Dagblaðið - 10.07.1976, Side 15
DAGBLAÐIÐ — LAUC.ARDAdUK 10. JULl 1976.
Eins og &omið hefur fram í
fréttum hafa gífurlegir hitar
verið í Vestur-Evrópu undan-.
farnar vikur. Þurrkarnir eru
enn ekki farnir að hafa úrslita-
áhrif, en ef úrkomu er ekki að
vænta innan skamms, má búast
við því að öll uppskera, hverju
nafni sem hún nefnist, muni
eyðileggjast.
Fjöldi fólks hefur látið lífið,
annað hvort úr sólsting eða
hjartaslagi, og þá er það
algengt að fólk hreinlega missi
meðvitund í bílum sínum, sér-
staklega ef . umferðartafir
verða á hraðbrautum.
Hins vegar er kannski hægt
að sjá einhverjar ljósari hliðar
á þessu öllu saman. Allar úti-
hátíðir hefur verið hægt að
halda án þess að óttast úrkomu
en þá hefur þótt vissara að hafa
eitthvað við höndina til þess að
svala þorstanum.
Þessi mynd er tekin á
popptónleikum í Danmörku, en
eins og kunnugt er fara þar-
lendir ekki langt án þess að
hafa bjórinn innan seilingar.
Búizt við langri dvöl í Saljut 5
Geimfararnir rússnesku. Boris Volynov
og Vitalij Zjolobov, hafa nú komið sér
fyrir í geimstöðinni og búast má við að
þeir muni dvelja þar iangdvölum.
Eins er búizt við því að þeir féiagar fái
brátt heimsókn og mun þá verða í fyrsta
sinn gerð tilraun með þrjú geimskip úti í
himingeimnum.
Hódegisverður í Beirút
myndir og einhvern veginn
dettur okkur, sem búum svo
langt frá öllu sem stríð nefnist.
í hug, að fólk þurfi eða hafi
varla tíma til þess að snæða
mitt í öllum þessum ólátum.
Hér má sjá venjulega
húsmóður undirbúa hádegis-
verðinn ásamt syni sínum. Her-
sveitir kristinna manna hafa
þótt vel búnar vopnum og nú
hefur baráttan snúizt þeim í
hag.
Hins vegar er landið að
leggjast i rústir og eflaust mun
langur tími liða þar til varan-
legur friður kemst á.
Borgarastyrjöldin í Líbanon
hefur tekið á sig margar
ERLEND
MYNDSJÁ
15
Tveirflugvéla
rœningjanna?
Baader Meinhof skæruliða-
samtökin teygja arma sína
greinilega víða um heim og eiga
sér stuðningsmenn meðal
róttækra byltingarsinna . Þessi
tvö ungmenni, Wilfred Boese
og Gabriele Kroecher, hafa
verið nefnd í sambandi við
flugránið á Entebbe-
flugvellinum og er þeirra nú
ákaft leitað af lögreglunni í V1
Þýzkalandi, sem um þessar
mundir hefur nóg á sinni
könnu, þar eð fjöldi hermdar-
verkamanna ganga þar nú
lausir.
ssm
HRÓP, SKOTHVELUR OG SÍÐAN BJÖRGUN Á ENTEBBE
Þannig hugsar teiknarinn sér er hermenn Israels réðust þar og hermanna Uganda. Þeir
að viðbrögðin huli verið í til inngöngu til þess að bjarga komu um miðja nótt er flestir
gömlu flugstöðvarbyggingunni gíslunum úr höndum skæruliða voru sofandi og voru horfnir
eftir nákvæmlega 36 mínútur
með alla gíslana nema þá þrjá
sem létu lífið. Sjö af skæru-
liðunum féllu og líklega einir
tuttugu hermenn frá Uganda.