ekki
hundruð m.vnda hafa verið
gerðar um sarna efni. Og þeir
inenn sem unnu að gerð kvik-
inyndar þessarar hafa gætt þess
vandlega að koma ekki með eitt
einasta frumlegt atriöi. Siigu-
Við afhendingu nýja neyðarsjúkrabílsins. Rúnar Bjarnason, Ragnheiður Guðmundsdóttir læknir,
Jóna Hansen og Guðrún Holt, en þær eru í sjúkraflutninganefnd R.víkurdeildar RKÍ.
—DB-mvnd Ragnar Th.Sig.
4,2 MILLJ. KRÓNA NEYÐ-
ARSJÚKRABÍLL AFHENTUR
í gær bættist ný og glæsileg
bifreið í sjúkrabifreiða,,flota“
höfuðborgarinnar. Reykjavíkur-
deild RKÍ afhenti bilinn sjúkra-
flutningadeild Slökkvistöðvar-
innar og veitti Rúnar Bjarnason
slökkviliðsstjóri bílnum viðtöku.
Hinn nýi bíll er ætlaður til
neyðarsjúkraflutninga. Hann er
mjög sterkbyggður og vandaður
að allri gerð og á að komast leiðar
sinnar í vondri færð og við erfiðar
aðstæður, þar sem aðrir sjúkrabíl-
ar eiga örðugt með að komast
leiðar sinnar. Bifreiðin er af GMC
gerð, en uppbyggður og innrétt-
aður í Noregi hjá sama fyrirtæki
og útbjó neyðarbílinn, sem Blaða-
mannafélagið gekkst fyrir söfnun
á og er í notkun á Stór-
Reykjavikursvæðinu.
Reykjavíkurdeild RKÍ hefur
lengi annazt alla sjúkraflutninga
hér í borg með aðstoð Slökkviliðs-
ins. Hefur deildin keypt flesta
bílana og annazt viðhald þeirra og
rekstur. Er þetta aðalverkefni
deildarinnar ár hvert.
Að fá þennan bíl til landsins
var mikið átak og erfitt. Bíllinn
kostaði hingað komin 4.2 millj. kr.
og reyndist það deildinni ofviða
að leysa bílinn út. Fjárveitinga-
nefnd Alþingis felldi loks niður
þráðurinn er eitthvað á þessa
leið:
Geimferðaáætlun Bandáríkja-
manna er ógnað af einhverj-
um biluðum manni. Grunur
leikur strax á því að þetta hljóti
að vera einn af f.vrrverandi
starfsmönnum öryggisþjónust-
unnar. Hann er búinn að koma
sér fyrir á afskekktri eyju og
telja háttsettir karlmenn í
Washington að erfitt verði að
komast að honum. Tölva er
fengin til að velja njósnara til
að eyðileggja þessa áætlun
mannsins, sem heitir Eamon
O'Reilly. Hún ákveður strax að
það séu aðeins Valkyrjurnar
sem unnið geti á slíkum nianni.
Sveitin er skipuð 6 fræknum
konum. Þær koma saman til að
vinna að ákveðnum verkefnum
en starfa þess á milli sem
nektardansmeyjar, sáltræð-
ingar og bókasafnsverðir svo
nokkuð sé nefnt.
Allar eru þetta hinar ítur-
vöxnustu meyjar og hvarflar
ósjálfrátt að áhorfandanum að
þetta séu einhverjar gogo
stúlkur sem aldrei hafi komið á
svið. Leikur þeirra er svo
hörmulegur, með einni eða
tveimur undantekningum, að
ekki er unnt að sannfærast eitt
augnablik að um alvöru sé að
ræða.
Það sem eftir er myndar-
innar gengur út á að sýna þær
aöferöir sem þær beita til að
vinna bug á ógnvaldinum. Að
sjálfsögðu kemur í Ijós að for-
ingi Valkyrjanna hafði áður
verið góð vinkona O’Reillý, sem
heldur bandarisku öryggisþjón-
ustunni i stöðugum ótta.
aðflutningsgjöld af bílnum og
söluskatt, samtalsum 1,8 milljónir
króna. Með þeirri afgreiðslu mála
tókst loks að fá bilinn 1 notkun á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Aðaltekjur RKÍ deildarinnar i
Reykjavík eru af skyndihapp-
drættinu kunna og af spilakössum
sem víða eru uppi. Má því segja
að allir sem þátt taka í þessum
fjáröflunarleiðum Reykjavikur-
deildar RKÍ leggi sjúkraflutning-
um í borginni lið, sagði
Ragnheiður Guðmundsdóttir
form. deildarinnar, er bíllinn var
afhentur i gær.
—ASt.
Myndin sýnir heiimörg dráp
og kunna þau að verka trufl-
andi á áhorfendur. Því er hins
vegar ekki að neita að sökum
þess hvað myndin er afspyrnu
léleg verður ekki eitt einasta
atriði alveg sannfærandi.
Eitt verður að segja mynd-
inni til góðs, að þeir sem sáu
um litina í henni hafa unnið
allsæmilegt verk.
— BA.
Endalous
þvœla
HAFNARBiÓ
Valkyrjurnar, handarisk litkvikmynd.
Íslendingar hafa í mörg ár
sætt sig við að sjá öllu lélegri
kvikmyndir á skjánum en þeir
horfa á í kvikmyndahúsum.
Það er hins vegar þannig komið
í dag að m.vndin Valkyrjurnar á
varla sinn jafnoka i hópi kvik-
mynda sem sjönvarpið hefur
sýnt. Er óhætt að segja að þeir.
sent vilja l'á skemmtun eða af-
þreyingu af biöferö fá hvorugt
við að s|á þessa inynd