Dagblaðið - 10.07.1976, Qupperneq 3
DAC.BLAÐIÐ — LAUGARDACUR 10. JULÍ 1976.
Raddir
lesenda
Bíðum eftír svari
frá Kópavogsbœ
— segia
krakkarnir í
unglinga-
vinnunni
Halldóra Ólafsdóttir hringdi:
Ég er ein úr hópi þeirra
unglinga, sem vinna í unglinga-
vinnunni í Kópavogi. Eins og
flestum er kunnugt tókum við
okkur til og mótmæltum þeim
kjörum, sem við eigum við að
búa. Okkur er greitt smánar-
kaup, tuttugu þúsund krónur á
mánuði. Við þurfum að standa
úti í hvernig veðri sem er og við
höfum enga aðstöðu þar sem
við getum boröað nestið okkar.
Við marséruðum sem sagt til
ráðamanna bæjarins og vildum
fá leiðréttingu mála okkar. Við
áttum að fá svar 7. júlí. Við
mættum á tilsettum tíma og
biðum eftir því hverju forráða-
mennirnir svöruðu okkur. En,
viti menn, þeir gátu ekki gefið
okkur neitt svar. Sögðu að þeir
yrðu að fá frest og það um
óákveðinn tíma. Þeir ætla að
halda okkur á þessu kaupi sem
lengst og auðvitað hagnast þeir
á því að þurfa ekki að borga
okkur hærra kaup á meðan.
í sumum hópunum hafa
næstum allir sagt upp og eru
hættir að vinna í mótmæla-
skyni. Hópur sem í voru 15
stúlkur hefur nú leystst upp og
nú eru aðeins 3 eftir. Mér
finnst þetta ekki hægt að fara
svona með okkur. Þeir hljóta að
geta gefið okkur svar, það ætti
varla að vera þeim ofviða.
Unglingarnir marséruðu til yfirvaldsins í Kópavogi.
Fró Vellinum streyma eiturlyf og alls konar munir
Við œttum oð
krefjast skaðobóto
Helgi skrifar:
Fyrir ekki löngu töldu
menn sjálfum sér trú um.að
bandaríski herinn á íslandi
væri hér til að verja okkur. Við
legðum til land okkar i staðinn
fyrir þessa vörn. Þannig tækj-
um við einnig þátt í vörnum
fyrir vestræna menningu.
Þegar maður gáir betur að og
tekur tillit til fenginnar
reynslu þá virðist þetta ekki
vera að öllu leyti rétt. Hvað
vörnum okkar viðkemur þá
hlýtur að vera ofarlega í huga
aðgerðarleysi Bandaríkja-
manna þegar Englendingar
beittu okkur ofbeldi og árásum.
Svo við snúum okkur að
vestrænni menningu þá er ljóst
að stór hluti þeirra manna, sem
þykjast vera að vernda
vestræna menningu, eru alls
ekki vestrænir menn. Hér er
um að ræða hálf siðaða villi-
menn í hermannabúningum,
sem koma frá sjúkum þjóð-
félögum sem eru menguð allra
þjóða kvikindum.
Öllum þorra íslendinga er nú
orðið ljóst að vera hersins á
Islandi er fyrst'og fremst í þágu
Bandaríkjanna sjálfra. Þetta er
staðreyndin allt frá stríðsárun-
um. Bandaríkin skulda okkur
fýrir aðstöðuna allan þennan
tíma. Það er því ljóst að þeim
hefur verið leyft að vera hér
frítt. Eins kemur eðlilega til
mála að fara fram á skaðabætur
fyrir það sem þjóð og einstakl-
ingar hafa orðið fyrir af
völdum hersetunnar, t.d. vegna
fíknilyfjadreifingarinnar frá
Veílinum og alls konar hluta
pem streyma þaðan út.
Hvers konar
fréttamennska
er þetfa
eiginlega?
Leifur Vilhjálmsson, Vest-
mannaeyjum, hringdi:
Mikið finnst mér hryllilega
ósmekklegt að birta frétt eins
og eitt blaðið gerði í sambandi
við dauða Guðjóns Atla. Þar
segír að hann hafi hlotið 40
dóma fyrir brot til ársins 1960.
Hvers konar fréttamennska er
þetta svo ósmekklegt að ég get
ekki orða bundizt. Er
aldrei hugsað um aðstandendur
fólks? Maðurinn hefur að
likindum hlotið sinn dóm og
það er í öllum tilfellum nóg.
Þetta eru orðin 16 ár síðan
hann hlaut sinn síðasta dóm og
hvers vegna í ósköpunum er
verið að grafa þetta upp? Eru
örlög þessa manns ekki nógu
slæm, þó ekki sé farið að tíunda
allt hans líf daginn eftir
að hann lézt ?
Það má vera að blaðið hafi
sel/.t örlítið betur fyi ir bragðið,
en með svona áframhaldi held
ég að það lapi. þegar á heildina
er litið.
Sigurgeir Sigmundsson 8 ára:
Nei, helzt ekki. Ég hef farið til
Mallorka og þar var ekki hægt að
gera næstum eins mikið og hér
heima hjá mér.
Margrét Sigmundsdóttir 5 ára:.
Já, ég hef verið í útlöndum og þar
voru páfagaukar sem gátu hjólað
á bandi og verið I bllaleik.
Spurning
dagsins
Vildirþú eiga
heimaíútlöndum?
Helga Vala Gunnarsdóttir 4 ára:
Það er einn strákur sem ég þekki,
hann átti heima I útlöndum. Eg
veit ekki hvort honum fannst
gaman. Kannski vildi ég eiga,
heima þar.
Haildóra Einarsdóttir 7 ára: Nei,
ég er viss um að það er ekkert
skemmtilegt þar.
Guðrún Bryndís Hafsteinsdóttir 7
ára: Já, ég vildi sko eiga lieima
þar sem sól er. Þá væri ég brún.
Annars vildi ég ekki eiga heima á
Tenerife, þar var ekki nógu mikil
sól.
Olafur Sverrisson 11 ára: Nei,
alls ekki. Þar er svo mikil
mengun. Eg hef aldrei farið til
útlanda. en mig langar mest til
Israel. þeir eru svo ofsa klárir
þar.