Dagblaðið - 10.07.1976, Blaðsíða 6
()
uaíjblaðh) — lau(;ardaí;uk 10. julI 1976.
Friðrik Ólafsson í samtali við DB:
„NÝJA AFBRIGDIÐ MITT
VERÐUR EKKI LANGLÍFT"
Fyrstu verðloun um 300 þús. ísl. krónur
,,Það verður engu spáð um
þetta mót ennþá því það er svo
stutt á veg komið,“ sagði
Friðrik Ólafsson stórmeistari í
símtali við Dagblaðið í gær. „Ef
maður heldur svona áfram —
ég á þá við okkur Guðmund
báða, ættum við báðir að lenda
ofarlega í röðinni."
„1 fyrstu umferðinni náði ég
vinningi gegn Donner,“ sagði
Friðrik. ,,Ég hafði allan tímann
betri stöðu. 1 næstu umferð
hafði ég svart gegn Szabo frá
Ungverjalandi. Ég stóð betur í
þeirri skák, var kominn peði
yfir. Á móti átti hann sóknar-
möguleika og þá notfærði hann
til að þráskáka og þannig að
þvinga fram jafntefli.
1 3. umferðinni á fimmtu-
dagskvöldið tefldi ég með hvítu
gegn Ligterink frá Hollandi.
Upp kom Sikileyjarvörn. I 5.
leik beitti ég nýjung sem er
mitt hugarfóstur. Það reyndist
ekki vel. Skákin leystist upp og
bauð ekki upp á frekari mögu-
leika. Eg held þetta nýja af-
brigði mitt verði ekki langlíft,"
sagði Friðrik.
Og Friðrik hélt áfram:
„Guðmundur vann Böhm i 1.
umferð. Skákin var róleg en
undiraldan þung. Loks náði
Guðmundur algjörum yfir-
burðum.
í 2. umferð mætti hann
Miles. Þar gerðist ekkert sér-
stakt og skákin varð dautt jafn-
tefli. Það sama gerðist i 3. umf.
er hann mætti Ree. Skákin
stefndi frá byrjun í jafntefli."
Á IBM-mótinu tefla 11 stór-
meistarar og 5 alþjóðlegir
meistarar. Fyrstu verðlaun eru
um 300.000 ísl. kr„ en átta efstu
fá verðlaun. Friðrik kvað óvar-
legt að kveða upp dóma um
getu einstakra skákmanna svo
snemma móls. „Kortsnoj virtist
ekki taka mótið með neinu
áhlaupi. Hann teflir „upp og
niður,“ fær oft slæmar stöður
en sleppur oftast vel frá þeim.
Þetta er hans vani.
Miles er nýbakaður stór-
meistari og kann að vera lík-
legúr til alls. Donner er afar
misjafn. Annaðhvort skrapar
hann botninn eða er í efstu
sætunum. Millivegur er ekki til
hjá honum.
Af Hollendingunum lízt mér
bezt á Ligterink. Hann er um
tvítugt en hefur gott auga og ég
spái að þar sé mesta efni Hol-
lendinga á ferð
Töfluröðin á IBM-mótinu er
þessi:
1. Ree Hollandi, 2. Farago Ung-
verjal., 3. Guðmundur, 4.
Langeweg Hollandi, 5. Kurajica
Júgósl., 6. Friðrik, 7. Gipslis
Sovét, 8. Ivkov Júgóslavíu, 9.
verimirovic Júgóslaviu, 10.
Sachs Ungverjal., 11. Donner
Hollandi, 12. Szabo Ungverjal.,
13. Ligterink Hollandi, 14.
Böhm Hollandi, 15. Miles Eng-
lafldi, 16. Kortsnoj Sovét.
Staðan í mótinu er nú: 1—7.
Friðrik, Guðmundur, Kurajica,
Ligterink, Miles, Farago og
Kortsnoj, allir með 2 vinninga,
8.—11. Gipslis, Verimirovic,
Szabo og Ivkov 1'á vinning,
12.—15. Böhm, Sachs, Ree og
Donner 1 vinning hver og 16.
Langeweg 0 —ASt.
„Iðjuleysi er
minn versti óvinur"
— segir Gunnar Bjornoson, listamoður með meiru
„Ég hef aldrei átt bágt, þrátt
fyrir alla mína rúmlegu og það
hef ég fengið frá móður minni,
sem ein ól okkur upp níu systkin-
in og hefur alla tíða verið mikil
starfskona. Jafnvel enn þann dag
í dag býr hún til hin fegurstu
eingirnissjöl þó komin sé á
níræðisaldur.”
Sá sem þessi orð mælir er
Gunnar Bjarnason, „alt mulig
mand“ eins og kalla mætti hann.
Gunnar heldur um þessar mundir
sýningu að Þrastarlundi, en sá
staður stendur einmitt i landi
öndverðarness, þar sem Gunnar
ólst upp. Á sýningunni eru vatns-
litamyndir, olíumálverk, listaverk
úr járnteinum, að ógleymdum sól-
um búnum til úr hóffjöðrum, sem
að sögn Gunnars lýsa undur-
fallega í allar áttir, þegar birta
fellur á þær. Sýningin mun
standa til 16. júlí nk.
Er hann lá á Landspítalan-
um fékk hann með aðstoð Snorra
Hallgrímssonar fyrrv. yfirlæknis
útbúna málaragrind á hjólum,
sem síðan var sett yfir rúm hans
og þar málaði hann flestar vatns-
litamynda sinn. Gunnar hefur
fengizt við margs konar handa-
vinnu. tióknað og hnýtt teppi o.fl.
Undanfarin tvö ár hefur hann
venð vistmaður að Reykjalundi
og í sameiginlegu svefn- og vinnu-
herbergi sínu hefur hann ekki
setið aðgerðarlaus.
1 dag er Gunnar 52 ára gamall,
hress og bjartsýnn á tilveruna
þrátt fyrir stóra uppskurði og
lörnun sem hann á að baki og hafa
skilið eftir sig ýmis óþægindi. Og
hann hyggst halda áfram af full-
um krafti við listiðn sína enda á
hann hæfileikana ekki langt að
sækja, þar sem í ætt hans má
finna ýmis þekkt nöfn á því
sviði, svo sem Jóhannes Kjarval,
Sigurjón Ölafsson og fleiri. —jb
‘Þarna stendur Gunnar með eina
af sólum sínum sem útbúnar eru
úr hóffjöðrum.
Rallið — dýrt gaman
fyrirmarga
Fíatbifreið sigurvegara rally-
bifreiðakeppninnar 1975 er nú
komin á verkstæði eftir að hún
ók út af í keppninni í ár. Vegna
þessa var bíllinn úr leik þar eð
hann missti oliu og gat þvi engan
veginn haldið áfram.
Réttingarkostnaðurinn á bif-
reiðinni mun nema hátt á annað
hundruð þús. krónum. Eigend-
ur rally-bifreiðanna munu hafa
haft 75.000 króna sjálfsáhættu en
mismuninn borga tryggingafélög.
Að sögn framkvæmdastjóra
FlB, sem stóð fyrir rallinu,
hefur félagið engar tölur yfir við-
gerðarkostnað á bifreiðum vegna
skemmda, en öruggt má telja að
ýmsir hafa þurft að létta pyngj-
una verulega eftir keppnina. - AT
Bíll sigurvegarans frá 1975 er nú á verkstæði. Réttingin á honum og
aðrar viðgerðir kosta hátt á annað hundrað þúsund krónur, að
minnsta kosti. DB-mynd Arni Páll.
SUNDLAUG 0G ÍÞRÓTTASALUR
verða í nýja sjúkrahúsinu ú ísafirði
Tveir aðilar gerðu tilboð í að
reisa og gera fokhelda heilsu-
gæzlustöð og sjúkrahús á tsa-
firði. Tilboð byggingarfélagsins
Armannsfells í Reykjavík var
297.599.223 kr. og Kubbs hf. á
ísafirði 332.240.962 kr.
Viðræður eru hafnar við
Ármannsfell, en verkinu skal
lokið 15. des. 1978.
Þessar upplýsingar fengum
við hjá Innkaupastofnun ríkis-
ins, sem bauð verkið út.
Við ræddum við Harald
Helgason arkitekt hjá teikni-
stofu Jes Einars Þorsteins-
sonar, en þeir tveir gerðu teikn-
ingar að spítalanum. Sagði
hann að gert væri ráð fyrir þvi
að í byggingunni yrði unnt að
hafa alhliða heilsugæzlu, heil-
brigðiseftirlit, lækningarann-
sóknir, lækningar og endur-
hæfingarstarf. Dvalarheimili
aldraðra ætti að rísa þarna rétt
hjá og yrði sameiginleg aðstaða
fyrir hvort tveggja í þvottahúsi,
eldhúsi og í endurhæfingu, 1
sambandi við endurhæfingu
verður í sjúkrahúsinu bæði
sundlaug og íþróttasalur sem er
óvíða til á landinu.
„Öll aðstaða fyrir starfsfólk
verður mjög góð og búningsher-
bergi mjög fullkomin," sagði
Haraldur.
Grunnflötur hússins verður
1940 fermetrar, en það verður
þrjár hæðir plús fjórða hæð,
sem verður minni að grunn-
fleti. Alls verða þetta 6180 fer-
metrar, en 28 þús, rúmmetrar.
A efstu hæðinni verur bóka-
safn og sex gistiherbergi fyrir
aðstandendur sjúklinga, sem
ekki eru búsettir á Isafirði. Þau
mætti einnig nota fyrir kandi-
data og sérfræðinga. Heildar-
fjöldi sjúklinga getur orðið 56.
„Enginn vegur er að segja til
um hvenær húsið verður til-
búið, en um leið og ei'nhver
hluti þess verður tilbúinn
verður hann tekinn i notkun,
því að þörfih er mikil fyrir
sjúkrahús úti á landi,“ sagði
Örn Bjarnason hjá heilbrigðis-
ráðuneytinu. Hann er læknir og
hefur haft með þetta nýja
sjúkrahús að gera. Hann sagði
að það þyrfti sannarlega að
bæta aðstöðuna fyrir heilsu-
gæzlu ísafjarðar og nágrennis,
en nýi spitalinn verður einnig
sjúkrahús Vestfirðinga ásamt
sjúkrahúsinu á Patreksfirði.
„Gamla sjúkrahúsið á tsa-
firði, sem Vilmundur Jónsson
fyrrverandi landlæknir lét
reisa, var byggt með miklum
myndarbrag, og hefur rúm
fyrir um 40 sjúklinga,“ sagði
Örn, „en það var haldið upp á
50 ára afmæli hússins í fyrra.
Aðal gallinn á þessum gömlu
spítölum er að ekkert rými er
fyrir aukin tæki og rannsókna-
útbúnað."
Gerð hefur verið mjög
nákvæm athugun á stækkunar-
möguleikum en ekki hefur þótt
fært að byggja við það. Auk
þess er svæðið 1 kringum spítal-
ann þröngt og annað meira, —
það er friðlýst. Þannig háttar
til, að neðan við sjúkrahúsið er
dálitill hóll, rúst landnema-
bæjarins Eyrar við Skutuls-
fjörð (nú ísafjörður). Kaup-
staðurinn keypti prestssetrið,
sem stóð þarna, 20. júní 1871.
Skömmu síðar var það rifið.
Sumir bæjarstjórnarmenn
vildu ekki að sjúkrahúsið yrði
b.vggt á hólnum, ef ske kynni að
einhver vildi leita þarna forn-
minja. Þjóðminjavörður frið-
lýsti síðan staðinn. Á bæjar-
hólnum stendur nú minnis-
merki sjómanna.
—F.VI